Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
KORTASALAN STENDUR YFIR
HRINGDU OG FÁÐU KYNNINGARBÆKLING SENDAN HEIM
Heimasíða Þjóðleikhússins: leikhusid.is Netfang miðasölu: thorev@theatre.is
Stóra sifiðið:
SJÁLFSTÆTT FÓLK - Halldór Kiljan Laxness.
‘Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Bjartur — Landnámsmaður íslands
Langir leikhúsdagar: sun. 17/9 kl. 15, lau. 23/9 kl. 15, fim. 28/9 kl. 15 og lau. 30/9
kl. 15.
Ásta Sóllilja — Lífsblómið
Langir leikhúsdagar: sun 17/9 kl. 20, lau. 23/9 kl. 20, fim 28/9 kl. 20 og lau. 30/9 kl. 20.
TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI.
GLANNI GLÆPUR I LATABÆ — Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 24/9 kl. 14.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Miðasalan er opin mán.—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20.
Leikfélag íslands
Leikhúskortið:
v Sala í fullum gangi
^sTaSnn 552 3000
SJEIKSPÍR EINS 0G
HANN LEGGUR SIG
fös. 15/9 kl 20
sun. 24/9 kí. 20
PAN0DIL FYRIR TV0
sun. 17/9 kl. 20 A,B,C,D og E kort gilda
fös. 22/9 kl. 20
530 3030
JÓN GNARR. Ég var einu sinni nörd
fös. 15/9 kl. 20
lau. 23/9 kl. 20
STJÖRNUR Á MORGUNHIMNI
fös 29/9 kl. 20
NÝLISTASAFNIÐ
. j.
EGG leikhúsið sýnir í samvinnu við
Leikfélag íslands:
SH0PPING & FUCKING
1. Opnunarsýn sun 17/9 kl. 20 UPPSELT
2. Opnunarsýn mán 18/9 kl. 20 UPPSELT
mið 20/9 kl. 20 A kort gilda
fim 21/9 kl. 20 B kort gilda
lau 23/9 kl. 20 C kort gilda
sun 24/9 kl. 20 D og E kort gilda
Miðasalan er opin í Iðnó frá kl. 11-19 virka daga, frá
kl. 14. laugardaga og frá kl. 16 sunnudaga. Upplýsing-
ar um opnunartíma í Loftkastalanum og Nýlistasafninu
fást í síma 530 3030. Miðar óskast sóttir í Iðnó, en
fyrir sýningu í viðkomandi leikhús. Ósóttar pantanir
seldar 3 dögum fyrir sýningu.
---Tlllll
ISI.I .NSK V OIM .lt V\
Ur^j1111 Sími 5/1 4200
Miðasala opin kl. 15—19 mán—lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
Gamanieikrit í leikstjórn
Sígurðar Sigurjónssonar
16/9 kl. 20 örfá sæti laus
23/9 kl. 20
lau 30/9 kl. 20
fös 20/10 kl. 20
lau 21/10 kl. 19
28/10 kl. 19
Miðasölusími 551 1475
%§tíkgÉbreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavikur
Næstu sýningar
EINHVER I DYRUNUM
Fös 15. sept kl. 19 Frumsýning
Lau 16. septkl. 19 2. sýn.
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
SEX í SVEIT
Sun 17. septkl. 19
Fös 22. septkl. 19
Lau 23. sept kl. 19
4. leikár - sýningum lýkur í september
KYSSTU MIG KATA
Fös 29. septkl. 19
Sun 1. okt kl. 19
Kortasala hafin!
L® Einhver í dyrunum
eftír Sigurð Pálsson
® Lér konungur
eftir William Shakespeare
® Abigail heldur partí
eftir Mike Leigh
. S3 Skáldanótt
eftir Hallgrím Helgason
© Móglí
eftir Rudyard Kipling
® Þjóðníðingur
eftir Henrik Ibsen
® Öndvegiskonur
eftir Wemer Schwab
® íd: Rui Horta & Jo Stramgren
Tvö ný dansverk
® Kontrabassinn
eftir Patrick Suskind
® Beðið eftir Godot
eftir Samuei Beckett
® Blúndur og blásýra
eftír Joseph Kessélring
Askriftarkort á 7 sýningar,-
Fimm sýningar á Stóra sviði og
tvær aðrar að eigin valí á 9.9Q0 kr.
Opin kort með 10 miðum:
Frials notkun, panta þart sæti Mlrfram.
á 14.900 kr.
