Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Gunnhildur Sig-
ríður Guð-
mundsdóttir fæddist
á Akureyri 13. maí
1936. Hún Iést á
Sjúkrahúsi Húsavík-
ur 26. júní síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Guömundur
Arnason bóndi í
-*Arnarnesi v/Hjalt-
eyri, f. 24.12. 1912,
d. 4.4.1992 og Aðal-
heiður Guðmunds-
dóttir f. 16.6 1913,
d. 20.11.1989, hús-
móðir. Gunnhildur
ólst upp í Arnarnesi og gekk í
Barnaskólann á Hjalteyri og síð-
an í Barnaskóla Akureyrar. Vet-
urinn 1953-1954 stundaði hún
nám í Húsmæðraskólanum á
Laugum í Reykjadal.
Systkini hennar eru: Sesselía
Björk f. 18.10.1937, gift Jóni H.
Pálssyni og eiga þau sex börn,
Unnur f. 19.8.1941, gift Birgi Þór-
hallssyni og eiga þau þrjú börn,
Árni Örn f. 21.11.1944, d.
20.5.1966, Guðmundur Smári, f.
27.11.1945, Svava
Friðrika, f. 12.4.1949,
giftist Jónasi Hall-
grímssyni og eiga
þau fjögur börn, þau
skildu. Núverandi
eiginmaður Svövu er
Júlíus Hraunberg og
á hann tvo syni, Heið-
brá, f. 11.12.1954,
maki Sigurður M.
Björnsson og eiga
þau tvö börn, áður
átti Heiðbrá eina
dóttur með Freygarði
Jóhannssyni.
Er Gunnhildur var
við nám í Húsmæðraskólanum á
Laugum kynntist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum, Stefáni Þóris-
syni bónda og vörubifreiðastjóra
á Hólkoti, f. 22. júní 1930. Þau
gengu í hjónaband 31. desember
1954. Foreldrar Stefáns voru
Þórir Stefánsson frá Hellulandi,
f. 9. maí 1891, d. 27. júní 1965,
bóndi á Hólkoti og Ásrún Jóns-
dóttir frá Höskuldsstöðum, f. 3.
mars 1900, d. 17. ágúst 1980, hús-
móðir. Systir Stefáns er Svanhild-
ur, f. 4. júlí 1929, gift Albert
Valdimarssyni, búsett á Akureyri
og eiga þau fjórar dætur.
Gunnhildur og Stefán eignuð-
ust sex börn. Þau eru: 1) Aðal-
heiður, f. 27. maí 1955, búsett á
Akureyri, giftist Sigurði V. Jón-
assyni og eiga þau tvö börn, þau
skildu. Núverandi maki er Sveinn
B. Sveinsson og á hann þrjá syni,
2) Þórir, f. 15. apríl 1956, giftur
Svanhvíti Jóhannesdóttur, búsett
á Húsavík og eiga þau fimm börn,
3) Guðmundur, f. 1. aprfl 1957, d.
1. apríl 1997, kvæntist Hólmfríði
F. Svavarsdóttur og áttu þau þrjú
börn, Hólmfríður býr í Reykjavík,
4) Stefán, f. 24. nóvember 1960,
kvæntur Lovísu Leifsdóttur, bú-
sett í Mývatnssveit og eiga þau
fimm börn, 5) Olga Ásrún, f. 14.
mars 1963, gift Sigurjóni B.
Kristinssyni, búsett í Reykjavík
og eiga þau fjögur börn, 6) Gunn-
hildur, f. 22. aprfl 1964, gift Leifi
Hallgrímssyni, búsett í Mývatns-
sveit og eiga þau tvo syni.
Gunnhildur vann lengst af við
húsmóðurstörf heima á Hólkoti
en eftir að börnin uxu úr grasi
vann hún um tima utan heimilis,
lengst vann hún við mötuneyti
Laugaskóla og eftir það á Leik-
skólanum á Litlu-Laugum, Póst-
húsinu á Laugum og f Sumarbúð-
um ÆSK við Vestmannsvatn.
