Morgunblaðið - 05.08.2000, Side 4
4 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Aherslumunur í mati Þjóðhagsstofnun-
ar og Seðlabanka á þenslubreytingu
Teikn en
merkin ekki
mælanleg
Davíð Oddsson forsætisráðherra í Molde í Noregi
Morgunblaðið/Ásdís
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen ræða við Knud Ödegard. í baksýn
eru Kjell Magne Bondevik og Bjorg eiginkona hans.
Ræðir við Jens Stolt-
enberg á mánudag
„PAÐ er ánægjulegt að fá hingað í
heimsókn Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og eiginkonu hans, Ástríði
Thorarensen, en þau eru mjög góðir
vinir okkar,“ sagði Kjell Magne
Bondevik, fyrrverandi forsætisráð-
herra Noregs, við blaðamann Morg-
unblaðsins í gær, skömmu eftir
komu Davíðs Oddssonar og förun-
eytis hans til Molde í Noregi, heima-
bæjar Bondeviks.
Þangað er ráðherrann kominn til
að vera viðstaddur alþjóðlega bók-
menntahátíð, Bjornsson-hátíðina, á
sunnudag, sem kennd er við norska
skáldið Bjornstjerne Bjornsson.
Mun hann halda þar opnunarræðu
og taka síðan þátt í pallborðsumræð-
um sem bera munu yfirskriftina
„Davíð Oddsson forsætisráðherra og
rithöfundur", ásamt þeim Bondevik
og Knut Ödegard fyrrverandi for-
stjóra Norræna hússins og fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar.
Fer til Oslóar á mánudag
Á mánudag heldur Davíð til Os-
lóar þar sem hann mun ræða við
Jens Stoltenberg forsætisráðherra
Noregs. Davíð kvaðst, skömmu eftir
komuna til Molde í gær, afskaplega
kátur yfir höfðinglegum móttökum í
Molde. í flugstöðvarbyggingunni tók
á móti honum bæjarstjóri Molde,
Rolf Myhre, ásamt Knut Ödegard.
Þegar út var komið beið þeirra
stúlka í norska þjóðbúningnum sem
afhenti ráðherra og fylgdarliði hans
rauðar rósir.
Með ráðheiTa í for eru eiginkona
hans, Ástríður Thorarensen, eins og
fyiT segir og Ólafur Davíðsson ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu.
Þá eru með honum Kristinn F. Árna-
son sendiherra íslands í Noregi og
eiginkona hans Ásdís Þórarinsdóttir.
Tóku þau á móti ráðherra þegar
hann millilenti í Osló í gær og fylgdu
honum til Molde. Á mánudag bætast
við í fylgdárliðið Albert Jónsson
skrifstofustjóri í forsætisráðuneyt-
inu og Snjólaug Ólafsdóttir deildar-
stjóri.
Bondevik sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins á flugvellin-
um í gær að hann hlakkaði til að sýna
Davíð Oddssyni og Ástríði Thorar-
ensen bæinn sem hann ólst upp í, en í
dag fylgir hann forsætisráðherra-
hjónunum ásamt föruneyti innar í
fjörðinn sem bærinn stendur við, þar
sem m.a. verður komið við á Nesset-
prestsetrinu, fæðingarstað norska
skáldsins Bjornsson. „Þá er ætlunin
að fara í laxveiði," bætti Bondevik
við. Skýrði hann frá því að för Davíðs
Oddssonar til Molde hefði löngu ver-
ið ákveðin þar sem Bondevik hefði
boðið forsætisráðhen-a í heimsókn til
Noregs á síðasta ári þegar Bondevik
var sjálfur í opinberri heimsókn á Is-
landi sem forsætisráðherra Noregs.
