Morgunblaðið - 29.04.2000, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 29.04.2000, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29..APRÍL 2000 69 ÍDAG FRÉTTIR ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudag- inn 29. apríl, verður áttatíu og fimm ára Valgerður Jónasddttir, Dvalarheim- ilinu Hlíð, Akureyri. Eig- inmaður hennar er Krist- ján Stefánsson. ÁRA afmæli. Nk. þriðjudag, 2. maí, verður fimmtugur Jökull Sigurðsson, Hlégerði 12, Kópavogi. Eiginkona hans er Kristín H. Andrésdótt- ir. Þau taka á móti gestum í sal á Vörubílastöðinni Þrótti, Sævarhöfða 12, á morgun, sunnudag 30. apríl frá kl. 19. ÁRA afmæli. í dag, laugardaginn 29. apríl, er fimmtugur Guð- mundur Björnsson, lög- fræðingur, Tunguvegi 6, Hafnarfírði. í tilefni af- mælisins mun Húni II sigla með afmælisgesti frá Norðurbakka, Hafnar- firði, kl. 17 í dag. BRIPS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson ALMENNT er talið að hálf- slemma þurfi að vera a.m.k. 50% til að vera réttlætanleg. Ekki er einfalt mái að reikna út vinningslíkur suðurs í sex spöðum í spili dagsins, en maður hefur á tilfinningunni að slemman skríði yfir 50% þegar allt er tínt til. Spilið kom upp í sjöttu umferð ís- landsmótsins: Suður gefur; NS á hættu. Norður + KD »K72 ♦ A1042 + DG72 Vestur Austur A 3 * 10876 v D93 r G86 ♦ G87653 ♦ 9 + 985 + ÁK1043 Suður + ÁG9542 v Á1054 ♦ KD + 6 r sá ekki ástæðu til annars en að hlýða því kalli og kom út með smátt lauf. Austur tók slaginn og spilaði trompi um hæl. Og nú stendur slemman. Sagnhafi tók öll trompin (stakk lauf heim í millitið- inni) og þvingaði andstæð- ingana til að gefa frá sér hjartavaldið. Vestur varð að halda í tígulgosann fjórða og austur í hæsta lauf, svo hvorugur gat varið hjartalit- inn. Dæmigerð tvöföld þvingun. Ef austur skiptir hins vegar yfir í smátt hjarta í öðrum slag, þá brýt- ur hann upp samganginn og spilið tapast. Slemman vannst einnig á hinu borðinu, en þar kom út tígull. Sagnhafi tók þá ein- faldlega trompin, henti síð- an laufi niður í tígulás og treysti á að hjartað gæfi aukaslag. Sem það gerði. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara íyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síman- úmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heiila, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á Ieik. ÞESSI spennandi staða kom upp á milli bosníska stórmeistarans Ivans Soko- lov, hvítt, (2637) og Þjóð- verjans Torsten Sarbok (2285) á nýloknu Reykja- víkurskákmóti. Þrátt fyrir að svartur hafi tvo sam- stæða frelsingja og skipta- mun yfir stendur hann höll- um fæti þar sem hvítur hótar Hd7-d8. Þjóðverjan- um tókst að finna einu leið- ina til að halda taflinu gangandi: 41...Hgl!+ 42.Kh3! Hcl!! Stórkostleg hugmynd sem byggist á að draga hrókinn til baka á áttundu reitaröð- ina. Hið eðlilega 42...b2 leiðir til taps eftir 43.Hd8 Hg8 44.Da8! 43.Hd8 Hc8! 44.Rxc8 Dg8?? Hrapalleg mistök þar sem 44...Hxd8 hefði dugað til jafnteflis: 45.Dxd8+ Dg8 46.Dd7 b2 47.Rd6 bl=D 48. Rxf7+ Kh7 og hvítur verður að þráleika. 45.Hxf8 Dxf8 46.Rd6 b2 47.RxH+ Kg8 48.Rxe5+ Kh7 49. De4+ og svartur gafst upp. COSPER Nú hefur þú eitthvað alvarlegt á samviskunni, góði minn. LJOÐABROT Sólskríkjan Sú rödd var svo fögur, svo hugljúf og hrein, sem hljómaði til mín úr dálitlum runni. Hún sat þar um nætur og söng þar á grein svo sólfógur Ijóð um svo margt, sem ég unni, og kvöld eftir kvöld hóf hún ástarljóð ein. - Ó, ef að þú vissir, hvað mikið hún kunni. Hún kvað um sitt fjölbreytta fjalldala skraut, hve frítt er og rólegt að eiga þar heima, hve mjúkt er í júní í ljósgrænni laut, hve létt þar er vetrarins hörmum að gleyma og hvað þá er indælt við ættjarðarskaut um ástir og vonir að syngja og dreyma. En sætust af öllum og sigrandi blíð hún söng mér þar ljóðin um dalbúans næði, um lundinn sinn kæra og lynggróna hlíð, þó lítil og fátækleg væru þau bæði. En svipurinn hýrnar, þér sýnast þau fríð í syngjandi snjótittlings vornæturkvæði. Þorsteinn Erlingsson. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake * NAUTIÐ Afmælisbam dagsins: Þú mættir gjaman hugsa svolítið meira um þau andlegu verðmæti sem skipta mestu máli þegar a llt kemur til a IIs. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Vertu ekki að streða við hiut- ina einn í þínu horni þvi nú er það hópstarfið sem gildir. Leitaðu samstarfs því margt smátt gerir eitt stórt. Naut (20. apríl - 20. maí) \ Það freistar þín mjög að reyna eitthvað nýtt svo þú skalt fyrir alla muni láta það eftir þér. Varastu bara að leita iangt yfir skammt. Tvíburar t (21.maí-20.júní) AA Ef þú finnur til óánægju skaltu ekki byrgja hana innra með þér. Láttu engan þvinga þig til samkomulags heldur láttu í þér heyraA Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú færð fyrirspurn sem vek- ur þér undrun en munt síðar sjá að hún hafði duldar mein- ingar. Láttu ekkert trufla áætlun þína.\ Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú tekur að þér að leiða sam- ræður er snúast um alvarleg mál og skalt velja vandlega stað og stund. Þú þarft að eiga frumkvæðið í þessu máliA Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <fi£L Nú er að grípa tækifærið og gera tilboð í það sem þú hefur lengi haft augastað á. Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann á stuðningi þínum að haldaA 'tCTX (23. sept. - 22. október) ^4* Taktu þátt í hvetjandi sam- ræðum og uppbyggilegum því þær geta orðið til þess að opna augu þín varðandi þjóð- málin og þjálpað þér til að gera upp hug þinn. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þér vegnar vel ef þú vinnur undirbúningsvinnnuna þína. Einhver ágreiningur gæti komið upp varðandi heimilis- þrifin og þá er að komast að samkomulagi. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) flU Finndu út hvar þú best getur komið skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að hlust- að sé á þig. Ræddu málin við félaga þína og drífðu svo í hlutunum. Steingeit ^ (22. des. -19. janúar) 4MÉr Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Félagi þinn kemur með tillögur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu ekkert koma þér á óvart í dag. Vertu ekki stífur heldur reyndu að slá á létta strengi. Þú hefur gott af svo- lítilli tilbreytinguA Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ef þú vilt búa annarsstaðar skaltu velta því íyrir þér af hverju þú ert enn á sama staðnum. Tækifæri til breyt- inga býðst þér fyrr en varir. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Uthlutað úr Þróunar- sjóði leikskóla ÞRÓUNARSJÓÐUR leikskóla starfar samkvæmt reglum sem menntamálaráðherra setur á grund- velli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leik- skóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af nýrri aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og ný- breytni í leikskólum. í janúar var auglýst eftir umsókn- um um styrki til þróunarverkefna. Alls bárust 27 umsóknir og var sam- anlögð upphæð sú er sótt var um u.þ.b. 20 milljónir króna. Til ráðstöf- unar eru þrjár milljónir króna sam- kvæmt fjárlögum. Fjögurra manna ráðgjafamefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveit- ingar. í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla íslands, Félagi leik- skólakennara og menntamálaráðu- neytinu. Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu ráðgjafarnefndar- innar, að veita styrki að upphæð alls um kr. 2.950.000 kr. til samtals 10 verkefna. Eftirtalin verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði leikskóla í ár: Leikskólinn Amarsmári, Brynja B. Kristjánsdóttir, Frumkvæði,vin- átta, gleði, 300.000 kr.; Anna Mar- grét Olafsdóttir, Stærðfræði - leik- ur. Kennsluhefti, 200.000 kr.; Leikskólinn Dvergasteinn, Elín Mjöll Jónasdóttir, Samstarf mynd- listarskóla og leikskóla, 300.000 kr.; Leikskólinn Hulduberg, Þuríður Stefánsdóttir -Grænn leikskóli, 400.000 kr.; Leikskólinn Lundarsel, Guðrún Alda Harðardóttir, ísl. barnabókmenntir og þjóðsögur - heimspeki, 500.000 kr.; Leikskólinn Klettaborg, Lilja Eyþórsdóttir, „Leggjum orð í belg“, 100.000 kr.; Leikskólinn Pálmholt, Akureyri, Snjólaug Brjánsdóttir, Lestrarhvetj- andi umhverfi og lestramámskeið, 200.000 kr.; Leikskólar í Seljahverfi,. » Rannveig Auður Jóhannsdóttir, Sameiginleg sýn tveggja skólastiga, 500.000 kr.; Skólatröð - heilsuleik- skóli, Sigrún Jónsdóttir,Samstarf heilsuleikskóla og heilsugæslu, 250.000 kr.; og Steinunn Bjamadótt- ir, Böm foreldra af erlendum upp- mna og íslenskan, 200.000 kr. -------*-4-4----- Bilasala Evrópu með krónudaga EVRÓPA Bílasala verður með krónudaga í Faxafeni 8 helgina 29. - 30. apríl. Evrópa Bílasala er opin alla helg- ina og standa krónudagar frá kl. 10 á laugardagsmorgun og fram á sunnu- dagskvöld. Handbók Vist- verndar í verki gefín ut LANDVERND hefur gefið út ritið Vistvernd í verki, handbók GAP á íslandi. Jón Helgason, formaður Landvemdar, afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, eintak af handbókinni við afhendingu um- hverfisverðlauna frjálsra félagasam- taka á degi umhverfisins. Verkefnið Vistvernd í verki á ræt- ur að rekja til alþjóðlegs samstarfs sem hófst árið 1989 og gengur undir nafninu Global Action Plan (GAP). Handbók verkefnisins er gefin út af Landvemd í samstarfi við GAP og byggist efni hennar meðal annars á sambærilegum handbókum í Sví- þjóð, Bandaríkjunum, Noregi og Danmörku. Þuríður Þorbjamardóttir líffræð- ingur ritstýrði handbókinni í sam- starfi við um sextíu fjölskyldur um allt land. Lagerútsala verður haldin á frumbyggjavörum svo sem grtmum, styttum, girötfum, fllum, CD stöndum og mörgu fleiru. Skoöaöu slóðina. Stórlækkað verð. Opið Laugardag Og Sunnudag milli kl. 13 og 18. Visa Euro Debet. www.trumbyggjar.is Jóruseli 9,109 Rvk GSM 893 0737 Hverfisgata 6, T01 Reykjavik, simi 562 2862.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.