Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fullveldi og áhrif
ALLT frá því að
EES-samningurinn
gekk í gildi árið 1994
hefur hann skilað Is-
lendingum margþætt-
um efnahagslegum,
menningarlegum og
stjómarfarslegum
ávinningi. Hann var
frá upphafi annað og
meira en einfaldur
samningur um fríversl-
un og tollfríðindi og
opnaði íslenskt þjóðlíf
fyrir erlendum áhrif-
um í ríkum mæli.
Áhrifanna gætir um
allt samfélagið, í auknu
fjárfestingarfrelsi,
lægra vöruverði, auknum atvinnu-
tækifærum á erlendri grund, aukn-
um fjárveitingum til rannsókna og
þróunar, gerbreyttri umhverfislög-
gjöf og síðast en ekki síst í stór-
bættri löggjöf um félagsleg réttindi
og vinnuvemd.
Evrópusambandið
breytist
Evrópusambandið hefur verið í
stöðugri þróun undanfarinn áratug.
Samstarf aðildarríkja ESB snýr nú
að fleiri þáttum en fyrr, þeirra á
meðal ýmsum þáttum dómsmála og
utanríkismála, auk þess sem nýr
sameiginlegur gjaldmiðill ESB-ríkj-
anna er orðinn að vemleika. Á með-
an hefur EES-samningurinn staðið
óbreyttur og rýrnað að pólitísku
mikilvægi. Aðgangur íslands og
hinna EFTA-ríkjanna að töku
ákvarðana innan ESB er í auknum
mæli takmarkaður. Sú staða er
raunar að skapast að ísland þurfi að
taka við ákvörðunum sem teknar
hafa verið á vettvangi ESB og inn-
leiða í íslensk lög án þess að geta
haft nægileg áhrif á endanlega gerð
þeirra. Það er breyting á þeim for-
sendum sem EES-samningurinn
rNESTISKÖRFUR-
Össur
Skarphéðinsson
Fullveldi er alltaf takmarkað
var byggður á.
Við Islendingar virð-
um fullveldi okkar
mikils og viljum varð-
veita það svo sem kost-
ur er. Við höfum því
verið á varðbergi
gagnvart erlendri
ásælni og viljað forðast
að selja okkur undir
erlent vald. Okkur
hættir hins vegar til að
misskilja hugtakið full-
veldi og telja það sérís-
lenskt fyrirbæri eins
og fossana og hverina
sem aldrei verði of vel
gætt.
Fá ríki hafa komist nær algeru
fullveldi en Albanía á tímum stjóm-
ar Envers Hoxha. Þá var Albam'u
stjórnað án nokkurra áhrifa frá um-
heiminum en líka án nokkurra
áhrifa á umheiminn. Það er nefni-
lega hægt að vera fullvalda ríki en
án nokkurra áhrifa í hinu alþjóðlega
samfélagi.
Er til ríki sem í dag býr ekki við
einhvers konar takmörkun á full-
veldi sínu? Allt alþjóðasamstarf
ríkja felur í sér einhvers konar
takmarkanir á fullveldi. Það gildir
ekki síður um ísland en önnur ríki.
Aðild okkar að Sameinuðu þjóðun-
um felur í sér þá takmörkun á full-
veldinu að við erum skyldug að hlíta
ákvörðunum öryggisráðs Sþ. Við
höfum verulega takmarkað fullveldi
okkar á sviði öryggismála með nánu
samstarfi við erlent ríki um land-
varnir sem yfirleitt eru taldar einn
mikilvægasti þáttur í fullveldi sér-
hvers ríkis. Síðast en ekki síst ber
að árétta það sem ég nefndi fyrr að
með EES-samningnum erum við í
síauknum mæli að innleiða í lands-
rétt lagareglur sem aðrir hafa mót-
að.
2ja og 4ra manna körfur
frá kr. 14.900-24.900
Jfc^PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 I
Múrarar - uerktakar
byggingameistarar
STEIIMIIMGARLIM Margir litir
UTIPUSSIMING Margir litir — 3 tegundir
RAPPMUR Inni/úti
Traust íslensk múrefni
síðan 1973
LÉTTIÐ vinnuna og
MARGFALDIÐ
afköstin með
ELGO múrdælunni!
Leitið tilboða!
!l steinprýði
Stangarhyl 7, Rvík
Sími 567 2777
Fax 567 2718
Við þurfum að endur-
meta utanríkisstefnu
okkar með það fyrir
augum, segir Össur
Skarphéðinsson, að
glata ekki áhrifum okk-
ar á mótun og setningu
þeirra reglna sem síðar
verða landslög á Islandi.
