Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 65
CÖ
O)
CD
’ÖÖ
æ
CD
töku í frímerkjasýningum og jafn-
framt að vanda söfn sín jafnt um efni
sem og útlit þeirra eða uppsetningu.
Hitt hefur aftur á móti í tímans rás
orðið æ ríkari þáttur í þeim reglum
sem dómurum hafa verið settar (eða
þeir sjálfir hafa sett) að auka kröfur
til safnanna og það svo að erfitt hefur
reynzt fyrir venjulega safnara að full-
nægja þeim. Af því hefur leitt annað
tveggja, að menn hafa ekki fengið að-
gang að sýningum með efni sitt, jafn-
vel þótt það liti vel út í augum venju-
legs fólks, eða þá hitt, að safnarar
hafa hreinlega orðið að kaupa sjald-
gæfa hluti dýru verði svo að söfn
þeirra yrðu gjaldgeng. Af því hefur
svo aftur leitt að einungis vel efnum
búnir safnarar hafa getað sent söfn
sín á stærri sýningar og þá allra helzt
á svonefndar heimssýningar í von um
góð verðlaun. En áður en svo langt
verður komizt þarf að fara í gegnum
mörg nálaraugu, ef svo má nefna
augu dómaranna. Og við hvert auga
verður helzt að bæta við fágætum
merkjum, afbrigðum eða umslögum í
söfnin og þá venjulega mjög eftirsótt-
um af öðrum söfnurum og um leið
dýrum.
Oft hef ég velt því fyrir mér hvert
þessi stefna muni leiða enda hefur
þetta vandamál verið rætt oft og
mörgum sinnum í blöðum erlendra
frímerkjasafnara. Má vera að seinna
verði komið nánar að þessum málum
hér í frímerkjaþáttum Mbl. og skoð-
anir erlendra safnara á þessu vanda-
máli viðraðar við lesendur blaðsins.
Jón Aðalsteinn Jónsson
u
javegi
Tvær frímerkj asýning’ar í
Reykjavík í þessum mánuði
FRIMERKI
Kjarvalsstaðir
NORDJUNEX 2000,
DIEX 2000
27.-30. júlí.
í FEBRÚAR sl. var minnzt á frí-
merkjasýningar sem yrðu haldnar
hér á landi á þessu sumri. Þær tengj-
ast báðar því að Reykjavík er ein af
svonefndum menningarborgum árið
2000.
Þar sem nú er aðeins tæpur mán-
uður þar til frímerkjasöfnurum og
öðrum áhugamönnum um ftímerki
gefst kostur á að sjá þessar sýningar
fékk ég nýjar upplýsingar um þær hjá
formanni og ritara Landssambands-
ins. Þakka ég þær og birti hér hið
helzta úr þeim.
Sýningar þessar verða haldnar
dagana 27.-30. júlí á Kjarvalsstöðum.
Annars vegar er unglingasýning,
NORDJUNEX 2000, þai’ sem sýn-
endur eru 45 með efni í 114 römmum.
Norrænir unglingar sýna þar söfn sín
með margs konar efni en því miður
koma að þessu sinni engin söfn frá
Noregi. Enginn vafi leikur á að sýn-
ing sem þessi gefur íslenzkum ungl-
ingum gott tækifæri til þess að sjá
hvernig unglingar annarsstaðar á
Norðurlöndunum safna fiímerkjum
og um leið draga lærdóm af. Þess
vegna eru unglingasýningai’ ákjósan-
legar og gagnlegar fyrh' frímerkja-
söfnun enda eru það unglingarnir
sem verða að taka við af okkur sem
fullorðnir erum orðnir og jafnvel
gamlir, ef söfnunin á ekki að lognast
út af. I sannleika sagt er endurnýjun
safnara einmitt orðin nokkurt vanda-
mál, ekki síður hjá frændum voium á
Norðurlöndum en okkur sjálfum.
