Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
Glæsilegri gjafavörur
finnast varla
UMRÆÐAN
Sumarsprengja til
Barcelona
með Heimsferðum
frá kr. 1 9-500
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að ferðast til
Barcelona á hreint ótrúlegum kjörum, en þessi heillandi borg er
nú einn aðaláfangastaður Islendinga og ekki að undra. Fáir staðir
hafa jafn mikið aðdráttarafl og þessi heillandi borg og hér getur
þú valið um heillandi kynnisferðir, glæsilegar verslanir, veitinga-
staði og næturlíf og Heimsferðir bjóða þér gott úrval hótela í
hjarta borgarinnar.
Verðkr 19.500
Flugsæti til Barcelona, 17.mai, 5-19.
júlí m.v. hjón með 2 böm. 2-11 ára.
Verðkr. 24.500
Flugsæti fullorðinn.
Skattar kr. 2.490, ekki innifaldir.
Verðkr. 39.990
M.v. 2 í herbergi með morgunmat,
17.maí, Paralell hótelið.
BEINT FLUG
ALLA MIÐVIKUDAG
í SUMAR
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími
595 1000. www.heimsferdir.is
Jöfnum leikinn í
málefnum innflytjenda
Listhús
Gaiieríj \ Laugardal
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
CWtintu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
ÞAÐ er nýtt í samfélagi okkar að
hingað flytjist hópar fólks frá fjar-
lægum slóðum og setjist hér að. Nú
eru um 7.000 útlendir íslendingar á
íslandi.
Það er skylda okkar að taka vel á
móti þessu fólki og sjá til þess að
því líði vel hér á landi og að það fái
tækifæri til að aðlagast samfélag-
inu og taka þátt í því eins og aðrir
landsmenn. Við sem fyrir erum
þurfum líka að læra að aðlagast því
og auðga menningu okkar með
reynslu þeirra og menningu.
A stofnfundi Samfylkingarinnar
um helgina ætlum við meðal annars
að ræða málefni nýbúa, flótta-
manna og annarra innflytjenda, í
málstofu, sem er á dagskrá föstu-
dagskvöldið 5. maí. Við ætlum að
læra af reynslu fólks sem hefur
starfað að þessum málum hér á höf-
uðborgarsvæðinu og úti á landi,
Þakkarávarp
Þökk sé öllum sem heiðruðu mig á áttrœðis-
afmœli mínu 16. apríl sl., með símtölum, skeyt-
um, gjöfum og heimsóknum þann 18. apríl.
Innilegar þakkir fyrir vinsemd alla.
Guð blessi ykkur.
Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup.
auk þess að heyra álit
og reynslu Japana
sem fluttist hingað
fyrir nokkrum árum
og hefur unnið mikið
með innflytjendum
hér á landi.
Við ræðum fyrst
stjórnmálaflokka á
Islandi þessi málefni
og leggjum inn vega-
nesti fyrir nýja jafn-
aðarflokkinn okkar til
stefnumótunar í þess-
um málum.
Ósýnilegur hópur?
Mikilvægt er að
skilgreina þennan
hóp. Hverjir eru þessir útlending-
ar, hvað eru þeir að gera hér, frá
hvaða löndum eru þeir, hvar búa
þeir og við hvað eru þeir að fást?
Þetta og margt, margt, fleira verð-
um við að vita til þess að við getum
mætt þörfum þessa fólks sem best.
Þessu mun Helga Þórólfsdóttir,
félagsráðgjafi og verkefnisstjóri
samstarfsnefndar Reykjavíkur um
málefni nýbúa, leitast við að svara
og deila með okkur framtíðarsýn
sinni í þessum málum. Það gerir
hún í upphafserindi málstofunnar:
Sjö þúsund útlenskir Islendingar -
ósýnilegur hópur? Til fyrirmyndar
er hvernig Reykjavíkurborg hefur
tekið á þessum málum með vinnu
samráðsnefndar borgarinnar um
málefni nýbúa. Því verður forvitni-
legt að heyra hvað Helga hefur að
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
segja um stöðu þess-
ara mála.
Við verðum að temja
okkur að læra að
hlusta á þá sem koma
hingað til að setjast
hér að og koma fram
við þá eins og við vilj-
um að aðrar þjóðir
komi fram við okkur
þegar við búum eða
dveljum hjá þeim.
Toshiki Toma frá Jap-
an, sem starfar á Bisk-
upsstofu sem prestur
innflytjenda, flytur er-
indi um það hvernig
við ræktum umburðar-
lyndi gagnvart hvert
öðru. Hann er stjórnmálafræðingur
auk þess að vera prestur. Hann
starfar með félaginu Fjölbreytni
auðgar og hefur haft kynni af fleiri
innflytjendum hér en flestir aðrir.
Lærum
af reynslunni
Á Vestfjörðum eru íbúar af fleiri
þjóðernum en annars staðar á land-
inu. Þar eru töluð yfir 40 tungumál
og ríkir ótrúlega fjölbreytt mannlíf.
Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfull-
trúi Rauða krossins á Isafirði, miðl-
ar okkur af víðtækri reynslu sinni
af þessum fjölbreytileika og það
gerir Halldór S. Guðmundsson
einnig, en hann er félagsmálastjóri
á Dalvík og hefur reynslu af mót-
töku flóttamanna.
Flokksstofnun
Nýr jafnaðarflokkur
mun móta stefnu í mál-
efnum innflytjenda, sem
fær veganesti frá þess-
ari málstofu, segir Ásta
R. Jóhannesdóttir, og
býður alla velkomna til
umræðunnar.
Þau munu segja okkur hvemig
við getum lært af reynslunni.
Hvaða leiðir stjórnvöld eigi að fara
til að nýbúar, innflytjendur og
flóttamenn aðlagist samfélaginu
sem best, hvernig standa skuli að
menntun og annarri þjónustu hins
opinbera.
Við verðum að undirbúa okkur
undir að á íslandi muni, líkt ann-
arsstaðar búa fjölbreyttur hópur
fólks í fjölþættu samfélagi í sátt og
samlyndi. Nýr jafnaðarflokkur mun
móta stefnu í málefnum innflytj-
enda, sem fær á veganesti frá þess-
ari málstofu annaðkvöld. Tii þeirrar
umræðu bjóðum við alla velkomna.
Höfundur er alþingismaður og einn
málstofusljóra á stofnfundi Samfylk-
ingarinnar.
Uinalínan
er opin á hverju kvöldi frá kl. 20-23
- Ókeypis símaþjónusta
-100% trúnaður
- simi 800 6464
— Uinalína Rauða krossins
þegar þú þarft á uini að halda