>C_t
r e
Frá fyrra leikári
Sex I sveit eftir Marc Camoletti
® Kysstu mig Kata eftirCole Porter
Araspil eftir Óm Ámason
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar ki. 10 virka
daga. Fax 568 0383 midasala@borgarleiktius.is
www.borgarleikhus.is
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
fös. 15/9
lau. 23/9
Miðapantanir í síma 561 0280.
Miðasölusími er opinn alla daga kl. 12-19.
Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús.
Ath. ósóttar pantanir seldar 2 dögum f. sýn.
Dáið þér
(Z) l <=XI 1*5
Aðalstyrktiraölli Sinfónluhljórmveitar klandj
A morgun kl. 19.30
Stundum er sagt aö Brahms (1833-1897) hafi beislaö róman-
tískan tíðarandann og fengið honum klassískt form í tónlist
sinni. Sibelíus er á hinn bóginn maður næstu kynslóðar og
tónlist hans vísar veginn til framtíðarinnar.
Brahms: Pfanókonsert nr. 1
Sibelius: Sinfónía nr. 1
Hljómsveitarstjóri: Rico Saccani
Einleikari: Andrea Lucchesini
Gul áskriftarröð
Háskólabió v/Hagatorg
Sími 545 2500
www.sinfonia.is
FÓLK í FRÉTTUM
Þarf Hákon að velja milli kærleikans og krúnunnar?
Krónprinsinn sem
fer sínar eigin leiðir
Það er ekki eintómur
dans á rósum að vera
krónprins, skrifar
Sunna Osk Logadóttir,
Skyldur, hefðir og
formfastir siðir eru enn
ríkjandi innan konungs-
fjölskyldna og þegar
brugðið er út af vanan-
um fer allt í háaloft. Það
er einmitt það sem
gerst hefur í konungs-
ríkinu Noregi.
HÁKON krónprins og öll norska
konungsfjölskyldan hefur orðið fyrir
harðri gagnrýni vegna þeirra fyrir-
ætlana prinsins að hefja sambúð með
unnustu sinni Mette Marit Tjessem
Hpiby og syni hennar, hinum þriggja
ára gamia Maríusi í íbúð í miðbæ
Óslóar. í maí sl. sagði Hákon í fyrsta
sinn frá því í viðtali við norska Ríkis-
sjónvarpið að hann og Mette-Marit
ættu í ástarsambandi. Þau hittust
fyrst árið 1996 í gegnum sameigin-
lega vini en er þau hittust á ný síð-
asta sumar á Qvart-hátíðinni í Kristi-
ansand, heimabæ Mette-Marit, fór
ástin að blómstra á milli þeirra.
Samband þeirra var strax umdeilt
meðal almennings og ráðamanna
þjóðarinnar, sérstaklega vegna þess
að Mette-Marit er einstæð móðir og
barnsfaðir hennar á skuggalega for-
tíð sem tengist eiturlyfjaneyslu. Þá
höfðu foreldrar Hákonar, Haraldur
kóngur og Sonja drottning ekki gefið
opinberlega álit sitt á sambandinu en
með tilkynningunni sem barst frá
konungsfjölskyldunni sl. sunnudag
þar sem segir frá fyrirhugaðri sam-
búð unga parsins er talið að Har-
aldur og Sonja hafi lagt blessun sína
yfir sambandið. Haraldur, sem
staddur er í opinberum erindagjörð-
um í New York um þessar mundir,
staðfesti það síðan í viðtali við norska
fjölmiðla á miðvikudag og sagði að
honum þætti ánægjulegt að sonur
hans hefði fundið ástina og að hann
og drottningin kynnu að meta unn-
ustu hans, Mette-Marit.
„Við vonum og trúum því að sam-
bandið muni enda með giftingu,"
sagði Haraldur en um sambúðina
sagði hann: „Við erum öll sammála
um að í augnablikinu sé þetta besta
lausnin,“ en kóngurinn hefur áður
rTobPicAfr
Iðnbúð 1,210Garðabæ
sími 565 8060
Reuters
Hákon krónprins.
sagt opinberiega að hann sé ekki
hlynntur óvígðri sambúð. Haraldur
og Sonja drottning þekkja af eigin
reynslu erfiðar aðstæður sem þess-
ar. Er Haraldur var krónprins braut
hann blað í sögu norsku konungsfjöl-
skyldunnar er hann giftist stúlku
sem ekki var af konungsættum. „Við
drottningin þekkjum af eigin raun
aðstæður líkar þeim sem Mette-
Marit er í núna og höfum því samúð
með henni. Ég vona að með því að
hefja sambúð reynist þeim auðveld-
ara síðar meir að takast á við hlut-
ina.“
Misjafnar skoðanir
Flestum þykir eðlilegt að ungt par
hefji sambúð en þegar krónprins og
einstæð móðir eiga í hlut snýr málið
öðruvísi við og sitt sýnist hverjum.
