Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Farþegar af erlendum skemmtiferðaskipum voru fyrirferðarmiklir á Akureyri í gær en þrjú slík skip voru sam-
tímis á Pollinum í gærmorgun.
Þrjú skemmtiferðaskip á Pollinum
Akureyrarbær tekur ekki beinan
þátt í „Halló Akureyri“ að óbreyttu
Vilji fyrir fjöl-
skylduvænni hátíð
ÞRJIJ skemmtiferðaskip sigldu inn
á Pollinn við Akureyri í gærmorg-
un og voru farþegar skipanna mjög
áberandi í miðbænum í kjöifariö.
Tvö skipanna, Royal Princess og
Sapphire, lágu við festar á Pollin-
um en þriðja skipið, Arkona, lagðist
að Oddeyrarbryggju.
Royal Princess er engin smá-
smíði, eða um 45.000 lestir og getur
tekið tæplega 1.300 farþega, auk
520 manna áhafnar. Arkona er
rúmlega 18.000 lestir og getur tek-
ið rúmlega 600 farþega og í áhöfn
eru um 240 manns. Sapphire er
rúmlega 12.000 lestir, tekur um 650
farþega og í áhöfn eru 225 manns.
Arkona hafði aðeins skamma við-
dvöl á Akureyri og sigldi út Ijörð-
inn um hádegi, Sapphire hélt af
stað um kl. 18 og Royal Princess
skömmu fyrir miðnætti, eftir að
Karlakór Akureyrar/Geysir hafði
sungið fyrir farþegana um borð.
Alls hafa 33 skemmtiferðaskip
boðað komu sína til Akureyrar á
þessu sumri og er heildarstærð
þeirra rúmlega 665.000 brúttótonn,
sem er um 40% aukning frá si'ðasta
sumri. Reiknað er með að um
19.000 farþegar verði með þessum
skipum og um 9.000 áhafnar-
meðlimir.
ALLS óvíst er hvort nokkuð verður
af „Halló Akureyii“ sem haldin hef-
ur verið undanfarnar verslunar-
mannahelgar. Akureyrarbær hefur
boðað að ekki verði bein þátttaka af
hans hendi í slíkri hátíð að öllu
óbreyttu. Miðbæjarsamtökin á Ak-
ureyri hafa lýst yfir megnri óánægju
með yfirlýsingar bæjarstjómar en
búist var við að fulltrúar samtakanna
myndu funda með Þórarni B. Jóns-
syni, formanni íþrótta- og tóm-
stundaráðs, í gærkvöldi.
Þórarinn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að bæjaryfirv'öld gætu vel
hugsað sér að styðja við bakið á
raunverulegri fjölskylduhátíð en síð-
ustu ár hafi borið á kvörtunum vegna
unglingadrykkju á hátíðinni. „Mið-
bæjarsamtökin hafa komið að máli
við okkur og spurt hvort við hefðum
áhuga á að funda með þeim og ég
sagði það alveg sjálfsagt. Hvort ein-
hver hátíð verður haldin með nýju
yfirbragði,er ekki gott að segja en
það er spurning hvað Miðbæjarsam-
tökin hafa fram að færa. Hvort slík
hátíð yrði nefnd eitthvað annað en
„Halló Akureyri" veit ég ekki,“ sagði
Þórarinn.
Ingþór Asgeirsson, formaður Mið-
bæjarsamtakanna, sagði það vera
fáránlega hugsun að blása „Hallóið"
alveg af, ef það væri ætlunin. „Ef
menn vilja gera breytingar á þessu
ævintýri á að leggja áherslu á aðra
hluti. Menn leysa ekki vandann með
því að hætta við svona lagað,“ sagði
Ingþór. Hann sagði ekki ljóst hvort
Miðbæjarsamtökin stæðu fyrir ein-
hverjum uppákomum í miðbænum
um verslunarmannahelgina en taldi
málin geta skýrst eftir fyrirhugaðan
fund sem fara átti fram í gærkvöldi.
---------------------
Skógræktarfélag
Eyjafjarðar
Opið hús
í Kjarna
í TILEFNI 70 ára afmælis Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga á þessu ári
verður kynning á starfsemi Gróðrar-
stöðvarinnar í Kjarna í kvöld
(fimmtudagskvöld) kl. 20.
Greint verður frá plöntuuppeldi
félagsins frá öndverðu, sýndar rækt-
unaraðferðir og spurningum svarað.
Allir eru velkomnir.
Gróðrarstöðin í Kjarna var stofn-
uð 1946 til þess að tryggja Skóg-
ræktarfélaginu og skógræktarfólki}
Eyjafirði trjáplöntur til ræktunar. A
þessum i*úmu 50 árum hefur ýmis-
legt breyst í uppeldi trjáplantna og
ástæða til þess að rifja upp söguna.
Fjölmargt starfsfólk hefur komið við
sögu stöðvarinnar frá upphafi og er
það sérstaklega hvatt til þess að
koma í heimsókn.
Slökkvilið Akureyrar tekur yfir fag-
lega stjórn á flugvallarslökkviliðinu
Morgunblaðið/Kristján
Skrifað undir samninginn í húsakynnum Slökkviliðs Akureyrarflugvall-
ar. F.v. Þorgeir Pálsson flugmálasljóri, Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri.
Fyrsta skrefíð til
frekara samstarfs
SAMNINGUR milli Flugmála-
stjórnar og Akureyrarbæjar var
undirritaður í gær en samningurinn
felur í sér að Slökkvilið Akureyrar
tekur að sér faglega yfirstjórn á
Slökkviliði Akureyrarflugvallar.
