Morgunblaðið - 25.08.2000, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐJÐ
FRÉTTIR
R-listinn leiði næstu ríkisstjórn?
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltúri segir að þaö sé ekki líklegt að
Sjálfstæöisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn verði ( samstarfi í næstu
þingkostningum. Framsóknarflokkurinn hefur ekki fariö vel út úr þessu
samstarfi ef miðaðer viðfylgiflokksins. ! I'j' i1 "
Ykkur er óhætt að láta mig leiða ykkur, það gerir mig enginn að dvergi.
í tilefni af 1000 ára kristnitökuafmseli íslendinga
verða eftirtaldir atburðir á dagskrá í september:
2000
3 Jazzhátíð í Reykjavík Þakkargerðartónleikar tileinkaðir Jóni Múla í kirkju Óháða safnaðarins, kl. 15.00. Ókeypis aðgangur. Liður í Jazzhátíð í Reykjavík.
6 ' Samkirkjuleg messa efdri borgara Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu Hátúni 2, kl. 14.00.
17 Mínnísmerki um St. Jósefssystur Útilistaverk reist á Landakotstúni. Samstarfsverkefni Kristnihátíðarnefndar og Reykjavíkurborgar.
29 Engladagurinn á Mikjálsmessu Bænastundir í kirkjum og beðið fyrir börnum.
30 Hátíðarmessa í Landakírkju Vestmannaeyjum, kf. 13:30 Lok hátíðarhalda Kjalarnesprófastsdæmis í tilefni 1000 ára kristnitökuafmælis.
Útgáfa Goðasteins, héraðsrrts Rangæinga Tileinkað kristnitökunni.
Ekki er unnt að greina frá tímasetningu allra atburða en
gert er ráð fyrir að þeir verði nánar kynntir af viðkomandi
framkvæmdaaðilum.
Norræn garðyrkjuráðstefna
U mh verfís væn
ylræktun
Sveinn Aðalsteinsson
N0RRÆN ráðstefna
um umhverfis-
væna ylræktun í
gróðurhúsum stendur nú
yfir á Reykjum í Ölfusi í
húsakynnum Garðyrkju-
skóla ríkisins. Ráðstefnan
er haldin á vegum vinnu-
hóps um ylræktun: NJF,
sem eru samtök norrænna
búvísindamanna. Sveinn
Aðalsteinsson, skólameist-
ari Garðyrkjuskóla ríksins,
er formaður ráðstefnunnar
og Bjöm Gunnlaugsson er
ritari hennar. Sveinn var
spurður hver væri til-
gangur þessarar ráðstefnu.
„Tilgangurinn var að
safna saman sérfræðingum
á Norðurlöndum í ylrækt-
un og tilraunum í ylrækt og
beina kastljósinu að um-
hverfisvænni ræktun. Hingað höf-
um við fengið séríræðinga frá öll-
um Norðurlöndunum og þetta er í
þeim farvegi sem við viljum sjá yl-
ræktina í.“
- Eru uppi nýjar aðferðir í yl-
rækt?
„Aukin áhersla er nú á meiri
gæði framleiðslu og hollari afurðir
ylræktar. Þetta geta menn til
dæmis gert með því að útrýma
lyfjum og eiturefnum í ylrækt og
Islendingar standa mjög framar-
lega á því sviði, þar sem eiturefna-
notkun er nánast óþekkt í græn-
metisframleiðslu í gróðurhúsum
hérlendis. Þá eru nú komnar aðrar
aðferðir í blómaræktun sem
byggjast á að stýra loftslaginu bet-
ur, þannig að notkun ýmissa efna
til að fá fram falleg blóm er að
verða út úr myndinni. Það er líka
betri orkunýting sem verður
rædd, ekki síst í raílýsingu og
meiri gæði með skynsamlegri
notkun raflýsingar.“
- Eru íslenskar rannsóknir
kynntar á ráðstefnunni?
„Já, hér hefur okkur boðist gull-
ið tækifæri til þess að kynna ís-
lenskar rannsóknir við íslenskar
aðstæður, sem eru nokkuð frá-
brugðnar norrænum aðstæðum.
Við sögðum í gær meðal annars frá
ræktun í vikri, en áhugi á vikri sem
ræktunarefni hefur aukist mikið
erlendis, enda er hann umhverfis-
vænt rætkunarefni miðað við
steinull sem er mikið notuð ytra.
