Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Foreldrar
þurfa að
bjarga sér
dag frá degi
Á sumum leikskólum í Reykjavík
hefur ekki enn verið hægt að taka á
móti börnum sem fengu vilyrði fyrir
plássi nú í haust. Birna Anna
Björnsdóttir kynnti sér stöðuna á
nokkrum þeirra.
Reykjavík
BÖRN, sem fengið höfðu
vilyrði fyrir leikskólaplássi
nú í haust, hafa mörg hver
ekki enn fengið inni á leik-
skóla sínum vegna þess að
þar skortir starfsfólk. Anna
Hermannsdóttir, fræðslu-
stjóri hjá starfsþróunarsviði
Leikskóla Reykjavíkur, seg-
ir að enn vanti um 80 starfs-
menn á leikskólana, sem séu
um 5% af heildarstarfs-
mannafjölda þeirra, en segir
að það sé heldur betri staða
en var á sama tíma í fyrra.
„Þetta hefur haft áhrif á
það að hægt sé að taka börn
inn,“ segir Anna, „en for-
eldrar voru búnir að fá vil-
yrði fyrir plássi, með því
fororði að búið væri að
manna. Þar sem búið er að
fullmanna er í undirbúningi
að taka inn börn eða búið að
því. En þar sem ekki er búið
að manna eru börn og for-
eldrar væntanlega enn að
bíða,“ segir Anna.
Anna segir að hjá Leik-
skólum Reykjavíkur sé lögð
áhersla á að kynna leikskól-
ana sem áhugaverðan vinnu-
stað. Einnig sé vakin athygli
á námskeiðum sem starfs-
mönnum, bæði faglærðum
og ófaglærðum, sé boðið upp
á til að auka sína þekkingu í
starfi.
„Við viljum vekja áhuga
því hvað starf á leikskóla
eru áhugavert og fjölbreytt.
Enda hefur komið fram í
könnunum hjá okkur að ef
fólk hættir er það ekki
vegna þess að það sé ekki
ánægt í starfí, heldur er það
mjög oft vegna launanna
sem eru þáttur sem við ráð-
um því miður ekki við. Von-
andi eru þó betri tímar
framundan í því en nú eru
kjarasamningar fyrirhugað-
ir hjá þeim sem tengjast
þessum starfshópum okkar,“
segir Anna.
I Fífuborg í Grafarvogi
hefur ekki verið hægt að
taka inn tuttugu börn, sem
úthlutað hafði verið plássi í
haust, að sögn Elínar Ás-
grímsdóttur leikskólastjóra.
Hún segir að búið hafí verið
að lofa sumum þeirra plássi
frá 21. ágúst og öðrum frá 4.
september, því sé þetta mik-
il röskun fyrir foreldra og
segir hún áhyggjufullt hljóð
í mörgum þeirra.
Missti fólk í betur
launuð störf
„Foreldrarnir hringja í sí-
fellu til að kanna málin.
Sumir eru í virkilegum
vandræðum og þurfa bara
að bjarga sér dag frá degi.
Ég heyri það á þeim að
þetta er erfítt og mér fínnst
mjög erfítt að þurfa að
halda þessum börnum fyrir
Morgunblaðið/Ásdís
utan. Það er bara ekkert
annað í stöðunni, ekki á
meðan maður fær ekki
starfsfólk,“ segir Elín.
Hún segist ekki sjá fram
á að ástandið lagist. Auglýst
hafi verið eftir starfsfólki
fyrir fáeinum dögum og seg-
ir hún engar umsóknir hafa
borist. Þegar sumarfríi lauk
14. ágúst hafi vantað í átta
stöður, en síðan þá hafí að-
eins tekist að ráða í eina
fulla stöðu og tvær hluta-
stöður.
Elín segist vita að svipað
sé ástatt á öðrum leikskól-
um í Grafarvogi.
„Nokkrir standa ágætlega
en aðrir eru í vandræðum.
Það er misjafn hvað við vor-
um búnir að lofa mörgum
plássum. Þetta leit til dæmis
ekki svona illa út hjá mér
fyrir frí. En ég missti fólk,
sem ég hafði gert ráð fyrir, í
betur launuð störf,“ segir
Elín.
