Morgunblaðið - 06.07.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
152. TBL. 88. ARG.
FIMMTUDAGUR 6. JULI 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogar Rússlands, Kína og Mið-Asíuríkja funda
Olíuverð
lækkar
VERÐ á hráolíu hélt áfram að lækka
á mörkuðum í gær í kjölfar óvæntrar
tilkynningar Saudi-Araba sl. mánu-
dag um að þeir séu reiðubúnir til að
auka framleiðslu sína um hálfa millj-
ón olíufata á dag.
Ólíklegt var talið 1 gær að Saudi-
Arabar myndu einhliða auka fram-
leiðslu sína án þess að Samtök olíu-
útflutningsríkja, OPEC, sem Saudi-
Arabar eru meðlimir í, myndu veita
samþykki sitt, að því er fram kom á
vefsíðu The Wall Street Journal. Ali
Rodriguez, forseti OPEC, fullyrti í
gær að samtökin myndu ekki auka
framleiðslu nema að fengnu sam-
þykki allra aðildarríkjanna, að því er
sagði á viðskiptafréttavef CNN.
Þar kom ennfremur fram að við-
miðunarverð á olíu á markaði í Lond-
on var 29,38 dollarar á fatið við lokun
í gær og hafði lækkað um 20 sent frá
deginum áður. Verðið var 30,67 doll-
ai-ar á markaði í New York og hafði
lækkað þar um 1,83 dollara í kjölfar
tilkynningar Saudi-Araba. Markað-
urinn í New York var lokaður á
þriðjudaginn vegna þjóðhátíðardags
Bandaríkjamanna.
Þá var haft eftir Rodriguez að ef
verðið héldist lengi yfir 28 dollurum
myndi OPEC „gera ráðstafanir“.
Samningaviðræður
hafnar í Kýpur-deilunni
Genf.AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hóf í gær
samningaviðræður milli fulltrúa
tyrkneskra og grískra Kýpurbúa
sem funda munu í Genf næstu daga í
þeim tilgangi að finna varanlega
lausn á málefnum Kýpur.
Annan hitti Glafcos Clerides, for-
seta Kýpur, að máli í höfuðstöðvum
SÞ í Genf og átti svo fund með Rauf
Denktash, leiðtoga Kýpur-Tyrkja.
Samkvæmt talsmanni Annans
skýrði framvæmdastjórinn leiðtog-
um samfélaganna frá því hvernig
hann sæi íyrir sér að samningaferlið
muni ganga fyrir sig, þ.m.t. áætlun
fyrir næstu mánuði.
Talið er að fjögur málefni muni
vega þyngst í samningaviðræðum
Kýpur-Tyrkja og Kýpur-Grikkja,
þ.e. öryggismál, skipting landsvæða,
valdskipting og eignarréttur, og
mun viðræðum samfélaganna sem
fram fóru í New York og Genf um
áramótin því verða fram haldið. Al-
varo de Soto, talsmaður Annans,
sagði í gær að fyrri viðræður hefðu
ekki verið samningaviðræður sem
slíkar en vonast væri til að sú yrði
raunin í þetta sinn.
Eldflaugaáætlunin
„ógnar stöðugleika“
Dushanbe. Reuters, AP.
A LEIÐTOGAFUNDI Rússlands,
Kína og þriggja Mið-Asíuríkja sem
lauk í Tadjikistan í gær var vegið hart
að fyrirhuguðum eldflaugavamaáætl-
unum Bandaríkjastjómar og þær
sagðar geta sett hnattrænan stöðug-
leika úr jafnvægi. Lýsti Vladimír Pút-
ín, forseti Rússlands, því yfir að ef
Bandaríkjastjóm héldi áætlununum
til streitu, væri það þvert á skoðanir
þeirra sem ráðstefnuna sátu.
„Leiðtogar Kína og Rússlands
ræddu um mikilvægi þess að viðhalda
ABM-sáttmálanum frá 1972,“ var
haft eftir Sergei Prikhodko, tals-
manni Pútíns í gær. Rússneskur emb-
ættismaður sagði að Rússlandsforseti
hefði lýst því yfir að ef eldflauga-
vamaáætlun Bandaríkjanna myndi
verða að veruleika myndi það „ógna
stöðugleika um allan heim“.
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að leiðtogar
Rússlands, Kína, Tadjikistan, Kas-
akstan og Kírgístan, fulltrúar þeirra
ríkja sem fundinn sóttu, hefðu orðið
að hverfa frá fyrirhuguðum umræð-
um um landamæramál ríkjanna og
ræða þess í stað aukið umfang „al-
þjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi" á
svæðinu.