Það er fráleitt sjálfgefið að ísland
verði fullgildur hluti af ESB. En sú
röksemd að aðild að ESB leiði til
óásættanlegs fullveldisafsals er
röng. Samstarf ESB-ríkjanna felur
vissulega í sér takmarkanir á full-
veldi en það er engu að síður sam-
starf fullvalda ríkja. Þau hafa orðið
ásátt um að deila tilteknum þáttum
fullveldis síns með öðrum ríkjum
rétt eins og við höfum gert í öðrum
tilvikum í misríkum mæli. Þau sitja
öll við borðið og taka sameiginlegar
ákvarðanir.
Framtíð án áhrifa?
Við þurfum að endurmeta utan-
ríkisstefnu okkar með það fyrir
augum að glata ekki áhrifum okkar
á mótun og setningu þeirra reglna
sem síðar verða landslög á íslandi.
Ef og þegar Norðmenn ganga í
ESB verður staða okkar ákaflega
þröng að þessu leyti. ísland gæti þá
orðið eitt fárra Evrópuríkja sem
ekki ætti sæti við borðið þegar
ákvarðanir væru teknar en þyrfti
engu að síður að fara eftir þeirri
forskrift sem frá ESB kæmi. Á
þessum grunni tel ég það ábyrgðar-
leysi að ræða ekki fordómalaust
hvað íslandi er íyrir bestu miðað við
þær aðstæður sem eru að skapast.
Skynsamlegast er að fylgja þeirri
stefnu sem Samfylkingin mótaði á
stofnþingi sínu í byrjun maí og hefja
skipulega vinnu við að skilgreina
samningsmarkmið okkar í hugsan-
legum aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið. Um þau markmið þarf
að ríkja meirihlutasamstaða meðal
þjóðarinnar. Undir þetta sjónarmið
hafa menn úr öðrum stjórnmála-
hreyfingum tekið síðustu vikur. Það
er hins vegar athyglisvert að mál-
flutningur Sjálfstæðisflokksins er
sér á parti í umræðunni. Þar virðast
menn helst miða að því að ísland
taki við af Albaníu sem það ríki sem
best varðveitir fullveldið í einangr-
un. Öðru vísi mér áður brá.
Höfundur er alþingismnður og for-
maður Samfylkingarinnar.
Ullen
dúllen doff
Á undanförnum
mánuðum hafa litið
dagsins ljós úrskurðir
yfirskattanefndar í
málefnum nokkurra
aðila sem störfuðu hjá
íslenskum sjávar-
afurðum hf. vegna
verkefnis þeirra á
Kamchatka í Rúss-
landi á árinu 1996. All-
ir þessir úrskurðir
eiga það sameiginlegt
að hafa verið felldir af
sömu nefndarmönnum
yfirskattanefndar. Og
allir kærendur áttu Örn
það sameiginlegt að Gunnlaugsson
hafa unnið á sama
tíma við sömu aðstæður við sama
verkefni erlendis fyrir sama fyrir-
tæki á nákvæmlega sambærilegum
kjörum, með sams konar réttindi
og skyldur og höfðu þeir allir skil-
greint verksvið vegna umrædds
verkefnis. Það sem kært var til
yfirskattanefndar var niðurfelling
skattstjóra á frádrætti á móti
fengnum dagpeningum meðan þeir
störfuðu fyrir íslenskar Sjávar-
afurðir hf. utan íslenskrar lögsögu.
Nú skyldu menn ætla að umræddir
úrskurðir yfirskattanefndar séu
keimlíkir af þeim sökum að starfs-
kjör og aðstæður kærenda voru
með nákvæmlega sama hætti. Heil-
brigð skynsemi allra læsra manna
leiðir þá að þeirri niðurstöðu að all-
ir umræddir úrskurðir hljóti að
vera á sama veg, þ.e.a.s. sé gert ráð
fyrir að nefndarmenn yfirskatta-
nefndar hafi þekkingu á viðfangs-
efni sínu. Fyrrgreindir aðilar hljóta
að eiga rétt á að njóta sömu með-
höndlunar skattalega hvað varðar
dagpeningagreiðslur burtséð frá
því hvert starfsheiti þeirra var. En
því fer víðs fjarri, úrskurðimir eru
nánast jafnmismunandi og málin
eru mörg. Hér verður hins vegar
aðeins minnst á fimm þessara mála,
þ.e. eftirfarandi aðila: Aðstoðar-
verkefnisstjóra, skipaeftirlitsmanns
1, skipaeftirlitsmanns 2, innkaupa-
stjóra og tölvuumsjónarmanns. Áll-
ir þessir aðilar nutu jafnra kjara
frá vinnuveitanda hvað aðbúnað og
dagpeningagreiðslur varðar og
voru þær greiðslur innan viðmiðun-
armarka ríkisskattstjóra á þessum
tíma. Skattyfirvöld ákváðu hins
vegar að fella niður frádrátt á móti
dagpeningum gagnstætt því sem
heimildir ríkisskattstjóra kveða á
um. Að sjálfsögðu voru langflest
málin kærð til yfirskattanefndar í
trausti þess að sú nefnd hefði skiln-
ing á hvers eðlis dagpeninga-
greiðslur eru. Samkvæmt úrskurð-
um yfirskattanefndar í málum fimm
Byggingaplatan WDK©(S®
sem allir hafa beðið eftir
VIROC*byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og góif
V!ROC®byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROC*byggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIROC® byggingaplatan
er umhverfisvæn
VIROC®byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞÞ
&co
Leitið frekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 8 568 6100
^öökaupsveislur—Citlsamtomur—skemmtanlr—tönlelkar—sýnlngar—kynnlngar og fl. og fl. og fl.