í tengslum við sýninguna verður
haldin spurningakeppni unglinga um
ft-ímerkjafræði. Verður keppt í
þriggja manna liðum, einu fi’á hverju
þátttökulandi. Viðfangsefnið verður
frírnerkjaefni sem tengist höfuðborg-
um Norðurlanda. Á liðnum sýningum
hafa íslenzkir unglingar staðið sig vel
og í nokkur skipti borið sigur úr být-
um. Spurningakeppnin nýtur styrks
Norrænu æskulýðsnefndaiinnai'.
Hin frímerkjasýningin er af öðrum
toga. Er hún haldin í samstarfi við
þýzk samtök safnara norrænna frí-
merkja sem starfa innan þýzka lands-
sambandsins. Allt sýningarefnið
varðar fsland og íslenzka frímerkja-
fi'æði. Nokkur söfn þýzkra safnara
hafa áðui' sézt á sýningum hérlendis
en nú gefst kjörið tækfæri fyrir okkur
að sjá söfn sem hafa ekki áður verið
sýnd hér. Þar sem viðbúið er að ekki
gefist annað tækifæri um lengri tíma
til að sjá sum þessara safna a.m.k. eru
þeir sem áhuga hafa á íslenzku frí-
merkjaefni hvattir til að skoða söfn
Þjóðverjanna. Þessi sýning nefnist
DIEX 2000. íslenzkir dómarar og
einn þýzkur dæmir þessa sýningu. ís-
lenzkir safnarar taka einnig þátt í
sýningunni en tölu þeirra hef ég ekki
á reiðum höndum.
Á þessari sýningu verður ennfrem-
ur sýnt frímerkjaefni úr Þjóðskjala-
safni íslands og eins úr Frímerkja- og
póstsögusafninu og úr því safni einnig
tillöguteikningai' að frímerkjum.
Pósthús verður starfrækt á Kjar-
valsstöðum þessa sýningardaga, bæði
á vegum íslandspósts hf. og færeysku
póststjómarinnar. Auk þess verða
þarna nokkrir básar frímerkjakaup-
manna.
Sýningamar verða opnar almenn-
ingi kl. 18 til 20 fimmtudaginn 27. júlí,
NomJunex
DIEX
Sýningarstimplar Islandspósts
hf. dagana 27.- 30. júlí.
kl. 13 til 19 fostudaginn 28. júlí, kl. 10
til 19 laugardaginn 29. júlí og kl. 10 til
16 á sunnudeginum 30. júlí.
Sýningamefnd vill vekja sérstaka
athygli á að lokað verðm' kl. 16 eða
klukkan fjögur á sunnudeginum. Er
það gert til þess að unnt sé að taka
sýningarefni niður og ganga frá sýn-
ingarstaðnum þann daginn. Jafn-
framt era erlendu sýnendumir hafðir
í huga því að þeir vilja trúlega halda
sem fyrst heim að lokinni sýningu.
Frímerkj asýningar og gildi
þeirra fyrir safnara
Fi-ímerkjasýningar hafa um langt
árabil verið einn þáttur af mörgum
sem efla áhuga manna á þessari
tómstundaiðju, frímerkjasöfnun, sem
margir vilja kalla konung tómstund-
anna. í upphafi vora þessar sýningar
öragglega haldnar til þess að kynna
hverju mætti safna og um leið hvernig
bezt færi á því að setja upp frímerkja-
söfn. Þannig gátu þeir sem styttra
vora komnir í söfnun sinni dregið lær-
dóm af reynslu annarra og notfært
sér hana og þær hugmyndir sem
hlutu að vakna við að skoða vönduð og
nákvæm söfn. Svo var farið að dæma
söfn og veita þeim verðlaun. Fóra þau
eftir ákveðinni stigagjöf þar sem tek-
ið var tillit til margra þátta eins og
safnarar kannast mætavel við. Vafa-
laust hefur sú hugsun legið hér að
baki í upphafi að örva safnara til þátt-