Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 1

Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913 150. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ihaldsmaðurinn Vicente Fox sigraði frambjdðanda PRI í Mexíkó Meira en sjötíu flokkseinræði að Mexíkóborg, Washington, Brussel. AP, AFP, Reuters. ara ljúka Blaðasali í Mexíkóborg heldur á eintaki af blaðinu Metro með mynd af sigurvegaranum í forsetakjörinu, stjörnarandstæðingnum Vicente Fox. Fyrirsögnin er: „Núna er það Fox!“ MEIRA en sjö áratuga einræði PRI-flokksins í Mexíkó lauk á laug- ardag er frambjóðandi íhaldsflokks- ins PAN, Vicente Fox, varð efstur í forsetakosningunum. Er búið var að telja 92% atkvæða hafði Fox hlotið 42,8% en aðalandstæðingur hans, PRI-maðuiinn Francisco Labastida, 35,7%. Úrslitin eru talin vera jafn afdrifarík þáttaskil í sögu landsins og hrun kommúnismans fyrir Rússa. Ekki var skýrt frá neinum dæmum um svik í talning- unni í Mexíkó eins og reglan hefur annars verið síðustu áratugina. Al- þjóðlegir eftirlitsmenn lýstu ánægju sinni með alla framkvæmd kosning- anna, þær hefðu farið vel fram. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sendi Fox hamingjuóskir og bauð honum í heimsókn til Washington eftir embættistökuna sem verður í byrjun desember. Javier Solana, sem fer með sameiginleg utanríkis- og varnarmál í Evrópusambandinu, fagnaði einnig niðurstöðunni. „Ég vil óska Mexíkóum til hamingju fyr- ir að hafa sýnt pólitískan þroska og lýðræðisvilja,“ sagði hann. Stuðningsmenn Fox fögnuðu úr- slitunum ákaft og innilega á götum úti en margir Mexíkóar voru þó áhyggjufullir og sögðust óttast óvissuna. Markaðir voru á hinn bóginn jákvæðir og hækkaði verð á verðbréfamörkuðum um 5% í gær. „Okkur getur ekki mistekist vegna þess að við höfum vakið of miklar væntingar, ýtt undir drauma og þrár,“ sagði Fox í útvarpsávarpi í gær. Fox var oft gagnrýndur í kosningabaráttunni fyrir mikla hörku og jafnvel ruddaskap gagn- vart aðalandstæðingi sínum en fór hlýjum orðum um Labastida í gær. Einnig hrósaði hann fráfarandi for- seta, Emesto Zedillo, fyrir að hafa umsvifalaust viðurkennt ósigur PRI þegar Ijóst var hvert stefndi. Lab- astida var miður sín er hann ávarp- aði stuðningsmenn sína en sagði um úrslitin að virða bæri ákvörðun borgaranna „og sjálfur mun ég sýna gott fordæmi11. PAN öflugri í borgunum PRI fékk oft yfir 90% atkvæða í kosningum fyrstu áratugina en á sjöunda áratugnum fór að bera æ meira á óánægju vegna lélegra lífskjara, stöðnunar og spillingar. Á undanfömum ámm hefur flokkur- inn misst völdin í nokkmm sam- bandsríkjum og mörgum borgum. Líkur bentu til þess í gær að PAN yrði öflugastur í 12 helstu borgum landsins en í sjálfri Mexíkóborg varð frambjóðandi flokksins þó að sætta sig við annað sætið á eftir Andres Manuel Lopez Obrador úr Lýðræðislega bylting- arflokknum. Fulltrúi PRI hlaut þar aðeins um 22%. I kosningum til þingsins virtist PAN ætla að verða stærstur í báðum deildum. Fox verður forseti rúmlega 90 milljóna Mexíkóa næstu sex árin. Hann er 58 ára gamall, fyrrverandi forstjóri hjá mexíkóska Coca Cola- fyrirtækinu en var lengi ríkisstjóri í sambandsríkinu Guanajuato. Flokk- ur hans hefur lengi haft sterk tengsl við kaþólsku kirkjuna. Vænt- anlegur forseti segist vera íhalds- samur miðjumaður og leggur áherslu á að rétta hlut fátæklinga, bæta menntun og auka hagvöxt og atvinnu. ■ Líkt við hrun/24 Leyniskýrsla um Bretiand utan EMU Varað við hruni í iðnaði London. Morgunblaðið. GANGI Bretar ekki í Efna- hags- og myntsamband Evrópu, EMU, blasir við hrun í breskum iðnaði því erlendar fjárfestingar munu dragast saman. Þetta er inntakið í leynilegu minnisblaði frá In- vest in Britain Bureau, IBB, skrifstofu undir viðskiptaráðu- neytinu, sem freistar þess að ýta undir erlendar fjárfesting- ar í Bretlandi. Minnisblaðinu var lekið til breskra fjölmiðla á