Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 63
ÍVtOIiGUNBI.AiMf)
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 63
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til O
■ ÁLFOSS FÖT BEZT: Gildran og
Eiríkur Hauksson í Mosfellsbæ á
laugardagskvöld til kl. 3.
■ ÁRSEL: Lokaball fyrir fatlaða. í
svörtum fotum leika fyrir dansi á
laugardagskvöld kl. 20 til 23. Krist-
ján, Maggi og Helgi sjá um diskó-
búrið. 13 ára aldurstakmark. Miða-
verð 500 kr. Veitingasalan opin.
■ BREIÐIN, Akranesi: Skugga-
Baldur leikur á laugardagskvöld til
3. Diskótek, plötusnúðurinn Skugga-
Baldur leikur tónlist síðustu 50 ára.
Reykur, þoka, ljósadýrð og
skemmtileg tónlist. Miðaverð 500_ kr.
■ BREIÐUMÝRI: Hljómsveitin íra-
fár leikur fyrir dansi á laugardags-
kvöld.
■ BROADWAY: Skemmtikvöld með
Siglfirðingum á föstudagskvöld til 3.
Fjöldi skemmtikrafta kemur fram,
m.a. Fílapenslar, Leikfélag Ólafs-
fjarðar, hljómsveitin Gautar, eins og
hún var árið 1964, Miðaldamenn,
Stormar, Maggi og Gulli og leikar-
arnir Guðmundur Olafsson og Theó-
dór Júlíusson. Hljómsveitin Stormar
o.fi. leika fyrir dansi í aðalsal. Loka-
hóf KSÍ - Bee-Gees sýning laugar-
dagskvöld til 3. 1 þessari sýningu
syngja fimm strákar þekktustu lög
þein’a Gibb-bræðra. Danssveit
Gunnars Þórðarsonar ásamt söng-
stjörnum Broadway leikur fyrir
dansi í aðalsal.
■ CAFÉ AMSTERDAM: BP og Þeg-
iðu leika rokk af bestu gerð fóstu-
dagskvöld. Hljómsveitina skipa þeir:
Björgvin Ploder, söngur og tromm-
ur, Tommi Tomm, söngur og gítar,
Einar, hammond og söngur, og
Dúddi bassi. BP og Þegiðu leika
rokk af bestu gerð á laugardags-
kvöld. Hljómsveitina skipa þeir:
Björgvin Ploder, söngur og tromm-
ur, Tommi Tomm, söngur og gítar,
Einar, hammond og söngur, og
Dúddi, bassi.
■ CAFÉ ROMANCE: Lifandi tónlist
öll kvöld. Sænski píanóleikarinn
Raul Petterson leikur. Hann leikur
einnig fyrir matargesti Café Óperu.
■ CATALINA, Hamraborg: Sven-
sen, Hallfunkel og Perez leika fyrir
dansi fóstudags- og laugardagskvöld
til 3. Veitingahúsið hefur opnað
glæsilegt veitinga- og kaffihús í
Hamraborg 11 er nefnist Café Cat-
alína.
■ FÖRUKRÁIN FJARAN: Jón
Möller leikur rómantíska píanótón-
list fyrir matargesti. I Fjörugarðin-
um leikur Víkingasveitin fyrir vík-
ingaveislugesti. Dansleikur á eftir
með hljómsveitinni KOS á fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ GAUKUR Á STÓNG: Hljómsveit-
in Land & synir leikur á tónleikum á
fimmtudagskvöld. Hljómsveitin
Land og synir leikur á fóstudags-
kvöld. Hljómsveitin Gos stjórnar
íjöldasöng og trylltu djammi á laug-
ardagskvöld. Geir Ólafs & Furstarn-
ir leika mánudagskvöld til kl. 1.
■ GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Gunnar Páll leikur allar helgar kl.
