Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 33
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Aldís
Sigríður Helga Sveinsdóttir og Guðbrandur Sigurðsson eigendur Þing-
hússkaffis, sera er í gamla hótelinu í Hveragerði.
Þinghúskaffi opnað
í gamla hótelinu
Hveragerði. Morgunblaðið
GAMLA hótelið í Hveragerði hefur
undanfarið tekið miklum breyting-
um með nýjum eigendum. Nýverið
var opnað glæsilegt kaffihús í
fremsta salnum en það eru Sigríður
Helga Sveinsdóttir og Guðbrandur
Sigurðsson sem eiga og reka kaffi-
húsið, sem hlotið hefur nafnið
Þinghúskaffi. Nafngiftin helgast af
því að upphaflega hýsti byggingin
fundarsal hreppsnefndar. Nafnið
Hótel Hveragerði hefur þó lengst-
um loðað við húsið enda var hótel
rekið í húsinu til fjölda ára og á
löngu timabili voru þar reglulega
kvikmyndasýningar. Nú hafa nýir
eigendur endurvakið brot af þeirri
stemmningu því áhugasamir geta
notið íþróttakappleikja og annar-
rar skemmtunar á risatjaldi.
Innréttingar í kaffihúsinu eru í
gömlum stíl og afar hlýlegar.
Gamlar ljósmyndir af svæðinu
skreyta veggi og borð og vekja at-
hygli gesta. Á Þinghúskaffi er boð-
ið upp á ýmsa kaffidrykki ásamt
brauði, kökum og tertum. Einnig
geta gestir gætt sér á smáréttum
og heitn súpu með nýbökuðu
brauði. Á góðviðrisdögum sem og á
hlýjum sumarkvöldum geta gestir
notið vetinganna í lokuðu skjól-
góðu porti, sem helst minnir á suð-
rænni staði. Gestir kaffihússins
geta þó ekki beiðst gistingar á
gamla hótelinu því verið er að
breyta hótelálmunni í íbúðir sem
seldar verða innan skamms.
Hálendisferðir á jeppum
JRJ JEPPAFERÐIR er nýtt ferða-
þjónustufyrirtæki í Skagafirði sem
býður ferðamönnum að ferðast um
hálendið norðan Vatnajökuls á sér-
útbúnum fjallajeppum. „Við höfum
fengið góð viðbrögð, sérstaklega er-
lendis frá, og þá aðallega frá fólki
sem hefur séð heimasíðuna okkar“
segir Jóhann R. Jakobson, annar
eigandi JR J jeppaferða, en fyrirtæk-
ið er fjölskyldufyrirtæki rekið af Jó-
hanni og konu hans, Tamöru
Popovu. „Við stefnum að uppbygg-
ingu næstu árin, jepparnir eru vel
útbúnir, bæði til sumar- og vetrar-
ferða, svo við áætlum að geta unnið
að ferðaþjónustu allt árið um kring.“
Farið er á breyttum jeppum með
bílstjóra og komast allt að 15 manns í
hverja ferð. Meðal þess sem boðið er
upp á eru hópferðir, einstaklings-
ferðir, fjölskylduferðii- og brúð-
kaupsferðir en að sögn Jóhanns
hefur ennþá enginn farið í brúð-
kaupsferðina upp á hálendið.
„I sumar bjóðum við þriggja tíma
náttúruskoðunarferðir á kvöldin,
dagsferðir og allt upp í fjögurra daga
ferðir. Við erum með eins og hálfs
dags ferð þar sem gist er á Hvera-
völlum en í fjögurra daga ferðinni er
meðal annars farin Gæsavatnaleið
og upp að Öskju og Herðubreiðalind-
um þar sem er gist. I haust og vetur
verðum við svo í samvinnu við Hótel
Varmahlíð með hópferðir um há-
lendið sem við köllum Haust- og
vetrartungl í Skagafirði."
Mýkingarefni sálarinnar
APÓTEKIÐ SMÁRATORGI
Kyps/'Ki
frá kl. 14-17
llmkjarnaolíur, nuddolíur.freyðibað,
sturtusápa, augnmaski og andlitsúði frá
KELSOK&RUSSELL
AROMATHERAPY
Apótekið Smáratorgi
S. 564 5600
Bryggju-
hátíðin á
Drangs-
nesi
Drangsnesi. Morgunblaðið.
HINN 22. júlí næstkomandi verður
Bryggjuhátíðin haldin á Drangsnesi.
Undanfarin ár hefur mikil stemmn-
ing ríkt á Bryggjuhátíð og veðrið
ávallt verið gott.
Dagurinn byrjar í Kokkálsvíkur-
höfn með dorgveiði fyrir börnin en
reynslan hefur sýnt að áhuginn er
ekki minni hjá feðrunum.
Eftir hádegið eru veitt verðlaun
fyrir veiðina og viðurkenningar fyrir
að vera með. Þá verður boðið upp á
sjávarréttasmakk við frystihúsið og
þar mun Örvar Kristjánsson, har-
monikkuleikari, skemmta.
í skólanum verður Iðunn Ágústs-
dóttir með málverkasýningu og Lúk-
as Kárason sýnir listaverk úr reka-
viði af Ströndum, en þessar tvær
sýningar verða báðar opnaðar 12.
júlí en eru engu að síður hluti af
Bryggjuhátíðinni. Strandahestar
LjósmyrKÍ/.Ienný Jensdóttir
Spilað og sungið við varðeldinn á Bryggjuhátíðinni í fyrra.
munu síðan bjóða börnum á hestbak
allan daginn.
Hátíðinni lýkur
með dansleik
Grímsey á Steingrímsfirði er ein-
stök náttúruperla með fjölbreyttu
fuglalífi og verður boðið upp á ferðir
út í eynna allan daginn.
Þá munu krakkar spreyta sig í
söngvakeppni í samkomuhúsinu
Baldri og þar verður einnig boðið
upp á grillað lambakjöt á góðu verði.
Um kvöldið er skemmtun í sam-
komuhúsinu og frítt inn meðan hús-
rúm leyfir. Bryggjuhátíðinni lýkur
svo með dansleik í Baldri og sér
hljómsveitin Bít um fjörið.
Þess má að lokum geta að á
Drangsnesi eru góð tjaldsvæði og
heitir pottar í fjörunni sem öllum er
frjálst að nota.
Bláa lónið
Ný upp-
lýsinga-
miðstöð
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ fyrir
ferðamenn var opnuð við Bláa lónið
6. júní síðastliðinn. Reksturinn er
samstarfsverkefni Bláa lónsins og
Grindavíkurbæjar en stöðin verður
opin í'þrjá mánuði á ári, alla daga
fráklukkan 11-18.
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
20% AFSLÁTTUR
AF GOLFFATNAÐI
í tilefni af fyrsta Létt 96,7 Open golfmótinu 9. júlí bjóðum við
20% afslátt af dömu og herra golffatnaði í Bison Bee-Q, Kringlunni
dagana 6.-8. júlí. Mótið fer fram á Korpúlfstaðavelli og leikið eftir
Texas Scramble fyrirkomulagi. Fjöldi veglegra vinninga.
Skráning í síma 585 0200.
fétt 96,7 b,son b" Q
, ----KRINGLUNNI 2. HÆÐ
S/óðu i gegn og erfidid verður leikur einn
Utsölustaðir um allt land
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3* S 564 1864