Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 53

Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 53 ÞAKKLÆTI ÞAÐ er viðburður þegar íslenskum blaðalesendum er boðið upp á texta eins og þann sem birtist á miðopnu Morgun- blaðsins föstudaginn 28. júlí síðastliðinn. Andlegur leiðtogi þjóðarinnar í áratugi stígur fram á níræðis- aldri og flytur mál sitt af æskuþrótti, anda- gift og yfirburðavits- munum, með tungu- taki sem sjaldan sést á síðum dagblaða hér á landi. Máttug orð rísa allt í einu upp úr því almenna yfírborðsfjasi og sjálfsupphafningarvaðli sem hvar- vetna ríður húsum. Svo langt er síðan einhver tjáði sig með viðlíka reisn á op- inberum vettvangi, að ég var næstum því búin að gleyma hvern- ig það er. Við lesturinn setur mann hljóðan og fyll- ist þakklæti fyrir að vera samtíða þessum skrifara. Sigurbjörn Einarsson biskup er óvenju fjölgefinn mað- ur. Þegar hann kýs að kveðja sér hljóðs leggja menn við hlust- ir. Og eins og ort var forðum: Það læsir sig gegnum líf og sál eins og ljósið í gegnum myrkur. Sigurbjörn biskup bregður birtu Sigurbjörn biskup bregður birtu á um- hverfi sitt, segir Jónína Michaelsdóttir, og gerir þjóð sína stærri. á umhverfi sitt og gerir þjóð sína stærri. Mennska og yfirsýn þessa djúpvitra og skapheita manns er lýsandi fyrirmynd. Margir hafa gegnum árin glaðst yfir því að hann er til - og að hann skuli vera Islendingur. Kannski hefur aldrei verið meiri ástæða til að gleðjast yfir því en einmitt núna. Jónína Michaelsdóttir ÍSLENSKT MÁL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1.069. þátturþáttur Athygli mín hefur verið vakin á því, að nafn eyjarinnar Mostrar hefur þrásinnis verið beygt skakkt undanfarið, en hún hef- ur af skiljanlegum ástæðum verið mikið í fréttum. Þetta hef- ur verið í vörpum og blöðum og grein hér í blaðinu 1. ágúst. Ekki hefur verið Ijóst hvort menn hugsuðu sér orðið kari- kyns eða hvorugkyns, því að þágufall hefur verið haft „Mostri“ og eignarfall „Most- urs“, sem það er hvorugt. Af fornum heimildum er ljóst að orðið er kvenkyns, Mostrar. Það er í heldur fágætum hópi kvenkynsorða sem eru eins í öllum fóllum nema eignarfalli sem endar á -ar. Dæmi önnur en mostur: gimbur, lifur, vigur og klömbur (sbr. Klambrar- tún). Úr Eyrbyggju er kunnur Þórólfur Mostrarskegg. Eru menn nú alvarlega beðn- ir að beygja eyjarheitið eins og það á að vera: Mostur, um Mostur, frá Mostur, til Mostr- ar. Hins vegar fær Morgunblað- ið stóran plús fyrir eignarfallið Haralds í miðopnu 1. ágúst síð- astliðinn. ★ I Degi 27. júlí er stór fyrir- sögn á forsíðu: „Blóta fossinum fyrir goðakastið“. Þetta kom mér kynduglega fyrir sjónir, því að ég bjóst við að sögnin að blóta ætti þama að merkja dýrka eða færa fóm, og þegar svo stendur á, stýrir sögnin jafnan þolfalli. Mér hefði því fundist eðlilegt að þama stæði „blóta fossinn". En margt er til, þó sjaldgæft sé, og að vel athuguðu máli, fann ég að fyrirsögnin getur staðist. Blóta getur nefnilega tekið með sér tvöfalt þágufall: blóta einhverjum einhverju. Asatrúarmenn gátu því hafa