19:15 til 23. Tónlistarmaðurinn
Gunnar Páll leikur og syngur öll
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Gunnar leikur hugljúfa
og rómantíska tónlist. Allir velkomn-
ir.
Siglfírskt kvöld verður í Broadway á föstudagskvöld þar sem fram
kemur m.a. hljómsveitin Stormar.
■ GULLÖLDIN: Hljómsveitin Sælu-
sveitin leikur á fóstudags- og laugar-
dagskvöld til 3. Hljómsveitina skipa
þeir Hermann Arason og Níels
Ragnarsson báðir landsþekktir lista-
menn að norðan. Tilboð á öli til kl.
23.30 öll kvöld. Boltinn á breiðtjaldi
og stór á 350 kr.
■ KRINGLUKRÁIN: Geir Gunn-
laugsson og Rúnar Guðmundsson
leika á fimmtudagskvöld kl. 22 til kl.
1. Léttir sprettir sjá um tónlistina á
fóstudags- og laugardagskvöld kl. 23
til 3. GR Lúðvíksson leikur og syng-
ur á sunnudagskvöld kl. 22 til 1.
■ LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um
línudans með dansæfingu á fimmtu-
dagskvöld kl. 21 til 24. Elsa sér um
tónlistina. Allir velkomnir.
■ LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Bh'stró heilsar upp á
Eyjamenn á föstudags- og laugar-
dagskvöld til 3.
■ NAUSTKRÁIN: Hljómsveit Frið-
jóns Jóhannssonar frá Egilsstöðum
spilar á fóstudags- og laugardags-
kvöld til 3. Austfirsk sveifla. Hljóm-
sveitina skipa: Friðjón, bassi og
söngur, Ami Jóhann, gítar og söng-
ur, Eyþór, hljómborð og söngur, og
Daníel, trommur og söngur.
■ NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti kl. 22 til 3. Naustið
er opið alla daga frá kl. 18. Stór og
góður sérréttaseðill.
■ NÆSTI BAR: Hljómsveitin In-
ferno 5 spilar á fimmtudagskvöld kl.
22 til 1.
■ NÆTURGALINN: Stefán P og
Pétur leika á fóstudagskvöld kl. 22
til 3. Frítt inn til miðnættis. Stefán P
og Pétur leika á laugardagskvöld kl.
22 tO 3.
■ ORMURINN, Egilsstöðum: Dj.
Barþjónn leikur. Happy Hour á
föstudagskvöld milli kl. 23 og 3.
Bjarni Tryggva leikur fyrir gesti.
Dónadagskrá á laugardagskvöld
milli kl. 23 og 3. Tveir fyrir einn
milli kl. 23 og 24. Aðgangseyrir 700
kr.
■ SJALLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Sóldögg leikur á laugardags-
kvöld.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavík: Hljóm-
sveitin 8-villt leikur fyrir dansi á
laugardagskvöld til 3.
■ SPORTKAFFI: ísafold Sportkaffi
1 á föstudagskvöld. Af því tilefni
verður haldin veisla sem hefst kl. 21
og er þá boðið upp á afmælisdrykki
fram eftir kvöldi. I búrinu alla helg-
ina verður Þór Bæring.
■ VARÐSKIPIÐ THOR, Hafnar-
fjarðarhöfn.: Heiðursmenn og Kol-
brún leika fyrir dansi á fostudags- og
laugardagskvöld til 3.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri: Gildr-
an og Eiríkur Hauksson á Akureyri
föstudagskvöld til 3. Hljómsveitin
PPK+ leikur fyrir dansi á laugar-
dagskvöld til 3.
John Peel er einn virtasti útvarpsmaður Breta
U2 eru ekki velkomnir
í þáttinn minn
John Peel hefur verið með fasta þætti í breska ríkisútvarpinu í
hartnær 30 ár og hefur verið lýst sem einum af mikilvægustu
áhrifavöldum á þróun dægurtónlistar síðustu 25 ára. Arnar Eggert
Thoroddsen og Einar Þór Kristjánsson heimsóttu Peel og ræddu
við hann um lífsins gagn og nauðsynjar.
