Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 57
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 57
'p
Indland
- kynningarfundur
Vegna fyrirhugaörar Indlandsferðar SL verður
haldin ferðakynning í máli og myndum í Súlnasal
Hótel Sögu, fimmtudaginn 14. september, milli
kl. 17:30 og 20:30.
Samvinnuferðir
Landsýn
Sætún 1 • 105 Reykjavík • Sími: 569 1010 • Fax: 569 1095
Netfang: samvinn@samvinn.is • Heimasíða: www.samvinn.is
Slógu í gegn á
silungahátíðinni
The Texas Chainsaw Orchestra
Rhino Entertainment Company
1997.
KEÐJUSAGARKVARTETTINN
var ekki alltaf keðjusagarkvartett.
Árið 1985 stóðu fjórir félagar á loka-
ári sínu við Texas University í
ströngu við gerð heimildarmyndar
um hinn bandaríska timbur-rum eða
„lumberjack“ og átti myndin að heita
„I’m a Lumberjack and I’m o.k.“ Þeg-
ar fjármagn til kvikmyndataka var
þurrausið þurftu félagamir heldm-
betur að grípa til sinna ráða og ekki
brást þeim hugmyndaflugið.
Við tökur myndarinnar kynntust
Texasbræður keðjusöginni í allri sinni
dýrð og ákváðu því að nýta sér hana
til fjáröflunar. Fyrst spreyttu þeir sig
á keðjusagarskúlptúr en þegar allir
nærliggjandi skógar höfðu verið jafn-
aðir við jörðu tóku þeir til við keðju-
sagakast (chainsaw juggling). Á því
sviði var samkeppnin of hörð og því
stofnuðu þeir keðjusagarkvartettinn
eftir langa setu á hverflskránni þar
sem bilaður glymskratti hafði leikið
Smoke on the Water ellefu sinnum í
röð. The Texas Chainsaw Orchestra
hélt sína fyrstu tónleika nokkrum vik-
um síðar í gamalli sögunarmyllu og að
sjálfsögðu var Smoke on the Water
íyrsta lagið á prógramminu. Strák-
amir slógu í gegn strax þama í myll-
unni og tilboðin streymdu inn. Næstu
tónleikar vom haldnir í bílakirkju-
garði, nokkru síðar spiluðu þeir í
dýraspítala og í október 1985 hlaust
þeim sá ótvíræði heiður að vera aðal-
númerið á árlegu silungahátíðinni í
Aberdeen þar sem þeir vöktu mikla
lukku. Á þeim tíma hafði kvartettinn
fært út kvíamar og vai' farinn að bæta
við sig „hljóðfærum" eins og bomm,
naglabyssum, sláttuvélum, slípi-
rokkum og fleim.
Þrátt fyrir blómstrandi frama
keðjusagarkvai-tettsins um þetta
leyti, höfðu piltamir svo sannarlega
ekki gleymt heimildarmyndinni sinni
um timbur-ramana og ákváðu því að
best væri að gefa út plötu til þess að
ná inn fjármagni til að ljúka við gerð
hennar. Þeir tóku því upp snældu með
fimm lögum sem fékk titilinn
Toolshed Tapes og sendu öllum
helstu útgáfurisunum í Bandaríkjun-
SkhsaW
•I.T
Þessi forláta vélsög prýðir glugga Old Mill Tavems þar sem Texas
Chainsaw Orchestra kom fyrst fram.
um og víðar. Þegar ekkert tilboð
barst og bransinn virtist ekki ætla að
taka við sér, bratu þeir odd af oflæti
sínu og sendu snælduna til allra minni
fyrirtækjanna í góðri trú. Enn vora
viðbrögðin engin svo það endaði með
því að myndinni var stungið undir stól
og kvartettinn tvístraðist. Reyndar
segir sagan að einhent barstúlka á
hverfiskránni þar sem þetta byrjaði
allt saman hafí haft eitthvað með ör-
lög félaganna að gera, en ég sel það
ekki dýrara en ég keypti það. Tveir
sagarfélaganna stofnuðu dagheimili,
einn fór út í stjómmál og sá fjórði
reyndi fyrir sér í fullorðinsmyndum
við góðan orðstír. Ellefu áram síðar
fengu félagamir uppreisn æra þegar
Rhino Entertainment kompaníið í
Los Angeles sá loks snilldina í keðju-
sagarrokkinu og gaf út sjö laga geisla-
disk með þeim. Sá inniheldur slagara
sem við þekkjum öll, elskum eða þol-
um ekki. Til dæmis I Will Always
Love You sem Whitney Houston
gerði vinsælt á sínum tíma, Chain
Gang, American Woman og fleiri en
því miður ekki Smoke on the Water.
Það er kannski ekki öllum jafn hug-
leikið að heyra fyrir sér melódíska
tónlist leikna á keðjusagir. En stað-
reyndin er sú að kvartettinn gerir
gott betur en henda vélunum í gang.
Þeim tekst virkilega að byggja upp
dýnamísk lög með viðlögum, brúm,
risi, viðkvæmum lægðum og að víra
saman sannfærandi útsetningar sem
rísa handan við að vera eingöngu
fyndnar. Ekki kannski langt handan
við húmorhæðina en þessar tónsmíð-
ar era það ótrúlegt afrek að það er
ekki hægt annað en að taka ofan fyrir
uppátækinu.
Meðlimir Texas Chainsaw Orch-
estra segjast ekki vera á höttunum
eftir frægðarflagðinu, en að þeir séu
hins vegar mikið fyrir peninga og því
alltaf til í að telja í - eða setja í gang.
Hver sá sem hefur áhuga á að halda
fyrir þá tónleika í Reykjavík getur
snúið sér til Rhino Entertainment:
www.rhino.com.
Kristín Björk Kristjánsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Smashing
Pumpkins dreifa
nýrri plötu á Netinu
SIÐASTA plata hljóm-
sveitarinnar Smashing
Pumpkins sem hún var
búin að segjast ætla að
gefa út fljótlega eftir
væntanleg starfslok sín í
nóvember er þegar
komin í dreifingu á Net-
inu. Platan sem kemur
til með að heita Machina
II: Friends And Enemies
Of Modern Music mun
innihalda 22 lög og
verður gefin út af Virg-
in-útgáfunni stuttu eftir
að hljómsveitin hættir.
Billy Corgan gaf út yfir-
lýsingu í maf síðastliðinn
að sveitin hefði í hyggju
að leggja árar í bát eftir
að núverandi tónleika-
ferðalagi þeirra lýkur.
Samkvæmt yfirlýsingu frá aðdá-
endaklúbbi sveitarinnar er nú hægt
að nálgast plötuna í heild sinni á
Netinu í gegnum deiliforrit á borð
við Napster cða Gnutella.
Það sem mörgum þykir enn
merkilegra er það að á kreiki eru
þeir orðrómar að forsprakki sveit-
arinnar Billy Corgan hafi sjálfur lát-
■ ,1
Smashing Pumpkins, svartklædd fyrir
væntanlegajarðarför.
ið aðdáendaklúbbinn hafa eintak af
plötunni með þeim fyrirmælum að
koma henni í dreifingu á Netinu.
Það er því hugsanlegt að hljómsveit-
in, sem hefur opinberlega lýst yfir
óánægju með samskipti sín við út-
gáfufyrirtæki sitt, hafi ákveðið að
kveðja aðdáendur sína með því að
gefa þeim fría plötu í skilnaðargjöf.