Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 5
Þórður Þorgeirsson sýnir 30 hross á landsmóti hestamanna
Morgunblaðið/Valdimar
Dynur fra Hvammi og Þórður Þorgeirsson
Þrennar
hvítar
reiðbuxur
í farang-
rinum
ÞÓRÐUR Þorgeirsson gistir í
hesthúsinu allar nætur meðan
hann er á landmóti. Hann segist
vilja fylgjast vel með hestunum
enda eru í húsinui hross fyrir
tugi ef ekki hundruð milljóna.
Þórður sýnir alls 30 hross á
landsmóti hestamanna sem er
með allra mesta móti. Þrír að-
stoðarmenn sjá um að allt sé til
reiðu. „Eg sé um upphitun að
mestu leyti en ef það er stutt á
milli sýninga þá sjá þau um
upphitunina fyrir mig. Þá er ég
búin að láta þau fá fyrirmæli
um hvaða beisli á að fara upp í
hvern hest, hvaða hnakkur og
hvaða hófhlífar fara á hestinn
o.s.frv.,“ segir Þórður.
Mikill áhugi á
kynbótahrossum
„Það hefur gengið bærilega í
dómunum fram að þessu. Aðal-
spennan hjá mér er í stóðhest-
unum. Þeir standa mjög hátt,“
segir Þórður en fjórir af þeim
graðhestum sem Þórður sýnir
hafa raðað sér í efstu sæti í sín-
um flokkum.
Nokkuð hefur borið á því að
kynbótahryssur hafi fengið
lægri einkunnir á landsmótinu
en þær höfðu fyrir mótið.
„Þetta er í rauninni ekkert
nýtt,“ segir Þórður. Þetta gerð-
ist t.d á landsmótinu á Melgerð-
ismelum 1998 þá komu hross
inn á mótið með háan dóm,
lækkuðu sig í forskoðuninni en
náðu sér svo til baka í yfir-
litsdómunum tveimur dögum
síðar. Vallaraðstæður eru
reyndar svolítið öðruvísi en við
eigum að venjast. Vellirnir hafa
fram að þessu verið opnir í
báða enda en nú eru brautirnar
aðeins opnar í annan endann.
En þetta á að vera rjóminn af
íslenska hrossastofninum í dag
þannig að við eigum nú að geta
stjórnað því í hvaða átt við fór-
um,“ segir Þórður. „Ég get ekk-
ert sett út á þessar vallarað-
stæður, vellirnir eru prýðilega
góðir og hrossin alveg frábær.
Á meðan veðrið er svona höfum
við ekki undan neinu að
kvarta," segir Þórður.
Með þrennar hvítar
reiðbuxur á mótið
Eins og aðrir knapar keppir
Þórður í hvítum reiðbuxum.
„Það er ekki hægt að halda
þeim hreinum. Maður verður að
kaupa svona tvær til þrjár fyrir
hvert mót. Ég er með þrennar
buxur á þessu móti,“ segir
Þórður. „Þær verða mjög skít-
ugar, maður þarf ekki að hafa
áhyggjur af því.“
Öli fyrir þig!
ICELANDAIR HÓTELS
OSTUR Á
SAMLOKUNA
Skerð'ann, smyvð'ann, sneidd'ann,
rífð' ann, brœdd'ann, rúllaðu konum upp!
Fáðu þér ost í samlokurnar og njóttu lífsins í sumar!
Ostur í allt sumar
ÍSLENSKIR
OSTAl^
ytfiílNA STA
v
^RA.0^
Upplýsingar og bókanir í sfma 50 50 910
www.ostur.is