Útför Gunnhildar fer fram frá
Einarsstaðakirkju í Reykjadal í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
GUNNHILDUR
SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
Elsku mamma mín. Að leiðarlok-
um er mér efst í huga þakklæti til þín
fyrir það hvað þú varst yndisleg
mamma. Alltaf ef mig vantaði hjálp
við að greiða úr einhverju var hægt
að leita til þín.
Mig langar sérstaklega til að
þakka þér fyrir alla þá hlýju og um-
hyggju sem þú sýndir sonum mín-
um, alltaf varstu boðin og búin til að
gæta þeirra á meðan þú hafðir heilsu
til og hvergi fannst þeim betra að
vera en hjá ömmu og afa í Hólkoti.
Þeir eiga nú um sárt að binda eins og
við hin og sakna ömmu sárt. Einnig
er mér minnisstætt hversu gott sam-
band ykkar pabba var, og kannski
var það táknrænt að þú kvaddir jarð-
lífið á 46 ára trúlofunarafmælinu
ykkar. Pabbi á nú um sárt að binda
að hafa misst sinn lífsförunaut, en
við öll sem eftir erum hér getum
huggað okkur við allar þær góðu
minningar sem við eigum um þig og
munum við styðja við bakið á pabba,
og hvert annað í sorg okkar. Það er
þó huggun okkar harmi gegn að vita
það að nú eruð þú og Gummi bróðir
saman á ný og gætið hvors annars.
Að lokum vona ég, mamma mín, að
þér líði nú vel eftir allar þjáningarn-
ar sem þú gekkst í gegnum. Hvíl í
friði, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Við elskum þig öll.
Þín
Gunnhildur, Leifur, Hallgrímur
Páll og Einar Bjarki.
Hví ert þú beygð, sál mín,
ogólgarímér?
VonaáGuð,
því að enn mun ég fá að lofa hann,
hjálpræði auglitis míns og Guð minn.
(Davíðssálmur, 42.12.)
Því er sál mín beygð og af hverju
ólgar allt í mér? Jú af því að þú ert
farin frá mér, yndislega mamma
mín. Af öllum þeim konum sem ég
hef þekkt ert þú sú kona sem mest
hefur haft áhrif á mig í lífinu. Þú
kenndir mér svo margt. Að sjá feg-
urðina í náttúrunni, hvernig hver
árstíð hafði sína fallegu liti og smá-
atriði. Þú kenndir mér að meta lífið
út frá öðru en heimsins prjáli.
Tryggð, vinátta og kærleikur er það
sem skiptir máli. Þú kenndir mér
hversu mikils virði fjölskylda og vin-
ir eru, þér var alltaf svo umhugað um
aðra. Enda kom það vel fram þessa
■ ‘-Gwustu daga okkar saman, hve erfitt
það var fyrir þig að skilja við okkur.
Við ræddum það að okkar ævidag-
ar voru ákveðnir áður en við vorum
myndaðar í móðurkviði og að við
vissurn ekki hversu mai’gir þeir
yrðu. Ég veit að nú ert þú komin til
Guðs og ert laus undan allri þjáningu
og kvöl, það veitir mér huggun í
s.^rginni.
Við ræddum það líka hversu tím-
inn er afstæður og eins og segii’ í orði
Guðs þá er einn dagur hjá honum
sem þúsund ár og þúsund ár eins og
einn dagur. Því yrði þess ekki langt
að bíða að við værum saman á ný. En
ég sakna þín mikið, að geta ekki tal-
að við þig eða fundið þig nálægt mér.
Hver minning sem ég á um þig er
dýrmæt og þér gleymi ég aldrei. í
hjarta mínu er ég þakklát Guði fyrir
að gefa mér svona yndislega móður,
þú skilaðir hlutverki þínu með sóma
og gafst mér veganesti út í lífið sem
ég mun alltaf búa að. Blessuð sé
minning þín.
Elsku pabbi minn, ég veit að Guð
mun gefa þér og okkur öllum sem
syrgjum styi’k á erfiðum stundum.
