Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra um ummæli framkvæmdastjóra ASÍ
Ekki fallin til þess að
stuðla að stöðugleika
Morgunblaðið/Golli
Fréttafundur á vegum PATH
samtakanna var haldinn í Hinu
húsinu í gær, en samtökin beita
sér gegn vímuefnum.
PATH sam-
tökin form-
lega stofnuð
í Reykjavík
Samtökin PATH - Evrópsk æska án
eiturlyfja (European Youth without
Drugs) verða stofnuð á ráðstefnu
sem haldin verður í Reykjavík frá
10.-17. júlí. Að sögn Hildar Sverris-
dóttur, kynningarfulltrúa PATH,
er markmið samtakanna að virkja
ungt fólk í baráttunni gegn eitur-
lyfjum og benda á aðra valkosti.
„Við viljum koma því á framfæri við
ungt fólk að það er hægt að
skemmta sér án þess að nota eitur-
lyf,“ sagði hún á blaðamannafundi
sem haldinn var á vcgum samtak-
anna í Hinu húsinu í gær. „Einnig
viljum við koma á fót gagnabanka
sem mun innihalda upplýsingar um
forvarnarsamtök í Evrópu, ýmis
verkefni sem eru í framvæmd og
tengjast baráttunni gegn eiturlyfj-
um og aðrar upplýsingar sem
tengjast ungu fólki.“
Formleg setning verður á
skemmtistaðnum Astróþann 14. jú-
lí í viðurvist forseta íslands en sam-
tökin hafa einnig skipulagt fjöl-
breytta dagskrá í Gerðubergi og í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Stuðningur frá helstu frammá-
mönnum Evrópu
Fjölmargir aðilar í Evrópu hafa
sýnt PATH stuðning, að sögn Hild-
ar. Ólafur Ragnar Grímsson hefur
lofað framtakið ásamt Romano
Prodi, forseta Evrópusambandsins,
og Gro Harlem Brundtland, aðal-
framkvæmdastjóra Alþjóðaheil-
brigðismálstofnunarinnar. Þessa
stundina er Jóhann Kr. Kristjáns-
son, stofnandi samtakanna, staddur
í Suður-Afríku þar sem hann mun
funda með Nelson Mandela, vænt-
anlegum vemdara samtakanna.
PATH er í samstarfi við Jafn-
ingjafræðgluna, Flakkferðir og
Menningarborg 2000. Einnig hafa
Hitt húsið, Reykjavíkurborg,
Islandsbanki og Samskip hf. stutt
dyggilega við bakið á samtökunum.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir mikilvægt að vera ekki með
vanstillingu í umræðu um samninga-
og verðlagsmál. „Það er uppskrift að
því að fara í sama gamla farið ef
menn telja að olíuverðhækkanir er-
lendis eigi að leiða til kauphækkunar
í landinu,“ segir hann. Hann segir
það varla stuðla að stöðugleika að
lýsa því yfir að kjarasamningar verði
í uppnámi eftir nokkra mánuði.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASI, sagði í Morgunblaðinu í gær að
vegna verðlagsþróunar benti allt til
þess að kjarasamningum yrði sagt
upp um næstu áramót. Hann gagn-
rýndi stjómvöld og sagði að sér virt-
ist þau ekki vera að vinna sérstak-
lega í því að halda stöðugleikanum
við eða tryggja hann.
Líkur á lækkandi verðbólgu
Davíð segir að hætta sé á að gamli
verðbólgudraugurinn og vítahring-
urinn láti aftur á sér kræla ef reynt
verði að hækka laun umfram verð-
bólgu. Þá hækki verðlag enn fi-ekar
sem kalli á launahækkanir og þannig
haldi keðjuverkunin áfram svo kaup-
máttur minnki til langs tíma litið.
„Sérstaklega vegna þess að hækkan-
irnar eiga sér að langmestu leyti
rætur erlendis. Ég nefndi það í ræðu
minni 17. júní að allar líkur væru á að
olíuverð væri búið að ná hámarki og
færi nú lækkandi og samkvæmt öll-
um nýjustu spám gengur það eftir,“
segir hann.
Davíð segir að ekki megi gleyma
því að bensínverð hefði hækkað tíu
BALDVIN Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá FÍB tryggingu,
hefur efasemdir um að iðgjalda-
hækkanir Sjóvá-Almennra setji lín-
una fyrir öll hin tryggingafélögin.
