Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fyrirspurn frá einkafyrirtæki til borgarmnar
Morgunblaðið/Golli
Borgin og ríkið eiga hús Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg en einkafyrirtæki hefur
nú falast eftir því.
Falast eftir Heilsu-
verndarstöðinni
Austurbær
REYKJAVÍKURBORG hefur
borist fyrirspum frá einkafyr-
irtæki um hvort hús Heilsu-
vemdarstöðvarinnar við Bar-
ónstíg sé falt og segir
Hjörleifur Kvaran borgarlög-
maður, í samtali við Morgun-
blaðið, að vel gæti komið til
greina af hálfu borgarinnar að
selja eignina, en fyrst þurfi
borgin og ríkið, sem eiga húsið
saman, að skýra eignarhluta
sína í húsinu.
Ríkið greiðir borginni
ekki fyrir afnot af eignar-
hluta hennar
Eins og staðan er í dag á
borgin 60% í húsinu og ríkið
40% en ríkið er með starfsemi í
nær öllu húsinu. Hjörleifur
segir að borgin hafi um nokk-
urt skeið vilja breyta þessari
stöðu þar sem ríkið greiði enga
leigu fyrir afnot sín af þeim
hluta hússins sem sé í eigu
borgarinnar.
„Okkur er það ekkert sér-
staklega Ijúft að eiga þama
60% í húsi og hafa engin not af
því fyrir eigin starfsemi né
leigutekjur," segir Hjörleifur.
Hann segir að borgin hafi
lengi óskað eftir því við ríkið að
stöðu þessari yrði breytt og að
þeim hjá borginni hafi fundist
þrennt koma helst til greina;
að ríldð keypti hluta borgar-
innar, að eignin yrði seld, eða
að henni yrði skipt upp í sam-
ræmi við eignarhluta hvors um
sig og þá gæti borgin annað-
hvort selt sinn hluta eða nýtt
hana undir eigin starfsemi.
Hjörleifur segir að fyrir
nokkmm ámm hafi staðið til
að hlutur borgarinnar yrði
seldur og þá hafi húsið verið
metið af matsnefnd sem í sátu
bæði fulltrúi borgar og ríkis.
Þá hafi eignin verið metin á um
600 milljónir króna.
„Eignin var metin fyrir
meira en þremur ámm, sam-
eiginlega af ríki og borg, og
þegar matið kom þótti ríkinu
verðið of hátt og vildi ekki
kaupa okkar hluta á því verði.“
Eignin yrði auglýst
rækilega ef ákveðið
yrði að selja hana
Hjörleifur segir að fyrirtæk-
ið sem spurðist fyrir um húsið
hafi ekki nefnt ákveðið verð.
Hann tekur fram að ef ákveðið
yrði að selja húsið myndi það
að sjálfsögðu verða auglýst
rækilega þannig að öllum þeim
sem vildu gæfist tækifæri til að
gera tilboð. Hann segir einnig
að áður en mögulegt yrði að
selja húsið þyrftu borgin og
ríkið að gera með sér eigna-
skiptasamning tfi að átta sig á
því hvaða hluta hússins hvor
eigi.
Hann bendir á að taka beri
með í reikninginn að húsið
henti núverandi starfsemi þess
sérstaklegavel.
„Mér sýnist sem starfsemi
ríkisins í húsinu sé með þeim
hætti að erfitt sé að flytja
hana. Húsið var byggt fyrir
heilbrigðisstarfsemi í upphafi
og hentar náttúrlega fyrst og
fremst fyrir einhverja slíka
starfsemi," segir Hjörleifur.
Hann segir að ríkið hafi fyr-
ir nokkmm vikum sett á lagg-
imar nefnd með fulltrúum
heilbrigðis- og fjármálaráðu-
neytisins sem sé ætlað að meta
stöðuna og að líklega muni mál
þetta skýrast þegar niðurstaða
hennar liggi fyrir.
Samið um þjónustu-
hús fyrir ylströndina
Nauthólsvík
Arkibúllan ehf
Reykjavíkurborg hefur
ákveðið að ganga til samninga
við Völundarverk ehf. um
byggingu 525 fermetra þjón-
ustuhúss við ylströndina í
Nauthólsvík. Húsið verður til-
búiðnæstavor
Útboð var nýlega haldið
vegna byggingarinnar og var
öllum tilboðum hafnað og út-
boðið fellt niður en samþykkt
að ganga til samninga við
Völdunarverk sem skilaði inn
lægstatilboði.
Fyrirtækið bauð 109,1
milljón króna sem var um 17%
yfir kostnaðaráætlun sem var
tæpar 93 m.kr.
Aðrir bjóðendur vom
Spöng ehf. sem bauð 109,3
m.kr., Gils ehf. sem bauð 112,3
m.kr, Garðar Ingþórsson sem
bauð 131,2 m.kr., Deka ehf.
sem bauð 134,3 m.kr, Kraft-
vaki ehf. sem bauð 137,7 m.kr.
og Framkvæmd ehf. sem
bauð 150,5 m.kr. sem var
61,9% yfir kostnaðaráætlun.
Að sögn Rúnars Gunnars-
sonar hjá byggingadeild borg-
arverkfræðings er áætlað að
standa þannig að fram-
kvæmdum að verkinu verði
lokið næsta vor.