Hjúkrunarfólki á Sjúkrahúsi Húsa-
víkur, sem annaðist móður mína í
veikindum hennar, vil ég þakka, þið
eruð dýrmæt, Guð blessi ykkur í
störfum ykkar.
Olga Ásrún.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vom grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
Elsku systir, þá er lífshlaupi þínu
lokið, þinn mikli lífsvilji varð að lúta í
lægra haldi eftir harða baráttu.
Það er sama í hvaða mynd dauðinn
kemur. Söknuðurinn er sár. Skarðið
er stórt. En huggunin er allar sam-
verustundirnar sem ég þakka fyrir.
Ég var svo heppin að vera yngst sjö
systkina.
Minningarnar verða að ævintýr-
urn er árin líða.
Ég var alltaf svo hreykin en samt
svo feimin framan af árum við Hiddu
systur. En það kom þó ekki í veg fyr-
ir að ég sótti í krakkahópinn hennar
og Stebba og fannst hvergi betra að
vera.
Sumar ferðir eru minnisstæðari
en aðrar. Eins og að koma með
mömmu í heimsókn að kvöldi til og fá
að líta yfir bamahópinn sofandi. Það
fannst mér flott, að valsa í kringum
þau. Og þau vissu ekki að ég væri
komin. Þá var ég stóra móðursystir.
Faðmlögin, knúsið og aginn.
Allt er þetta ómetanlegt úr
bernskunni. Fötin sem hún saumaði
á mig. Fyrstu útvíðu buxurnar.
Leiðbeiningar til unglingsins.
Voru þær einhverjar? Já; en smeygt
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ANDRÉS INGIBERGSSON,
Álftamýri 26,
Reykjavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 30. júní.
Jarðarför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. júlí kl. 13.30.
Sigurður Ingi Andrésson, Soffía Sigurðardóttir,
Gunnar Andrésson, Guðbjörg Stefánsdóttir,
Einar Andrésson, Halla Hallsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
SIGRÍÐUR RÓSA SIGURÐARDÓTTIR
frá Skjaldbreið,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að morgni mánudagsins 3. júlí.
Jarðaförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Kristmannsdóttir, Guðmundur Wiium Stefánsson,
Guðrún Kristmannsdóttir,
Kristmann Kristmannsson,
Ómar Kristmannsson,
Magnús Kristmannsson,
Ólafur Kristmannsson,
Birgir Kristmannsson,
Ásta Kristmannsdóttir,
Jakobína Guðfinnsdóttir,
Sonja Hilmarsdóttir,
Ólöf S. Björnsdóttir,
Ruth Baldvinsdóttir,
Anna Bjarnadóttir,
Sigmar Gíslason.
inn í samtölin með stríðni og umræð-
um um dagleg málefni.
Svarið dróst, því fljótt fann ég að
ekki var sama hverju væri svarað:
Þú hugsaðir þig alltaf um áður en þú
svaraðir og svo var hlegið dátt.
Vinátta, væntumþykja, hvatning.
Alltaf var þetta þér efst í huga ef tal-
ið barst að fjölskyldunni fjær og
nær. A ættarmótum voruð þið
Stebbi með stærsta hópinn. Hjá
Arnarnesættinni var og einnig látið
af mikilli hreysti í ættinni. En bregð-
ast krosstré sem önnur tré. Það
komu erfiðir tímar þegar Gummi
ykkar var hrifinn burt fyrir þremur
árum eftir erfið veikindi og nú
Hidda.
Elsku Stebbi minn, þú og börnin
þín hafið sýnt ótrúlegan styrk í erfið-
um veikindum í langan tíma. Guð
gefi ykkur þrek og þolinmæði til að
vinna ykkur út úr sorginni.
Ég kveð þig, elsku systh’. Megi
minningin um þig lýsa okkur gegn-
um sorgina.
Heiðbrá og fjöiskylda.