Hann kveðst telja að útboð á almenn-
um hlutabréfamarkaði á hlutabréf-
um í félaginu, sem framundan sé,
leiki stórt hlutverk í ákvörðunum fé-
lagsins núna. Honum sýnist því að
forsendur Sjóvár-Almennra séu aðr-
ar en annarra tryggingafélaga þegar
kemur að ákvörðunum um iðgjalda-
breytingar. Eðlilegt sé að önnur
tryggingafélög meti hækkunarþörf-
ina út frá tjónatíðni. „Okkar vá-
tryggjendur horfa fyrst og síðast á
tjónatíðnina og meta hækkunarþörf-
ina út frá því. Ég geri ekki ráð fyrir
því að hin tryggingafélögin, VÍS eða
Tryggingamiðstöðin, hækki iðgjöld-
in í sömu hlutföllum og Sjóva-Al-
mennar," segir Baldvin.
Vátryggjendur FÍB tryggingar
eru hópurinn Octavian sem starfar
innan Lloyds. Baldvin segir að málið
prósentum meira en raun varð ef
álagningu ríkisins hefði ekki verið
breytt með lögum. Hann segir að
verðlagsþróun eigi að geta orðið hag-
stæð á næstunni ef heimsmarkaðs-
verð á olíu lækkar. „Undirliggjandi
verðbólga í landinu hefur verið lág ef
húsnæðiskostnaður og bensínverð er
frá talið,“ segir forsætisráðherra.
Ríkið hefur lagt sitt af mörkum
Davið segir að vissulega komi yfir-
vofandi iðgjaldahækkun trygginga-
félaganna sér illa. „Þó má benda á að
þau höfðu boðað slíka hækkun fyrir
mörgum mánuðum, þegar aðilar
vinnumarkaðarins unnu að samn-
ingagerð. Því ættu þessar fréttir
ekki að koma þeim í opna skjöldu
þótt hægt sé að velta því nú fyrir sér
hvort hækkunin eigi rétt á sér,“ seg-
ir hann.
Aðspurður segir Davíð að ríkið
hafi dregið saman seglin til að stuðla
að minni verðbólgu. „Afgangur á
fjárlögum er meiri en nokkru sinni
áður, á bilinu 16-20 milljarðar króna,
og hann hefur verið notaður til að
greiða niður skuldir og er ríkið eini
opinberi aðilinn sem þannig er ástatt
um. Sveitarfélögin hafa ekki fylgt í
kjölfarið en þau hafa samt sem áður
haft miklar tekjur vegna hagvaxtar í
landinu,“ segir Davíð.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir ekki
tímabært að kveða upp þann dóm að
forsendur kjarasamninga muni
bresta. „Þó skil ég vissulega áhyggj-
ur Ara Skúlasonar en ég tel að íyrst
sé til skoðunar hjá þeim en niður-
staðan liggi ekki fyrir. Það sé ljóst að
það verði einhver hækkun á iðgjöld-
unum sem hafi verið óbreytt frá 1.
október sl. þegar þau hækkuðu um
12,5%. Iðgjöldin höfðu verið að
hækka allt það ár og var samanlögð
hækkunin alveg í takt við hin félögin,
eða vel yfir 40% á árinu. Baldvin seg-
ir að svo virðist sem afkoman vegna
ársins 1998 ætli að verða slæm en
hann bendir á að uppgjörsaðferðir
hjá Lloyd’s séu aðrar en hjá íslensku
tryggingafélögunum. Arinu 1996 er
og fremst þurfi að huga að því núna
til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til
að koma í veg fyrir þessa þróun,“
segir Ari.
Allir verða að leggjast á eitt
Ari segir að allir verði að leggjast
á eitt til að draga úr því þenslu- og
spennuástandi sem hér ríkir. „Við
höfum meðal annars bent á að sam-
neysluútgjöld hafa aukist meira en
landsframleiðsla á undanförnum ár-
um þrátt fyrir mikinn vöxt lands-
framleiðslunnar. Því verðui- augljós-
lega að taka fastar á
rekstrarútgjöldum sveitarfélaga og
ríkis. Þær aðgerðir myndu skipta
miklu máli og hafa áhrif til góðs,“
segir hann.