PEEL er goðsögn í lifanda lífi.
Hann var fyrstur manna í Bret-
landi til að kynna þjóð sína fyrir
jafn byltingarkenndum tónlistar-
stefnum og pönki, rappi og reggí
og sveitir eins og The Jimi Hendr-
ix Experience, Madness, T. Rex,
Cure og The Smiths hafa allar
hljóðritað lög sérstaklega fyrir
þætti Peels, margar hverjar nokkr-
um mánuðum áður en þær vöktu
athygli almennings. Blaðamaður
var staddur á bresku tónlistarhá-
tíðinni „All Tomorrows Parties“
ekki alls fyrir löngu þar sem að síð-
rokkshetjur eins og Mogwai, Sonic
Youth og Sigur Rós léku en John
Peel var skráður þar sem gesta-
plötusnúður. Rak blaðamann í
rogastans er hann sá þessa öldnu
hetju rölta einn um svæðið og fór
þegar í humátt á eftir honum.
Fundur var ákveðinn daginn eftir
er sól skein í heiði og var and-
rúmsloftið afslappað enda Peel
einkar góðlegur og yfirvegaður
viðmælandi.
Sýrlensk sálartónlist?
Svo þú ert að plötusnúðast hér á
hátíðinni?
„Jú, ég á víst að spila á eftir Son-
ic Youth í kvöld en það er erfitt að
segja hvort að einhver eigi eftir að
nenna að vera eftir og hlusta þar
sem ég fer um ansi víðan völl í
lagavali. Ég gerði ansi mikið af
þessu á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Þvældist milli háskóla og
spilaði plötur.
Ég spilaði eingöngu tvær teg-
undir af tónlist, frábæra eða hroða-
lega. Þetta olli stundum ofsa-
hneykslun sem varð til þess að ég
þurfti í nokkrum tilfellum á lög-
reglufylgd að halda er ég yfirgaf
skólana. Ég er vanalega með eina
lykilplötu er ég spila og núna er ég
með plötu sem inniheldur útgáfu af
„In the Midnight hour“ í frábærum
flutningi sýrlenskra tónlistar-
manna.“
Er eitthvert ákveðið efni sem þú
tekur fyrir í útvarpsþætti þínum í
BBCl?
„Nei, ég spila bara fullt af plöt-
um. Að stofni til nýtt efni en ég
læði stundum gömlum inn ef eitt-
hvað annað sem ég er að spila
krefst einhverra tilvísana. Einnig
spilum við af og til upptökur af tón-
leikum. Á næstunni munu Calexico
[bandarískir eyðimerkurrokkarar]
halda hljómleika heima hjá mér og
því verður útvarpað. Ég á nefni-
lega dulítið hljóðver heima við.“
Nú ertu einmitt frægur fyrir að
fá sveitir í hljóðver til þín og margt
af því hefur verið gefíð út sem
„Peel Session
„Ég hef í rauninni ekkert með
það að gera. Ég átti upprunalegu
hugmyndina en ég sit aldrei við
þegar verið er að taka upp né hef
eitthvað að gera með það sem kem-
ur út. Og ég fæ heldur engan aur
út úr því. Eg veit ekki einu sinni
hvaða plötur eru að koma út.“
Bruce Springsteen?
Nei takk!
Þú hefur uppgötvað margar af
helstu rokkhljómsveitum undan-
farinna áratuga langt á undan öll-
um öðrum þar sem að upptökurnar
eru oft sendar út mánuðum áður en
sveitin slærí gegn.
„Ja, þetta virkar nú bara þannig
að maður er eins og ritstjóri á
tímariti.