Undir samninginn rituðu Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra,
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri og
-
Fím. og íös/
Gíldru&z
ásamt Snörxmxim
Laugarcfagskvöld
Hljómsveítín
1&70
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri.
Með samningnum ber slökkviliðs-
stjóri Slökkviliðs Akureyrar faglega
ábyrgð á bruna- og björgunarmálum
á Akureyrarflugvelli en rekstur flug-
vallarslökkviliðsins mun áfram um
sinn verða undir stjórn Flugmála-
stjórnar.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði samninginn fyrsta skref-
ið í þá átt að auka frekara samstarf
Akureyrarbæjar og Flugmálastjórn-
ar. Sturla sagðist vilja ná sem bestu
samkomulagi við sveitarfélög um
samstarf um rekstur flugvalla og
hann vonast eftir góðu samstarfi við
Akureyrarbæ.
Viðræður standa yfir milli Flug-
málastjórnar og Akureyrarbæjar
um þjónustusamning sem feli í sér að
Slökkvilið Akureyrar taki að sér að
sjá um slökkvi- og björgunarþjón-
ustu á Akureyrarflugvelli, sem flug-
vallarslökkviliðið sér nú um. Krist-
ján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði
að þessi áfangi væri væntanlega
áfangi á lengri leið. Undir orð hans
tók Þorgeir Pálsson flugmálastjóri.
Miðbæjarsamtökin senda bæjarstjórn Akureyrar bréf
Lýsa yfir áhyggjum af
stöðu mála í miðbænum
MIÐBÆJARSAMTÖK Akureyrar
hafa ritað bæjarstjórn Akureyrar
bréf þar sem lýst er yfir áhyggjum
vegna tafa á ákvarðanatöku um
hvort leyfa eigi takmarkaða umferð
bíla um göngugötuna. Einnig segjast
samtökin langeyg eftir lokatillögum
um breytingar á götunni. Morgun-
blaðið heyrði í þeim Ingþóri Asgeirs-
syni, formanni samtakanna, og As-
geiri Magnússyni, formanni
bæjarráðs, vegna málsins.
Vilja hraða framkvæmdum
Ingþór segir að þrátt fyrir að arki-
tektar vinni að breytingum á göngu-
götunni líti tillögur þeirra seint
dagsins ijós. „Þetta átti nú fyrst að
vera í desember, þá janúar og síðan
apríl. Nú er júní liðinn og ekkert er
farið að gerast enn þá og við vildum
ýta aðeins við bæjaryfiivöldum,"
sagði Ingþór. Hann taldi líka enn þá
mikilvægara að framkvæmdum yrði
hraðað vegna þess að verslunarmið-
stöð á Gleráreyrum verður senn
hieypt af stokkunum. „Það er alveg
fyrirsjáanlegt að það hefur áhrif á
rekstraraðila í miðbænum eins og
sýndi sig í Reykjavík þegar Kringlan
var opnuð. í ljósi þess að bærinn
lagði fé til breytinga á aðgengi að til-
vonandi verslunarmiðstöð á Glerár-
eyrum viljum við líka setja pressu á
að aðgengi verði ekki verra að mið-
bænum,“ sagði Ingþór.
Ingþór taldi ekki að umferð bfla á
göngugötunni myndi leysa allan
vanda en sagði að einhvers staðar
þyrfti að byrja. „Við sjáum hvaða
áhrif það hafði að hressa upp á
Laugaveginn um árið. I stað þess að
horfa upp á þriggja til fjögurra ára
dýfu í miðbænum í kjölfar nýrrar
verslunarmiðstöðvar gætum við með
framkvæmdum stytt þann tíma í eitt
til tvö ár.“
Málið í vinnslu
Asgeir Magnússon sagðist ekki
enn hafa séð bréfið frá Miðbæjar-
samtökunum en hugsanlegt væri að
það yrði tekið fyrir á fundi bæjar-
ráðs næstkomandi fimmtudag. „Það
er svo sem engu að svara í þessu
nema að það er unnið að þessum til-
lögum um breytingar á göngugöt-
unni og það er í vinnslu. Það voru
ráðnir arkitektar síðastliðinn vetur
til að vinna að tillögum að skipulagi á
miðbænum og þar með breytingum á
göngugötunni. Eins og ég segi þá er
þetta allt í vinnslu. Þegar þessar til-
lögur koma fram þá verður auðvitað
tekin afstaða til þeirra,“ sagði As-
geir. Hann tók fram að engin
ákvörðun hefði enn verið tekin um
hvort hleypa ætti umferð á göngu-
götuna eða ekki. „Slík ákvarðana-
taka er þá bara eftir þegar tillögurn-
ar koma fram en ég vona að þær fari
nú brátt að líta dagsins ljós,“ sagði
Ásgeir.
Hann sagði að allir möguleikar til
úrbóta I miðbænum yrðu skoðaðir
vel og vandlega því að þarna væri um
að ræða viðkvæman blett í bæjarfé-
laginu.
Júnímánuður
sólríkur á Akureyri
Aldrei
fleiri sólar-
stundir
NYLIÐINN júnímánuður er sá súl-
ríkasti á Akureyri siðan mælingar
húfust árið 1928. Súlarstundir í
mánuðinum voru 284,8 en sá júní-
mánuður sem áður átti metið var
árið 1982 með 263,8 súlarstundir.
Það er því ljúst að Akureyringar
þurfa ekki að kvarta yfir sumrinu
hingað til og svo er bara að sjá hvað
setur á næstu mánuðum.
Morgunblaðið/Kristján
Krakkarnir á Leikskúlanum Holtakoti kældu sig í buslulaug þegar súlin
var hvað heitust.