í - wittyiíPM
i |0 "°9 ýmsir fy|g'h|utir
Ekkl treysla ó veörið
treysla
igja á eflirminnilegan viöbur?
irygglö ykkur og leiglð stórt tjald
á stoöinn - jxiö marg borgar slg.
Tjöid af öllum stœrðum frá 20 - 700 m*
Elnnlg: Borö, stólar, tjaldgólf
og tjalahltarar.
ð skótum á helmavelll
sfmi 5621390 • fax552 6377 • bU®scoutJs
fyrrgreindra starfs-
manna er útilokað að
ímynda sér að nefnd-
armenn yfirskatta-
nefndar hafi nokkurn
skilning á viðfangsefn-
um sínum, a.m.k. hvað
dagpeningagreiðslur
varðar. Urskurðir yfir-
skattanefndar voru
með þeim hætti að að-
stoðarverkefnisstjóri
og skipaeftirlitsmaður
1 skyldu njóta óskerts
frádráttar á móti
fengnum dagpening-
um, skipaeftirlitsmað-
ur 2 skyldi ekki njóta
neins frádráttar hvar
sem hann væri í heiminum, inn-
kaupastjóri skyldi njóta óskerts
frádráttar meðan hann dvaldist ut-
an Islands og Kamchatka á vegum
Yfirskattanefnd
Það, hversu fyrrnefndir
úrskurðir eru mismun-
andi, segir Örn Gunn-
laugsson, er aðeins
staðfesting á því hvers
konar apparat yfír-
skattanefnd er.
vinnuveitanda og tölvuumsjónar-
maður skyldi njóta frádráttar
vegna annars en gistingar meðan
hann var á vegum vinnuveitanda
utan íslenskrar lögsögu. Ég stórefa
að jafnvel miðilshæfileikar dugi
mönnum til að fá botn í það hvers
vegna úrskurðir yfirskattanefndar í
málum fyrrnefndra starfsmanna
eru svo mismunandi. Það, hversu
fyrrnefndir úrskurðir eru mismun-
andi eru aðeins hrein og klár stað-
festing á því hvers konar apparat
yfirskattanefnd er. Starfsmenn
nefndarinnar eru ekki einu sinni
broslegir, þeir eru hreinlega aumk-
unarverðir. Það er ekki annað hægt
en að kenna í brjósti um fólk sem
situr sem fastast í þægilegum og
ágætlega vel launuðum stöðum hjá
ríkinu án þess þó að hafa nokkra
hæfileika til að sinna störfum sín-
um þar. Sæmilega greindir menn
hafa vit á að vera ekki að gutla við
hluti sem þá skortir þekkingu til.
Ætli margir væru tilbúnir að taka
sér far með bíl ef þeir vissu að öku-
maðurinn væri blindur? Sennilega
ekki. Eftir reynslu mína af yfir-
skattanefnd dettur mér ekki í hug
að sóa tíma mínum og peningum í
að kæra til hennar nokkur mál í
framtíðinni ef upp kunna að koma.
Hvoru tveggja, tímanum og aurun-
um, er án efa betur varið til ein-
hvers annars. Ekki verður betur
séð á úrskurðum frá yfirskatta-
nefnd en að fyllt sé inn í staðlað
bréf þegar úrskurður er felldur.
Það er þá aðeins spurning hvort
notast er við „úllen dúllen doff‘, „sá
sem flöskustúturinn lendir á“ eða
eitthvað annað þegar fyllt er í eyð-
urnar. Það er hreint ótrúleg óvirð-
ing við skattgreiðendur að þeim
skuli vera gert að greiða rekstrar-
kostnað apparats þar sem „starfs-
mennirnir“ fá laun fyrir að leika
sér með skattborgarana í rúss-
neskri rúllettu. Það er a.m.k. alveg
borðleggjandi að ef allir úrskurðir
yfirskattanefndar eru í stíl við þá
úrskurði sem hér hefur verið vísað
til þá eru úrskurðir hennar almennt
byggðir á einhverju allt öðru en
heilbrigðri skynsemi og/eða nokkr-
um lagabókstaf um þau málefni
sem fjallað er um hverju sinni.
Höfundur starfaði hjá ÍS á
Kamchatka en rekur mi eigið
fyrirtæki.