Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 46
YDDA/SÍA
46 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
UMRÆÐAN
MORGUNRLAÐIÐ
Opera í álögum
íþróttir á Netinu
v^mbl.is
ÞAÐ voru góðar fréttir sem bár-
ust úr íslensku óperunni fyrir ári
um að þangað hefðu verið ráðnir
nýir stjórnendur,
Bjarni Daníelsson
framkvæmdastjóri og
Gerrit Schuil listrænn
stjórnandi. Það var
orðið spurning um líf
eða dauða Islensku
óperunnar að breyta
þar til. Eftir gríðar-
mikið og mikilvægt
uppbyggingarstarf var
staðan orðin sú, að
þar gætti stöðnunar.
Þar voru gerðir marg-
ir góðir hlutir, en
aldrei alveg af sama
listræna staðli og í al-
vöru óperuhúsum og
oft var amatörblær yf-
ir sýningum. Nú
glæddust vonir um að betra tæki
við, og það varð raunin. Starfsemi
Islensku óperunnar í vetur mark-
aði tímamót í íslensku tónlistarlífi.
Þar voru gerðir nýir hlutir; verk-
efnin voru ögrandi og spennandi
og ljóst að þar var verið að fram-
fylgja listrænni stefnu. Það stóð
heldur ekki á viðbrögðum. Sýning-
ar vetrarins voru hlaðnar lofi, bæði
PricewaterhouseCoopers, í samstarfi við Samtök verslunar og þjónustu,
boðartil ráðstefnu um Knowledge Management (þekkingarstjórnun)
þann 11. maí nk. á Grand Hótel kl. 13:00 -17:00.
Hreyfanleiki fyrirtækja og möguleiki til þróunar eru lykilatriði í samkeppnisfærni þeirra. Stjórnendur
í fyrirtækjum verða að gera sér grein fyrir að undirstaða áframhaldandi þróunar er sú þekking sem
býr í fyrirtækinu og falin er í starfsfólki þess. Stærsta áskorun fyrirtækja framtíðarinnar er að umbreyta
þekkingu í auðævi.
Sérfræðingar PwC í Noregi, Hanne Gjendhem og Odd Ivar Lindland munu kynna aðferðafræði og
hagnýtingu Knowledge Management (þekkingarstjórnunar).
Dagskrá ráðstefnunnar:
13:00-13:10 Setning
Reynir Kristinsson framkvæmdastjóri PwC á íslandi.
13:10-13:30 Hvað er Knowledge Management (þekkingarstjórnun)?
13:30-13:50 Markaðsöfl og framtíðarhorfur.
13:50-15:05 Þróun Knowledge Management og útfærsla.
15:05-15:25 Kaffihlé
15:25-15:45 Innleiðing Knowledge Management í fyrirtæki.
15:45-16:05 Raunhæfdæmi.
16:05-16:30 Nýtækni.
16:30-17:00 Panel umræður:
Friðrik Sophusson, Landsvirkjun
Frosti Sigurjónsson, Nýherja
Guðjón Már Guðjónsson, OZ
Hilmar B. Janusson, Össuri
Óskar Jósefsson, PwC
Anna María Pétursdóttir, PwC
Fundarstjóri: hlrönn Creipsdóttir hótelstjóri Radisson SAS.
uppfærslan á Mannsröddinni eftir
Poulenc og ekki síður uppfærslan
á óperu Brittens Lúkretía svívirt.
„Mikill söng- og leik-
sigur“ var fyrirsögn á
gagnrýni Jóns Ás-
geirssonar um
Mannsröddina og
„Listrænn sigur í Óp-
erunni“ var yfirskrift
undirritaðrar á um-
fjöllun um óperu
Brittens. Margir aðrir
tóku í sama streng.
Það voru vondar
fréttir sem bárust úr
Islensku óperunni
fyrir mánuði um að
listræni stjórnandinn
Gerrit Schuil væri að
Bergþóra hætta. I yflrlýsingu
Jónsdóttir hans kom fram, að
eftir níu mánaða starf
hafði ekki enn verið gengið frá
samningi við hann, og ennfremur,
að frá því er hann var ráðinn hafði
starfi hans verið breytt úr því að
vera starf listræns stjórnanda Is-
lensku óperunnar til þess að verða
starf listræns ráðunautar meðan
starfi framkvæmdastjórans var
breytt í starf óperustjóra. I frétt
Morgunblaðsins frá 6. maí 1999 um
ráðningu nýrra stjórnenda Óper-
unnar segir: „Nýráðnir stjórnend-
ur íslensku óperunnar fagna þeirri
skipulagsbreytingu sem felur í sér
að í stað þess að einn óperustjóri
fari með alla yfirstjórn óperunnar
séu ráðnir tveir stjórnendur; fram-
kvæmdastjóri og listrænn stjórn-
-andi.“ Þannig var ráðning þeirra
Bjarna og Gerrits kynnt; tveir
stjórnendur voru ráðnir að Is-
lensku óperunni.
Því kom yfirlýsing Gerrits mjög
á óvart, og enn meiri varð undrun-
in við lestur viðtals við Bjarna
Daníelsson „óperustjóra“ 18. mars
sl. Undir fyrirsögninni „Eg var
ráðinn til að stjórna þessu fyrir-
tæki“ kemur fram að Bjarni hefur
talið sig frá upphafi vera eina
stjórnanda Islensku óperunnar og
að á því hafi aldrei leikið neinn
vafi.
