Morgunblaðið - 25.08.2000, Side 34

Morgunblaðið - 25.08.2000, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 35 ffotgfuiljÍJiMfr STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UPPBOÐ Á FARSÍMARÁSUM Uppboðið á leyfum til þess að starfrækja svonefnda þriðju kynslóð farsíma í Bretlandi fyrir nokkrum mánuðum leiddi til þess að símafyrirtækin þar buðu þrefalt hærri upphæð í leyfin en nokkurn hafði órað fyrir og gilti þá einu hvort um var að ræða stjórnvöld eða sérfræðinga á þessu sviði. í kjölfar þessa útboðs hófust mikl- ar umræður um það, að símafyrir- tækin hefðu misst stjórn á sér í upp- boðinu og boðið miklu hærra verð en þau gætu staðið undir. Þessu var ekki sízt haldið fram, af talsmönnum síma- fyrirtækja í nálægum löndum. Því var spáð að af þessum sökum mundu símafyrirtækin, sem þátt tækju í sambærilegu uppboði í Þýzkalandi, bjóða mun lægri fjárhæðir í farsíma; leyfin þar. Reyndin varð önnur. I þýzka uppboðinu buðu símafyrirtæk- in jafnvel enn hærri greiðslu fyrir farsímaleyfin en í Bretlandi. í þessum umræðum hefur því verið haldið fram, að gjaldið fyrir farsíma- leyfin muni verða til þess, að síma- gjöld neytenda verði þeim mun hærri. Af því tilefni má spyrja: hvaða gjald fyrir leyfi til reksturs GSM-símakerfis hefur verið svo hátt að það hafi knúið símafyrirtækin á íslandi og annars staðar til þess að selja hverja mínútu í GSM-símum á himinháu verði, þótt það hafi að vísu lækkað mjög síðustu misseri? Svarið er að fyrirtækin þurftu ekki að borga neitt gjald sem máli skipti en þrátt fyrir það var verðið svo hátt, að þau sjálf hafa viðurkennt, að tilefni sé til lækkunar. Gífurleg samkeppni og gífurleg notkun mun sjá til þess, að gjald fyrir þriðju kynslóð farsíma verður viðun- andi. Útboðin gera það hins vegar að verkum, að hluti hagnaðarins rennur með einum eða öðrum hætti til al- mennings, sem er sanngjarnt vegna þess, að símarásirnar eru takmörkuð auðlind, sem engin rök eru fyrir að úthluta án endurgjalds. Þetta viðurkenna hinir ungu tals- menn símafyrirtækjanna í samtölum við dagblaðið Dag í gær. Þar segir Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Islandssíma, m.a.: „Auðvitað er eðli- legt að menn greiði fyrir réttindin. En svona hömlulaus uppboð eins og eru kannski í Bretlandi og Þýzka- landi, þau eru kannski svolítið gróf.“ Ólafur Þ. Stephensen, talsmaður Landssímans, segir í viðtali við Dag, að ekki sé neitt óeðlilegt að gjald verði tekið fyrir þessi leyfi en bætir við um uppboðin í Bretlandi og Þýzkalandi: „Útboðsferlið hefur ver- ið nánast endalaust þannig að boðið hefur verið út þangað til það standa uppi jafn margir og leyfin eru.“ Jóak- im Reynisson, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Tali, segir í viðtali við Dag: „Ég held, að flestir eigi erfitt með að skilja hvað þetta eru háar upphæðir.