ætlað að blóta fossinum ein- hveiju sem þeir hefðu talið til dýrkunar eða fómar. I því efni skildist mér að þeir hefðu ætlað sér að vera á undan („fyrir‘j kristnum mönnum sem mér er tjáð að ætli að setja upp ein- hvers konar sýningu í minningu Þorgeirs Ljósvetningagoða. En í sama blaði var sagt tveimur dögum fyrr að Musso- lini hefði verið „handtekinn á Sikileyjum og afsalaður öllum rfildum“. Þetta þykir mér óeðli- RCTapl. Ég kannast ekki við ÍTlat. Sicilia) í fleirtölu og í staðinn fyrir „afsalaður", sem mér finnst ekki duga þarna, hefði verið ólíkt betra að segja sviptur, eða látinn afsala sér. ★ En víkjum nú betur að sögn- inni að blóta. Uppmni hennar er talinn óvís, „umstritten" seg- ir á þýsku sá góði málfræðingur Jan de Vries. Hann er jafnan varkár í upprunaskýringum. Líklega er þó sögnin skyld blóð og nær ömgglega blessa. Beyg- ing sagnarinnar var ekki al- geng. Hún var í 4. flokki tvö- fóldunarsagna eins og láta, gráta, blása og ráða, kenni- myndir því blóta-blét-blétum- blótinn. Nú er þessi beyging löngu fyrir bí og sögnin beygð veikt eftir fyrsta flokki: blóta- blótaði-blótað. ★ Hlymrekm- handan kvað: „Ekki er það gott,“ sagði Ari í eymd sinni helblár af mari. Paðhafðisvohent, aðhannhafðilent xllundirpari. ★ „Það þai-f ekki að hafa fá orð um það“, heyrðist í sjónvarps- fréttum, og skilríkir menn sáu í einhverju lesmáli, sem varla er í alvöru letrað, að á „sumrin at- vikuðust fiska andlát“. Þá er ótækt að auglýsa 300 vömr í staðinn fyrir vörutegundir. ★ „Samfúnía. Mér datt í hug hvort orðið væri myndað í líkíngu við heitið á þeirri plágu sem harðar hefur tröllriðið ís- lendíngum, síðan svarti dauði, að því er blöðin segja, en það er synfónían í útvarpinu; eða hvort hann væri að meina það óskiljanlega kvikindi sem oft er talað um í Danmörku og kallað samfúnnet." (Halldór Laxness: Guðs- gjafaþula ★ Hlymrekur handan kvað: I kaffi er auðvitað kofRn, í ki’assandi góðlyfjum rnorfín, úrhumlarót kemurheilsubót og úr hanaegginu skoffín. Sigursteinn Hersveinsson skrifar mér bréf, sem ég birti hluta úr, og þakka ég honum kærlega fyrir. Ég hef reynt að gera atlögu að orðinu flóra, þegai- það er notað í rangri merkingu, en það virðist lítinn árangm' hafa borið. „Sérkennilegt er hve orðið flóra (plönturíki) er mikið notað nú á dögum og oft á óviðeigandi hátt. í miðopnu Morgunblaðs- ins 5. þ.m. er t.d. fyrirsögn: „Fjölbreytt flóra verkefna" og er verið að ræða um rannsókn- arstyrki til námsmanna í há- skóla. Ætli það sé ekld hægt að finna eitthvert orð sem mönn- um finnst jafngOt og fara vel í munni og á prenti en eyðilegg- ur ekki merkingu orðsins flóra. Hefði t.d. „Fjölbreytt val verk- efna“ eða eitthvað slíkt ekki komið að sömu notum? Mig minnir að ég hafi jafnvel séð eða heyrt notað orðið flóra þar sem orðið fána (dýraríki) hefði átt við. Ætli orðhagir menn gætu ekki bent á orð eða orðalag sem bjargar okkur frá því að eyði- leggja rétta merkingu orðsins flóra. Gott væri ef þú vektir at- hygli á þessu í þeim ágætu vikulegu þáttum þínum um ísl. mál. Með virðingu og þökk.