Einnig var greint frá ræktun tóm-
ata að vetrarlagi með hjálp lýsing-
ar. En þá eru afurðimar í beinni
samkeppni við innflutta tómata og
athyglisvert er að kaupendur
kjósa oft á tíðum íslenska tómata
þannig ræktaða fremur en þá inn-
fluttu, þótt þeir íslensku séu dýr-
ari. Þuríður Gísladóttir mun í dag
segja frá notkun örvera til að
halda niðri skaðvöldum í ræktun-
arkerfum og í dag verður einnig
sýnt tilraunahús skólans sem verið
er að leggja lokahönd á.“
- Hvað hafíð þið frétt af erlend-
um rannsóknum?
,Áf erlendum rannsóknum má
telja að í gær var talað um notkun
loftslagsstýringar í gróðurhúsum
til að ná fram auknum gæðum
grænmetisframleiðslu.
I dag verður fjallað um
áburðarstýringu til að
minnka notkun varnar-
efna.“
- Erum við á Islandi
farin að rækta allt það helsta sem
ræktað erí nágrannalöndunum?
„Það vantar nú eitthvað upp á
það. Það er hægt að rækta allt
héma, það borgar sig bara ekki
alltaf. Við einbeitum okkur að því
að rækta það sem borgar sig.“
-Hvaðer nýtt á döfínni hjá ykk-
ur við Garðyrkjuskóla ríkisins?
„Við stefnum að því að opna
mjög fljótlega svokallaða Garð-
► Sveinn Aðalsteinsson fæddist
2. ágúst 1960 í Hveragerði. Hann
lauk stúdentsprófí frá Mennta-
skólanum við Sund 1979 og
B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla
íslands 1983 og doktorsprófi í
plöntulífeðlisfræði frá háskólan-
um í Lundi í Svíþjóð 1990 og
varði dósenttitil við sænska land-
bunaðarháskólann 1997. Hann
vann við sænska landbúnaðar-
háskólann frá 1989 til 1997 við
kennslu og rannsóknir og var svo
tilraunastjóri við Garðyrkjuskóla
ríkisins á Reyiqum frá 1997 til
1999 en er nú skólameistari þess
skóla. Sveinn er kvæntur Helgu
Pálmadóttur sérkennara og eiga
þau tvö böm.
yrkjumiðstöð íslands, þar sem við
söfnum öllum sérfræðingum í
garðyrkju undir eitt þak í nýbygg-
ingu við skólann. Þar verða lands-
ráðunautar bændasamtakanna í
garðyrkju og skrifstofa Sambands
garðyrkjubænda. Þama gefst
okkur tækifæri til að sameina
kraftana í endurmenntun, leið-
beiningarþjónstu, kennslu og
rannsóknum."
- Hvemig er aðsóknin að Garð-
yrkjuskóla ríkisins núna?
„Hún er góð. Við höfum fengið
45 nemendur sem þykir gott mið-
að við að þetta er sérskóli. Námið
er alla jafna tvö ár að viðbættu
verknámi. Við eram með sex
námsbrautir og mesta aðsóknin er
að skrúðgarðyrkjubraut og þar á
eftir að blómaskreytingabraut.
Skólinn er á Reykjum í Ölfusi eins
og fyrr kom fram en nemendur
koma alls staðar að af landinu og
meira að segja erlendis frá.“
- Er þetta heimavistarskóli?
„Það eru fá herbergi í heimavist
nú orðið. Margir nemendur aka
hingað daglega frá Reykjavík,
enda emm við oft með fjölskyldu-
fólk hér í skóla, meðalaldur var 29
ár í síðasta árgangi. Einnig fá
nemendur sér herbergi hér í ná-
grenninu eða íbúðir. Hins vegar
ber þess að geta að það er tilfinn-
anlegur skortur á húsnæði í
Hveragerði."
- Eru margir gestir á ráðstefn-
unni hjá ykkur og hve-
nær lýkur henni?
„Ráðstefnugestir em
um 25 og ráðstefnunni
lýkur á laugardags-
kvöld.“
- Er mikill ávinningur að svona
ráðstefnum?
„Ávinningurinn er margþættur.
Við fáum að kynna rannsóknir
okkar í garðyrkju og kynnast er-
lendum rannsóknum, en megin-
ávinningurinn er að við byggjum
upp sambönd við erlenda séríraéð-
inga sem að koma hingað aftur og
halda fræðsluerindi fyrir garð-
yrkjubændur.
Sambönd
við erlenda
sérfræðinga