Ólöf Helga Pálmadóttir,
leikskólastjóri í Hálsaborg í
Breiðholti, segir að þar hafi
ekki verið hægt að taka ný
börn inn í haust. Hún segir
þetta hafa raskað miklu hjá
þeim foreldrum sem höfð
gert ráð fyrir plássi. Margir
þeirra séu útivinnandi og
hafi hvorki dagmömmu né
önnur úrræði og séu því í
stökustu vandræðum.
„En mér fínnst þessi for-
eldrahópur hafa sýnt mikið
langlundargeð og þolin-
mæði, enda kannski ekki
annað hægt í stöðunni, því
starfsfólkið er hreinlega
ekki til staðar,“ segir Ólöf
Helga.
Hún segir að erfiðast sé
að fá fólk til að vinna síð-
degis en þeir sem sæki um
hlutastörf vilji flestir vinna
að morgni. Sem betur fer sé
þó að rætast að einhverju
leyti úr hjá þeim og segir
hún að í lok mánaðarins
verði hægt að taka inn hluta
þess hóps sem bíður eftir
plássi.
Ólöf Helga segir að vitan-
lega sé ástand sem þetta
mikið álag fyrir allt starfs-
fólk leikskólans, en jafn-
framt sé starfsmannahópur-
inn mjög jákvæður. Hún
segir að þau vonist öll til
þess að það fáist vel hæft
fólk til starfa sem allra fyrst
svo hægt verði að hefja eðli-
legt starf á leikskólanum.
„Við erum orðin óþreyju-
full eftir að hafa fullt hús af
börnum og geta hafið okkar
metnaðarfulla starf sem
allra fyrst,“ segir Ólöf
Helga.
Sér fram á að þurfa að
skerða tímann
enn frekar
Á Grandaborg hefur ekki
verið hægt að taka inn börn
sem þurfa aukinn stuðning
og einnig hefur þurft að
skerða þann tíma sem opið
er, að sögn Guðrúnar Maríu
Harðardóttur leikskóla-
stjóra. Hún segir að einkum
vanti fólk til starfa síðdegis
og segist hún sjá fram á að
þurfa að skerða þann tíma
sem opið er enn frekar, því
engar starfsumsóknir berist.
„Þetta strandar meðal
annars á því að þeir sem
sækja um störf eru sjálfir
oft með börn, sem þeir
koma ekki inn á leikskóla og
því er þetta keðjuverkandi."
Guðrún María segir að
leikskólinn sé einnig að
missa starfsfólk.
„Við erum að missa fólkið
okkar í alls konar störf, sem
eru hærra launuð. En oft
eru störfin ekki nærri eins
áhugaverð og því hættir fólk
gjarnan með miklum trega.“
Hún segir að auk þess
vinni mjög margir starfs-
menn leikskólans önnur
störf um kvöld og helgar, til
að láta enda ná saman, og
því verði vinnuvika þeirra
oft mjög löng og krefjandi.
„Ég er ekki bjartsýn á að
ástandið lagist fyiT en laun-
in hækka töluvert mikið.
Og laun hjá leikskóla-
kennurum verða að hækka,
annars fást menntaðir leik-
skólakennarar ekki til starfa
á leikskólunum," segir Guð-
rún María.
Ibúar í Lundi III hafa mótmælt starfsemi litaboltavallarins við Nýbýlaveg
Starfsleyfí Litabolta
ehf. endurskoðað
Morgunblaðið/Asdís
Ibúar í Lundi III segja að hættuástand ríki
vegna starfsemi Litabolta ehf.
Kópavogur
HEILBRIGÐISNEFND
Hafnarfjarðar- og Kópavogs-
svæðis mun á mánudaginn
taka afstöðu til starfsleyfis
Litabolta ehf.
en fyrirtækið fékk leyfi í
sumar til að reka litaboltavöll
að Lundi við Nýbýlaveg. í
framhaldinu má búast við því
að bæjarráð Kópavogs fái
málið inn á sitt borð til af-
greiðslu en íbúar að Lundi III
vilja að starfsleyfi Litabolta
verði ekki framlengt.
