Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Sig-urbjörn og Magnea ásamt ibúum og starfsfólki á Sólheimum.
Fyrsta skóflustunga
tekin að Sólheimakirkju
Selfossi - Fyrsta skóflustungan að
Sólheimakirkju var tekin 30. júni.
Það var Sigurbjörn Einarsson
biskup og kona hans, Magnea
Þorkelsdóttir, sem tóku skóflu-
stunguna í fallegu og sólríku
veðri. Kirkjan mun standa á hæð-
inni fyrir ofan Sólheimaþorpið og
blasa við gestum eins og kóróna
ofan við byggðina. Arkitekt að
nýju kirkjunni er Árni Friðriks-
son. Utveggir kirkjunnar verða
með ysta byrði úr torfi og þak-
viðir úr íslenskum rekavið eða
lerki.
Sólheimakirkja, sem mun taka
200 manns í sæti, verður auk
guðsþjónustuhalds notuð sérstak-
lega til tónlistaræfinga og
kennslu. Hún mun standa á hæsta
stað Sólheimasvæðisins við hlið
rústa bæjarins Hverakots. For-
svarsmenn Sólheimaþorpsins
binda vonir við að byggingu
kirkjunnar ljúki eftir 5 ár á 75
ára afmæli Sólheima. Kirkju-
byggingunni hafa þegar borist
gjafir, arkitekt byggingarinnar
gefur alla sína vinnu og við at-
höfnina þegar skóflustungan var
Sólheimakirkja mun standa á
hæsta punkti Sólheimaþorpsins.
tekin var kynnt fyrsta gjöfin til
kirkjunnar sem var frá Sigur-
birni biskupi og einnig gjöf frá
Búnaðarbanka Islands sem færði
kirkjunni eina milljón króna.
Ibúar Sólheima söfnuðust sam-
Heyskapur
hafínn á
Snæfellsnesi
Taktu eina
rauða með í
sumarleyflðJ
Sk6lawfftustle, Krmglunni og Smáratorgi
Eyja- og Miklaholtshreppi - Hey-
skapur hófst í Eyja- og Miklaholts-
hreppi á Snæfellsnesi sl. fimmtudag
þegar bændumir á Fáskrúðsbakka
byrjuðu að slá. Á Fáskrúðsbakka
búa félagsbúi bræðurnir Gunnar og
Sigurvin Kristjánssynir. Þeir sögð-
ust hafa slegið um 10 hektara í
fyrstu lotu og sögðu sprettu vera
nokkuð góða þó ekki séu nema um 5
vikur síðan borið hafi verið á. Vænta
þeir þess að fá góða há síðar í sumar.
Á Fáskrúðsbakka er búið blönd-
uðu búi, þ.e. bæði með kýr og kindur
auk þess sem þar eru nokkur góð
hross. Hafa hross frá Fáskrúðs-
bakka staðið framarlega á mótum í
mörg ár.
Mikil veðurblíða hefur verið á
Snæfellsnesi. Aðrir bændur eru að
undirbúa heyskap því spá er góð
fyrir nokkra daga. Mikill fjöldi
ferðamanna er á ferðinni og umferð
um vegi mikil. Lögreglan hefur ver-
ið að fylgjast með umferðinni og
hafa nokkrir verið teknir fyrir of
hraðan akstur.
URKLÆÐNING
Kynntu þér ELGO múrklæðningu
áður en þú ákveður annað
ELGO múrklæðníngin er létt og sterk, sem fegrar, ver og einangrar
Traust íslensk múrefni
síðan 1973
Á verði við allra hæfi
tar á nýtt og eldra húsi
Varist eftirlýkingar
Leitið tilboða!
■■
■I steinprýði
Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík
Sími 567 2777 — Fax 567 2718
Ráðhús Olfuss, Þorlákshöfn
ELGO MÚRKLÆÐNINGIIU hefur verið undir eftirliti
RB síðastliðin 9 ár og hefur faríð í gegnum
ýmsar prófanir, svo sem IMORDEST IMT Build
GG, og staðist þær allar. ELGO
MÚRKLÆÐIMIIMGIIM var tekin út af
Birni Marteinssyni, verkfræðingi
hjá RB, ÁIM ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin hafa
verið prófuð hjá
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sigurbjörn Einarsson og Magnea Þorkelsdóttir fluttu ritningarorð.
an á kirkjulóðinni og tóku þátt í
athöfninni með Sigurbirni biskupi
og frú Magneu. Þeir fluttu ritn-
ingarorð í sameiningu og Sigur-
björn blessaði kirkjulóðina og
viðstadda. Hann lét í ljós þá ósk
að áfram mætti birta sólarinnar,
sem fælist í nafni staðarins, ljóma
um alla framtíð. Hann óskaði
starfseminni allra heilla og upp-
byggingunni á Sólheimum.
Morgunblaðið/Daníel Hansen
Kristján Sigurvinsson snýr fallegri töðu með Snæfellsjökul í bakgrunni.
Hvalfj ar ðargöng-
in hafa góð
áhrif á verslun
SALA hefur aukist í versluninni
Hyrnunni í Borgamesi frá því
Hvalfjarðargöngin voru tekin í
notkun þvert ofan í spár
forsvarsmanna fyrirtækisins sem
höfðu gert ráð fyrir samdrætti
samfara opnun ganganna. Guð-
steinn Einarsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Borgamess,
sem rekur Hyrnuna, sagði að lík-
lega hefðu menn gleymt að taka
það inn í reikninginn að fólk sem
ferðaðist um göngin æki ekki
lengur fram hjá tveimur verslun-
um í Hvalfirði, þ.e. við hvalstöð-
ina og Ferstiklu.
Að sögn Guðsteins hefur um-
ferð í gegnum Borgarnes aukist
mikið í kjölfar komu ganganna og
sagði hann að ferðatímabilið hefði
einnig lengst. „Þeir sem hrædd-
ust vetrarfærðina í Hvalfirði geta
nú ekið óhræddir um göngin,"
sagði Guðsteinn. „Við verðum
varir við það að fólk nýtir sumar-
húsin sín hér mun betur eftir til-
komu ganganna." Guðsteinn
sagðist einnig hafa það á tilfinn-
ingunni að ferðamynstur þeirra
sem t.d. ækju frá Reykjavík til
Akureyar og öfugt hefði breyst
eitthvað eftir tilkomu ganganna
og að nú stoppaði fólk líklega
helst í Borgarnesi og Blönduósi á
leið sinni norður eða suður.
Kristinn Guðmundsson, sem
rekur Staðarskála, sagði að versl-
un þar hefði ekki dregist saman
eftir að göngin hefðu verið tekin í
notkun, þvert á móti hefði staður-
inn styrkst sem áningarstaður
eftir opnun þeirra. Hann sagði að
umferð hefði aukist mikið og að
með tilkomu ganganna hefði leið-
in til Reykjavíkur styst mikið fyr-
ir Húnvetninga, Skagfirðinga og
Eyfirðinga og því þætti þeim
ekkert tiltökumál að skreppa
suður að morgni dags og keyra
aftur norður um kvöldið.