Morgunblaðið - 04.07.2000, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svipuð skjálfta-
virkni undanfarið
TALSVERÐ skjálftavirkni var um
helgina og á sunnudag fannst jarð-
skjálfti greinilega víða á höfuð-
borgarsvæðinu en ekki á Þingvöll-
um þar sem fjöldi hélt kristnihátíð.
Skjálftinn átti upptök sín í
Skálafelli og var 3,4 á Richter.
Að sögn Vigfúss Eyjólfssonar,
jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu
íslands, hefur verið stöðug
skjálftavirkni á svæði frá Krýsuvík
og austur í Brennisteinsfjöll þar
sem næststærsti skjálfti helgarinn-
ar mældist en hann var rúmir 2 á
Richter.
Vigfús sagði að skjálftavirknin
væri enn svipuð og undanfarnar
vikur.
„Ég get alveg fullyrt það að þetta
eru tímabundnar breytingar," sagði
Helgi, aðspurður hvort líkur væru á
að Geysir væri orðinn goshver að
nýju. Hann sagði ekki vafa á að þetta
væru tímabundnar breytingar í
kjölfar jarðhræringanna, líkt og
gerðist í kjölfar Suðurlandsskjálft-
anna 1896.
Þórir Sigurðsson í Haukadal segir
að talsverður fjöldi innlendra ferða-
manna hafi komið að Geysi undan-
farna daga í kjölfar umfjöllunar um
hræringar á svæðinu. „Það er ein-
hver spenningur í fólki,“ segir hann.
„Umfjöllunin hefur verið það mikil
um þetta. Þetta er mjög jákvætt.
Vonandi fær Geysir að hreyfa sig.“
Michael
Crichton
á Islandi
EINN söluhæsti rithöfundur í
heiminum í dag, Bandaríkja-
maðurinn Michael Crichton, er
væntanlegur til íslands nú í
vikunni.
Crichton er íslendingum að
góðu kunnur en margar af bók-
um hans hafa verið þýddar á ís-
lensku. Þá hafa fjölmargar
kvikmyndir verið gerðar eftir
bókum hans.
Meðal verka Michael Cricht-
ons má nefna Jurassic Park,
Airframe, Disclosure, Sphere,
Congo, The 13th Warrior og
sjónvarpsþættina um Neyðar-
vaktina (ER). Þá er ótalin nýj-
asta bók Crichtons, Timeline,
sem hefur selst í stórum upp-
lögum.
Áritar í Eymundsson
Crichton dvelst hér á landi í
sumarleyfi. Hyggst hann ferð-
ast um landið meðan kona hans
sækir Landsmót hestamanna
en hún á nokkra íslenska hesta.
Crichton hefur fallist á að gefa
íslenskum lesendum sínum
færi á að eignast bækur sínar
áritaðar og mun áritunin fara
fram í Pennanum-Eymunds-
son í Austurstræti, fimmtudag-
inn 6. júlí frá klukkan 16.30 til
18. Aðeins verður um þessa
einu áritun að ræða.
2-3 gos
hafa verið
dag hvern
AUKIN virkni er á Geysissvæðinu í
kjölfar Suðurlandsskjálftanna.
Geysir skvettir úr sér tvisvar til
þrisvar á dag, að sögn Þóris Sigurðs-
sonar í Haukadal. Helgi Torfason,
sérfræðingur frá Orkustofnun, var á
svæðinu í gær við rannsóknir og
sagði í samtali við Morgunblaðið að
Geysir hefði greinilega hitnað og
væri virkari en hann var.
Helgi sagðist hafa verið við
rennslismælingar á hvemum um
þrjúleytið í gær þegar hverinn fór að
gjósa og skvetti úr sér nokkrum 5-10
metra háum gusum í rúman klukku-
tíma. Þess á milli dettur hverinn nið-
ur. Helgi segir að aukinnar virkni
gæti á svæðinu öllu; farið er að
krauma í hverum sem áður létu lítið
yfir sér og leirhver á svæðinu er orð-
inn fullur af vatni. Ekki eru hins veg-
ar sjáanlegar miklar breytingar á
Strokk, hvernum sem einn hefur
gosið reglulega síðustu ár, en niður-
stöður úr rennslismælingum þar
liggja ekki íyrir.
