Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 4

Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kristskirkja fær heiðurstitilinn basilika Cassidy kardináli, fulltrúi páfagarðs, lýsti Kristskirkju basilíku við messu á laugardag. Að baki honum sitja Jó- hannes Gijsen biskup og nokkrir presta kaþólsku kirkjunnar. KRISTSKIRKJA, kaþólska dóm- kirkjan 1 Reykjavík, var síðastlið- inn laugardag heiðruð með nýjum titli, basilica minor, eða lítil basi- líka. Með þvi er hún hafin til auk- innar vegsemdar að sögn biskups kaþólskra, Jóhannesar Gijsen, og segir hann tilefnið vera minningu um þúsund ára kristni á íslandi. Edward Cassidy kardináli, full- trúi páfa, annaðist athöfnina en hann var jafnframt gestur og full- trúi páfagarðs á kristnihátíðinni á Þingvöllum. Tilskipun um útnefningu kaþ- ólsku dómkirkjunnar, kirkju Krists konungs, var gefin út af stjórnar- deild helgisiða í Róm í fyrravor og segir biskup að biskupafundur Norðurlanda hafi einnig samþykkt titilinn á fundi sínum í fyrra en sá fundur hefur umsagnarrétt á slík- um tillögum. Jóhannes Gijsen biskup segir tit- ilinn ekki koma í stað dómkirkju- nafnsins heldur sé hann viðbót. „Páfi segir í yfirlýsingu sinni að hann veiti þennan titil sem gjöf til landsins í tilefni af þúsund ára kristniafmælinu. Fyrsta kirkja Norðurlanda sem fær þennan titil Venjulega er þessi titill fenginn kirkju sem er höfuðkirkja lands, er sögulega merkileg eða merkileg að arkitektúr en hér ákvað páfi þetta tilefni," segir kaþólski biskupinn. Hann segir enga aðra kirkju á Norðurlöndum bera þennan titil og ekki heldur í allri Norður-Evrópu. Jóhannes Gijsen hefur verið hér í fimm ár og kveðst búast við að vera hér enn um sinn. „Það verður eins lengi og páfi og fólkið hér leyfir,“ segir hann. Biskup segir páfa þekkja alla biskupa sína, flesta með nafni, enda hitti þeir hann reglulega á biskupafundum. Goðafoss á gömlum slóðum GOÐAFOSS lagðist skamma stund að bryggju í gömlu höfn- inni í Reykjavík í gærmorgun með fullt þilfar af gámum. Mörg ár eru liðin sfðan losun millilandaskipa fluttist yfir i Sundahöfn en í gær var þar enga viðlegu að hafa þegar Goðafoss kom til heimahafnar. Meðan þess var beðið að pláss losnaði undir gámakrananum í Sundahöfn lá Goðafoss við gamla hafnarbakkann og setti svip á miðbæinn brot úr degi. Gladdi þetta augu margra sem muna þá tíma er höfnin var full af milli- landaskipum og iðaði af lífi. Á seinni árum eru það helst skemmtiferðaskip sem setja svip sinn á gömlu höfnina í Reykja- vík. Morgunblaðið/Kristinn Sjöfaldur Lottópott- ur í annað sinn í sögunni LOTTÓVINNINGUR síðast- liðins laugardagskvölds gekk ekki út. Enginn var með fimm tölur réttar. Potturinn verður því sjöfaldur um næstu helgi. í Lottóinu hefur verið dregið alls 710 sinnum frá upphafi. Aðeins einu sinni áð- ur hefur potturinn orðið sjöfaldur, hinn 24. október 1998. Það kvöld skiptist vinn- ingurinn, rúmar 38 milljónir, á milli fjögurra vinningshafa. Tölfræðilega á þetta ekki að geta gerst, að sögn Berg- sveins Sampsted, fram- kvæmdastjóra íslenskrar get- spár. Líkurnar á að vinna í Lottóinu eru einn á móti fimmhundruð þúsund. Þegar seldar eru sjöhundruð þúsund raðir eins og um síðustu helgi ætti að vera búið að tryggja að allar hugsanlegar talna- samsetningar hefðu verið not- aðar. Bergsveinn segir það þó hafa sýnt sig að allt geti gerst í Lottóinu. Margur kann að velta fyrir sér hve hár pottur- inn muni verða um helgina. Bergsveinn telur erfitt að segja nákvæmlega til um upphæðina sem í pottinum verður. Hann segir sumarið erfiðari tíma til að selja Lottó, þar sem fólk sé á ferð og flugi jafnt heima sem er- lendis. Þó geri þeir á Is- lenskri getspá ráð fyrir að vinningurinn fari að minnsta kosti yfir 30 milljónir króna. Bergsveinn segir það nán- ast öruggt að vinningurinn gangi út um næstu helgi. Sleipnisdeilan Fundur um launaliðinn í dag Sáttafundur er boðaður í kjara- deilu Sleipnis og Samtaka atvinnu- lífsins klukkan hálftvö í dag. Eins og fram hefur komið hjá Þóri Einarssyni ríkissáttasemjara hefur þegar náðst samkomulag um önnur deiluatriði en launaliði, þar sem enn ber nokkuð á milli aðila, og verða launamálin til umræðu á fundinum í dag. Þjónusta númer eitt! Til sölu Volvo S70 2500 nýskráður 14.07.1998, 4radyra, leðurinnrétting, spoiler, sjálf- skiptur, ekinn 42.000 km. Ásett verð 2.460.000. Ath. skipti ódýrari Nánarí uppl. hjá Bílaþingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartími: Mdnud. - föstud. kl. 9-I8 laugardagar kl. 12-16 , BÍLAÞINGflEKLU Nurwo oH í nofvPuni bílvryif Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500 wviw.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Ríki o g sveitarfélög skipa viðræðunefnd BORGARSTJÓRI og bæjarstjórar Kópavogs og Hafnarfjarðar hafa fundað með fjármálaráðherra, samgönguráðherra og umhverfisráðherra vegna sam- göngumála á höfuðborgarsvæðinu og þá sérstaklega almenningssamgangna. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgar- stjóra var ákveðið að í framhaldi yrði settur niður við- ræðuhópur milli sveitarfélaganna og ríkisins sem færi yfir stöðuna. „Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu leggja áherslu á að ríkið komi með einhverjum hætti að almenningssamgöngum," sagði Ingibjörg Sólrún. „Okkur telst til að þeir taki inn í skatta af þeim núna um 170 milljónir á ári. Við förum ekki fram á að þess- ir skattar verði lagðir niður, þar sem það gæti verið erfitt fyrir ríkið vegna fordæmisáhrifa en að þess í stað komi einhver framlög til almenningssamgangna, þar sem við teljum að þær séu hluti af stofnbrauta- kerfi rétt eins og þjóðvegir." Umferðin í höfuðborginni mikill mengunarvaldur Borgarstjóri benti á að umferðin á höfuðborgar- svæðinu væri einn stærsti mengunarvaldurinn á land- inu og að í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar sem hún hafi samþykkt, kæmi fram að taka ætti upp viðræður við sveitarfélögin um almenningssamgöng- ur. „Við leggjum áherslu á að það verði gert,“ sagði hún. „Meðal þess sem við munum ræða er hvernig hægt verði að veita almenningsvögnum meiri forgang í umferðinni þannig að fólk finni ávinning af því að nota þá en það veður að skoða í samráði við ríkið sem sér um allar stofnbrautir.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.