Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sjö áratuga valdatíma stjórnarflokks Mexíkó lokið eftir ósigur í forsetakosningum
Líkt við hrun komm-
únismans í A-Evrúpu
Mexíkdborg. Reuters, AFP.
VICENTE Fox, írambjóðandi
íhaldsflokksins PAN, fór með sigur
af hólmi í forsetakosningunum í
Mexíkó á sunnudag og batt þar með
enda á 71 árs valdatíma flokksins
PRI, sem hefur verið lengur við völd
samfleytt en nokkur annar flokkur í
heiminum. Ósigur PRI markar
þáttaskil í stjómmálum Mexíkó, fjöl-
mennasta spænskumælandi lands
heims, og var honum líkt við hrun
kommúnismans í Austur-Evrópu.
Hyggst bæta efnahaginn og
uppræta spillingu
Fox ávarpaði stuðningsmenn sína í
Mexíkóborg í gær og hvatti þá til að
reyna ekki að hefna sín á PRI sem
hélt völdunum í sjö áratugi, stundum
með augljósum kosningasvikum.
„Verkefni okkar er að koma á breyt-
ingum án haturs og reiði,“ sagði Fox
og bætti við að hann væri staðráðinn
í að tryggja efnahagslegan stöðug-
leika í landinu.
Fox hefur lofað „nýju efnahags-
undri“ og kveðst ætla að stuðla að 7%
hagvexti, koma verðbólgunni í 2% og
skapa 1,3 milljónir nýrra starfa.
Hann hefur einnig heitið því að upp-
ræta spillinguna, sem hann segir
hafa einkennt valdatíma PRI, bæta
kjör hinna fátæku og stuðla að rétt-
látari skiptingu þjóðarauðsins.
Emesto Zedillo, fráfarandi forseti,
sem er hagfræðingur, hefur beitt sér
fyrir markaðsumbótum og frjálsum
viðskiptum og búist er við að Fox
framfylgi sömu stefnu. Mexíkó er
næststærsta hagkerfi Rómönsku
Ameríku á eftir Brasilíu og aðild
landsins að Fríverslunarbandalagi
Norður-Ameríku (NAFTA) frá árinu
1994 varð til þess að viðskiptin við
Bandaríkin stórjukust.
Fox lagði áherslu á að þótt mikil
umskipti væra í vændum í stjórnmál-
um landsins væri engin ástæða til að
óttast efnahagslegt umrót.
PRI hefur oft verið gagnrýndur
fyrir efnahagslega óstjóm og víð-
tæka spillingu. Embættismaður í
Mexíkóborg sagði að ósigur flokksins
væri jafnmikilvægur og hran komm-
únismans í Austur-Evrópu. „Þetta er
söguleg stund fyrir Mexlkó. Þetta er
eins og hran Berlínarmúrsins, en
PRI entist lengur en hann.“
Boðar sættir
Fox fór hörðum orðum um gamla
stjórnarflokkinn í kosningabarátt-
unni en boðaði sættir í ræðu sinni í
gær. Hann hrósaði Zedillo forseta
fyrir að hafa tryggt frjálsar og lýð-
ræðislegar kosningar í landinu og að
„hafa nægan lýðræðislegan þroska
til að viðurkenna úrslitin þegar í stað
og án nokkurs hiks“. „Við ætlum að
vinna saman að fjárlögum næsta árs
til að tryggja að allt gangi snurðu-
laust fyrir sig.“
Zedillo, sem hafði komið á lýðræð-
islegum umbótum fyrir kosningam-
ar, óskaði Fox til hamingju og kvaðst
ætla að tryggja að valdaskiptin
gengju vel og friðsamlega fyrir sig.
Fox tekur við forsetaembættinu 1.
desember. Francisco Labastida, for-
setaefni PRI, var augljóslega miður
sín þegar hann játaði sig sigraðan.
„Borgararnir tóku ákvörðun og við
verðum öll að virða hana,“ sagði
hann.
Samkvæmt fyrstu tölum var flokk-
ur Fox, PAN, nálægt því að ná meiri-
hluta í neðri deild þingsins. Fox
kvaðst þó ekki búast við því að flokk-
urinn næði meirihluta á þinginu og
lofaði samstarfi við aðra flokka.
Rithöfundurinn Mario Vargas
Llosa fagnaði úrslitunum og lýsti
kosningunum sem „merkum degi
fyrir Rómönsku Ameríku og lýðræð-
ismálstaðinn". Hann bætti við að Fox
ætti mjög eifitt verk fyrir höndum.
