Morgunblaðið - 05.08.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 45
Við rætur Eiríksjökuls þar sera landslagið minnir á Vonarskarð. Skriðjökullinn heitir Ögmundaijökull, kennd-
ur við Ögmund Sigurðsson, fylgdarmann Þorvalds Thoroddsens náttúrufræðings um óbyggðir.
Horft af Krák yfir Hundavötn vestra og eystra, sem er íjær.
lögðum við af stað kl. 10. Skömmu
síðar komum við að á. Þar þraut
gróður og hinum megin tók við
sandauðn. Eftir stutta stund komum
við að sóttvarnargirðingu, sem
greinilega hefur verið lagfærð ný-
lega og lágu gömlu staurarnir eins
og hráviði við hana. Þar handan við í
lægð blasti við lítil tjörn, og vestar
fleiri tjarnir. í fjarska sést til skál-
ans við Áfangatjörn, en í veðurblíð-
unni þurfum við ekki á húsi að halda,
Eiríksjökull (1.672 m) sést nú í allri
sinni dýrð, þar sem hann ríkir einn
undir bláum himni með hvítan
skjöld, mikilfenglega skriðjökla, sem
falla í stöllum, og svarta hamra.
Vindur er í bakið.
Nokkru síðar gengum við út á
Hallmundarhraun sem liggur í sömu
hæð og Hveravellir. Það er geysi-
stórt og hefur komið úr tveimur gíg-
um upp undir Langjökli. Þessir gíg-
ar eru dularfullir og var mér tjáð að
ekki væru til myndir af þeim.
Við áðum í hrauninu, klæddum
okkur úr skóm og sokkum. Vera,
sem er þýsk, tók tjaldið sitt í sundur
og hengdi það á göngustafina sína til
að verjast brennandi sólargeislunum
og Pétur, sem var með regnhlíf með
sér, notaði hana sem sólhlíf. Ferð
okkar sóttist seint gegnum hraunið
sem var mjög úfið á köflum, gróið
grámosa. Og ljósberar teygðu bleika
kollana upp úr mosanum. Við stefn-
um á Þrístapafell (695 m), en þar
ætluðum við okkur náttból. Á vinstri
hönd sér nú í Langjökul og koma
nokkrir svartir höfðar úr honum, en
þeir eru nafnlausir. Á þessum slóð-
um er ekkert vatn og voru margir
orðnir æði þyrstir. Við Þrístapafell
tjölduðum við á sandi um sjöleytið
við hvítlitað jökulvatn, allstórt og
mjög leirborið. Það var volgt. Hér
heitir Jökulkrókur.
í Flosaskarði
Miðvikudagsmorgunn. Þoka yfir
landinu, fluga á sveimi. Við göngum
milli Þrístapanna, sem kannski eru
fleirí en þrír, og þar sjáum við tví-
lembda á.
Mikið eru þær fallegar á fjöllum.
Göngulandið er sandorpið hraun,
víðir, holurt. Þoka er á Eiríksjökli,
en hún leysist smám saman upp eftir
því sem við nálgumst hann. Á vinstri
hönd er einn af skriðjöklum Langj-
ökuls og heitir Þrístapajökull, flatur
og breiðvaxinn. Hægra megin við
hann sjást nokkur gróðurlaus sker í
jökulröndinni. Þau heita Mókollar.
Uppi á jöklinum rís Þursaborg og
fjær sér í Péturshorn sem er nefnt
eftir fararstjóranum okkar. Við ræt-
ur Eiríksjökuls er slétt breiðgata og
þarna minnir auðnin á Vonarskarð.
Hér finnst mér fegurðin mikilfeng-
legust. Framundan er Flosaskarð
(600 m), sem liggur milli jöklanna og
afmarkast af tveimur vötnum.
Nyrðra vatnið er hvítt á leirum. Það
dunar í jöklinum. Frá honum falla
litlir fossar og lækir liðast eftir sand-
inum. Við borðum hádegismatinn í
steikjandi sólskini undir stórum
kletti og njótum útsýnisins. Það var
einhvers staðar hér sem Haraldur
Matthíasson tjaldaði um miðjan dag
í júlí 1974 og lýsir svo í árbók: „Hér
er svo fagurt og friðsælt að naumast
er unnt að fara um án þess að nema
staðar; hvítir jökulhjálmar, ljósar
leirur, bjartir skriðjöklar, dökkir
hamrar, gráar skriður, svart hraun-
flæmi milli jöklanna með himinbláu
vatni spegilsléttu í logninu. Og hjá
því kúrir grænt tjald þriggja ferða-
langa, sem eru komnir á vit auðnar-
innar. Á slíkum stundum og stöðum
skynja menn bezt kyrrð, fegurð og
mikilleik öræfanna.“ Um nón erum
við stödd við enda vatnsins, en Þor-
steinshnúkur, nefndur eftir Þor-
steini Jósepssyni blaðamanni og
ljósmyndara, skilur á milli vatna, en
þó komumst við ekki á milli þeirra
þurrum fótum. Syðra vatnið er
grænt og formfagurt. Þarna sáum
við til mannaferða, tveggja manna
sem komu niður fönnina ofan við
vatnið. Þeir ætluðu til Hveravalla,
öfuga leið við okkur. Við ákváðum að
tjalda við vatnið á sjötta tímanum og
leggja af stað snemma morguninn
eftir. Vatnið var ískalt en finnska
konan fór léttklædd út í vatnið og jós
því yfir sig úr potti. Slíkt hef ég séð
á málverkum frá Finnlandi. Pétur
sagði við eiginmann hennar fullur
aðdáunar: „Þú átt stórkostlega
konu.“ Aðrir léku þetta ekki eftir
henni.
