Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 49.
FRÉTTIR *
Landsvirkjun og skátar
taka höndum saman
LANDSVIRKJUN og Skátasam-
band Reykjavíkur hafa gert með
sér samstarfssamning til fimm ára
Markmið samstarfsins er að styrkja
starf Landsvirkjunar að umhverfis-
og útivistarmálum og efla jafnframt
skátastarfið á höfuðborgarsvæðinu
og við Úlfljótsvatn með því að vinna
sameiginlega að umhverfisverkefn-
um og fræðslu um útivist- og orku-
mál og tengja saman fræðslustarf
skáta við Ulfijótsvatn og kynning-
arstarf Landsvirkjunar við Sog.
I útilífsmiðstöð skáta við tilfijóts-
vatn verður tekin upp fræðsla um
orkumál og starfsemi Landsvirkj-
unar ásamt fræðandi heimsóknum í
orkustöðvar Landsvirkjunar við
Sogið.
Efnt verður til árlegs umhverfis-
verndardags skáta og Landsvirkj-
unar í Reykjavík og/eða nárgrenni
þar sem átak verður gert í hreinsun
eða öðrum umhverfisbótum á
ákveðnu svæði.
Gefið verður út umhverfisplakat
með leiðbeiningum um hvernig al-
menningur geti lagt sitt af mörkum
Morgunblaðið/Kristinn
Á myndinni eru frá vinstri: Friðrik Sophus-
son, Guðmundur Bjömsson, framkvæmda-
sljóri Skátasambands íslands, og Sveinn Guð-
mundsson, formaður Skátasambands Islands.
við umhverfisnefnd.
Þá mun Landsvirkjun
og Skátasambandið
gera ákveðnum fjölda
bama sem búa við erfið-
ar aðstæður kleift að
sækja endurgjaldslaust
námskeið í útilífsskóla
skáta.
Landsvirkjun afhend-
ir Skátasambandinu til
eignar pallbíl sem nýtt-
ur verður í starfi sam-
bandsins. Þá munu sum-
arvinnuflokkar
Landsvirkjunar taka
þátt í umhverfisvernd-
ardegi og öðrum átaks-
verkefnum Skátasamb-
andsins.
Lýst eftir
vitnum
Um sl. helgi var þremur bifreið-
um stolið úr Vogahverfinu. Um
er að ræða MO-924 sem er
MMC. L-300, árgerð 1993
grænn og grá að lit, DL-738 sem
er Hyundai Accent, árgerð 1996
grænn að lit og IB-460 sem er
Subaru 1800, árgerð 1987 blár
að lit. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um hvar bifreiðarnar
eru niðurkomnar vinsamlega
hafi samband við lögrelguna.
TILKVNNIIMG AR
w
stofnun
Skipulags
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefurtekið ákvörðun um
matsskyldu eftirtalinna framkvæmda sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfis-
áhrifum.
Framkvæmdir háðar mati á umhverfis-
áhrifum:
Lagning Vífilsstaðavegarfrá Hraunsholtsbraut
í Ásum að Balatjörn í Garðabæ.
Framkvæmdir ekki háðar mati á umhverfis-
áhrifum:
Fjögurra ára tilraunaframkvæmdir við Árkvíslar
í Skaftárhreppi sbr. auglýsingu í Lögbirtinga-
blaðinu, 93. árg., 48. tbl. hinn 17. maí 2000.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær
er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: http://www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufresturtil 11. októ-
ber 2000.
Skipulagsstofnun.
Mosfellsbær
Deiliskipulag
á frístundahúsalöndum úr
landi Úlfarsfells, við
Hafravatn, Mosfellsbæ
Á fundi bæjarráðs h. 20. júlí 2000 var
samþykkt tillaga að deiliskipulagi á frí-
stundahúsalöndum úr landi Úlfarsfells, við
Hafravatn, Mosfellsbæ.
Skipulagstillagan tekur til fimm lóða úr
landi Úlfarsfells. Um er að ræða lóðir fyrir
frístundahús. Svæðið er samkvæmt aðal-
skipulagi ætlað til frístundahúsabyggðar.
Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu Mos-
fellsbæjar, Þverholti 2, fyrstu hæð, frá 13.
september 2000 til 11. október 2000.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa
borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar fyrir
25. október 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillögun-
um.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Tillaga að breytingu
á aðalskipulagi iðnaðar-
svæðis á Grundartanga,
Borgarfirði
Hreppsnefndir Hvalfjarðarstrandarhrepps og
Skilmannahrepps auglýsa hér með tillögu að
breytingu á aðalskipulagi iðnaðarsvæðis á
Grundartanga 1997-2017 samkvæmt 1. mgr.
21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73/1997.
Breytingin felst í því að nú er allt svæðið neðan
þjóðvegar skilgreint sem hafnarsvæði, lóð
Islenska járnblendifélagsins hefur stækkað,
viðlegukantur færður inn samkvæmt
samþykktu deiliskipulagi og staðsetning sjó-
dælistöðvar Norðuáls hf færð inn á skipulags-
kortið.
Breytingartillagan verðurtil sýnis á hrepps-
skrifstofunum annars vegar að Hagamel 16,
Skilmannahreppi og hins vegar að Hlöðum
Hvalfjarðarströnd á skrifstofutímum og einnig
á Teiknistofu Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts,
Merkigerði 18, Akranesi alla virka daga frá kl.
10:00 - 16:00 frá 13. september 2000 til og með
10. október 2000.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er
hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Fresturtil að skila inn
skriflegum athugasemdum ertil kl 16:00 þriðju-
daginn 24. október 2000 og skal skila þeim til
Hreppsskrifstofu Skilmannahrepps, Hagamel
16, Skilmannahreppi, 301 Akranes.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breyt-
ingatillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykk-
ur henni.
Oddvitar Hvalfjarðarstrandar-
hrepps og Skilmannahrepps.
TIL. 5ÖLU
Jöklaferðir til sölu
Til sölu eru rekstur og eignir Rekstrarfélags Jökla-
ferða ehf., Höfn, Hornafirði.
Fyrirtækið er eitt stærsta fyrirtæki landsins í þjón-
ustu við ferðamenn. Jöklasel á Vatnajökli er þjón-
ustumiðstöð félagsins og þar er glæsilegur veit-
ingastaður og aðstaða fyrir gistingu í svefnpoka-
plássi. Frá Jöklaseli er farið í ferðir á Vatnajökul
en í eigu fyrirtækisins eru tuttugu vélsleðar, tveir
snjóbílar og fleiri tæki sem tilheyra rekstrinum.
Nánari upplýsingar um starfsemina er að finna
á heimasíðu fyrirtækisins http://
www.glaciertours.is . Aðeins undirritaður veitir
upplýsingar um söluna.
Tryggvi Agnarsson hdl.,
Lögmenn Garðastræti 36, Reykjavík,
sími 552 8505, fax 562 6635.
ta@consultants.is
BATAR SKIP
Fiskiskip tíl sölu
Vélskipið Jóhann Gíslason ÁR-42 ertil sölu.
Skipið er smíðað í Noregi 1968 og er 243 brl.
Aðalvél 600 hö nýupptekin. Skipið, sem hefur
verið á neta- og togveiðum, er í sérstaklega
góðu ástandi og lítur allt ótrúlega vel út.
Skipasalan Eignahöllin,
Hverfisgötu 76,101 Reykjavík,
sími 552 8850. fax 552 7533.
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
Félags sjálfstæðis-
manna í Grafarvogi
verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 13. sept-
ember, kl. 20.30 í félagsheimili sjálfstæðis-
manna í Hverafold 5.
Dagskrð:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, borgarfulltrúi, ávarpar fundinn.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
SMÁAUGLYSINGAR
KENNSLA
MYNDMENNT
I MYND-MÁL
myndlistaskólí
Málun, teiknun. Undir-
stöðuatriði og tækni. Byrj-
endur og framhaldsfólk.
Upplýsingar og innritun kl.
15—21 alla daga. Símar
561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir,
listmálari.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma f kvöld kl. 20.30
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
http://sik.is
mbl.is