Þá hefur hún systir mín verið leyst
þrautunum frá. Ég vil minnast henn-
ar í örfáum orðum. Hún var elst okk-
ar systkinanna. Hidda, eins og hún
var kölluð, reyndist mér ætíð vel
sem stóra systir og kenndi mér svo
ótal margt sem geymt er í þeim stóra
minningasjóði sem gerir endurminn-
inguna ljúfa. Okkur er gefinn ákveð-
inn tími hér í þessum heimi og ég
veit að nú hefur Jesús tekið á móti
henni og leitt hana með sér inn í him-
ininn.
Þegar endar mitt stnð og sú upp rennur
tíð,
að ég eilífðarströndum skal ná.
Jesús auga mitt sér og um eilífð ég er
mínum ástkæra Frelsara hjá.
(Sigr. Halldórsd.)
Þegar ég sá systur mína síðast í
maí, áttum við langt og gott samtal,
þar sem hún fullvissaði mig um að
hún vissi hvað framundan væri og
hún átti frelsarann í hjarta sínu. Það
er ákvörðun sem hver og einn þarf
að taka, að taka við Jesú Kristi inn í
sitt líf.
Þetta hefur verið langur og erfið-
ur tími fyrir Stefán og börnin að tak-
ast á við en allt samverkar þeim til
góðs sem Drottinn elskar.
Ég minnist hennar Hiddu þannig
að hún var sívinnandi, bæði úti sem
inni. Því finnst mér að orðin úr
Orðskviðunum 31 eigi vel við hana:
„Verkin lofa væna konu“.
Elsku Stefán, börn og barnabörn.
Drottinn blessi ykkur og styrki á
þessum erfiðu tímum. Hann einn
getur læknað hjartasárin og gefið
ykkur þann nýja styrk sem Hann
veit að þið þarfnist.
Svava Friðrika og
Júlíus Hraunberg.
Elsku besta amma mín. Loksins
fékkst þú hvíldina eftir þessa þrauta-
göngu. Ég veit að pabbi er glaður yf-
ir að hafa fengið þig til sín. Ég bað
hann um að passa þig vel og taka á
móti þér þegar þú yfirgæfir okkur
og ég er alveg viss um að hann hefur
staðið sig vel við það. Ég vil þakka
þér fyrir að hafa verið til, amma mín,
og nú veit ég að þér líður vel.
Sjáumst síðar. Þín
Kristbjörg.
Veðrið er eins fallegt og það getur
orðið. Það er kvöld og mér er sagt
andlát Hiddu í Hólkoti. Ég fer að
hugsa um dagana, hvernig þeir
flögra hjá eins og fiðrildi í ótal lit-
brigðum. Öll eigum við okkar af-
markaða dagafjölda og nú eru dag-
arnir hennar Hiddu liðnir. En hún
fór vel með dagana sína og gaf þeim
margskonar liti, sem ætíð munu
gleðja þá sem til hennar hugsa.
Ég veit ekki hvernig tíminn er
mældur þar sem hún er nú, en ég er
þess fullviss að þar muni litir liðinna
daga verða henni gott veganesti á
nýjum brautum.
Blessuð sé minning Hiddu í Hól-
koti.
Öllum sem sakna hennar sendi ég
samúðarkveðjur.
Sigrún á Sflalæk.
• Fleiri minningargreinar
um Gunnhildi Sigríði Guðmunds-
dóttur bíða birtingar og munu birt-
ast íblaðinu næstu daga.
+
Föðurbróðir minn,
Adolf Sigurðsson,
Sjúkraskýlinu, Vallargötu 7,
Þingeyri,
er látinn.
Útförin auglýst síðar.
Axel Axelsson.
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
UNNUR JÓNSDÓTTIR,
Höfðabrekku 10,
Húsavík,
lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga á Húsavík laugar-
daginn 1. júlí sl.
Jónas Reynir Helgason,
Nanna Þórhallsdóttir,
Bjarki Jónasson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR,
Efstaleiti 12,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 25. júní.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 6. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Minningarsjóð kvenna-
deildar Rauða krossins.
Halldóra Þorvaldsdóttir, Magni Guðmundsson,
Guðrún Þorvaldsdóttir, Magnús Siguroddsson,
Þorsteinn Þorvaldsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir,
Tómas Þorvaldsson, Helga Norland,
barnabörn og barnabarnabörn.