„Til að rífa niður alræðisvélina sem
hefur verið við völd í 71 ár þarf hann
að endurbæta ríkið frá granni.“
Vargas Llosa lýsti eitt sinn Mexíkó
sem „fullkomnu einræðisríki", eink-
um vegna þess að PRI tókst að halda
völdunum svo lengi með því m.a. að
skipta um forseta á sex ára fresti.
Vargas Llosa bauð sig fram í forseta-
kosningum í Perú árið 1990 en beið
ósigur fyrir Alberto Fujimori.
Vinstrimönnum spáð
sigri í Mexíkóborg
PAN virtist í gær vera öraggur um
sigur í ríkisstjórakosningum sem
fram fóra í tveimur ríkjum, Gu-
anajuato og Morales, á sunnudag.
Guanajuato er heimaríki Fox og
hann var ríkisstjóri þar á áranum
1995-99. Morales hefur lengi verið
undir stjóra PRI en fylgi stjómar-
andstöðunnar jókst mjög í ríkinu eft-
ir að ríkisstjórinn var sviptur em-
bættinu vegna ásakana um spillingu
og tengsl við glæpasamtök.
Flest benti til þess að vinstriflokk-
urinn PRD héldi völdunum í Mexíkó-
borg þar sem Andres Manuel Lopez
Obrador, frambjóðandi flokksins,
var með um 39% atkvæða í borgar-
stjórakosningum þegar 60% atkvæð-
anna höfðu verið talin. Helsti keppi-
nautur hans, Santiago Creel,
borgarstjóraefni PAN, var með 34%
en frambjóðandi PRI fékk miklu
minna fylgi.
Sigurinn í Mexíkóborg er mjög
mikilvægur fyrir PRD, sem fór með
sigur af hólmi í fyrstu borgarstjóra-
kosningunum í höfuðborginni árið
1997. Stjómmálaskýrendur spáðu
því að Lopez Obrador yrði mjög at-
kvæðamikill í stjórnmálum landsins
næstu árin og töldu líklegt að hann
yrði forsetaefni vinstriflokksins í
næstu forsetakosningum árið 2006.
Ungir Mexíkdbúar fagna í borginni Tijuana í fyrrakvöld eftir að Ijdst var að Vicente Fox fdr með sigur af hdlmi
í forsetakosningunum í Mexíkd á sunnudag.
Fögnuður og ótti
meðal almennings
Mcxíkóborg. Reuters.
TUGÞÚSUNDIR íbúa Mexíkdborg-
ar sungu og dönsuðu við undirlcik
farandsveita á götum borgarinnar
í fyrrindtt eftir að nýr stjdrnar-
flokkur komst til valda í Mexíkd í
fyrsta sinn í sjö áratugi. Aðrir
báru kvíðboga fyrir fjölræðinu og
pdlitísku dvissunni sem því kann
að fylgja eftir 71 árs valdatíma
eins og sama flokksins, PRI.
Tugir þúsunda söfnuðust saman
við Sjálfstæðisengilinn, styttu á
helsta breiðstræti Mexíköborgar,
til að fagna sigri Vicente Fox, for-
setaefnis íhaldsflokksins PAN,
sem þeir telja marka upphaf nýs
lýðræðisskeiðs i landinu.
Francisco Labastida, forsetaefni
gamla stjdrnarflokksins, tárfelldi
þegar hnuggnir stuðningsmenn
hans sungu þjdðsönginn eftir
fyrsta dsigur PRI í forsetakosn-
ingum frá 1929. Hann flýtti sér
si'ðan úr höfuðstöðvum flokksins.
Gabriella Padilla, 42 ára hús-
mdðir, grét af gleði, þakin marg-
litum pappirssnifsuin sem kastað
var yfir mannfjöldann í hátíða-
höldunum. „Þetta er tilfinning sem
ég get ekki lýst eftir 70 ára kúgun.
Eg varð svo glöð að ég grét.“
„Við héldum að PRI yrði enda-
laust við völd en okkur tdkst að
sigra," sagði kona í höfuðstöðvum
PAN. „Við þurftum frambjdðanda
eins og Fox til að sigra PRI.“
Manucl Mogel, 76 ára, brosti
breitt þegar hann frétti af sigri
Fox við stdrmarkað í Mexíköborg.
„Þetta er það besta sem gat gerst.
Ef við höfum snefil af stolti getum
við ekki látið það viðgangast að
hdpur glæpamanna haldi áfram að
stjórna landinu."
