Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
R A Q A U G LÝ S I IM G A K! 1
atviisiimu-
AUGLÝSINGAR
Biskup íslands
auglýsir laust til umsóknar embætti
sóknarprests í Seltjarnanesprestakalli,
Reykjavíkurprófastsæmi vestra, frá
15. september 2000.
• Kirkjumálaráðherra skipar í embættið til
fimm ára.
j* Um launakjörfer skv. ákvörðun kjaranefnd-
ar, en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996
• Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir
að taka fram.
• Valnefnd velur sóknarprest skv. starfsregl-
um um presta nr. 735/1998, en biskup ákveð-
ur með hvaða umsækjanda hann mælir
náist ekki samstaða í valnefnd.
• Heimilt er að óska eftir að almennar prests-
kosningar fari fram samkvæmt 20. gr. starfs-
reglna um presta nr. 735/1998, en ákvæðið
er svohljóðandi:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakalli
þess, að almenn prestskosning fari fram er skylt að verða við
því. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi síðar
en að hálfum mánuði liðnum frá þeim degi er kallið var auglýst
laust til umsóknar."
• Aliar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur,
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, sími 535 1500, grænt nr. 800 6550,
fax 551 3284.
• Umsóknarfrestur rennur út 8. ágúst 2000.
.• Umsóknir sendist Biskupi íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Það athugist, að embætti sóknarpresta eru
auglýst með fyrirvara um breytingar á sóknar-
og prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta
breytingu á störfum sínum og verksviði á skip-
unartímanum, sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
Bílaryðvörn
Óskum eftir að ráða góðan og duglegan
starfskraft.
Bílaryðvörn hf.,
Bíldshöfða 5, sími 587 1390.
Kokkur óskast
Óskum eftir að ráða kokk nú þegar til 20. ágúst.
Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar gefur íris í síma 464 4155.
Blaðbera
vantar í Skerjafjörð. Einnig vantar sumar-
afleysingar í Rimahverfi.
^ Upplýsingar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Biskup ísiands auglýsir laust
til umsóknar
embætti prests
við Hjallaprestakall
í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Embættið veitist frá 1. nóvember 2000.
• Biskup íslands skipar í embættið til fimm
ára.
• Óskað er eftir því að umsækjendur geri í um-
sókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að
taka fram.
• Valnefnd velur prest skv. starfsreglum um
presta nr. 735/1998, en biskup ákveður hver
skipaður verður náist ekki samstaða í val-
nefnd.
• Heimilt er að óska eftir því að almennar
prestskosningar fari fram samkvæmt 20. gr.
starfsreglna um presta nr. 735/1998, en
ákvæðið er svohljóðandi:
Óski minnst þriðjungur atkvæðibærra sóknarbarna í prestakalli
þess, að almenn prestskosning fari fram er skylt að verða við
því. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi siðar
en að hálfum mánuði liðnum frá þeim degi er kailið var auglýst
til umsóknar.
• Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefnd-
ar, en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
• Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur
sem um starfið gilda eru veittar á Biskups-
stofu, sími 535 1500, grænt númer800 6550,
fax 551 3284.
• Umsóknarfrestur rennur út 8. ágúst 2000.
• Umsóknir sendist Biskupi íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Embætti presta eru auglýst með fyrirvara um
breytingar á sóknar- og prestakallaskipan.
Prestum er skylt að hlíta breytingu á störfum
sínum og verksviði á skipunartímanum sbr.
19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13 og 15. gr laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr 96/2000 eru
konur hvattartil að sækja um ofangreint em-
bætti.
FJÖLBRAUTASKÓLINN
VIÐ ÁRMÚLA
HEILBRIGÐIS-
SKÓLIN N
íl/imjiliu 'unnwfj.ii
Kennara vantar
sem hér segir frá og með næsta skólaári:
Viðskiptagreinar (14 tíma kennsla til jóla).
Læknaritun, 10 stundir á viku. Nauðsynlegt
er að viðkomandi sé í starfi á sjúkrahúsi.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari í síma
861 6715.
Ekki þarf að fylla út sérstakt umsóknareyðu-
blað, en umsókn skal senda á skrifstofu
skólans. Utanáskriftin erj
Fjölbrautaskólinn við Ármúla - Umsókn,
108 Reykjavík.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund
Hjúkrunarfræðingar
Aðstoðardeildarstjóri óskast nú þegará hjúkr-
unardeild. Óskum eftir hjúkrunarfræðingum
í afleysingar og fastar stöður.
Sjúkraliðar
Bráðvantar sjúkraliða á morgun- og kvöldvaktir.
Vinnuhlutfall eftir samkomulagi
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 552 6222.
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til framtíðarstarfa
og tímabundinna verkefna.
Upplýsingar í síma 898 0466 og 896 4901.
TILKYNIMIIMGAR
Tilkynning
frá utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býðurfyrirtækjum, sam-
tökum, stofnunum og einstaklingum viðtals-
tíma við sendiherra íslands þegar þeir eru
staddir hérlendis, til þess að ræða hagsmuna-
mál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur
málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið
að liði.
Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi íslands hjá
Sameinuðu Þjóðunum í New York, verður til
viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn
11. júlí nk. kl. 10 til 12 eða eftir nánara sam-
komulagi. Umdæmi sendiskrifstofunnar nær
einnig til Bahamaeyja, Barbadoseyja, Grenada
og Kúbu.
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra íslands
í Bandaríkjunum, verðurti viðtals í utanríkisráð-
uneytinu sama dag, þriðjudaginn 11. júlí nk.
kl. 14 til 16 eða eftir nánara samkomulagi. Um-
dæmi sendiráðsins nær einnig til Argentínu,
Brasilíu, Chile, Gvatemala, Kanada, Kostaríka,
Kólumbíu, Mexíkó, Níkaragva, Perú, Úrugvæ
og Venesúela.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar
í síma 560 9900.
TILBOEi/ ÚTBOÐ
Opið útboð
Norðurál hf óskareftirtilboðum í blöndunar-
stöð baðefna.
Um er að ræða byggingu, uppsetningu og
tengingu safnhylkja ásamt sameiningu og stýr-
ingu efnisstrauma frá hylkjum þessum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Norðuráls
á Grundartanga, eða send bjóðendum ef þess
er óskað, frá og með föstudeginum 7. júlí.
Fresturtil að skila inn tilboðum ertil föstudags-
ins 21. júlí.
Nánari upplýsingar veita Sveinn Snæland
framkvæmdastjóri Skautsmiðju og Tómas Már
Sigurðsson framkvæmdastjóri tækni- og um-
hverfissviðs hjá Norðuráli í síma 430 1000.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
íbúð eða hús í Grafarvogi
Áreiðanleg fjölskylda vill taka á leigu í eitt ár
eða lengur íbúð eða hús með fjórum svefnher-
bergjum eða fleiri, helst í Grafarvogi. Öruggar
greiðslur. Upplýsingar í síma 864 5835 í dag
og næstu daga.
H Ú S NÆÐIÍBODI
Til leigu
miðsvæðis í Kópavogi, stór og falleg 3ja herb.
íbúð. Krafist er tryggingar á ábyrgri umgengni
og skilvísi leigjenda.
Svör sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„íbúð - 9844".
mbl.is