“ Það er fagnaðarefni að fyrir liggur ótvíræð yfirlýsing frá Landssíma og Íslandssíma um að eðlilegt sé að slíkt gjald sé greitt. Hins vegar má spyrja hvort fyrirvar- ar talsmanna símafyrirtækjanna um uppboðin eigi rétt á sér. Hvað er „gróft“ við uppboðin í Bretlandi og Þýzkalandi? Æðstu forsvarsmenn risastórra fyrirtækja taka meðvitaða ákvörðun um hvað þeir eru tilbúnir til að ganga langt. Er eitthvað „gróft“ við það? Er eitthvað óeðlilegt að upp- boðsferlið sé „nánast endalaust“? Þarna eru fyrirtæki í gífurlega harðri samkeppni sem eru staðráðin í að tryggja sér ákveðin réttindi. Þetta er heimur þeirra, sem búa við harða samkeppni. Og alltént er ljóst, að forstjórar stóru símafyrirtækjanna í Bretlandi og Þýzkalandi skilja hvað þeir hafa verið að gera. Eða verða menn ekki að ganga út frá því? Þótt verð hluta- bréfa í símafyrirtækjunum hafi lækk- að um skeið má ganga út frá því sem vísu, að það sé tímabundið fyrirbæri. Væntanlega munu einhverjir fjár- festar líta svo á, að í þeirri lækkun felist kauptækifæri. Alla vega er það boðskapur talsmanna íslenzku verð- bréfafyrirtækjanna, þegar hlutabréf lækka í verði hér. Auðvitað er öllum ljóst, að þegar til lengri tíma er litið er vaxtarbroddurinn í símafyrirtækj- unum mikill, svo að vægt sé til orða tekið. Kjarni málsins er auðvitað sá, að það er nánast ekki hægt að úthluta þessum réttindum með öðrum hætti. Þær þjóðir, sem hafa valið aðra leið, hafa í flestum tilvikum ákveðið mjög hátt gjald. I Frakklandi, þar sem leið hinnar svonefndu „fegurðarsam- keppni“ var valin verða símafyrir- tækin að greiða um 75% af þeirri upp- hæð, sem brezku fyrirtækin buðu. Og vel má vera, að í Frakklandi hafi fyr- irtækin tekið á sig ákveðnar skuld- bindingar, sem leiði til þess, að heild- arkostnaður þeirra verði enn nær kostnaði brezku fyrirtækjanna. Það er hægt að velta því fyrir sér til hversu langs tíma símafyrirtækin eru að tryggja sér þessi réttindi. í sum- um tilvikum er það til 15 ára. Sumum kann að þykja það stuttur tími miðað við hinar háu fjárhæðir. En þá er á það að líta að miðað við þróun undan- farinna ára má gera ráð fyrir, að ný tækni hafi tekið við löngu áður en komið er að lokum þessa tímaskeiðs. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra hefur verið mjög varkár um þetta mál í opinberum yfirlýsingum sínum. Það er skynsamleg afstaða hjá ráðherranum. Auðvitað þarf að skoða ofan í kjölinn hvaða fyrirkomulag hentar bezt hér á íslandi. En hver ætlar að taka að sér að gera upp á milli þeirra símafyrirtækja, sem nú eru starfandi á íslandi? Á að gera það með gamaldags pólitískum hætti? Varla dettur nokkrum manni það í hug. Á að gera það með eins konar happdrætti? Er það nú ekki of langt gengið?! Það verður erfitt að finna betri leið en eitthvert form af þeirri leið, sem farin hefur verið í Bretlandi og Þýzkalandi og fleiri Evrópulönd- um. Símarásir, sjónvarpsrásir og út- varpsrásir eru verðmæti, takmörkuð verðmæti. Fyrir skömmu var frá því skýrt að sjónvarpsstöðin Skjár 1 hefði keypt hlut í fyrirtækinu Gagn- virkri miðlun fyrir 100 milljónir króna. Fyrir hvað voru þeir peningar greiddir? Að sjálfsögðu fyrir aðgang að ákveðinni sjónvarpsrás. s ETJUSAGA ungrar konu“ eru orð sem Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttarlögmanni þykja lýsa vel baráttu skjólstæðings síns. Endapunktur sögunnar sem hófst árið 1989 var ellefu árum síðar, í maí árið 2000, þegar dómsátt var gerð fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg. Þar bað ís- lenska ríkið konuna formlega afsök- unar á því að efast hafi verið um sak- leysi hennar og réttmæti sýknudóms í refsimáli