Tímabundnar breytingar
á Geysissvæðinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Viggó Sigursteinsson og Vignir Siggeirsson við undirbúning Landsmóts hestamanna í gærkvöld.
Landsmótið
hefst í dag
LANDSMÓT hestamannafélaga
hefst í dag á svæði Fáks á Víðivöll-
um og ber það yfirskriftina „Lands-
mót nýrra tíma“. Þar mun fremstu
fákum landsins verða att saman í
keppni og leik. Hátt íþúsund hross
eru skráð til þátttöku. Mótið er
haldið í Reykjavík í fyrsta sinn.
Bryddað verður upp á ýmsum
nýjungum. Hópreið sú sem hefur
verið fastur liður á dagskrá mótsins
verður nú með öðru sniði. Riðið
verður í kringum Rauðavatn ásamt
forseta, ráðherrum og ýmsum fyr-
irmennum þjóðfélagsins. Stefnt er
að því að tvö þúsund manns taki
þátt í hópreiðinni og þar með sett
met.
■ Landsmótíð/54
Norskt skip grunað um að falsa aflatölur
Aukin virkni er
>44»
>42»
64»
>3.8»
64.2'
64»
63.8
>3.6»
63.6
Gaf ekki upp 1.000
tonn af loðnu
LANDHELGISGÆSLAN hefur óskað eftir upplýsingum frá norsku
fiskistofunni um landanir norska loðnuskipsins Vendla en grunur leikur á
að skipið hafi ekki gefið upp réttan afla í íslenskri lögsögu.
Samkvæmt upplýsingum frá Land-
helgisgæslunni tilkynnti skipið sig
án afla inn í íslenska lögsögu í síð-
ustu viku en gaf upp 750 tonna
afla þegar það hélt út úr lögsög-
unni áleiðis til Noregs. Síðan hafi
borist upplýsingar frá Haugasundi
í Noregi um að skipið hafi landað
þar 1.750 tonnum af loðnu og þar
af hafi 1.000 tonn veiðst í græn-
lenskri lögsögu. Landhelgisgæslan
og Fiskistofa hafa óskað eftir stað-
festingu á vigt aflans frá Noregi
þar sem útilokað þykir að skipið
hafi getað siglt til veiða í græn-
lenskri lögsögu eftir að það hélt úr
þeirri íslensku en áður en það
landaði í Noregi.
Norðmenn mega veiða 41.200
tonn af loðnu innan íslenskrar
landhelgi á þessu ári og var afli
þeirra í gær orðinn um 25 þúsund
tonn. Mest mega vera 35 norsk
loðnuskip innan landhelginnar
samtímis en þau hafa flest orðið 21
það sem af er þessari vertíð.
Gott ár hjá Steinull-
arverksmiðjunni
109 millj-
óna kr.
hagnaður
UM 109 milljóna króna hagnað-
ur varð af rekstri Steinullar-
verksmiðjunnar hf. á Sauðár-
króki á síðasta ári af um 672
milljóna króna rekstrartekjum.
A aðalfundi Steinullar-
verksmiðjunnar sem haldinn
var í fyrradag var ákveðið að
greiða hluthöfum 12% arð. Fyr-
irtækið borgaði í fyrsta skipti
tekjuskatt á síðasta ári þar sem
frádráttur vegna taprekstrar
fyrri ára var uppurinn.
Félagið á rúmlega 700 millj-
óna króna eignir, samkvæmt
efnahagsreikningi, og er eigið
fé 444 milljónir eða sem svarar
til 63% af eignum.
Fram kom á fundinum að
næsta stóra verkefni félagsins
er að ráðast í kaup á nýrri
pökkunarlínu til að mæta
breyttum áherslum í flutning-
um og ráðast í byggingu á nýju
húsnæði. Kostnaður er áætlað-
ur 130 milljónir kr.
Með Morg-
unblaðinu
i dag er
dreift blaði
frá Kom-
Sýningar,
„Bú-2000“.