FORSTJÓRI Þjóðhagsstofnunar og
aðalhagfræðingur Seðlabankans
vilja ekki gera of mikið úr þeim
áherslumun sem virðist liggja í mati
stofnananna tveggja á horfunum á
því að draga muni úr þenslu í efna-
hagslífinu, sem kom fram í fréttum
Morgunblaðsins í gær. Már Guð-
mundsson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans, segir þó að staðreyndin sé
sú að enn sjái þess engin mælanleg
merki að ofþensla hafi tekið að
hjaðna en Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, segir ljóst
að merkin séu fyrir hendi þó að þau
séu ef til vill ekki óyggjandi.
Már Guðmundsson segir að tekið
sé mið af þjóðhagsspá Þjóðhags-
stofnunar í verðbólguspá Seðlabank-
ans. Hér sé annars vegar verið að
tala um það að vöxtur þjóðarútgjalda
hjaðni á næsta ári, sem Már segir
Seðlabankann ekki gera neina at-
hugasemd við og hins vegar sé verið
að tala um það hvort ótvíræð merki
um hjöðnun ofþenslu séu í raun farin
að mælast í hagstærðum fyrir fyrri
helming ársins.
„Og niðurstaða okkar er sú að það
séu engin ótvíræð merki ennþá um
að ofþensla sé tekin að hjaðna. Það
getur vel verið að hún sé tekin að
hjaðna en við höfum engar mældar
hagstærðh’ þar um,“ segir Már.
Hann segir að vissulega geti vel
farið svo að oíþensla hjaðni á næstu
mánuðum. Ymis teikn séu á lofti um
að svo geti farið. Þannig sé líklegt að
vöxtur innlendrar eftirspurnar fari
niður fyrir langtímavöxt framleiðslu-
getu, hækkun langtímavaxta á þessu
ári muni hugsanlega di'aga úr efth'-
spurn og spennu og það muni síðan
leggjast á sömu sveif ef fasteigna-
verð hætti að hækka, auk þess sem
lækkun hlutabréfaverðs undanfarna
mánuði gæti líka haft áhrif.
Þetta sé hins vegar ekki mælan-
legt í hagstærðunum ennþá.
Kemur í ljós hvort langvarandi
breyting hefur átt sér stað
Þórður Friðjónsson bendh' á að
Seðlabanki sé í spá sinni fyrst og
fremst að vísa til þess hvernig hann
metur horfumar alveg á næstu vik-
um og mánuðum. „Mér sýnist hins
vegar að ef litið er á helstu kennileiti
í efnahagsmálunum núna sé hægt að
draga þær ályktanir að það sé heldur
að draga úr þenslunni í þjóðarbú-
skapnum,“ segir hann.
Segir Þórður að gangi spár eftir
feli þær í sér minni þenslu á næsta
ári, eingöngu sé rökrétt að tala um
vaxandi þenslu ef menn séu að tala
um aukningu eftirspurnar og þjóðar-
útgjalda umfram það sem má ætla að
rúmist innan jafnvægishagvaxtar
hverju sinni.
„í Morgunblaðinu í gær benti ég á
tvær staðreyndir máli mínu til stuðn-
ings: í fyrsta lagi er vöxtur innflutn-
ings greinilega að dragast saman
undanfarna tvo mánuði, innflutning-
ur í júlí er sennilega litlu eða engu
meiri en hann var í júlí í fyrra. Það
eru auðvitað skýr merki þó að það sé
kannski ekki sönnun eins eða neins.“
Hitt hafi síðan komið fram að
minnkandi eftirspurn sé eftir hús-
næði, nokkuð sem bendi eindregið til
þess að slegið hafi á þensluna.
Segir Þórður að einungis stigs-
munur sé á túlkunum Þjóðhags-
stofnunar og Seðlabankans. „Eg vil
nú ekki gera mikið úr þessum mun á
túlkun okkar. Ég held hins vegar að
það sé ofsagt að það séu engin merki
um hjöðnun þenslu. Það er kannski
hægt að segja að það séu engin
óyggjandi merki ennþá, ég gæti tek-
ið undir það, en ekki að þau séu alls
ekki fyrir hendi,“ sagði hann.