gegn henni á íslandi. Að auki voru henni greiddar 1,5 milljónir króna í skaðabætur. Málið hafði áhrif á íslenskt saka- málaréttarfar. Ákvæðum um bætur til handa sakborningi í lögum um meðferð opinberra mála var breytt við meðferð málsins íyrir Mannrétt- indadómstólnum, til samræmis við það sem gerist í nágrannalöndunum. Að ósk konunnar kemur raun- verulegt nafn hennar ekki fram í þeirri umfjöllun sem hér fer, en hún verður þess í stað kölluð María. Handtekin án dómsúrskurðar Forsaga málsins er sú að í lok apr- ílmánaðar árið 1989 hófst á vegum lögreglunnar í Reykjavík rannsókn á fíkniefnamáli. Snerist rannsóknin um innflutning og dreifingu á tæp- lega 1 kg af kókaíni, sem flutt var til Islands í varadekki bifreiðar um mánaðamótin október/nóvember 1988. Fjöldi manns var yfirheyrður við rannsókn málsins, nokkrir hand- teknir og sjö einstaklingar hnepptir í gæsluvarðhald um lengri eða skemmri tíma, þ. á m. María. Grun- ur beindist aðallega að þremur mönnum og voru þeir allir ákærðir og sakfelldir fyrir aðild sína að mál- inu. Einn þessara manna var sam- býlismaður Maríu. Neitaði hann jafnan sakargiftum og sat á rann- sóknartíma málsins í gæsluvarð- haldi samfellt í 210 daga. Árið 1991 var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Hæstarétti. María var upphaflega handtekin ásamt sambýlismanni sínum að kvöldi 11. maí 1989, en látin laus nóttina á eftir. 17. maí var hún kölluð til yfirheyrslu sem grunuð og svo aftur að Rvöldi 2. júní. Að þeirri yfir- heyrslu lokinni var hún síðan hand- tekin án dómsúrskurðar. Höfðu aldrei minnst orði á gæsluvarðhaldsvist María segir svo frá tildrögum þess að hún var boðuð til yfirheyrsl- unnar 2. júní:, Að kvöldi þessa dags var hringt frá lögreglunni og ég boð- uð í enn eina yfirheyrsluna. Mér þótti nokkuð langt liðið á kvöldið og spurði því hvort ég gæti ekki frekar mætt daginn eftir. Sá sem í síman- um var sagðist vera ásetinn næsta dag og krafðist þess að ég kæmi strax niður á lögreglustöð, Það gerði ég og yfirheyrslan fór fram. Að henni lokinni var ég beðin um að staðfesta framburð minn í lögreglu- skýrslunni. Þar sá ég allt í einu, mér til mikillar undrunar, að neðst í skýrslunni stóð að mætta yrði færð í fangelsi þar sem hún biði gæsluvarðhaldsúrskurðar. Hvorki þegar hringt var heim til mín né all- an þann tíma sem yfirheyrslan fór fram var minnst orði á að mín biði gæsluvarðhaldsvist." Daginn eftir var Maríu svo með úrskurði sakadóms í ávana- og fíkniefnamálum gert að sæta gæsluvarð- haldi til 16. júní 1989. For- sendur úrskurðarins voru þær að gögn málsins bentu til þess að María væri meira viðriðin málið en hún vildi vera láta. Líklega hefði henni verið kunnugt um innflutning fíkni- efnanna og dreifingu þeirra og væri hún grunuð um refsiverða aðild að málinu. Einangrunin „kannski" til að þrýsta á um játningu Með úrskurði sama dómstóls 16. júní var gæsluvarðhaldið síðan framlengt til 12. júlí. Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., réttargæslumað- ur Maríu, mótmælti strax gæslu- varðhaldinu og kærði úrskurðinn um framlengingu þess til Hæsta- réttar. Benti hann á að engin gögn lægju fyrir í málinu sem bentu til beinnar aðildar Maríu að fíkniefna- misferlinu. „Ég taldi allan tímann að það væri enginn rökstuddur grunur fyrir hendi um saknæma aðild hennar að meintum innflutningi sambýlis- mannsins á fikniefnunum. Engin sönnunargögn komu nokkum tíma fram um, að hún hefði með einum eða neinum hætti átt þátt í að leggja á ráðin um innflutning fíkniefnanna eða dreifingu þeirra. Það gat ein- ungis verið ástæða til að gruna hana um að hafa haft meiri vitneskju um ætlaða aðild sambýlismannsins að málinu heldur en hún var tilbúin að upplýsa. Samkvæmt íslenskum lög- um var hún hins vegar, vegna tengsla sinna við sambýlismanninn, undanþegin vitnaskyldu. Vitneskja hennar er heldur ekld saknæm. Grunsemdimar vom því þannig að hún hefði haft vitneskju um eitt- hvað sem hún var ekki vitnaskyld um. Fulltrúi í fíkniefnadeild lög- reglunnar var spurður að því í tím- aritsviðtali 12. október 1989 hvort þeir hefðu haldið konunni í einangi:- un í fimm vikur til þess að þrýsta á sambýlismanninn að játa. Svar hans var „kannski". Þetta var í mínum huga ástæðan, því sambýlismaður- inn hafði allan tímann neitað sakar- giftum. Gæsluvarðhaldinu var sýni- lega ætlað að vera þvingunarúrræði til að fá hana til að nýta sér ekki þann lögvarða rétt sinn, að neita að vitna gegn sambýlismanni sínum,“ segir Jón Steinar. Hann vakti athygli á því við með- ferð kæmnnar að handtakan 2. júní 1989 hefði brotið í bága við þágild- andi lög um meðferð opinberra mála þar sem kveðið var á um að skipun dómara þyrfti til handtöku granaðs manns, ef telja mætti það nauðsyn- legt vegna rannsóknar máls. Akvæði laganna um heimildir lögreglu til handtöku án dómsúrskurðar í und- antekningartilfellum hefðu ekki átt við. Lítið yfírheyrð á gæsluvarðhaldstímanum Hæstiréttur staðfesti gæsluvarð- haldsúrskurðinn yfir Maríu með dómi 23. júní 1989. Þann 5. júlí var María svo látin laus úr gæsluvarð- haldinu og hafði þá setið inni í tæpar fimm vikur. Henni var allan gæsluvarðhalds- tímann haldið í einangran í einum af klefum gamla Síðumúlafangelsins. Hún segir að vistin hafi verið hræði- leg en það hafi bjargað sér að hún gat lesið í fangaklefanum. „Sólar- hringurinn snérist við hjá mér í einangraninni og ég missti alla mat- arlyst þennan tíma. Þegar mér var sleppt hafði ég horast geysilega mik- ið,“ segir María. Á meðan á dvölinni stóð var henni meinað að hitta ættingja og vini. „Erfiðast var fyrir mig að fá ekki að sjá son minn. Eini maðurinn sem ég sá, fyrir utan Jón Steinar og vitan- lega fangaverði og lögreglu, var fangapresturinn. Honum var síðan á meðan á gæsluvarðhaldsvist minni stóð meinað að heimsækja fanga í þessu máli þar sem hann var sakað- ur um að bera skilaboð á milli þeirra,“ segir María. Hún segist lítið hafa verið yfir- heyrð á meðan á gæsluvarðhaldinu stóð og hafi það fullvissað sig um að gæsluvarðhaldið var aðeins ætlað til þess að fá sambýlismann sinn til að játa á sig sakir sem hann hafði ávallt neitað. „Það var síðan íyrir tilstilli Amars Jens- sonar, þáverandi yfír- manns fíkniefnalögregl- unnar, sem að ég var látin laus úr gæsluvarðhaldinu. Arnar var er- lendis þegar ííkniefnamálið kom upp og þegar farið var fram á gæsluvarð- hald yfir mér. Fljótlega eftir að hann kom aftur til íslands heimsótti hann mig í fangelsið og ræddi við mig. í