Morgunblaðið - 05.08.2000, Page 16

Morgunblaðið - 05.08.2000, Page 16
16 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Til fjölda ára hafa hjónin Vilhjálmur Lúðvíksson og Áslaug Sverrisddttir lagt stund á skógrækt Umhverfis- slys land- námsins bætt Hafravatn INNAN um hávaxinn og gróskumikinn trjágróður glitt- ir í býlið Brekkukot, við Hafravatn. Par hafa hjónin Vilhjálmur Lúðvíksson og Ás- laug Sverrisdóttir stundað skógrækt til fjölda ára. Blaða- maður Morgunblaðsins sótti þau heim og skoðaði afrakstur erfiðisins. Vilhjálmur og Áslaug eyða sumarleyfum sínum að mestu í Brekkukoti. Einnig bregða þau sér gjarnan þangað um helgar þar sem ekki er langt að fara. Landið er alls um 16,5 hekt- arar. Þar af eru sex hektarar eignarland úr Óskotslandi vestan Seljadalsár, en 10,5 hektara leiguland úr landi Þormóðsdals austan árinnar. Spilduna vestan árinnar keyptu Sverrir Sigurðsson og kona hans Ingibjörg Guð- mundsdóttir, foreldrar Ás- laugar, árið 1958 og hófu þar skógrækt árið 1960. Landið er nú í umsjá Vilhjálms og Ás- laugar. Vilhjálmur hefur ann- ast skógræktina hin síðari ár. Ekki talið árennilegt til ræktunar Vilhjálmur segir áhuga sinn á gróðri hafa vaknað þegar hann var ungur að árum fyrir tilstilli móður sinnar. Margir töldu landið ekki árennilegt til ræktunar í upp- hafi, segir Vilhjálmur. Miklar breytingar hafa þó orðið á landinu frá árinu 1960. Holtin vestan og austan árinnar voru örfoka og gróðurlaus jökul- ruðningur á móbergsklöpp. Með ánni að vestan var mjög rofinn lyngmói, en gróður- snauð sand- og malareyri báð- um megin árinnar. Austan ár- innar undir brekkunum var allmikið tún frá Þormóðsdal sem náði út að Hafravatni. Nánast árlega gekk áin yfir landið í vetrar- og vorleysing- um. Stórflóð urðu í ánni tvisv- ar veturinn 1967-1968 sem skemmdu ræktun mikið. Vai’ þá ýtt upp vamargörðum með- fram ánni beggja vegna. Aftur vai’ð stórflóð árið 1977 ogvoru varnargarðar þá endurbættir. Hefur áin síðan haldist í far- vegi sínum að mestu í flóðum. Vorhret árið 1963 Vilhjálmur segir landið hafa reynst nokkuð erfitt skóg- ræktarland. Norðaustanáttin, sem skellur af Grímannsfelli og hæðunum ofan Þormóðs- dals með næðingi og skara- veðrum á vetrum, hefur fai’ið illa með ungan gróður. Öllum nýplöntum hefur því þurft að skýla með grindum fyrstu árin. Jarðvegurinn er rýr segir Vilhjálmur og hefur hann þurft að notast rmkið við líf- rænan áburð. í fyrstu hafi hann þó ekki gert það og var árangurinn þá ekki sem skyldi. Skógræktin hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Vorhret sem frægt er orðið og kom í apríl 1963 varð mörgum plöntum að fjörtjóni. Þá strá- féll mestur hluti aspa, sitka- grenis og blágrenis. Vilhjálm- ur segir margan skóg- ræktarmanninn hafa þomð þrótt við mótlætið en íbúar Brekkukots héldu þó ótrauðir áfram. Sauðfé sótti mikið í landið fyrstu 20 árin áður en beit var aflögð. Vilhjálmur segir að eft- ir að beit var aflögð hafi gróð- urinn náð að breiðast yfir stærra svæði á skömmum tíma. Eins og fyrr segir lék áin gróðurinn oft illa í vetrar- og vorflóðum fyrstu árin. Maðkur hefur einnig herjað á einstak- ar tegundir gróðurs. Sitkagrenið hefur reynst best Fyrir utan alaskalúpínu sem plantað