Andstaða við beina íhlutun
I yfirlýsingu fundarins koma fram
áhyggjur af vaxandi ólgu og hryðju-
verkastarfsemi sem rakin er til fylgj-
enda íslams í Mið-Asíu og nutu rúss-
nesk stjómvöld stuðnings hinna
ríkjanna vegna herfararinnar í Tsje-
tsjníu. Ivanov sagði að augu flestra
beindust nú að átökunum í Afganist-
an sem væm uppspretta óstöðugleika
í Mið-Asíu. í yfirlýsingu fundarins
var einnig rætt um mannréttindi og
aukinn vilja ríkja til að hlutast beint
til um mál á þeim svæðum þar sem
mannréttindi era talin eiga undir
högg að sækja.
Þykir orðalag yfirlýsingarinnar
undirstrika andúð Rússlands og Kína
á slíkum íhlutunum en þar kom fram
að ríkin væra andsnúin „íhlutun í inn-
anríkismál annarra ríkja, hvort sem
slíkt er gert undir yfirskini „íhlutunar
í þágu mannúðar“ eða „varðstöðu um
mannréttindi".
Leiðtogafundurinn þykir hafa sýnt
fram á þann aukna hlut sem kínversk
stjómvöld ætla sér í málefnum Mið-
Asíu og jafnframt hversu miklum ár-
angri Rússar hafa náð við að komast
aftur til áhrifa I þeim Mið-Asíuríkjum
sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum.
AÐ MINNSTA kosti ellefu manns
hafa beðið bana og rúmlega 80.000
flúið heimili sín vegna fárviðris og
flóða á Luzon, fjölmennustu eyju
Filippseyja, síðustu tvo daga. Sjö
drukknuðu á ýmsum stöðum á
Luzon, meðal annars í Manila, og
tveir krömdust til bana nálægt höf-
uðborginni þegar tré féllu á þá í
fárviðrinu. Þá létu hjón lífið þegar
skriða féll á hús þeirra í borginni
Baguio.
Mikil flóð voru í nokkrum hverf-
um Manila og 47 bæjum norðan við
höfuðborgina. Bflsljórar og öku-
menn fótknúinna farþegavagna
reyna hér að komast í gegnum
vatnsflauminn á götu í Manila.
Meðan fárviðrið geisaði riðu þrír
jarðskjálftar yfir Batanes-eyjar ná-
lægt Luzon. Skjálftarnir mældust
allt að 5,2 stigum á Richterskvarða
en oilu ekki manntjóni eða miklum
skemmdum.
Clinton boðar friðarfund ísraela
og Palestínumanna í næstu viku
Fáir virðast
bjartsýnir á
árangur
Washington. AP.
Fárviðri og flóð
BILL Clinton Banda-
ríkjaforseti tilkynnti í
gær að leiðtogar ísraels
og Palestínumanna
myndu koma til fundar
til sín í Camp David í
Bandaríkjunum í næstu
viku, í því skyni að
greiða fyrir því að end-
anlegt samkomulag
næðist fyrir botni
Miðjarðarhafs fyrir
miðjan september
næstkomandi.
Sagði Clinton að eftir
sjö ára samningavið-
ræður væru deiluaðilar
nú komnir í pattstöðu
§SSff
og að deilumálin væru
flóknari en í nokkram
öðram samningavið-
ræðum sem stæðu yfir í Mið-Austur-
löndum nú. „En,“ sagði hann, „ég
held að ef við leggjum hart að okkur
getum við lokið málum af á nokkram
dögum.“
Clinton sagði að bæði Yasser Ara-
fat, forseti heimastjórnar Palestínu-
manna, og Ehud Barak, forsætisráð-
herra Israels, væra fylgjandi þessari
aðferð sinni sem einu leiðinni til að
leggja drög að friðarsáttmála.
Viðbrögð við tilkynningu Clintons
einkenndust af svartsýni af hálfu
beggja deiluaðila og varð til þess að
einn ráðherra í ríkisstjóm Baraks
sagði af sér og annar er sagður vilja
úr stjórninni. Einn helsti samninga-
fulltrúi Palestínumanna sagði litlar
Reuters
Clinton ræðir við
fréttamenn í Hvíta
húsinu í gær.
líkur á að árangur næð-
ist því hvorugur deiluað-
ila vildi hvika.
Camp David er sum-
arbústaður Bandaríkja-
forseta skammt frá
Washington og þar náð-
ist sögulegur friðarsátt-
máli milli Israela og
Egypta 1978, sem var
fyrsta slíka samkomu-
lagið sem ísraelar gerðu
við arabaríki.
ísraelar og Palestínu-
menn hafa sett sér að ná
endanlegu samkomulagi
fyrir 13. september og
sagði Barak í Paris í gær
að þeir myndu gera sitt
besta til að ná þv£ marki.
„Við verðum að grípa
tækifæri." Arafat staðfesti
formlega að hann myndi
þetta
einnig
mæta.
Aðalsamningamaður Palestínu-
manna, Ahmed Qureia, sagði aftur á
móti: „Við höfum ekki fundið sam-
eiginlegan grandvöil í neinum efn-
um. Það ber alls staðar mikið í milli -
um Jerúsalem, flóttamenn og landa-
mæri.“
MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚLÍ 2000
0900
090000