framhaldi af því var ég síðan látin laus,“ segir María. Varð að afþakka skólavist í Bandaríkjunum Hún segist hafa kvartað yfir því þegar síðari gæsluvarðhaldsúr- skurðurinn var upp kveðinn að lög- reglumennimir sem yfirheyrðu hana hótuðu henni ýmsu illu. „Einn sagði mér að ég myndi missa barnið Meinað að hitta ættingja og vini Knúði fram réttar- farsbreytingu með þrautseigju sinni Ellefu ára þrautagöngu konu, sem þola mátti að sitja fímm vikur saklaus í gæsluvarð- haldi hérlendis, lauk fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu í maí. Með dómsátt fékk hún formlega afsökunarbeiðni og bætur frá íslenska ríkinu. Jón Sigurðsson rekur í grein- inni mál konunnar, sem ekki er það fyrsta er endar fyrir Mannréttindadómstólnum og verður til þess að sýna fram á meinlega galla á íslenskum réttarfarslögum. Þegar við blasti að málið yrði tekið til efnismeðferðar fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg var ákvæðum um bætur til handa sakborn- ingi í lögum um meðferð opinberra mála breytt. mitt. Annar spurði mig hvað ég myndi gera ef hann færi að selja syni mínum fíkniefni þegar hann yrði eldri. Maður tók kannski lítið mark á sjálfum hótununum en fannst þær mjög óþægilegar. Eftir að ég bar fram kvartanimar íyrir dómi hættu þeir að hafa í hótunum,“ segir María. Vegabréf Maríu var tekið af henni við húsleit á heimili hennar í maí 1989. Hún hafði fengið skólavist í há- skóla í Bandaríkjunum, sem átti að hefjast þá um haustið. María fékk vegabréfið ekki afhent aftur fyrr en í janúar 1990, þrátt fyrir að hafa gengið eftir því að fá það í hendur, og varð hún af þeim sökum að af- þakka skólavistina. Hún var aldrei úrskurðuð í farbann og var svipt vegabréfinu án nokkurrar heimild- ar. Ákært til að réttlæta gæsluvarðhaldið Ákæra á hendur Maríu var ekki gefin út af ríkissaksóknara fyrr en 30. október 1989. Jón Steinar Gunn- laugsson segist telja að ákæruvaldið hafi talið sig þurfa að réttlæta gæsluvarðhaldið og hafi útgáfa ákærannar ein- göngu þjónað þeim til- gangi. Ekki hefði litið vel út að halda Maríu í fimm vikna einangran og sjá svo ekki einu sinni tilefni til að ákæra. í ákæranni var Maríu gefið að sök að hafa afhent sambýlismanni sínum 666 bandaríkjadali til kaupa á kók- aíni í Bandaríkjunum. Henni var jafnframt gefið að sök að hafa á framangreindu tímabili neytt kók- aíns í nokkur skipti í Reykjavík, en hún hafði viðurkennt að hafa tvisvar sinnum neytt efnisins. Jón Steinar segir það hafa sætt furðu að ákæra hana fyrir að af- henda svo litla peningaupphæð til manns sem hún var í sambúð með, en þau höfðu sameiginlegan fjárhag. „Varðandi neysluna þá er það eitt- hvað sem varðar sektum, en ekkert meira en það. Ég taldi reyndar að Lögreglan hótaði ýmsu illu neyslan ein hefði ekki einu sinni varðað sektum. Það er vitaskuld ekki heimilt að svipta menn frelsi og setja þá í gæsluvarðhald þegar brot varðar aðeins sektum. Gæsluvarð- haldi má aðeins beita vegna brota sem varðað geta frelsissviptingu," segir Jón Steinar. María fékk fljótlega vitneskju um að ákæran hefði verið gefin út, þó að hún væri ekki birt henni með lög- formlegum hætti. Ekki fyrr en rúm- um þremur áram eftir útgáfu ákær- unnar, þann 9. desember 1992, er málið