í þessari dapurlegu sögu hefur
stjórn Islensku óperunnar haldið
sig til hlés utan þess sem haft er
eftir Guðrúnu Pétursdóttur stjórn-
arformanni í Morgunblaðinu 18.
mars sl. um að ljóst hafí verið um
nokkurt skeið að ekki hafi ríkt ein-
hugur um verkaskiptingu listræns
stjórnanda og óperustjóra. „Stjórn
ísiensku óperunnar þykir mjög
miður að mál skuli hafa þróast
með þessum hætti,“ er haft eftir
Guðrúnu.
Nú finnst manni það verulega
undarlegt að Gerrit og Bjarni hafi
báðir verið ráðnir sem stjórnendur
óperunnar, en síðar, á aðeins örfá-
um mánuðum, hafi málin „þróast"
þannig að aðeins annar stjórnend-
anna skuli vera raunverulegur
stjórnandi og hinn aðeins ráðgjafi
hans. í maí í fyrra lék enginn vafi
á því að þeir voru báðir ráðnir til
að stjórna. Var leikreglunum
breytt eftir að leikurinn var haf-
inn? Mér finnst ég og aðrir þeir
sem þykir vænt um íslensku óper-
una eiga þá kröfu á hendur stjórn
hennar að þetta verði skýrt.
Hvernig var skipurit Óperunnar
hugsað af hálfu stjórnarinnar þeg-
ar mennirnir voru ráðnir? Hvernig
átti verkaskiptingin að vera?
Hvernig taldi stjórnin að hlutverk
„listræns stjórnanda" ætti að
vera? Þetta hlýtur jú allt að hafa
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Skráning fer fram hjá Fríðu Jónsdóttur í síma 550 5300.
Tölvupóstfang: frida.jonsdottir@is.pwcglobal.com
Verð: 16.500 kr.
PricfwaTerhouseQopers d
Samlðk versiunar og þjónustu
Fedemtion of ' Trade «£ Serríces
verið vel skilgreint áður en menn-
irnir voru ráðnir. Eg óska eftir
svörum.
Gerrit Schuil hefur starfað hér
að tónlistarmálum nokkur ár. Á
þeim tíma hefur hefur hann sýnt
það að hann er frábær tónlistar-
maður; snilldarpíanóleikari, fram-
úrskarandi hljómsveitarstjóri og
söngvaraþjálfari. Ég fullyrði að
aldrei áður hafi starfað hér jafn-
góður ljóðasöngspíanóleikari.
Gerrit Schuil skipulagði tónlistar-
hátíð í minningu Schuberts. Sú há-
tíð var af mjög háum listrænum
standard og kom Garðabæ á kortið
það árið sem merkilegasta menn-
ingarbæ höfuðborgarsvæðisins.
Það er því óþolandi tilhugsun að
Gerrit Schuil skuli nú hrekjast úr
starfi sem listrænn stjórnandi Is-
lensku óperunnar; maður sem hef-
ur sýnt það svo um munar að hann
var þar réttur maður á réttum
Operan
Það ríkir óvissa um
----------7--------------
framtíð Islensku óper-
unnar, segir Bergþóra
Jónsdóttir. Verður list-
rænn metnaður hafður
að leiðarljósi?
stað; maður með listrænan metn-
að, hæfileika og þekkingu. Skarð
hans í Islensku óperunni verður
vandfyllt, og vafasamt að nokkurri
manneskju með sjálfsvirðingu þyki
það yfir höfuð eftirsóknarvert í
ljósi þess sem gerst hefur.
Mér hefur runnið til rifja að
hafa ekkert séð frá því fjölmarga
tónlistarfólki sem Gerrit Schuil
hefur unnið með á liðnum árum.
Ég vona að þögnin stafi af ein-
hverju öðru en áhugaleysi um störf
hans hér. Þetta mál er enn átakan-
legra í ljósi þess að Gerrit Schuil
hefur sagst myndu hverfa af landi
brott. Hefur íslenskt tónlistarlíf
efni á því að missa svona fólk frá
sér; - eða á ég að segja - hrista
svona fólk af sér? Ég get ekki var-
ist þeirri hugsun að svona hafi ein-
mitt farið um fleiri frábæra tónlist-
armenn sem hingað hafa komið frá
öðrum löndum. Gerrit Schuil verð-
ur kannski bara enn einn í langri
röð erlendra tónlistarmanna sem
hrekjast héðan vegna þess að Is-
lendingar þola ekki listamenn sem
vilja af góðum vilja segja þeim til í
þeim tilgangi að draga þá upp úr
meðalmennskunni.
Það ríkir óvissa um framtíð Is-
lensku óperunnar. Verður listrænn
metnaður hafður að leiðarljósi?
Fáum við að sjá eitthvað nýtt?
Verður mótuð listræn stefna í
verkefnavali? Verður kannski bara
valin sú þægilega stefna að gera
„eitthvað sniðugt sem allir geta
haft gaman af ‘ og haldið áfram að
ala á þeirri hugmynd að ekki þýði
að bjóða almenningi það sem gott
er. Það eru gífurleg vonbrigði að
sjá Islensku óperuna sjálfa brenna
sínar björtustu vonir með því að
hafa komið málum þannig fyrir að
Gerrit Schuil skuli ekki hafa séð
sér annað fært en að hverfa þaðan.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Islenskrar tónverkamiðstöðvar
og tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins.
Maestro
j
ÞITT FE
HVARSEM
ÞÚ ERT