Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 65
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 65
FÓLK í FRÉTTUM
Franskir og íslenskir nemendur hittast
Nemendahópurinn allur samankominn í Frakklandi í góðu veðri.
Þorramatur og* þjóðsögur
í APRÍL fór hópur nemenda frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
til Frakklands þar sem þeir hittu
jafnaldra sína, dvöldu á heimilum
þeirra í tvær vikur og kynntu sér
franska tungu og menningu.
Frönsku nemendumir slógust síðan
með í förina heim til íslands og
dvelja nú á Sauðárkróki og endur-
gjalda heimsókn íslendinganna.
Það er Esther Ágústsdóttir
frönskukennari sem hefur veg og
vanda af þessari skólasamvinnu, og
voru þær Hulda Egilsdóttir íslensk-
ukennari fararstjórar í ferðinni til
Frakklands. Þegar Esther kom til
starfa við Fjölbrautaskólann sagðist
hún þegar hafa fundið að það vantaði
einhverja raunhæfa hvatningu til
náms í frönsku. Hún benti á, að þetta
væri tungumál sem nemendur hér-
lendis heyrðu nánast aldrei, lítið
væi-i um franskar kvikmyndir, hvort
sem væri í kvikmyndahúsum eða
sjónvarpi og sú tónlist sem ungt fólk
hlustaði á væri ekki frönsk.
Esther sagði að á síðastliðnu
skólaári hefðu komist á samskipti
fyrir milligöngu Menningarsamtaka
Frakklands og íslands, og Frakki
búsettur hérlendis, Frangois Scheef-
er, hefði komið á tengslum við skóla í
heimalandi sínu, sem héti Madame
De Staél og væri í Mið-Frakklandi.
Samskiptin hefðu farið fram síðast-
liðinn vetur á Netinu, um fax eða
síma, en sumarið hefði síðan verið
notað til þess að sækja um styrk til
Evrópusambandsins vegna verkefn-
isins en einnig til að skipuleggja
áframhaldandi vinnu fyrir yfirstand-
andi skólaár.
Leiknar þjóðsögur
Ákveðið hefði verið að gera eitt-
hvað það er vakið gæti áhuga nem-
endanna, og niðurstaðan verið sú að
nemendur settu upp leikverk
byggðu á þjóðsögu frá hvoru landi.
Þannig myndu Norðlendingamir
hér heima æfa og setja upp leikritið
„Góði þjónninn", en einn af kennur-
um skólans Eric Fissers vann leik-
gerðina upp úr franskri þjóðsögu um
þetta efni, en hins vegar var ytra
unnin leikgerð upp úr skagfirsku
þjóðsögunni um Miklabæjar-Sol-
veigu. Sagði Esther að settur hefði
verið upp sérstakur leiklistaráfangi
fyrir þetta verkefni.
Esther sagði ennfremur að ferðin
til Frakkiands hefði verið mikil upp-
lifun fyrir nemenduma, og verulega
hefði reynt á kunnáttu þeirra þar
sem þeir bjuggu inni á heimilum, en í
mörgum tilvikum var ekki unnt að
bjarga sér á ensku ef frönsk orð
vantaði.
Tvær sýningar vom síðan haldnar
á leikverkunum, önnur í bæjarleik-
húsi staðarins, hin við Nýlistasafnið í
París. Tókust þær ágætlega og
vöktu athygli.
I franska hópnum sem kom heim
með íslenska hópnum era tuttugu
nemendur ásamt fimm kennuram og
stjómendum. Dvaldi hópurinn
fyrstu dagana í Reykjavík en er nú
kominn til Sauðárkróks.
Á dögunum var haldin glæsileg
veisla þar sem foreldrar íslensku
nemendanna önnuðust allan undir-
búning og buðu gestum upp á ís-
lenskan mat, allt frá kæstum hákarli
og eldsúram þorramat til þeirrar
fæðu er algeng er í dag.
Frönsku nemendumir verða á
Sauðárkróki fram til dagsins í dag.
Hóparnir hafa sýnt leikverk sín og
unnið saman að ýmsum verkefnum.
Esther sagði þennan vetur hafa
verið mjög ánægjulegan og gefandi,
hinsvegar væri því ekki að neita að
hann hefði verið erfiður og margir
hefðu lagt á sig mjög mikla vinnu til
þess að gera þetta allt mögulegt.
Varðandi framhald, sagðist Est-
her sannanlega vonast til þess að svo
mætti verða, en hinsvegar væri ekki
nægilegt, að ráðamenn og fræðsluyf-
irvöld teldu erlend samskipti vera
eðlilegan hluta skólastarfs, á meðan
ekki væri ætlað fjármagn sérstak-
lega til slíkra hluta.
Hún sagði að eftir þennan vetur
væri sér enn betur ljós nauðsyn þess,
að kennslan væri lifandi og frjó,
nemendumir hefðu möguleika á að
uppskera eitthvað meira en góða ein-
kunn eftir vel unnið vetrarstarf.
Betri kostur • Domino's • Jarlinn • McDonold's • Rikki Chan • Subway
Café bleu • Eldhúsið • Hord Rock • ísbúðin • Kringlukróin
AK
VEITIHEHSIHSIR
UPPLÝSINERSÍMI 5 B B 7 7 B B SKRIFSTQFUSlMI 5GB 9200
FRABÆR NYJUNG
I BARÁTTUNNi VIÐ HÁRL0S
Háfvokví sem orvar
hárvöxt og dregitr
úr hárlosí.
3 mánaða skammtar
Lyf&heilsa
Austwvef • B«w§ HeáfS • Kflflgífl • Hjflðfl < f jafísrtaip • 9®i6*f • Hét«i|§»e§«f • Hf««Bíf§
Kfiflftón I t»í • Helhsgi • Hvflf«i@fft • Kjifflj -- §élf«s • H#tftif§tf*fi -- Atewyn • Hfkslflflftjf -- Nweffi
www.heimsferdir.is