Þá segir Ari það afar mildlvægt
markmið að kjarasamningar haldi út
samningstímann. „Við verðum að
hafa úthald til þess að vinna okkur út
úr þessu ástandi því við getum ekki,
eins og einhver orðaði það, svarað
verðbólgu með verðbólgu. Undan-
farin ár höfum við upplifað hvað
stöðugt starfsumhverfi hefur veitt
fyrirtækjum mikla viðspyrnu til að
sækja fram og bæta lífskjör."
Ari tekur sem dæmi að á árunum
1980-1989 hafi laun hækkað um
1.400 prósent en kaupmáttur rýrnað
um 4 prósent. Árin 1990-1999 hafi
laun aftur á móti hækkað um 60
prósent og kaupmáttur batnað um
25 prósent. „Við megum ekki ljúka
þessu hagvaxtar- og velmegunar-
skeiði með kaupmáttarfalli á borð við
það sem varð árið 1989 þegar kaup-
t.a.m. ekki lokað endanlega fyiT en í
lok ársins 2000. Það er með öðrum
orðum ekki fyrr en þremur árum frá
lokum uppgjörsársins sem endanlegt
uppgjör liggur fyiir. Baldvin segir að
félagið fylgist hins vegar náið með
gangi mála og segir hann að svo virð-
ist sem afkoman á árinu 1997 ætlaði
að verða góð en verri afkomu sé að
vænta fyrir árið 1998. Hann segir að
bæði 1999 og 2000 ætli að koma vel út
og á þessu ári standi vonir til þess að
það verði hagnaður af starfseminni.
Baldvin bendir hins vegar á að ekki
máttur féll um 20 prósent," segir Ari.
„Laun munu ekki komast upp fyrir
verðbólgu ef hún fer úr böndunum
og því er afar mikilvægt að sá árang-
ur náist sem menn töldu sig vera að
stuðla að með kjarasamningunum."
Ekki lítil launahækkun
Ari segir að þótt samningar hafi
tekist um minni launabreytingar en
margir hafi haft væntingar um séu
þær í raun mjög miklar miðað við
það sem gerist í nágrannalöndunum.
„Umsamin hækkun á launakostnaði
var almennt um 5% þegar allt er talið
og þar við bætist launaskrið sem
Seðlabankinn metur á 2,5%. Því er
um að ræða alls 7-8% launahækkun
sem er mun meiri en í samkeppnis-
löndum okkar. Þar eru launahækk-
anir að meðaltali innan við 3%,“ segir
hann. Hann segir að djarft hafi verið
teflt í launahækkunum í trausti þess
að langtímasamningar stuðluðu að
stöðugleika.
Ari Skúlason gagnrýndi Samtök
atvinnulífsins fyrir iðgjaldahækkun
Sjóvár-Almennra þar sem fyrirtækið
væri félagi í samtökunum sem sett
hefðu umræddar forsendur í samn-
ingana. Ari Edwald segir að einstök
einkafyrirtæki, eins og Ara Skúla-
syni sé ljóst, lúti ekki boðvaldi Sam-
taka atvinnulífsins í starfsemi sinni.
„Eitt af höfuðmarkmiðum Samtaka
atvinnulífsins er einmitt að stuðla að
aukinni samkeppni í efnahagslífinu
til hagsbóta fyrir neytendur,“ segir
hann.
séu nema sex mánuðir liðnir af árinu
þannig að það er of snemmt að slá
einhverju föstu um útkomuna.
Baldvin kveðst vonast til þess að
ákvörðun Octavian liggi fyrir í lok
þessarar viku um hvort og hvernig
iðgjöldum verði breytt.
I Morgunblaðinu í gær var gerður
samanburður á iðgjöldum ökutækja-
trygginga hjá Sjóvá-Almennum. Þar
var miðað við þær forsendur að vá-
tryggingataki væri 25 ára eða eldri,
búsettur á höfuðborgarsvæðinu, með
hæsta bónus. Ökutækið er ný meðal-
stór einkabifreið, t.d. Toyota Corolla.
Iðgjald hjá Sjóvá-Almennum fyrir
þennan bíl er 53.236 kr. í ábyrgðar-
tryggingu eftir hækkun og 22.130 kr.
fyrir kaskótryggingu. Hjá FIB
tryggingu er sambærilegt iðgjald
31.659 kr. en tryggingin stendur að-
eins félagsmönnum í FÍB til boða og
þurfa þeir að greiða árgjald. Kas-
kótryggingin er 20.078 kr. og er þar
miðað við 90.000 kr. sjálfsábyrgð, en
63.000 kr. hjá Sjóvá-Almennum.