“ Umsjónarmaður mun innan skamms fjalla nánar um þetta efni. ★ Matthías Þórðarson þjóð- minjavörður samdi vandað og mikið ritverk um Jónas Hall- grímsson skáld. Strákurinn kom upp í Jóni Helgasyni skáldi og prófessor og hann kvað: íslensku skáldin ástmey furt angurvær súpa á glasi, lognast svo út af lítilsvirt frá lífsins argaþrasi; um þeirra leiði er ekkert hirt, alltferákafígrasi. Síðast er þeirra saga birt, saminafMatthíasi. ★ Á Stöð 2, í kvöldfréttum 23. júlí sl„ var sagt að maður hæfði annan mann „í fótlegginn". Umsjónarmanni finnst þetta kyndugt tal. Á íslensku skjóta menn sig í fótinn. En Haukur Hólm fær plús fyrir biðstöðvar strætisvagna. V axandi lyfjakostnaður NÚ þegar sól tekur að lækka á lofti og sýnilegt er að sumarið er á förum kveður orð- ið við þann tón hjá ýmsum þeim er taldir eru hafa puttana á slagæð fjárstreymisins að nú sé einnig sól góð- ærisins tekin að lækka á efnahagshimni þjóð- arinnar. Þótt e.t.v. sé enn of snemmt að skrifa hér einhverskonar minn- ingargrein um liðið góðæri dylst naumast nokkrum manni að af téðu góðæri mun héð- an af skömm saga ganga. Á líkan hátt og á áliðnu sumri þeg- ar ekki nutu allir sólar, og sumir urðu að láta sér nægja að súpa hregg lungann úr sumrinu og hlusta á sólskinsfréttir úr fjarlægum lands- hlutum, þá eru þeir einnig til sem að- eins sáu góðærið í fréttum af líflegri sölu hlutabréfa. Versnandi kjör ellilífey risþ ega Af hverju einmitt sjúklingar áttu að hjálpa upp á sakirnar og reiða fram á þessu ári upphæð sem sam- svaraði kostnaði við eina kristnihátíð er engum ljóst nema rík- isstjórn Davíðs Odds- sonar. Grunnlífeyrir að viðbættri tekjutrygg- ingu hefur á árabilinu frá 1997 til ársins 2000 hækkað um 23,5% en kostnaðarhlutdeild notenda í lyfjaverði hefur á sama tíma hækkað um 120%. Við gerð síðustu fjárlaga vai' ítrekað á það bent af stjórnar- andstöðunni að til heilbrigðisgeirans vantaði a.m.k. einn milljarð til að mæta vaxandi kostnaði. Meirihlut- inn tók ekki fremur en endranær Verðlag ✓ Eg bendi á þá ónáttúru núverandi ríkisstjórnar, Sigríður Jóhanncsdóttir Þótt almennir launamenn fylli að mestu þennan flokk þá trúi ég að þeir sem verst hafa orðið úti séu elli- lífeyrisþegar og öryrkjar sem ekki hafa annað sér til framfærslu en tryggingabætur. Það er nefnilega ekki nóg með að þeir hafi verið skild- ir eftir í góðærinu heldur hafa kjör þeirra beinlínis verið skert. Þessir þjóðfélagshópar standa verr nú en þeir gerðu áður en góðærið brast á. Hér ætla ég þó ekki að gera að umtalsefni þá gjá milli ofgnóttar og hreinnar fátæktar sem hér fer breikkandi með degi hverjum, að stórum hluta íýrir tilverknað ríkis- stjórnar og meirihluta Alþingis. Slíkt væri efni í aðra grein. Kostnaðarvitundin Ég vil með þessu skrifi benda á þá ónáttúru núverandi ríkisstjórnar að höggva æ og sí í þann sama knérunn að íþyngja sjúklingum með vaxandi álögum. Það má heita árviss uppákoma að ríkissjóður dragi úr kostnaðarþátt- töku Tryggingastofnunar ríkisins í lyfjaverði og auki þar með kostnað sjúklinga. Þegar menn fyrst fetuðu sig út á þessa