loks þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur eftir að Jón Steinar hafði sem veijandi Maríu haft frum- kvæði að því að fá málið tekið fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn- aði Maríu af öllum ákæraatriðum með dómi 18. janúar 1993 og var þeim dómi ekki áfrýjað til Hæsta- réttar. Bótamál höfðað í framhaldi af þeirri niðurstöðu höfðaði María bótamál á hendur ís- lenska íTkinu í lok júnímánaðar 1993. Þar krafðist hún bóta fyrir annars vegar ólögmæta og þarflausa handtöku og hins vegar fyrir ólög- mætt gæsluvarðhald og/ eða gæsluvarðhald að ófyrirsynju. Var byggt á ákvæði 150. gr. áðurgild- andi laga nr. 74/1974 um meðferð op- inberra mála, þar sem fjallað er um bætur til handa sökuðum mönnum o.fl„ en þar sagði: „Kröfu um bætur má, nema öðra- vísi sé sérstaklega mælt, því aðeins taka til greina, að: 1. sökunautur hafi ekkd með vísvit- andi eða stórvægilega gáleysislegu ólögmætu framferði valdið þeim að- gerðum, er hann reisir kröfu sína á, svo sem með stroki, ósannindum, til- raunum annars til að torvelda rann- sókn o.s.frv., og 2. rannsókn hafi verið hætt eða ákæra ekki hafin vegna þess, að sú háttsemi, sem hann var borinn, hafi talist ósaknæm, eða sönnun hafi Maríu var allan gæsluvarðhaldstúnann haldið í einangrun i einum af klefum gamla Síðumúlafangelsisins. ekki fengist um hana eða hann hafi verið sýkn dæmdur með óáfrýjuðum eða óáfrýjanlegum dómi af sömu ástæðu, enda megi fremur telja hann líklegan til að vera sýknan af henni en sekan.“ Sakleysi ólíklegt Islenska ríkið var sýknað af kröf- unni í héraðsdómi 30. júní 1994. Mál- inu var áfrýjað og staðfesti Hæsti- réttur sýknudóminn með dómi 30. nóv. 1995. Niðurstaðan að því er varðaði handtökuna var á því byggð, að handtakan hefði verið heimil sam- kvæmt 4. tl. 61. gr. 1. nr. 74/1974, en ákvæðið var svohljóðandi: „Skylt er lögreglumönnum að handtaka mann eftir skipun dómara. Þeim er og rétt að taka mann fastan án dómsúrskurðar ef það þykir nauðsynlegt tO þess að aftra granuð- um manni frá því að spilla sakar- gögnum eða fara úr lögsagnaram- dæmi eða torvelda rannsókn máls að öðra leyti, enda megi telja varhuga- vert að bíða skipunar dómara." Hvað kröfuna um bætur vegna gæsluvarðhaldsins sagði í dóminum að vitni hefðu borið að áfrýjandi (María) hefði verið viðstödd afhend- ingu peninganna til kókaínskaupa og hefði vitað til hvers peningamir vora afhentir. Hæstiréttur taldi enn- fi-emur að af framburðum sem rakt- ir vora í dómi í máli ákæravaldsins gegn sambúðarmanni áfrýjanda, „sé ekki unnt að telja fremur líklegra að konan sé sýkn en sek af þessari hátt- semi“, eins og sagði orðrétt í dómin- um. Var niðurstaðan studd við áður- nefnt orðalag í 2. tl. 150. gr. laga um meðferð opinberra mála. Sagði síðan eftirfarandi í dómin- um: „Afrýjandi játaði á sig neyslu kókaíns og að hafa veitt það öðram og uppfyllir þegar af þeirri ástæðu ekki skilyi'ði 2. tl. 150. gr. laganna varðandi þá háttsemi. Er þá ekki þörf á að líta til skilyrða 1. tl. 150. gr. laganna og fjalla um framburð áfrýj- anda hjá lögreglu með hliðsjón af þeim.