sunnudaginn. Tony Blair forsætisráðherra og aðrir leiðandi breskir ráð- herrar fara oft jákvæðum orð- um um mikilvægi EMU fyrir Breta en hafa ekki komið með neinar afgerandi yfirlýsingar. I minnisblaðinu segir Anth- ony Fraser, forstöðumaður IBB og ákafur stuðningsmaður EMU, að æ fleiri verksmiðjum muni þurfa að loka í Bretlandi, líkt og hafi gerst með verk- smiðjur Rover og Ford, birti breska stjórnin ekki brátt skýr svör um breska EMU-aðild. Tölur um erlendar fjárfest- ingar í Bretlandi verða birtar í vikunni. Allt bendir til að met síðasta árs, þar sem 650 ný verkefni skiluðu 118 þúsund störfum, verði slegið. Fraser álítur þetta þó ekki segja alla söguna. Við blasi að mörgum verksmiðjum verði lokað. Þetta stafi af því að erlendir fjárfest- ar, til dæmis japanskir, fari nú að hugsa sig tvisvar um varð- andi fjárfestingar í Bretlandi, fyrst ekki séu líkur á breskri ÉMU-aðild á næstunni. Þar sem 70 prósent af breskri fram- leiðslu fari til EMU-landanna hljóti gengismálin að hafa sitt að segja og hve dýrt pundið sé orðið. Hyggjast auka olíusölu Riyadh. AFP. SAUDI-Arabar munu ásamt fleiri olíuþjóðum „mjög bráðlega“ auka olíuiramleiðslu sína verulega ef verð á olíu helst áfram jafn hátt, að sögn Ali al-Nuaimi olíumálaráðherra í gær. „Ef verðið lækkar ekki mun Saudi-Arabía, ásamt hinum olíu- framleiðslulöndunum, auka fram- leiðsluna innan skamms um 500 þús- und föt á dag,“ sagði ráðherrann. Bandaríska blaðið The Wall Strcet Journal hefur eftir heimild- armanni hjá samtökum olíuútflutn- ingsríkja, OPEC, að í reynd muni Saudi-Árabar annast aukninguna. Heimsmarkaðsverð á olíufatinu er nú rösklega 30 dollarar en fari það niður fyrir 25 dollara mun aftur verða dregið úr framleiðslunni. Tugir hermanna Moskvustjórnarinnar faila f Tsjetsjnfu Mesta mannfall hjá Rúss- um svo mánuðum skiptir Moskvu, Argun í Rússlandi. AP. AÐ MINNSTA kosti 49 manns, flestir rússneskir hermenn, létu lífið um helgina og fjöldi slasaðist í mörg- um sjálfsmorðsbílsprengjuárásum í bæjum sem Rússar hafa á valdi sínu í Tsjetsjníu. Embættismenn greindu frá þessu í gær. Átta fórnarlamb- anna voru óbreyttir borgarar og að minnsta kosti sex uppreisnarmenn eru taldir hafa látist er bílamir sprungu í loft upp. Skotmörk hryðjuverkamannanna voru í öllum tilvikunum byggingar yfirstjómar hersins og aðrar stöðvar rússneskra hermanna. Að minnsta kosti 25 rússneskir hermenn féllu og 81 særðist á sunnu- dagskvöldið þegar bíll sprakk í loft upp íyrir utan svefnskála Rússanna í Árgun, 15 kílómetra austur af Grozníj, höfuðborg Tsjetsjníu, að því er neyðarástandsráðuneytið sagði. Var þetta blóðugasta tilræðið. Tveir hermenn og átta óbreyttir borgarar féllu í tveim öðmm bíl- sprengjuárásum á sunnudagskvöldið í Gudermes, næststærstu borg Tsjetsjníu. I Gudermes em höfuð- stöðvar stjórnarinnar sem Rússar hafa skipað í Tsjetsjníu. Tveir hermenn féllu í Ums-Mart- an, þegar reynt var að aka vömbíl, fullum af sprengiefni, í gegnum varnir við byggingu er hýsti skrif- stofur yfirmanna hersins og skrif- stofu innanríkisráðuneytisins, að því er Sergei Jastrzjembskíj, talsmaður Rússlandsstjórnar, sagði og þrír féllu og 20 slösuðust er bíll sprakk skammt frá Novogrozníj. Hermenn skutu á bflana í öllum tilfellum utan einu hófu rússneskir hermenn skothríð á bíl- ana sem hlaðnir vora sprengiefnum og ollu þannig sprengingunum, sagði Jastrzjembskí. í hverjum bíl vom tvö til fimm tonn af sprengiefni, að því er sjónvarpsstöðin NTV greindi frá. Þetta er mesta mannfall sem orðið hefur á einum degi svo mánuðum skiptir í röðum rússneska hersins sem reynir að ná völdum í Tsjetsjníu. Segja leiðtogar uppreisnarmann- anna árásirnar vera svör við þeim tíðu fullyrðingum rússneskra emb- ættismanna að rússneski herinn hafi bundið endi á skipulagða andspyrnu uppreisnarmannanna. MOROUNBLAÐIÐ 4. JÚLÍ 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.