Margir af þingmönnum Kristilega
þjóðarflokksins í Noregi hafa gagn-
rýnt áætlanir Hákonar og gengur
Laila Kaland, þingmaður Verka-
mannaflokksins, svo langt að krefj-
ast þess að hann afsali sér ríkiserfð-
um sem mun hafa í för með sér að
systir hans, Mártha Louise, erf!
krúnuna í hans stað. Það er þó ekki
almenn skoðun í landinu. Biskupar
landsins eru heldur ekki á eitt sáttir,
Finn Wagle, biskupinn í Niðarósi,
telur t.d. nauðsynlegt að Hákon gifti
sig, Trond Giske kirkjumálaráð-
herra segist hins vegar ekki sjá neitt
athugavert við sambúð unga parsins
og telur að með því að hefja sambúð
án þess að vera trúlofaður sé Hákon
aðeins að gera það sem flestir aðrir
Norðmenn gera og sannar þar með
að hann tilheyri sinni kynslóð. En
þar sem Hákon er konungborinn eru
margir sem telja að hann eigi einmitt
að vera yfir almúgann hafinn, skuli
gifta sig til að sýna gott fordæmi.
Hórkarlar og lausaleiksbörn
Fjölmiðlar segja að sambúðin sé
söguleg, aldrei áður hafi krónprins
hafið sambúð án þess að vera trúlof-
aður. Sagnfræðingar blása hins veg-
ar á þá fullyrðingu. Steinar Imsen,
sagnfræðingur við NTNU-háskól-
ann í Þrándheimi, fullyrðir í norska
dagblaðinu Adresseavisen að kon-
ungssagan sé full af sambýlingum og
það sem meira sé: lausaleiksbörnum,
hórkörlum og framhjáhöldum. Im-
sen segir að Hákon hafi valið sér
sambúðarform sem flestir Norð-
menn velja í dag en fyrr á öldum var
því öfugt farið: Kóngafólki leyfðist að
leika ýmsar kúnstir í kynferðismál-
um sem almúganum hefði verið refs-
að harðlega fyrir.
En norska þjóðin hefur kveðið upp
sinn dóm: Samkvæmt nýlegri skoð-
anakönnun dagblaðsins Verdens
Gang er mikill meirihluti hennar
sáttur við ráðahag Hákonar og vill
gjarnan sjá Mette-Marit sem næstu
drottningu sína. Þá telja langtum
flestir að engin ástæða sé til þess að
Hákon afsali sér ríkiserfðum.
Það sem krónprinsi sæmir
Þegar öllu er á botninn hvolft virð-
ist helsta spurningin vera þessi:
Leyfist krónprinsinum að gera það
sem hann vill? Þjóðin og ráðamenn
hennar skiptast í tvær fylkingar í
þessum efnum og skiptir aldur þar
mestu um. Yngri þegnarnir telja
Hákon mega ráða hvað hann gerir en
margir af eldri kynslóðinni halda því
fram að hann hafi mörgum opinber-
um skyldum að gegna, sé væntanleg-
ur kóngur landsins og verði að haga
sér samkvæmt því.
Hákon sagði í viðtali í norska ríkis-
sjónvarpinu fyrir skömmu að Mette-
Marit myndi að svo stöddu ekki hafa
neinum opinberum skyldum að
gegna þrátt fyrir sambúðina. Enn
eru miklar vangaveltur i norskum
fjömiðlum um stöðu Maríusar, sonar
Mette-Marit. Mun hann verða
krónprins? Hákon segist ekki vilja
svara þeirri spurningu strax en að
sögn Hans J. Rosjorde, varaforseta
Stórþingsins, mun Maríus litli að öll-
um líkindum ekki fá konunglega tign
þó að hann verði hluti af konungs-
fjölskyldunni þegar og ef Mette-
Marit og Hákon ganga í hjónaband
en hann bætir við að um þetta sé þó
ekkert hægt að fullyrða að svo
stöddu. Þetta og fleira mun tíminn
einn leiða í ljós.