Á Langjökli
Við áttum að leggja snemma af
stað, en seinkaði vegna dimmrar
þoku, klukkan orðin níu þegar lagt
var upp á hæðina í átt að Hafrafelli
og Langjökli. Þokunni létti fljótt og
fagurt var að horfa yfir vatnið.
Framundan var jökulurð. Þarna
við jökulinn er lítið lón og þræddum
við fyrir það og lentum sum í sand-
bleytu upp að hné. Um hádegi erum
við komin á jökul og ég finn þægileg-
an svala frá honum. Við gengum síð-
an á jökli það sem eftir var leiðar.
Ótal lækir renna niður hann og stöð-
ugur lækjaniður er í eyrum. Brátt
sér til Geitlandsjökuls (1.390 m) sem
er jökulkrýndur stapi sem stendur
upp úr jaðri Langjökuls. Þarna var
nokkur þoka yfir fjöllum. Nú blasir
sveitin við: „Þarna er Gilsbakki,“
segir fararstjórinn og bendir.
Það brestur í klaka undir fótum
okkar og lækirnir niða og niða. Um
þrjúleytið lýkur göngu okkar við
Jaka, skála Samtaka ferðaþjónustu.
Leiðin í beinni línu er um 90 km en
við höfðum gengið 140 km að mati
Gests þessa daga. I Jaka er hópur
ferðamanna frá Austurríki. Ég ræði
við fararstjóra hópsins, sem er Aust-
urríkismaður og vel kunnugur á Is-
landi, en hann sýnir ferð okkar mik-
inn áhuga. Rútan þarf að koma
hópnum hans niður á þjóðveginn
fyrst, á meðan bíðum við í glampandi
sól undir jöklinum.
Höfundur er ritari Ferðafélags
ísiands.
!~UhUt 7LP
uor~\
Tísku- og tónlistar-
viðburður ársins
í Bláa Lóninu
11. og 12. ágúst.
....á mbl.is
Á mbl.is geturdu fengid aö víta aflt um Futuríce, iesiö greirsar
sem hafa birst í Mogganum um viðburöinn, seö kynningar-
myndband, hlustaö á tóndæmi meö Björk, Gus Gus. Móu &
The Vinalistics og Bang Gang ásamt þvi að taka þátt i
spennandt netieik.
Med þvi að svara iéttum spurnmgum geturðu haft heppnina rpeö
þér og endað á Futurice t Biáa Lóninu!
Vinningar _ 4'
30.000 kr. uttekt i TOPSHOP
■ skópörfráXIS
midar á Futuriœ
geislatliskar með Sjórk, Gus Gus,
Sang Gang og Móu
Dagskta
Föstuciagur II. ágúst
r Sokteiit
ihíldur og Bára Hóimgeirsdætur
fMUíSyrvng f Artaf - i
TwVuiynt 'g / Æ • UeuK-
Mos S t": ,v v ív) -StiCS
f T? sv.*'* Vtebber
Mtdaverd kr. 4.900,-
Laugartíagur U.agúst
C.i-s-.-vídSV.- :
-v. v, • !■■•■.
• •.mnv* íy.n TS íto\Aíávik
Héhml' fienje
Miöaverð kr. 3.9DÖ,-
E rsnso <•* hregt að kaupa mida baða dagana a V. 7.90Q
Msðasata i TOPSHO?
TOPSHQP fiva taka þátt ■ futur cc vcd bv að set,a: ..
: sk. ,.••- 'uu '.: .• v:. a iienni s aa --mMÚsv!
'augarelaginn l§, ágövt k 17:00
REYKJAVÍK
•U«»IK6«»OBC tVBOHI
ARtP 2900
-M Nordisk Kulmrtoad
u i •
■ i
Km
TOPSHOP
KI8
F U T U R I C E Á
e s k i m o
mbl.is