Maður hefur metnað til að vera
fyrstur með fréttirnar, búa til
fréttirnar. Þetta er nú einfaldlega
skylda mín sem útvarpsmanns, ég
trúi ekki á það að ég geti eignað
mér frægð einhverra tiltekinna
hljómsveita. Það er til mun til-
komumeiri listi yfir hljómsveitir
sem ég hef ekki viljað fá í þáttinn
minn. Nöfn eins og U2, Dire
Straits og Bruce Springsteen. Ég
hef verið inntur eftir samþykki um
að þessir listamenn myndu spila og
ég hef svarað:
„Ég held nú síður!“.“
Hefur þú hlustað á Sigur Rós?
„Já. Verst að ég skil ekki bofs í
íslensku. Ég hef ekki hugmynd um
hvernig á að bera fram lagaheitin.
Ég held að það sé landlæg feimni
hér í landi gagnvart tungumálum
sem Bretar skilja ekki og það fer
smá í taugarnar á mér að geta ekki
einu sinni gert mér í hugarlund
hvernig tungumálið hljómar.
Eru þeir vinsælir á íslandi?"
Jú, þeir eru afar vinsælir á ís-
landi. Áttu plötuna?
„Já, ég á stuttskífuna „Svefn-G-
Englar“. Ég á líka einhver lög sem
fólk hefur tekið upp fyrir mig.“
Hversu margar plötur áttu?
„Ég held að ég eigi um 26.000
vínylplötur [sögusagnir segja
100.000. Innsk. höfunda].“
Dum 'n 'bass!
Hefurðu algert frelsi til að spila
það sem þú vilt íþáttunum þínum?
„Algerlega. Ég fæ að spila hvað
sem mér dettur í hug.“
Afhverju eru það aðallega ensk-
ar hljómsveitir sem hafa tekið upp
„Peel session"?
„Hér áður fyrr var erfitt að fá
bandarískar hljómsveitir vegna
sérstakra útvarpslaga. Ef ensk út-
varpsstöð ætlaði að taka upp
bandaríska sveit yrði bandarísk
stöð til að mynda að taka upp
enska sveit. I þá daga var ekkert
til sem hét alþjóðleg útvarpsstöð.
Við náðum þó að fá Captain Beef-
heart og það var einfaldlega af því
að laganna verðir vissu ekki að
hann væri bandarískur."
Hvað fínnst þér um nýjasta und-
irflokk rokksins, „síðrokk“ (e. post
rock)?
„Það er nú bara eins og með allt,
sumt er ekki gott, annað er betra.“
Peel var nú farinn að gjóa augum á
úrið sitt. Blaðamenn tjá honum að
þessu sé nú senn lokið og þá út-
skýrði hann með kurt að þetta væri
allt í lagi, hann væri bara að fylgjast
með því hvunær boltinn myndi byrja
enda forfallinn aðdáandi Liverpool.
Er eitthvað til sem hægt er að
kalla síðrokk?
„Ég er nú ekki mikið fyrir að
eltast við skilgreiningarnar. Hvar ’
byrjar síðrokk og hvar endar það?
Eins og þegar ég hlusta á dans-
tónlist sem er stúttfull af allskyns
skilgreiningum. Ég hef ekki Guð-
mund um hvort þetta er „house“
eða „garage". Ég set bara plötuna
á og ef mér líkar hún þá líkar mér
hún og ef mér líkar hún ekki þá
líkar mér hún ekki. Oftast vil ég
bara ekkert vita hvað þetta er.
Mér fannst til að mynda skrambi
skondið þegar fólk fór að skrifa
um intelligent „drum n bass“ (í.
gáfumannatrommu- og bassatón-
list) á síðasta ári.
Ég dreg þá rökréttu ályktun að
eitthvað hljóti þá að vera til sem
heiti „stupid" drum 'n 'bass (í.
grunnhyggin trommu- og bassa
tónlist. Eða bara dumnbass). Það
er tónlistarstefna sem ég væri til
í að heyra.“