Jafnvel félagar í PRI, þeirra á
meðal Ernesto Zedillo, fráfarandi
forseti, sögðu að pdlitískar breyt-
ingar væru af hinu gdða fyrir
Mexíkd. „Við höfum sannað að við
búum nú við þroskað lýðræði með
traustar stofnanir," sagði hann í
sjdnvarpsávarpi.
Öðrum stendur
stuggur af Fox
Ekki eru þö allir hrifnir af Fox,
sem er 58 ára og fyrrverandi
framkvæmdastjdri hjá Coca-Cola.
Nokkrir drögu í efa að hann yrði
betri en ráðamennirnir úr PRI.
„Mig hryllir við þessu,“ sagði
David Surisky, fimmtugur íbúi
Mexíköborgar. „Mér geðjast ekki
að Fox vegna þess að hann er hall-
ærislegur. Það eina sem mér líkar
við hann er að hann kann að fara
með peninga."
Lilian Rozen, 41 árs, kvaðst hafa
stutt Fox þegar hann hdf kosn-
ingabaráttuna fyrir þremur árum
en farið að vantreysta honum þar
sem hann væri of „árásargjarn".
„Mig öar við því að svo hviklyndur
maður eigi að stjdrna Iandinu."
Rozen bætti við að Labastida
hefði verið betri kostur þar sem
hann væri holdtekja stöðugleika
en Fox dvissu. „Ég hef alltaf talið
að þekkt böl sé skárra en öþekkt.“
Sigurvegarinn Vicente Fox
Stóryrtur
stórbýlisbóndi
Mexíkóborg. Reuters.
VICENTE Fox, maðurinn sem
vann það stórvirki að takast að
binda enda á yfir 70 ára valdatíð
PRI-flokksins í Mexíkó, er stóryrt-
ur stórbýlisbóndi og fyrrverandi
forstjóri Coca-Cola í Mexíkó sem
líkar betur að klæðast kúreka-
stígvélum en hálsbindi.
Með því að „gefa PRI sparkið"
tókst Fox að gera alvöru úr því
ætlunarverki sem hann lýsti yfir
fyrir þremur áram, við upphaf
kosningabaráttuherferðar sinnar,
en hann lagði leið sína um flest
byggð ból landsins í rútu, hvetj-
andi landsmenn sína til að kjósa
breytingar.
„Bylting vonarinnar"
„I dag höfum við náð yfir á hinn
árbakkann og nýtt tímabil í þjóð-
arsögunni er að renna upp,“ sagði
Fox, sem var í framboði fyrir
hægriflokkinn PAN (Partido de
Accion Nacional), er hann ávarpaði
stuðningsmenn árla á mánudag
eftir að úrslitin vora orðin ljós.
„Þessi bylting vonarinnar náði að
bera ávöxt fyrir tilstilli milljóna og
aftur milljóna mexíkóskra kjós-
enda,“ tjáði sigui-vegarinn frétta-
mönnum, enn í sigurvímu aðfara-
nótt gærdagsins. „Ég vil tileinka
hverja vökustund lífs míns því að
standa með ykkur og gera það sem
ég get til að hjálpa draumum ykk-
ar og míns elskaða Mexíkó að ræt-
ast,“ sagði hann í ávarpinu í gær-
morgun.
Það vildi svo til að kjördagurinn
var jafnframt 58 ára afmælisdagur
Fox og fjölmennið fyrir utan höf-
uðstöðvar PAN-flokksins og við
sjálfstæðisminnismerkið í miðborg
Mexíkóborgar kyrjaði ítrekað
mexíkóska afmælissönginn „Las
Mananitas".
Þar til fyrir fjórum áram var
hinn stórvaxni stjórnmálamaður
(hann er 1,98 m á hæð) svo til
óþekktur meðal almennings í
Mexíkó en þá var hann orðinn rík-
isstjóri heimahéraðs síns Gu-
anajuato, þar sem hann rekur
jafnframt stórbýli með kjúklinga-
Vicente Fox
rækt, mjólkurkúm, strútaeldi og
kynbótanautum.
En hann naut nógu mikillar
virðingar meðal annarra stjórn-
málamanna til þess að þeir sam-
þykktu stjórnarskrárbreytingu
sem gerðimanni sem er að hálfu af
erlendu foreldri kleift að bjóða sig
fram til forseta. Móðir Fox var
spænsk.
Sem stjórnmálamaður er hann
álitinn miðjumaður sem styður
frjálst framtak en er tilbúinn til að
verja skattfé t.d. til menntamála.
Hann líkir sjálfur stefnu sinni oft
við „þriðju leiðina" svokölluðu sem
Tony Blair og fleiri evrópskir jafn-
aðarmannaleiðtogar hafa mótað.