“ Jón Steinar Gunnlaugsson bendir á að neysla kókaíns hafi ekki verið nefnd í forsendum gæsluvarðhalds- úrskurðanna tveggja yfir Maríu, enda hafi sú neysla aldrei getað orð- ið grandvöllur gæsluvarðhalds. „Þessi dómur var því á frekar þunn- um ís, svo ekki sé meira sagt,“ segir hann. María segir að dómsniðurstaðan hafi verið mikið áfall fyrir sig. „Þama var í raun verið að snúa sýknudóminum í refsimálinu við og lýsa mig seka. Þessi dómur virkar þannig á ólöglært fólk.“ Auk þess að sýkna ríkið dæmdi Hæstiréttur Maríu til að greiða 100 þúsund krónur í málskostnað. Haldið til Strassborgar Að hæstaréttardóminum gengn- um kærði Jón Steinar málið fyrir hönd Maríu til Mannréttindanefnd- ar Evrópu í Strassborg. Kæran var lögð inn vorið 1996 og laut að því að tvö ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu hefðu verið brotin. Annars vegar vegna þess að María hefði ver- ið handtekin án lagaheimildar og án þess að nægilega sterkar gransemd- ir væra um aðild hennar að málinu, en hins vegar þar sem skaðabóta- kröfu hennar hefði verið hafnað á þeim forsendum að rneiri líkur væra á því að hún væri sek en saklaus, sem gengi þvert gegn grandvallar- reglunni að menn væra saklausir þar til sekt þeirra sannaðist, sbr. 2. mgr. 6. gr. sáttmálans. Bent var á í kæranni að María hefði verið sýknuð af öllum sakar- giftum með endanlegum dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur árið 1993 og niðurstaðan á því byggð að sakar- giftir væra ósannaðar. Akvæði 2. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmálans hljóti að fela í sér vemd fyrir því að sá, sem á grandvelli reglunnar telst vera saklaus í refsimáli, sé ekki af handhöfum ríkisvalds síðar í öðram samböndum talinn sekur af sakar- giftum. Sé það raunar sérstaklega ámælisvert, að Hæstiréttur íslands skuli í rökstuðningi sínum vísa til ótiltekinna framburða í dómsmáh, sem kærandi hafi enga aðild átt að og geti því ekki fjallað um, prófað eðavarist. Það fyrirkomulag gilti á þessum tíma að Mannréttindanefndin kvað upp úr um hvort málum sem kærð höfðu verið til hennar skyldi vísað til frekari meðferðar fyrir MannréttindadómstóM Evrópu í Strassborg. Raunin var sú að lang- mestum hluta þeirra mála sem kærð vora til neftidarinnar var vísað frá. Lögunum breytt um leið Þann 9. september 1998 ákvað Mannréttindanefndin að vísa fyrri kröfu Maríu frá en taka síðari kröf- una til frekari efnismeðferðar. Þegar svo er komið þá vita allir sem þekkja kerfið þama úti að hverju stefnir, að sögn Jóns Stein- ars. Yfir 90% af öllum kæram er vís- að frá, en hinar era teknar til frekari meðferðar því að þar þykjast menn sjá að um brot er að ræða. Yfirgnæf- andi líkur era þá á því að viðkomandi ríki tapi máhnu. „Um leið og niðurstaða nefndar- innar lá fyrir var hlaupið upp til handa og fóta og ákvæðunum um bætur til handa sakbomingi í lögum um meðferð opinberra mála breytt. María hafði því á endanum erindi sem erfiði með þessum mála- " rekstri,“ segir Jón Steinar. Breytingarlögin sem hann vísar til tóku gildi 1. maí 1999. Með þeim var fyrmefndum ákvæðum um bæt- ur til handa sakborningi breytt á þann hátt að svonefnd sakarlíkinda- regla, að fremur megi telja sökunaut sýknan af háttsemi en sekan, var felld út. „Upphaflega vora lögin sett að danskri fyrirmynd, en Danir voru þó fyrir löngu búnir að breyta þessum ákvæðum. Ég hafði sjálfur