Búningsaðstaða fyrir 200,
snyrtiaðstaða fyrir 500
Hönnuðir hússins em Heba
Hertervig, Hólmfríður Jóns-
dóttir og Hrefna B. Þorvalds-
dóttir arkitektar hjá Arkibúll-
unni.
Heba sagði í samtali við
Morgunblaðið að lega bygg-
ingarinnar í landinu byði upp
á tvíþætta nýtingu. Annars
vegar verður þar áningar- og
útsýnisstaður fyrir útivistar-
fólk sem á leið um Nauthóls-
vík. Hins vegar verður húsið
búnings- og sturtuaðstaða
fyrir gesti ylstrandarinnar en
byggingin mun snúa að
ströndinni og fyrir framan
hana verða verönd og heit set-
laug. Búningsaðstaða verður
fyrir 200 manns en snyrtiað-
staða sem annar 500 gestum.
Morgunblaðið/Amaldur
s
Aferð og flugi
Reykjavík
Þessi knái hjólreiðamaður var fljótur í förum
þegar hann þaut eftir Skothúsvegi á dögunum.
Nú er rétti tíminn til þess að dusta rykið af
reiðhjólunum og hjóla af stað enda er veðrið
á höfuðborgarsvæðinu eins og best verður á
kosið þessa dagana.
Nýr vegur frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi
Helstu umhverfísáhrif
eru hljóðmengun
Grafarvogur
ÁFORMAÐ er að nýr vegur,
Hallsvegur, verði lagður frá
Fjallkonuvegi að Víkurvegi
síðar á þessu ári en fram-
athugun Skipulagsstofnunar
á umhverfisáhrifum vegna
lagningar vegarins er lokið.
Um er að ræða eins kflómetra
langan tveggja akgreina veg-
arkafla ásamt þrennum
gatnamótum, undirgöngum
fyrir gangandi umferð og til-
heyrandi göngustígum.
I fréttatilkynningu frá
Skipulagsstofnun segir að
vegurinn eigi að bæta sam-
göngur til og frá Grafarvogs-
hverfum, létta umferð á
Gagnvegi og koma í veg fyrir
óþarfa akstur um íbúðahverfi
með tilheyrandi slysahættu.
Framkvæmdin er hluti af
fyrirhuguðum fjögurra ak-
reina vegi sem í framtíðinni
mun tengja Sundabraut við
Vesturlandsveg.
Helstu umhverfísáhrif
hljóðmengun
í fmmmatsskýrslu skipu-
lagsstjóra kemur fram að
helstu umhverfisáhrif fram-
kvæmdarinnar verði hljóð-
mengun en áhrif á náttúra
eða menningarminjar á
svæðinu verði ekki umtals-
verð. Einnig segir að styrkur
mengunarefna í lofti vegna
umferðar um veginn sé ekki
talinn nálgast umhverfis-
mörk.
Mest verður hljóðmengun
við Garðhús og í suðaustur-
hluta Gufuneskirkjugarðs en
byggðar verða hljóðmanir við
Garðhús til þess að draga úr
hávaða frá veginum.
Skipulagsstjóri ríkisins
setur það sem skilyrði fyrir
framkvæmdunum að tryggt
verði að hljóðstig frá umferð
um Hallsveg verði undir 55
db við íbúðir við Garðhús.
Hann telur einnig nauðsyn-
legt að gerðar verði ráðstaf-
anir til þess að draga úr
hávaða í Gufuneskirkjugarði
enda sé þar um útivistar-
svæði að ræða og viðmiðunar-
mörk vegna hljóðmengunar
svipuð íbúðarsvæðum.
Sömu auðkenni og í borginni
Kjalarnes
DÆMI em um að bæjar-
nöfn á Kjalarnesi séu þau
sömu og götunöfn í annars
staðar í Reykjavík. Að sögn
Magnúsar Sædal Svavar-
ssonar, byggingarfulltrúa í
Reykjavík, getur þetta vald-
ið talsverðum vandræðum,
sérstaklega ef byggingar við
bæina á Kjalamesi em tölu-
settar. Hann segir að vanda-
mál geti meðal annars skap-
ast við fasteignaskráningu
og póstdreifingu en einnig
geti þetta hamlað bmna-
vömum og sjúkraflutning-
um.
Magnús segir að byggð á
Kjalamesi sé að þéttast mik-
ið og nýbyggingar séu að
rísa við einhverja bæi. Hann
segir því nauðsynlegt að
koma skipulagi á þessi mál.
Vegir að bæjum fái nöfn
Að sögn Magnúsar er lík-
legt að Byggingarnefnd
sendi á næstunni tillögur til
Borgarráðs um að vegir sem
liggi frá Vesturlandsvegi að
bæjum á Kjalarnesi fái nöfn
og bæirnir verði síðan tölu-
settir við þá vegi. Magnús
nefndi sem dæmi bæinn
Brautarholt, en gata með því
nafni er einnig til í Reykja-
vík. Vegurinn upp að Braut-
arholti nefnist Brautarholts-
vegur en ef bærinn yrði
skráður sem Brautarholt við
Brautarholtsveg kæmi það í
veg fyrir að honum yrði
raglað við götuna í Reykja-
vík, sérstaklega ef bygging-
um myndi fjölga við bæinn
og þær yrðu tölusettar.