Morgunblaðið - 13.09.2000, Page 1

Morgunblaðið - 13.09.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913 209. TBL. 88. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR13. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Aftakaflóð Austurríkismenn fagna sigri í deilu við fjórtán rflri Evrópusambandsins í Japan FLÓÐ og aurskriður vegna mesta úrhellis í Japan í að minnsta kosti öld hafa orðið sjö manns að bana í þremur iðnaðarhéruðum 1 miðhluta iandsins. Yfírvöld hvöttu í gær um 400.000 íbúa héraðanna að fara af heimilum sfnum og dvelja í opinber- um byggingum. Vatnselgurinn var sums staðar rúmur metri á dýpt og áætlað er að 38.000 íbúðir hafí orðið flóðunum að bráð. fbúar Nagoya vaða hér vatnið í háls á einni af götum borg- arinnar. aðgerðum Austurríki aflétt .Aðgei'ðirnar sem ríkin fjórtán gripu til voru gagnlegar. Nú er hægt að nema þær úr gildi,“ sagði í sam- eiginlegri yfirlýsingu frá ESB-ríkj- unum. Bætt var þó við að ríkin hefðu enn miklar áhyggjur af Frelsis- flokknum sem hefur verið sakaður um kynþáttafordóma og útlendinga- hatur. Þau teldu því nauðsynlegt að vera „sérstaklega á varðbergi" og fylgjast grannt með flokknum og áhrifum hans á stjóm Austurríkis. Einangrunaraðgerðirnar áttu sér engin fordæmi í sögu Evrópusam- bandsins og þær fólust í því að ríkin hættu öllum tvíhliða samskiptum við ráðamenn Austurríkis til að mót- mæla inngöngu Frelsisflokksins í stjórnina í Vin í febrúar. Aðgerðunum var aflétt að ráði þriggja „vitringa" sem hafði verið falið að gera úttekt á stöðu mann- réttindamála í Austurríki. Þeir kom- ust að þeirri niðurstöðu að vernd minnihlutahópa, flóttamanna og inn- flytjenda í Austurríki væri að minnsta kosti eins góð og í öðmm ESB-löndum. „Mikill sigur fyrir Austurríki“ „Þetta er mikill sigur fyrii- Aust- urríki og hann á rætur að rekja til staðfestu okkar,“ sagði Wolfgang Schússel, kanslari Austurríkis, og kvaðst feginn því að „þessari vit- leysu skuli vera lokið". „Nokkur ríki vildu að aðgerðunum yrði aðeins frestað þannig að þetta er mikill sig- ur.“ Susanne Riess-Passer, leiðtogi Frelsisflokksins, lýsti ákvörðun ESB-ríkjanna sem „sigri heilbrigðr- ar skynsemi". Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, fagnaði einn- ig ákvörðuninni. „Framkvæmda- stjómin vildi aldrei að Austui-ríki yrði einangrað og ég er ánægður með að aðgerðunum var aflétt,“ sagði hann. „Evrópusambandið verður þó að vera á varðbergi gagn- vart ofstæki og útlendingahatri hvar sem þess verður vai-t í Evrópu.“ Frakkar vom í fylkingarbrjósti þeirra sem studdu aðgerðirnar en þær nutu minni stuðnings í nokkmm minni löndum sem litu á þær sem til- raun af hálfu stóra ESB-landanna til að hafa afskipti af innanríkismálum veikara grannríkis. Aðgerðirnar ollu einnig mikilli reiði í Austurríki og óttast var að stjórn landsins myndi tefja mikilvægar samningaviðræður innan ESB nema aðgerðunum yrði aflétt. Stjóm Kanada fór að dæmi Evrópusambandsríkjanna fjórtán og aflétti einangranaraðgerðum sínum gegn Austurríki í gærkvöld. Stjóm Bandaríkjanna hefur hins vegar enn áhyggjur af stjórnaraðild Frelsisflokksins og hyggst ekki að svo stöddu falla frá þeirri ákvörðun sinni að hafa ekki samskipti við aust- urríska ráðherra nema brýnir þjóð- arhagsmunir séu í veði, að sögn bandaríska utanríkisráðuneytisins í gær. Umdeildum París, Vín, Washington. Reuters. FJÓRTÁN aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) afléttu