Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 60
 60 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 Full búð af nýjum vörum <9 Cinde^ella LAUGAVEGI 32 • SfMl 552 3636 2XlorjjunX»Iaíiií» AUGLÝSINGAÐEILD Simi: 569 1111, Bréfsímí: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Frumvarp til Alþingis NÚ liggiir fyrir Alþingi frumvarp er varðar rétt sam- kynhneigðra til ættleiðinga. Fram til þessa hafa hags- munir barna setið í fyrirrúmi við ættleiðingar. Það hef- ur verið lögð áhersla á að tryggja börnum heilbrigt og gott heimili. Þetta hefur orðið til þess að ekki hafa allir átt þess kost að ættleiða börn sem þess hafa óskað. Nú kveður við nýjan tón, ættleiðing er orðið réttindamál ákveðins hóps fólks. Samkynhneigðir vilja tryggja rétt sinn til að ættleiða börn með lögum og öðlast þannig „réttindi" sem tveir gagnkynhneigðir einstaklingar af sama kyni hafa ekki. Bræður eða systur sem búa saman hafa t.d. ekki slíkan „rétt“. Verði þetta frumvarp sam- þykkt er verið að gera lífsmáta samkynhneigðra jafn hátt undir höfði og hjónabandi karls og konu. í kjölfarið munu koma kröfur um að farið verði að kenna í skólum að þessi lífsmáti sé jafn réttur og samlíf karls og konu og börn jafnvel hvött til að láta á það reyna hvort henti þeim betur. Samkynhneigðir eiga að njóta allra rétt- inda til jafns við annað fólk, en lífsmáti þeirra getur aldrei orðið réttur, ekki einu sinni þó Alþingi samþykki það. Þetta heimilisform er ekki besta umhverfið fyrir börn að alast upp í. Ég vona að alþingismenn hafi þor til að hafna þessu frumvarpi. María. Jaðarfólk ÉG heyrði hluta af viðtali í útvarpinu þar sem talað var um fólk á jaðrinum og það væri með brotið þetta og hitt. Ég bara spyr hvers konar íslenska er þetta eig- inlega? Er þetta árangur rannsókna og kannana sem gerðar hafa verið? Margt fólk á nógu erfitt hér þó ekki sé verið að flokka það og stimpla. Þegar ég hugsa um þetta minnist ég orða öryrkja sem sagði mér að hann fengi afslátt af strætó- miðum þar sem stendur orðið öryrki á hverjum ein- asta miða. Hann talaði líka um aumingjakort, sem þurfti til að kaupa þessa miða og síðan talaði hann um sundkort og fleiri kort þar sem öryrkjar eiga rétt á afslætti. Honum fannst þetta óskaplega niðurlægj- andi og hafði orðið fyrir aðkasti vegna notkunar á þeim. Finnst mér að það ætti að hækka bætur ör- yrkja svo þeir geti borgað fyrir sig sjálfir. Hann talaði líka um að honum fyndist þetta vera eins og þegar Hitler lét setja stjörnur á Gyðingana. Það að tala um fólk á jaðrinum er mjög nið- urlægjandi. Hvernig væri að gera meira að því að hjálpa fátæku fólki og þeim sem erfitt eiga aftur inn á miðjuna og koma þannig í veg fyrir þau félagslegu vandamál sem íyigja því að vera ýtt út á ystu nöf? Það er ekki nóg að tala og tala um hlutina heldur verður að gera eitthvað. Við eigum öll sömu mannréttindi skilið. Sigrún. Þakklæti MIG langar að koma á framfæri þakklæti fyrir þættina á Norðurslóð sem eru á dagskrá Ríkissjón- varpsins á fimmtudags- kvöldum í umsjón Leifs Arnar Svavarssonar. Mjög góðir þættir. Einnig langar mig að þakka fyrir þættina Sáðmaður söngvanna í um- sjón Harðar Torfasonar á þriðjudögum á Rás 1, Kæri þú í umsjón Jónasar Jónas- sonar á þriðjudögum kl. 13 og Kvöldgestir einnig í um- sjón Jónasar Jónassonar á fostudagskvöldum kl. 23. Þetta eru allt alveg frábær- ir þættir. Hafið mínar bestu þakkir fyrir. Guðrún Angantýsdóttir. Stutt í spunann NU get ég ekki orða bund- ist, ég er svo reið að það sýður enn á mér síðan á laugardagskvöldið 29. apríl sl. Ég horfði á þáttinn Stutt í spunann í Ríkissjónvarp- inu og það gekk alveg aftur og fram af mér. I þættinum var maður settur í spenni- treyju og síðan var hann settur í plastpoka og lokað fyrir. Það var tekið fram í þættinum að fólk ætti ekki að leika þetta eftir heima. Ég á sjálf barnabörn og mér finnst þetta alveg forkastanlegt. Hefur Sjón- varpið ekkert betra að bjóða áskrifendum sínum? Helga Jörgensen. Áskorun til vesturfara ELDRI kona hafði sam- band við Velvakanda og langaði að skora á íslensku vesturfarana að vera í ís- lenskum lopapeysum á leið- inni, það íyndist sér vera við hæfi. Tapað/fundid Peningaveski tapaðist PENINGAVESKI gleymdist í versluninni 11- 11 Laugavegi 16 þriðjudag- inn 2. maí sl. Þeir sem hafa séð veskið vinsamlega komi því til skila í verslunina á Laugavegi 16 eða hringi í númerið sem skráð er í veskinu. Svartur leðurjakki tapaðist á Spotlight í BYRJUN mars var svart- ur leðurjakki tekinn í mis- gripum á Spotlight. Ung kona hafði samband við Spotlight og lét vita að hún væri með jakkann og skildi eftir símanúmer, sem glat- aðist síðan. Þessi sama unga stúlka er beðin að hafa samband í síma 557 6603. Eigandi jakkans er ungur skiptinemi hér á landi og saknar jakkans óskaplega. Gleraugnahús fannst GLERAUGNAHÚS fannst á bílastæðinu við Austurver við Háaleitisbraut laugar- daginn 29. apríl. sl. Upplýs- ingar í síma 5511383. Nokia GSM-sími tapaðist NOKIA GSM-sími týndist við Bíóborgina eða þar fyrir utan föstudagskvöldið 28. apríl sl. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 555 3089. Dökkgrænn plastpoki tapaðist FÖSTUDAGINN 28. apríl sl. um eftirmiðdaginn tók kona strætó við Hofsvalla- götuna. Hún uppgötvaði stuttu síðar að hún hafði tapað dökkgrænum poka sem hún var með. I pokan- um voru nýir ullarvettling- ar og svartir hanskar. Éf einhver hefur séð pokann er hann vinsamlegast beð- inn um að hafa samband í síma 587 6103. Ljósgrár kisi í óskilum LJÓSGRÁR bröndóttur kisi í óskilum í Laufrima í Grafarvogi. Ómerktur og einstaklega blíður. Upplýs- ingar í síma 587 2755. Dýrahald Dúska er týnd DÚSKA hefur ekki sést heima á Skólavörðuholti síðan á miðvikudaginn 26. apríl sl. Dúska er ársgömul læða, þrílit og eyrnamerkt, með gráa ól sem á er hylki. Þeir sem hafa orðið varir við Dúsku eru vinsamlegast beðnir að hafa samband i síma 552 7006. Blandaðir skógar- kettlingar fást gefins SJÖ vikna blandaðir skóg- arkettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 695 1485. SKAK Umsjón lielgi Áss Grétarsson Hollenski alþjóðlegi meist- arinn Harmen Jonkman (2.446) hóf XIX. Reykjavík- urskákmótið með miklum lát- um, en varð að endingu að sætta sig við 4'/z vinning. Meðfylgjandi staða er frá stærsta sigri hans á mótinu, en það var gegn eistneska stórmeistaranum Jaan Ehl- vest (2.621). 25. Re6! fxe6 26. Hxe6+ Kf8 26. - Kf7 gekk ekki upp vegna 27. He7+ og svarti hrókurinn á h7 fellur. 27. Hxe5 Hvítur hefur nú tvo samstæða frelsingja og peði meira sem Hollendingurinn nýtti sér til fulls. 27. - Hh4 28. Hd7 He8 29. Hxe8+ Kxe8 30. He7+ Kf8 31. e5 He4 32. Kd2! g5 33. Kd3 Hel 34. Kd4 He2 35. Hxb7 g4 36. Hg7 Hxh2 37. Hxg4 Hxc2 38. Hh4 Kf7 39. Hh7+ Ke6 40. He7+ Kf5 41. f7 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er afskaplega óhress með þær breytingar, sem gerð- ar hafa verið á verzlunum Baugs. Kjötborðið er horfið úr Hagkaupi og yfirleitt hefur viðskiptavinurinn af- skapleg mikið fjarlægzt stjórnendur verzlananna. Nú er t.d. hvorki hægt að fá ákveðið sænskt sinnep, sem Vík- verji hefur haft mikið dálæti á, og þarf hann nú að fara yfir í aðra verzl- un til þess að geta keypt það, Nóatún. XXX ETTA sinnep er kallað Slotts, eins konar hallarsinnep, ef menn þýða vörumerkið beint af sænskunni. Þótt verzlun Nýkaups í Kringlunni kalli sig drottningu íslenzkra verzl- ana er ekki hægt að fá þar hið sænska hallarsinnep, svo skrítið sem það nú er. Sé leitað skýringa hjá afgreiðslu- fólki er engar að fá og yfirleitt ypptir það bara öxlum og segir: „Það eru innkaupastjóramir hjá Baugi sem ráða þessu. Við fáum engu ráðið!“ Það var lóðið, innkaupastjóramir eru svo langt frá kúnnanum, að þeir heyra ekki óskir hans og því em þess- ar annars ágætu verzlanir að verða svo ópersónulegar sem þær em. Þær fjarlægjast kúnnann með hverri viku sem líður. Þetta er í sjálfu sér mjög sorgleg þróun og ekki í þeim anda, sem ríkti á tímum áður, þegar við- skiptavinimir oft og einatt gengu fram á Pálma heitinn Jónsson, stofn- anda Hagkaupsveldisins, í verzlun- inni sjálfri, þar sem hann hugaði að smáu sem stóm. XXX NNARS má kannski ekki alltaf gagnrýna verzlanir Baugs, því að margt er þar vel gert. Það er t.d. til mikillar fyrirmyndar í Nýkaupsverzl- uninni í Kringlunni, að hefja sölu á dönsku smurbrauði, sem er í senn Ijúffengt og alls ekki dýrt. Víkverji hefur oft nýtt sér þessa þjónustu, sem er til mikillar fyrirmyndar. I annan stað má einnig hrósa Nýkaupsverzluninni fyrir að kaupa til landsins og selja hinn danska úrvals- ost „Pikant" frá íyrirtækinu Buko. Þessi ostur er afskaplega góður og hefur ekki fengizt á Islandi í alllangan tíma eða frá því Mjólkurbú Flóa- manna hætti að framleiða hann undir sínu nafni. Víkverji saknaði þess mjög er Flóabúið hætti að framleiða hann, og er hann spurðist íyrir um ástæður þess var svarið að ekki hefði verið nægileg eftirspum. Það virðist þó vera næg eftirspurn eftir innflutn- ingnum hjá Nýkaupsverzluninni í Kringlunni og er það vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.