Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Strætó
besti
kosturinn
ÞEIR sem ætla að leggja leið
sína á Landsmót hestamanna í
Víðidal geta komist inn á svæð-
ið á þremur stöðum. Aðallega
verður selt inn við aðalhliðið
þar sem ekið er inn á Fáks-
svæðið frá Reykjanesbraut.
Annað hlið verður við Reiðhöll-
ina og þriðja hliðið við gömlu
brúna á Vatnsveituvegi. Þar
eru hinsvegar engin bílastæði
og því ekki gert ráð fyrir að bfl-
um verði hleypt þar inn og því
aðallega ætlast til að gangandi
umferð komi inn á svæðið á
þessum stöðum.
Engir bflar
Að sögn Fannars Jónasson-
ar, framkvæmdastjóra Lands-
móts 2000, verður svæðið girt
af og munu björgunarsveitar-
menn sjá til þess að enginn
komist inn á svæðið án þess að
greiða aðgangseyri. Reyndar
verður ókeypis inn á svæðið
fram á föstudag. Þá verður
hægt að greiða fyrir einn dag í
einu eða alla þrjá saman. Á
föstudag er aðgangseyrir 1.000
krónur, en 1.500 krónur á laug-
ardag og sunnudag. Ef keyptur
er aðgöngumiði fyrir alla dag-
ana kostar hann 3.500 krónur.
Ekki er gert ráð fyrir bfla-
umferð inni á svæðinu og verð-
ur öllum bflum beint inn á bfla-
stæði við aðalhliðið. Einhver
umferð er þó nauðsynleg því
koma þarf vörum og matföng-
um inn á svæðið auk þess sem
keppendur og sýnendur þurfa
að koma hrossum sínum inn á
svæðið. Fannar sagði að svo
virtist sem stærsti hluti keppn-
ishrossa yrði í húsum inni á
Fákssvæðinu.
Far með hestvagni
Þeir sem ekki vilja eða
treysta sér ekki til að ganga frá
aðalhliðinu að Fáksheimilinu
geta fengið far með hestvagni
sem verður í ferðum milli þess-
ara staða. Ekki verða aðrar
ferðir í boði inni á svæðinu.
Einfaldast er líklega að koma
á svæðið í strætisvagni þar sem
bfllinn nýtist ekkert þegar
þangað er komið. Þá fer enginn
tími í að leita að bílastæði og
bíða eftir að komast inn á og út
af svæðinu. Leiðir 10 og 110
stoppa rétt við hliðið við Reið-
höllina.
Aðspurður sagði Fannar að
gert væri ráð fyrir að fatlaðir
gætu horft á mótið úr bflum
sínum á svæðinu innan skeið-
vallarins. Ekki er um önnur
svæði fyrir bfla að ræða.
Reyndar er þetta svæði frekar
erfitt yfirferðar og líklega
nauðsyniegt að vera á jeppa til
að komast þangað.
Fannar sagði að fólk gæti
auðveldlega dvalið daglangt í
Víðidalnum því þar yrði allt til
alls. Fjölbreyttar veitingar
verða í boði og auðvelt að nálg-
ast þær. Þá verða ýmsar vörur
til sölu á markaðstorginu og
hraðbanki verður í anddyri
Reiðhallarinnar.
Bestu kynbóta- og
keppnishrossin
Salernisaðstaða er í Reið-
höllinni og Fáksheimilinu og
auk þess hefur verið komið fyr-
ir þurrsalemum á svæðinu.
Einnig er salerni í nánast
* hveiju hesthúsi á svæðinu fyrir
þá sem hafa aðgang að þeim.
Þótt aðstaða ætti öll að vera
með besta móti sagði Fannar
að mestu máli skipti að á þessu
landsmóti yrði einstakt úrval af
bestu hrossum landsins, bæði
kynbótahrossum og keppnis-
hrossum.
Hópreiðin hefur verið einn af hápunktum landsmóta og nú á að setja heimsmet í samansöfnun hesta og manna í friðsamlegum tilgangi þar sem forseti
Islands mun leiða fylkinguna kringum Rauðavatn. Myndin er frá hópreiðinni á Melgerðismelum ’98.