Á síðasta fundi heilbrigðis-
nefndar, sem haldinn var í lok
ágúst, var erindi íbúanna lagt
fram en afgreiðslu frestað og
forsvarsmönnum Litabolta
ehf. gefinn kostur á að koma
að andmælum.
íbúar í Lundi III sendu
heilbrigðisnefndinni bréf í lok
ágúst þar sem þeir lýsa yfir
mikilli óánægju með starf-
semi Litabolta, en á litabolta-
vellinum við Lund er fólk i
byssuleik með byssum sem
innihalda litakúlur.
„Við teljum að hér ríki
hættuástand og þá sérstak-
lega hvað Varðar umferðar-
mál og umferð bama um
svæðið,“ segir í erindi
íbúanna.
íbúarnir segja að mikil
hávaðamengun fylgi starf-
semi Litabolta.
„Þótt hávaðinn af skothríð-
inni sé ekki ærandi er þessi
stöðugi hávaði ótrúlega trufl-
andi. Ekki eru síður ógeðfelld
stríðsöskrin, hrópin og köllin
sem við þurfum að hlusta á öll
kvöld. Umhverfi með hljóðum
sem þessum finnst okkur all-
avega ekki viðeigandi þar sem
börn búa.“
íbúarnir segja að umferð-
arhættan hafi aukist með til-
komu Litabolta. „Þar sem
ekki er frárein af Nýbýlavegi
er aðkoman að Lundi mjög
erfið og hættuleg. Við þurfum
nánast að stöðva bílinn þar á
götunni til að ná beygjunni.
Þarna hafa orðið þónokkrir
árekstrar á ári, þrátt fyrir að
hér hafi ekki búið nema einar
10 fjölskyldur og umferðin því
ekki mikil. Nú hefur umferðin
hinsvegar margfaldaast og
hættan þar af leiðandi stór-
aukist. A það bætist svo að
forvitnir áhorfendur stunda
það að leggja bílum sínum á
heimreiðina og loka henni
nánast."
Börn hafa prófað að
borða litakúlurnar
íbúarnir segja að aukin um-
ferð fólks um svæðið hafi
valdið því að umgengnin um
svæðið hafi versnað.
„Allt svæðið hérna er orðið
eins og víggirtur ruslahaugur
á að líta, þannig að mikil
breyting hefur orðið á okkar
nánasta umvherfi.
Litakúlurnar sem skotið er
hafa einnig dreifst hér um bfl-
astæði og stíga í nágrenninu.
Sést hefur til fugla tína upp
kúlurnar og skila þeim svo af
sér hér í kring ásamt því að
börn úr nálægum hverfum
koma hingaði í túnið í kúlna-
tínslu og hafa eitthvað prófað
að borða þær.“
Hægt að
tengja göngu-
stígana í vor
Garðabær/Kópavogur
BÆJARYFIRVÖLD Garða-
bæjar og Kópavogs geta far-
ið að huga að tengingu
göngustíga á milli sveitarfé-
laganna strax á næsta ári að
sögn Jónasar Snæbjörnsson-
ar, umdæmisstjóra Reykjan-
esumdæmis Vegagerðarinn-
ar.
I Morgunblaðinu á laugar-
daginn kom fram að ekkert
yrði af tengingu stíganna þar
sem ekki hefði náðst sam-
komulag við Vegagerðina um
gerð kostnaðaráætlunar fyr-
ir göngubrú yfir Kópavogs-
lækinn vestan megin. Jónas
sagði að Vegagerðin hygðist
vinna þessa kostnaðaráætlun
en að sú vinna hefði dregist.
Hann sagðist reikna með því
að kostnaðaráætlunin yrði
unnin í vetur og að þá myndi
liggja fyrir hvernig hægt
yrði að koma þessum göngu-
stíg yfir Kópavogslækinn.
Hann sagði að sveitarfélögin
ættu því að geta farið að
huga að framkvæmdum í vor.