braut var farið hægum og feimnislegum ski'efum. Talað var um nauðsyn þess að auka „kostnað- arvitund almennings". Sljó kostnað- arvitund er vissulega til staðar á ís- landi. Hún er til dæmis að verki hjá þeim gróðaöflum sem nú reyna markvisst að verðfella krónuna til þess að auka eigin gróða, án nokkurs tillits til þess kostnaðar sem almenn- ingur yrði að bera af slíku verðfalli. Það fólk sem baslast áfram frá degi til dags á smánarlaunum og verður æ oftar að neita sér eða börn- um sínum um læknishjálp vegna þess að endar ná ekki saman; það fólk skortir flest fremur en kostnað- arvitund. Skattur á sjúklinga Enda er þessi orðaleppur um kostnaðarvitund nú að mestu horf- inn úr umræðunni. Hinn 15. júní sl. þegar heilbrigðisráðherra gaf út reglugerð, sem eina ferðina enn fjallaði um aukinn hlut sjúklinga í lyfjakostnaði, voru skýringarnar á þeirri ráðstöfun einkum þær að kostnaðurinn af heildarsölu lyfja væri rúmir 9 milljarðar og af þeirri tölu greiddi ríkissjóður hálfan sjötta milljarð. Nú bæri því brýna nauðsyn til þess að hlaupa undir bagga með ríkissjóði. Hér var þó talað um þann sama ríkissjóð og fjármálaráðherra lýsti yfir á dögunum að væri svo bólginn af peningum að til vandræða horfði. Sá hópur sem ríkisstjórnin valdi til þess verks að létta greiðslubyrði ríkissjóðs var, að sjálfsögðu, sjúk- lingar. segir Sigrtður Jóhannesdóttir, að höggva æ og sí í þann sama knérunn að íþyngja sjúklingum með vaxandi álögum. nokkurt tillit til þeirrar ábendingar, líklega stóð alltaf til að sækja þá peninga í vasa sjúklinga. Dýrari lyf Það er vissulega rétt sem bent hefur verið á til að skýra vaxandi kostnað að undanfarin ár hafa sem betur fer komið fram ný og árang- ursríkari lyf, að vísu oft dýrari og m.a. af þeim sökum hefur kostnaður við lyfjameðferð aukist og vísast er það rétt sem haft er eftir Ingibjörgu Pálmadóttur {Mbl. 29. júní að með sömu þróun muni sá kostnaður vaxa um 12-16% árlega verði ekkert að gert. Líklegt má þó telja að með nýjum, betri lyfjum, þótt dýrari séu, dragi úr kostnaði við sjúkrahúsvist og skurðaðgerðm, en þær eru, eins og flestir vita, mun dýrari kostur. Sú hlið málsins er þó sjaldan tekin með í dæmið. Slíkt kynni að skekkja fyrirframgefna niðurstöðu. Einnig hefur lítið farið fyrir þeirri staðreynd í umræðunni að sjúkling- ar borga 24,5% skatt af lyfjum sem þeir nota. Af þeim hálfa sjötta millj- arði sem ríkissjóður þarf að sjá af vegna lyfjakostnaðar koma ríflega tveir til baka í formi virðisauka- skatts. Sjúkdómar valda, svo sem kunn- ugt er, oftast skertri starfsorku og þar með tekjurýrnun. Lækkun skattprósentu, að ég nú ekki tali um afnám skatta á lyf, væri stuðningur við þá sem standa höllum fæti. Sá háttur núverandi rikis- stjórnar, að draga jafnt og þétt úr þátttöku Tryggingastofnunar ríkis- ins í lyfjakostnaði og auka þannig á erfiðleika sjúklinga, er siðleysi. Höfundur er nlþingismaður Samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi. Dilbert á Netinu vg> mbl.is _ALLTAf= £ITTH\SA£> tJÝTT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.