var í jökulmelana á hæðunum beggja megin ár- innar og svæðisins fyrstu tvö árin var í upphafi mestu plant- að af birki, sitkagreni, berg- Grenitréð sem Vilhjálmur stendur við var gróðursett um 1960. Vilhjálmur og Áslaug fyrir framan Brekkukot. Hundurinn Duna liggur í mestu makindum. Rétt glittir í þak Brekkukots inn á milli trjátoppanna. Morgunblaðið/Amaldur furu, stafafuru og broddfuru, gulvíði, þingvíði, gljávíði, viðju og alaskaösp. Lúpínan sem yfir þrjá ára- tugi hefur skrýtt holtin bláum lit á vorin er að hopa innan landsins en breiðist nú ört út á ógróin melholtin til suðurs eft- ir að landið vai’ friðað fyrir sauðbeit. Hún skilur eftir sig gras- og mosaþakinn jarðveg sem er afar næringarríkur, myldinn og auðugur að smá- dýralífi. Sú tegund sem best hefur reynst er sitkagrenið, segir Vilhjálmur. Það er jafnframt sú tegund sem veitir öðrum gróðri best skjól þegar það tekur að stækka. Á síðari árum hefur verið lögð áhersla á fjölbreytni teg- unda. Við Brekkukot má með- al annars finna lindifuru, fjallaþin og kóreuþin, fjalla- lerki, evrópulerki og rússa- lerki, selju, sitkaelri, hæruelri, ilmbjörk, bæði af innlendum og erlendum uppruna, stein- björk, blátopp, dúntopp, skógatopp, bergsóley og jörfa- víði svo eitthvað sé nefnt. Síðustu tvö til þijú árin hef- ur Vilhjálmur hafist handa við að grisja skóginn sem er nokk- uð þéttur. Hann segir grisjun- ina gjarnan hafa setið á hakan- um hjá sér en hún sé nú vaxandi þáttur í skógræktinni. Fjölbreytni í skógrækt Vihjálmur segir það í raun umhverfisslys að meirihluti gróðurs á landinu hafi eyðst við landnám. „Mér finnst mik- ilvægt að bæta fyrir það,“ seg- ir Vilhjálmur. Hann segir íramleiðslugetu landsins langt undir því sem náttúruskilyrði bjóði upp á ef rétt sé staðið að skógrækt. Vilhjálmur leggur áherslu á fjölbreytni í skógræktinni. „Þær tegundir sem bárust hingað til lands eftir ísöld voru fátæklegar," segir Vilhjálmur. „Þegar menn segja að þær séu hæfastar til að eiga við ís- lenska náttúru er það beinlínis rangt. Það eru margar hæfari tegundir til annars staðar sem lifað geta við þau skilyrði sem hér eru.“ Vilhjálmur hefur farið til Sí- beríu í leit að gróðri sem dafn- að getur hérlendis. Hann hef- ur gert tilraunir með fjölda mismunandi arfgerða plantna víða að úr heiminum. Margai’ þeirra hafa gefist vel en aðrar ekki náð að festa sig í sessi. Þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í skógrækt ráð- leggur Vilhjálmur að nota hús- dýraáburð til að koma rækt- inni af stað. Einnig skipti aðstæður máli. Skilyrði séu misjöfn til skógræktar. Loks segir Vilhjálmur að miklu skipti að vel takist um val á tegundum og arfgerðum mið- að við landslag og jarðvegs- gerð. Velja þarf arfgerðir sem henta hverjum stað fyrir sig. En fyrst og fremst ber að hafa í huga að þolinmæðin þrautir vinnur allai’. Fræðasetur fyrir skólabörn í Gróttu Grótta GAMLA vitavarðarhúsið og hlaðan úti í Gróttu hafa fengið nýtt hlutverk, en nú er búið að gera húsin upp og breyta þeim í fræða- og menntasetur. Setr- ið er einkum ætlað leikskólum og grunnskólum Sel- tjarnameskaupstaðar, en einnig öðmm íbúum höfuð- borgarsvæðisins. Setrið verð- ur tekið í notkun í haust eða byijun næsta árs, en