lengi bent á að þessar reglur væra alls- endis óforsvaranlegar. Menn þver- skölluðust við hérlendis þar til þeir fengu þetta aftur í hausinn frá Strassborg," segir Jón Steinar. Mannréttindanefnd Evrópu var 1. nóvember 1998 sameinuð Mannrétt- indadómstólnum. Dómstóllinn tók við máM Maríu og kvað upp þann úrskurð 24. ágúst 1999 að sakarefnið væri tækt til efnismeðferðar fyrir dómstólnum. I reglum dómstólsins er gert ráð fyrir því að málsaðilar leiti sátta áður en að flutningi máls- ins kemur fyrir honum. Takist sætt- ir og mál er komið fyrir dómstólinn er sáttin gerð í formi dóms. Samkomulag tókst milM íslenska ríkisins og Maríu og tilkynning þess efnis var send Mannréttmdadóm- stólnum. Hann tók málið til umfjöll- unar 23. maí sl„ komst að þeirri nið- urstöðu að samkomulagið væri fullnægjandi og felldi máMð niður með dómi þann 30 maí. Jón Steinar segir að það hafi ekki verið bótafjárhæðin sem skipt hafi máM fyrir Maríu í lokin. María tekur undir þau orð og segir að mesta gleðni hafi verið sú að fá á endanum afsökunarbeiðni frá ríkinu og yfir- lýsingu um algjört sakleysi sitt. Vænna hefði sér samt þótt ef það hefði gerst fyrr. „Hún sýndi álveg ótrúlegt þrek. Kannski er skýrasta dæmið um það að hún skyldi leggja í að fara með mál sitt alla leið til Strassborgar án þess að hafa neina tryggingu fyrir því að fá kostnað sem af því hlytist endurgreiddan," segir Jón Steinar. „Ég hafði hreina samvisku í þessu máM. Þetta var spurning um að láta ekki allt yfir sig ganga. Sumir hefðu eflaust látið staðar numið og dregið sig í hlé. Sjálf var ég í þeirri aðstöðu að geta haldið málinu áfram, ólíkt kannski mörgum öðrum, og var all- an tímann staðráðin í að gefast ekki upp. Ég leit á það sem eins konar skyldu mína að halda áfram, ekki síst fyrir þá sem á eftir kæmu. Þegar öllu er á botninn hvolft var þetta til góðs því réttmæt lagabreyting náð- ist fram,“ segir María. Hún bætfr við að sig hafi ekki órað fyrir því í upphafi að máMð myndi taka þetta langan tíma. Hvað þá að hún skyldi þurfa að uppMfa alla þá ósanngimi sem íslenska réttarkerfið hafi boðið sér upp á. Þarf sífellt að koma til afskipta dómstólsins? „Jón Steinar var stoð mín og stytta allan tímann. Hann er réttsýnn og var ávallt sannfærður um að rétturinn væri mín megin. Það hjálpaði mér gífurlega. Einnig naut ég mikils stuðnings frá foreldram mínum,“ segir María. Mál Maríu er ekki það eina sem farið hefur fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og átt þátt í breytingum á íslensku réttarfari. Skemmst er að minnast máls Jóns Kristinssonar á Akureyri, frá árinu 1989, sem varð til þess að dómsvald og umboðsvald var að fuUu skiMð að. Nú bíður meðferðar fyrir dómstóln- um íslenskt mál er snýr að því hvort Hæstiréttur jjeti sakfellt ákærða, sem sýknaður hefur verið í héraðs- * dómi, á grandvelli munnlegs fram- burðar hins ákærða og vitna fyrir héraðsdómi, án þess að yfirheyrslur séu endurteknar fyrir Hæstarétti. Öll þessi mál hljóta að leiða hugann að því hvort sífellt þurfi að koma til afskipta hins erlenda dómstóls til að mannréttindi verði tryggð í máls- meðferð fyrir íslenskum dómstólum. Ákæran þing- fest 3 árum eftir útgáfu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.