Landsmót nýrra
tíma hefst í dag
Landsmót hestamannafélaga hefst í dag
þar sem fremstu fákum landsins verður
att saman í keppni og leik. Hátt í þúsund
hross eru skráð til leiks auk annarra sem
prýða munu mótsstað. Þúsundir manna
munu koma til mótsins og þar á meðal verða
Valdimar Kristinsson og Asdís Haralds-
dóttir sem hér fjalla um ýmislegt af því sem
jar verður boðið upp á.
„LANDSMÓT nýrra tíma“ er verð-
ug yfirskrift þess móts sem í dag
hefst með opnunarhátíð. Með þessu
móti eru stigin afdrifarík skref í þró-
un landsmóta sem að sjálfsögðu er
ekki fyrir séð hvernig munu reynast.
Nú í fyrsta sinn viðurkenna hesta-
menn að sjálfboðahugsjónin sé liðin
undir lok og atvinnu- og fagmennsk-
an hafi tekið völdin. Landsmót er nú
í fyrsta skipti rekið sem hlutafélag
og nýverið var samþykkt að halda
áfram á þeirri braut. Þá er þetta í
fyrsta skipti sem aðeins tvö ár líða
milli landsmóta en síðasta mót var
haldið á Melgerðismelum fyrir
tveimur árum. Tíminn einn mun
skera úr um hvort þessar nýjungar
reynast vel í þróun landsmótanna til
framtíðar.
Loksins í Reykjavík
Þá er landsmót nú í fyrsta skipti
haldið í Reykjavík og er það út af
fyrir sig partur af þróuninni. Barátta
Reykvfldnga fyrir að fá landsmót
hefur verið nokkuð harðsótt en í
þeim efnum hafa hestamenn verið
nokkuð íhaldssamir. Því hefur gjam-
an verið borið við að tjaldbúðalífið og
nándin við sveitina og náttúruna sé
það stór hluti af stemmningunni að
útilokað sé að halda alvöm landsmót
í henni Reykjavík. Kröfur mótsgesta
hafa aftur á móti í ríkari mæli
sveigst að því að fá að sofa með höfuð
á kodda og sæng yfir sér í góðu húsi
frekar en að skríða ofan í svefnpoka í
tjaldi eftir að hafa notið mannlífs-
flómnnar á mótsstað fram á nótt.
Eins og venja hefur verið er nú
boðið upp á bestu aðstöðu til þessa á
landsmóti en sú hefur verið raunin á
öllum þeim þrettán mótum sem
haldin hafa verið. Hestakosturinn er
ekki síðri en fyrr, líklega betri ef
eitthvað er og nýtt met sett í fjölda
einstaklingssýndra kynbótahrossa
sem unnið hafa sér rétt til þátttöku.
Tvöþúsund manna hópreið
Bryddað er upp á ýmsum nýjung-
um eins og til dæmis hópreiðinni
sem ekki verður nú með hefðbundn-
um hætti heldur riðið í kringum
Rauðavatn með forsetann, ráðherra
og ýmis fyrirmenni þjóðfélagsins í
broddi fylkingar. Tvö þúsund manns
alls og þar á að setja met. Er full
ástæða til að hvetja alla hestfæra
menn sem hafa reiðskjóta til ráðstöf-
unar að mæta í dag í Víðidal og taka
þátt í þessum einstæða viðburði.
Óhætt er að segja að félagssvæði
Fáks, Víðidalurinn, sé kominn í
skartkiæðin þar sem fullbúin Reið-
höllin trónir í glæsileik sínum. Knap-
ar hafa á undanförnum dögum
streymt á svæðið með færleika sína
og kynnt fyrir þeim velli og nánasta
umhverfi. Að baki er langur og
strangur þjálfunar- og undirbún-
ingstími þar sem menn hafa lagt
metnað sinn í að laða sem best fram
kosti gripanna. Þeir eru margir sem
sóst hafa eftir að komast með hross á
landsmót enda þykir til mikils að
vinna. Á landsmótum öðlast knapar
frægð og frama, hrossin fá flest hver
góða kynningu og liðkast oft um fyr-
ir sölu á góðum gripum.
Gaman og
alvara í bland
Því er ekki að neita að keppnin
hefur harðnað í tímans rás og fjár-
munir hafa leikið stærra hlutverk á
landsmótum eins og reyndar al-
mennt í hestamennskunni og síðar í
ferðamennsku henni tengdri. Lands-
mótin eru ekki síður vettvangur
mikilla viðskipta og til að efla þann
þátt er gerð tilraun með að halda
mótin á tveggja ára fresti.