fram- kvæmdir hófust síðasta sum- ar. Seltjarnamesbær keypti Gróttu af ríkinu fyrir nokkra og fijótlega kom upp sú hug- mynd að nýta svæðið á ein- hvern hátt fyrir æskuna. Einnig er ætlunin að bjóða fræðimönnum aðsetur í þess- um húskynnum, þar sem þeir geta dvalið í lengri eða skemmri tíma. I sumar var Sigurlín Sveinbjamardóttir ráðin verkefnisstjóri þessa verkefn- is, og segir hún að aðstaðan í húsunum sé góð. Nemendur Morgunblaðið/Arnaldur Vitavarðahúsið í Gróttu hefur fengið nýtt hlutverk sem mennta- og fræðasetur, og búið er að gera hlöðuna upp í sama tilgangi. geta heimsótt setrið með kennuram sínum og jafnvel gist á svefnlofti sem þar hefur verið útbúið. í kjallara gamla hússins verður ýmis tækjabúnaður og náttúrafræðistofa sem hægt verður að ganga beint inn í úr fjöranni, á stígvélunum, og skoða plöntur og dýr í smá- sjám, segir Sigurlín. Einnig verður þar kennslustofa með tölvum. Umhverfi fræða- og menntasetursins segir Sigur- lín einstakt. Nálægðina við náttúrana telur hún tilvalda til náttúrafræðikennslu. Fuglalífið sé fjölbreytt og fjörarnar skemmtilegar. Metnaðarfullt verkefni Sigurlín hefur útbúið hug- myndamöppu þar sem fjallað er um hvemig kennarar geta nýtt sér setrið við kennslu. Hún gengur út frá aðalnáms- skrá grannskólanna. Sigurlín leggur áherslu á að verkefnin sem hægt sé að sinna á setrinu séu fjölbreytt og verði ekki eingöngu bundin náttúra- fræði, heldur henti setrið til kennslu i öllum námsgreinum. „Þetta er metnaðarfullt verkefni hjá bæjarstjóminni", segir Sigurlín. Hún vonast til að hægt verði að þróa verk- efnið áfram. Sigurlín segir setrið bjóða upp á ótal mögu- leika. Fullorðnir geti nýtt sér setrið, það sé ekki einvörð- ungu ætlað æskulýðnum. Einnig sé hægt að nýta hús- næðið fyrir umhverfisfræðslu og ýmis námskeið. Lokið við sal Tönlist- arskól- ans Garðabær LJUKA á að fullu frá- gangi á sal Tónlistar- skólans í Garðabæ á næstunni, en bæjarráð Garðabæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja fram auka- fjárveitingu til skólans að upphæð 2,6 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að hægt verði að ljúka þeim framkvæmdum við tónleikasal skólans sem miða að því að gera salinn betri til tónleikahalds. Einnig er markmiðið að gera salinn þannig úr garði að hann henti vel til al- mennra fundarhalda, en í því felst uppsetn- ing á tilheyrandi hljóð- kerfi, skjávarpa og fleira þess háttar. Fjöl- breytt fuglalíf og feng- sæl verstöð Grótta GRÓTTA var forðum feng- sæl verstöð. Á 18. öld var búið þar góðu búi en eftir hin miklu sjávarflóð árið 1799 fór heldur að halla undan fæti og Grótta var um tíma talin óbyggileg. I flóðunum tók jafnframt af hluta af nesinu svo eftir varð grandi sem fer á kaf í flóði. Árið 1897 var reistur viti í eyjunni. Síðasti vitavörð- urinn var Albert Þorvarð- arson en hann drukknaði í róðri árið 1970. Síðan þá hafa húsin í Gróttu að mestu staðið auð, þar til að ákvcðið var að útbúa þar fræða- og menntasetur. í Gróttu er mikið og fjöl- breytt fuglalíf og er eyjan friðuð fyrir umferð frá 1. maf til 1. júlí. Grótta er eyja sem mjór grandi teng- ir við land. Sæta verður sjávarföllum til að komast í eyjuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.