í gær pólitískum einangranaraðgerðum sem þau gripu til gegn Austurríki fyrir sjö mánuð- um eftir að Frelsisflokkurinn fékk aðild að stjórn landsins. Stjórain í Vín fagnaði þessari ákvörðun og lýsti henni sem sigri fyrir Austurríkismenn. Mótmælaaðgerðir bflstjdra valda miklum truflunum á umferð í Bretlandi Blair útilokar lægri álögur á eldsneyti London. AFP, AP. Bflar bíða eftir afgreiðslu við bensínstöð í Nottingham í Englandi. Örtröð var við bensínstöðvar þar sem hægt var að fá eldsneyti. Hafa meiri tekjur af eldisfíski en villtum fiski Ósló. Morgunblaðið. ELDISFISKUR er nú í fyrsta sinn orðinn mikilvægari en villtur fiskur í útflutningi Norð- manna. Utflutningsverðmæti eldislax og regnbogasilungs var 51% af heildartekjum Norð- manna af fiskútflutningi í ágúst, að sögn norska dag- blaðsins Aftenposten. Norðmenn fluttu út fisk og sjávarafurðir fyrir alls 2,2 millj- arða norskra króna, 19,8 millj- arða íslenskra, í ágúst. Fiskút- flutningurinn var þá 15 af hundraði meiri en í ágúst í fyrra. Vöxturinn var mestur í út- flutningi á eldislaxi. Norðmenn seldu lax fyrir andvirði rúmra níu milljarða króna í ágústmán- uði einum og er það 28% meira en í ágúst í fyrra. Uppgangurinn var mestur í útflutningi á ferskum eldislaxi og verðmæti hans jókst um 35% miðað við ágúst í íyrra. Út- flutningsverðmæti frysts lax jókst hins vegar um 14%. MÓTMÆLAAÐGERÐIR gegn hækkandi bensínverði og háum sköttum á eldsneyti ollu gríðarlegum truflunum á umferð í Bretlandi í gær. Tony Blair forsætisráðhema sagði ekki koma til greina að stjórnvöld létu undan kröfum mótmælenda um að álögur á eldsneyti yrðu lækkaðar. Hann kallaði til neyðarfundar með lögreglu og forsvarsmönnum oh'u- fyrirtækja og fullyrti að fundinum loknum að dreifing eldsneytis yrði komin í samt lag seinnipartinn í dag. Flutningabílstjórar og bændur hafa hindrað för olíubíla frá mörgum hreinsi- og dreifingarstöðvum og þannig reynt að stöðva dreifingu eldsneytis í Bretlandi. Meira en þriðjungi bensínstöðva hafði verið lokað vegna eldsneytisskorts síð- degis í gær og víða myndaðist örtröð við stöðvar þar sem enn var unnt að fá bensín eða díselolíu. Þá olli hægur akstm’ flutningabílstjóra í mótmæla- skyni miklum umferðartöfum í Edin- borg og á nokkram þjóðvegum. Margir hafa lýst áhyggjum af að akstur sjúkra- og slökkvibifreiða stöðvist vegna eldsneytisskorts og á mörgum sjúkrahúsum hafa sjúkra- flutningar verið takmarkaðir við neyðartilvik. Rfldsstjómin fékk í gær heimild drottningarinnar til að taka dreifingu eldsneytis í sínar hendur ef nauðsyn krefði. Álögur á bensín tæplega 80% Blair sagði í gær að vegatálmar og umferðaröngþveiti myndu ekki knýja stjórnina til að láta undan kröf- um um að skattar á eldsneyti yrðu lækkaðir. Blair kenndi verðhækkun- um á heimsmarkaði um hækkun á bensínverði í Bretlandi og hvatti mótmælendur til að beina spjótum sínum að Samtökum olíuútflutnings- ríkja (OPEC) í stað þess að valda usla heima fyrir. Forsvarsmenn flutningabflstjóra vísuðu fullyrðingum Blairs á bug og bentu á að 80% af verði bensíns sem keypt er á bensínstöðvum renna til ríkisins í formi tolla og skatta. Þeir hétu því að halda aðgerðunum áfram þar til stjómin féllist á að lækka álög- urnar. íhaldsflokkurinn tók undir með mótmælendum og sagði aðgerð- imar endurspegla vaxandi óánægju almennings með hækkandi skatta. MORSUNBLAÐIB 13. SEPTEMBER 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.