Vátryggjendur FIB tryggingar eru að skoða hækkunarþörfína
Býst ekki við
jafnmiklum
hækkunum
Framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra ekki sammála mati Fjármálaeftirlitsins
Sífellt verið að endur-
meta tjónaskuld félagsins
EINAR Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Alménnra, hafnar því
fyrir sitt leyti algerlega að trygginga-
félögin hafi dulbúið hagnað sinn í
gegnum árin með of háu framlagi í
svokallaða bótasjóði. Hann segist
ekki sammála því mati Fjármálaeftir-
litsins að tryggingafélög ofineti tjón
sín um rúma tvo milljarða - þeir hjá
Sjóvá-Almennum noti viðurkenndar
aðferðir við útreikninga á tjónaskuld,
þ.e. framlagi í bótasjóði, og Fjármála-
eftirlitið hafi aldrei gert neinar at-
hugasemdir við verklag þeirra.
Einar leggur áherslu á að hann tali
ekki fyrir hin tryggingafélögin. Hjá
Sjóvá-Almennum hafi málum hins
vegar verið þannig háttað að menn
endurmeti í sífellu tjónaskuld félags-
ins og þar gildi að horfa á heildar-
myndina, en taka ekki út einstök ár
og leggja út frá þeim.
Einar er hér að vísa til þess að í
skýrslu Fjármálaeftirlitsins frá sept-
ember sl. var reiknað út frá tímabil-
inu 1991-1996. Bendir hann á í þessu
sambandi að allan síðasta áratug hafi
verið mikil óvissa um þróun tjónaupp-
gjörs í slysum. Þess vegna hafi vafa-
laust einhvem tíma verið um ofmat að
ræða, þegar horft sé til baka, en í öðr-
um tilvikum hafi verið um klárt van-
mat að ræða.
Segir Einar að það sem skipti vá-
tryggingafélag mestu máli sé að
heildartjónaskuld, sem á félaginu
hvíli á hverjum tíma, sé rétt metin eft-
ir að búið er að vega saman alla þætti.
18 milljarðar ekki óeðlileg tala
Eins og áður segir var það niður-
staða Fjármálaeftirlitsins að framlag
tryggingafélaganna í bótasjóði hefði
reynst tveimur milljörðum of mikið á
tímabilinu 1991-1996. Kom ennfrem-
ur fram í Morgunblaðinu í gær að
bótasjóðir tryggingafélaganna hafa
stækkað síðustu ár og voru orðnir
17,9 milljarðar í árslok 1999, saman-
borið við 11,4 milljarða 1994.
Einar segist ekki telja töluna átján
milljarðar óeðlilega þegar rætt er um
bótasjóði tryggingafélaganna. Þeir
hjá Sjóvá-Almennum séu t.d. um
þessar mundir með um 3000 óupp-
gerð slysamál. Meðaltjón skv. þeirra
reynslutölum hljóði upp á rúmar tvær
milljónir og því myndi tjónaskuld
þeirra alls hljóða upp á um 6 milljarða
sem sé nokkurn veginn markaðshlut-
ur íyrirtækisins af heildartjónaskuld
félaganna.
Hann segir að á hverju ári eigi sér
stað uppgjör í fjöldamörgum slysa-
málum og ef um ofáætlun hafi verið
að ræða í tilteknu máli leysist tjóna-
skuldin upp og skili afgangi inn í
reksturinn. Ef um vanmat hafi verið
að ræða þá komi það til gjalda í
rekstrinum, eða tíl frádráttar.
Mjög fastmótaðar reglur um
vátryggingafélagsrekstur
Aðspurður segir Einar að sú
spuming falli því um sjálfa sig, hvort
hann telji ekki eðlilegt að umfram-
greiðslur í bótasjóði komi til frádrátt-
ar þegar iðgjöld eru hækkuð. Það sé
ekki um neitt umframfé að ræða, fjár-
muni dagi ekki bara uppi í hirslum
tryggingafélaganna heldur sé alltaf
verið að endurmeta tjónaskuldina.
Vekur hann athygli á því að vá-
tryggingafélagsrekstur býr við mjög
fastmótaðar reglur, sem byggðar eru
á Evrópurétti. Ástæðan fyrir því sé
sú að talið hafi verið mikilvægt að
stefna fjárhag þessara fyrirtækja
ekki í hættu því fyrst og fremst myndi
óreiða í þeim efnum bitna á tjónþol-
um.