Fróðlegt verður einnig að sjá
hvemig mannlífsþátturinn verður á
landsmóti í Reykjavík. Munu móts-
gestir skemmta hver öðrum á sama
hátt og þeir hafa gert í grænni laut
við lækjarnið í útjaðri tjaldbúða á
mótsstað „uppi í sveit“? Eða munu
menn sinna félagsþörfinni á fínum
veitingastað „niðrí bæ“? Já, það
verður forvitnilegt að sjá hvort
landsmót í Reykjavík verður eitt-
hvað öðruvísi en í sveitinni.
Dagskrá Landsmóts 2000
Þriðjudagur 4. júlí 2000
9.00 Opnunarhátíð
15.30 Hópreið leggur af stað um-
hverfis Rauðavatn af skeiðvelli
17.00 Setning, ávörp, helgistund
Brekkuvöllur:
9.45-13.00 Tölt - forkeppni, nr. 1-
36
18.00-21.00 Tölt - forkeppni, nr.
37-67
Brekkubraut:
10.00-13.00 Hæfileikadómur kyn-
bótahrossa, 4 vetra hryssur
Hvammsvöllur:
9.30- 12.00 Barnaflokkur - for-
keppni, nr. 1-30
13.00-16.00 Barnaflokkur - for-
keppni, nr. 31-64
Miðvikudagur 5. júlí 2000
Brekkuvöllur:
9.00-11.30 B-flokkur gæðinga - for-
keppni, nr. 1-30
12.30- 15.00 B-flokkur gæðinga -
forkeppni, nr. 31-60
15.30- 18.00 B-flokkur gæðinga -
forkeppni, nr. 61-89
Brekkubraut:
8.00-12.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa 5 vetra hryssur
13.00-17.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa 6 vetra hryssur
17.00-19.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa 7 vetra og eldri hryssur,
fyrri hluti
Skeiðvöllur:
20.00-21.00 Kappreiðar - undan-
rásir
Hvammsvöllur:
10.00-12.30 Ungmennaflokkur -
forkeppni, nr. 1-30
13.30- 16.00 Ungmennaflokkur -
forkeppni, nr. 31-61
Fimmtudagur 6. júlí 2000
Brekkuvöllur:
9.00-11.30 A-flokkur gæðinga -
forkeppni, nr. 1-30
12.30- 15.00 A-flokkur gæðinga -
forkeppni, nr. 31-60
15.30- 18.00 A-flokkur gæðinga -
forkeppni, nr. 61-90
20.00-20.40 Tölt, B-úrslit
Brekkubraut:
8.00-12.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa: 7 vetra og eldri hryssur,
seinni hluti
13.00-15.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa: 4 vetra stóðhestar
15.00-17.00 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa: 5 vetra stóðhestar
17.00-19.30 Hæfileikadómar kyn-
bótahrossa: 6 vetra og eldri stóð-
hestar
Skeiðvöllur:
21.00-22.00 Kappreiðar - undan-
keppni (milliriðlar)
Hvammsvöllur:
09.00-12.30 Unglingaflokkur - for-
keppni, nr. 1-36
13.30- 16.00 Unglingaflokkur - for-
keppni, nr. 37-65
16.30- 17.10 Ungmennaflokkur - B-
úrslit
Föstudagur 7. júlí 2000
Brekkuvöllur:
8.00-12.30 Yfirlitssýning kynbóta-
hrossa 7 vetra og eldri og 6 vetra
hryssur
13.15-16.00 Yfirlitssýning kynbóta-
hrossa 5 og 4 vetra hryssur
16:00 - 17:00 Ræktunarbússýningar
17.30-18.30 Ræktunarbúsýningar
19.00-19.40 B-flokkur - B-úrslit
20.00-20.40 A-flokkur - B-úrslit
Skeiðvöllur:
21.00-22.00 Kappreiðar - miiliriðlar
Hvammsvöllur:
13.00-15.00 Kynning: Börn, ungl-
ingar, ungmenni
15.00-15.40 Unglingaflokkur - B-
úrslit
17.00-17.30 Barnaflokkur - B-úrslit
23.00-3.00 Reiðhöll, hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
Laugardagur 8. júlí 2000
Brekkuvöllur:
11.00-12.00 Yfirlitssýning kjmbóta-
hrossa: 4 vetra stóðhestar
13.00-14.00 Yfírlitssýning kynbóta-
hrossa: 5 vetra stóðhestar