Mesta ferðahelgi ársins skollin á og mikil umferð víða um land
„Við keyrum bara rólegau
UMFERÐ frá höfuðborginni fór
hægt af stað í gærdag en þyngd-
ist þegar leið á kvöldið og var
bílaröðin orðin talsvert þétt þeg-
ar blaðamaður og Ijósmyndari
Morgunblaðsins voru á ferðinni.
Mest var umferðin inn á Suður-
landsveginn en einnig voru
fjölmargir á norðurleið.
Á bensínstöð Skeljungs við
Vesturlandsveg var nokkur fjöldi
fólks síðdegis í gær. Flestir voru
að gera bílana klára fyrir ferða-
lagið og seðja sárasta hungrið.
Miklu betra
en sumarbústaður
Einar Finnsson og Áslaug
Guðmundsdóttir voru á leið aust-
ur í Laugarás með sonarsoninn
Einar Óla Einarsson, sem er
fjögurra ára, en hjónin koma oft
í Laugarás og finnst gott að vera
þar. Þau voru með heljarmikinn
húsvagn í eftirdragi og segir Ás-
Iaug að Bandaríkjamenn kalli
þennan húsakost fimmta hjólið.
„Ég gæti ekki hugsað mér að
skipta á þessu og sumarbústað,"
segir Áslaug, en henni finnst
mikill kostur að geta farið þang-
að sem veðrið er best hverju
sinni. Ferðalagið með ömmu og
afa lagðist vel í Einar Óla.
„Hann hefur ferðast með okkur
frá því að hann var þriggja mán-
aða gamall en við höfum verið
með hjólhýsi í rúm 11 ár og
ferðumst mikið um landið,“ segir
Áslaug. Ætlunin er að koma
heim á mánudag enda bíður
vinnan. „Við látum umferðina
ekkert stressa okkur. Er ekki
annars nægur tíma þegar fólk er
í fríi?“ segir Einar.
Haldið á hálendið
Elín Jónsdóttir, Nökkvi And-
ersen, Guðmundur Jónsson og
Björn Þór Gunnarsson höfðu sett
stefnuna á Vestfirðina þar sem
foreldrar Nökkva búa. Þau ætl-
uðu að koma við í Bolungarvík,
kíkja á landsmót UMFÍ á Tálkna-
firði og fara þaðan til Suðureyr-
ar. í fyrra höfðu Elín og Nökkvi
farið til Vestmannaeyja. „Það
var alveg frábært en okkur lang-
aði til þess að fara eitthvert ann-
að núna,“ segir Elín. Þau koma í
bæinn á mánudaginn og segjast
ekkert vera að stressa sig yfir
umferðarþunga í bæinn. „Við
keyrum þá bara rólega. Okkur
liggur ekkert á,“ segir Elín. Það
eru ekki allir sem láta sér nægja
iðjagrænar sveitir, malbik og
bundið slitlag um helgina. Svan-
ur Brandsson var í gær að búa
sig undir að keyra Gæsavatna-
leið, norðan Vatnajökuls. Með
Svani í för voru kona hans og
barn en fjölskyldan verður í
samfloti með fólki úr öðrum
jeppa. Brandur er ekkert hrædd-
ur um að veður verði válynd á
hálendinu um helgina. „Það
skiptir engu máli hvernig veðrið
verður. Við erum undir allt
búin,“ segir Svanur og greinilegt
var að hann hlakkaði til helgar-
innar eins og aðrir sem Morgun-
blaðið ræddi við.
Morgunblaðið/Kristinn
Svanur Brandsson athugar ástandið í húddinu.
Áslaug Guðmundsdóttir, Einar Óli Einarsson og Einar
Finnsson ætluðu í Laugarásinn.
Guðmundur Jónsson, Björn Þór Gunnarsson (í aftursæti),
Nökkvi Andersen og Elín Jónsdóttir komu við á
Skeljungsstöðinni á leiðinni vestur.