Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 30
30' FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
150 söngvarar á tvennum tónleikum
HÖND snertir hönd er yfirskrift tónleika sem verða í
Karlakórshúsinu Ými í Skógarhlíð á morgun og í Lang-
holtskirkju föstudagskvöld, kl. 20.30 bæði kvöldin. Þetta
eru 150 kvensöngvarar á aldrinum 8-65 ára og eru í kórn-
um Gospelsystur og Stúlknakór Reykjavíkur. Einsöngvari
á tónleikunum er Margrét Eir Hjartardóttir. Píanóleikari
Arnhildur Valgarðsdóttir og Stína „bongo“ slær þar sem
við á. Það er Margrét J. Pálmadóttir sem er stjórnandi
beggja kóranna.
, ■ L-n ■
Samkeppni um nýjar sýningar Þjóðminjasafns fslands
Fyrstu verðlaun til
sænskra hönnuða
I
Elizabeth Arden
kynning í
Bylgjunni
Hamraborg 20a í dag
og á morgun, föstudag.
Kynntur verður
nýi varaliturinn
LIP LIP HOORAY.
Ath. Þessi glæsilegi
kaupauki fylgir ef þú
kaupir Arden-vörur
fyrir 3.500 kr.
GOLFBUDIN.IS
www.golfbudin.is - Email: golfbudin@golfbudin.is
TILLAGA hóps sænskra hönnuða
frá fyrirtækinu Codesign Sweden
AB hlaut fyrstu verðlaun í sam-
keppni um nýjar sýningar Þjóð-
minjasafns íslands. Niðurstöður
samkeppninnar voru kynntar við at-
höfn í Listasafni Sigurjóns í gær-
morgun.
í niðurstöðu dómnefndar er tillag-
an sögð mjög listræn og bera vott um
nýjar hugmyndir í sýningargerð.
„Sýningin er áferðarfalleg og yfir-
bragð hennar létt. Rýmismyndun,
efnisval og form gefur henni nýstár-
legt yfirbragð sem skilar henni í
spennandi sýningu og upphengdir
glerskápar eru frumleg hugmynd. I
heild þykir tillagan falla vel að þeim
markmiðum sem dómnefnd setti um
fjölbreyttar sýningar þar sem sköp-
uð er falleg umgjörð um sýningar-
gripi safnsins," segir ennfremur í
niðurstöðu dómnefndarinnar.
Sænsku hönnuðirnir eru Peter
Ullstad arkitekt, Ann Söderström
arkitekt, Staffan Engqvist arkitekt,
Malin Zimm arkitekt og Karin Kind-
ahl, grafískur hönnuður. Þeim til ráð-
gjafar voru Göran Tegnér frá Stat-
ens historiska museum og Orri
Vésteinsson frá Fomleifastofnun ís-
lands.
Önnur verðlaun í samkeppninni
hlaut tillaga Arkitektastofu Guðmun-
dar Jónssonar og þriðju verðlaun
hlaut tillaga Bjöms G. Björnssonar.
Það var í byrjun árs 1999 sem
menntamálaráðherra tók ákvörðun
um að halda samkeppni um nýjar
sýningar Þjóðminjasafns Islands.
Gunnar Jóhann Birgisson, formaður þjóðminjaráðs og dómnefndar, af-
hendir Peter Ullstad, arkitekt frá Codesign Sweden AB, fyrstu verð-
laun í samkeppni um nýjar sýningar Þjóðniinjasafnsins.
Samkeppnin er sú fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi og er því frumraun
á sviði sýningargerðar. Samkeppnin
fór fram í tveimur þrepum og bárast
alls sjö tillögur í fyrsta þrep, sem var
opin hugmyndasamkeppni. Þar var
meginhugmyndum keppenda komið
á framfæri, til að mynda um skipulag
sýningarsvæðis á annarri og þriðju
hæð Þjóðminjasafnsins. I síðara
þrepinu var eingöngu þeim þremur
aðilum heimiluð þátttaka sem dómn-
efnd valdi til áframhaldandi þátt-
töku. Þar var megináhersla lögð á
hönnunarþátt sýningargerðarinnar
og var þá gerð ítarleg grein fyrir
framsetningu sýningarefnis.
Að sögn Jóhönnu B. Hansen, verk-
fræðings hjá Framkvæmdasýslu rík-
isins, sem var ritari dómnefndar, er
ætlunin að hönnunin skríði af stað
eftir því sem endurbótum húsnæðis
Þjóðminjasafnsins miðar áfram.
Áætlað er að þeim verði lokið í júní
2002 og að hinar nýju sýningar verði
tilbúnar í desember 2002, en þá er
áætlað að safnið verði opnað að nýju.
í samkeppnislýsingu er gert ráð
fyrir að heildarkostnaður við hönnun,
smíði og uppsetningu grannsýninga
verði ekki yfir 100 milljónum la-óna.
Tillögurnar verða til sýnis í Lista-
safni Sigurjóns fram til miðvikudags-
ins 10. maí.
Við erum flutt www.islandsflug.is
en við erum enn með sama símann: 570 8090 Öll farþega- og fraktafgreiðsla okkar er flutt til Flugfélags íslands. Eftir sem áður notarðu sama símann til að fá upplýsingar og bóka flug til Bíldudals og Sauðárkróks: 570 8090. mtm mmrnm wm immm mnm mmmm® ÍSLANDSFLUG