Morgunblaðið - 13.09.2000, Page 6

Morgunblaðið - 13.09.2000, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Syðri hluti Miklubrautar milli Kringlumýrar- brautar og Grensásvegar breikkaður í 3 akreinar Ný frárein af Kringlu yfir á Miklubraut kemur síðar REYKJAVIK Þriðja akrein Breikkun MtKLABRAUT BSSK Þriðja akrein Breikkun Þriðja akrein KRINGLAN Heimildi-lféQágerQin Miklabraut frá Kringlumýrarbraut að Grensásvegi Framkvæmdir við breikkun hefjast senn BRAGI Vignir Jónsson og Amar- verk ehf. áttu lægstu tilboð í breikk- un Miklubrautar, milli Kringlumýr- arbrautar og Grensásvegar, um eina akgrein. Framkvæmdir eiga að hefj- ast á næstunni og meginhluta þeiri'a á að ljúka á tveimur mánuðúm.’ Tilboð í breikkunina voru opnuð í gær hjá Innkaupastofnun Reykja- víkurborgar en borgarverkfræðing- urinn í Reykjavík og Vegagerðin standa að framkvæmdinni. Verkið var boðið út í tvennu lagi, í svo- nefndum 3. og 4. áfanga vegna þess hvað framkvæmdatíminn er skamm- ur þannig að hægt væri að fela tveimur verktökum að vinna það. Framkvæmdatíminn er um tveir mánuðir en frágangur tekur síðan lengri tíma og þarf verktakinn ekki að skila verkinu endanlega af sér fyrr en 1. júní í vor. Níu tilboð bárust í hvorn verk- áfanga fyrir sig en þrjú fyrirtæki 100 ára og í fullu fjöri ÞEIR eru 100 ára samtals, Pálmi Andrésson í Kerlingadal í Mýrdal og Benzinn hans. Pálmi er sjötugur í dag, miðvikudag, og bíliinn er þrítugur á þessu ári. Og báðir eru í fuliu fjöri. Merzedes Benz-sendibifreið Pálma er gamall ísbfll frá Kjörís. Á sínum tíma var á honum flutninga- kassi með kæii- og frystivélum. Er hann nú notaður sem kælir og frystir á næsta bæ, hjá Fagradals- bleikju ehf. Pálmi smíðaði nýjan fiutningakassa á bflinn og notar hann til að keyra út vörur fyrir KÁ íVík. áttu lægstu tilboðin í öllum tilvikum. Lægstu tilboð voru undir kostnaðar- áætlun. Bragi Vignir Jónsson átti iægsta tilboð í 3. áfanga, 20,8 milíj- ónir kr., en Arnarverk ehf. og Háfell ehf. áttu nsgstu boð. Kostnaðaráætl- un hljóðaði upp á 21,8 milljónir. Arn- arverk ehf. átti lægsta tilboð í 4. áfanga, 20,9 milljónir, en Bragi Vignir Jónsson og Háfell komu þar næst á eftir. Kostnaðaráætlun hljóð- aði upp á 24,3 milljónú’. Aukið umferðaröryggi Tilgangur breikkunarinnar er að auka umferðarrými og umferðarör- yggi á Miklubraut. Eftir fram- kvæmdina verður Miklabraut að minnsta kosti þrjár akgreinar í báð- ar akstursstefnur allt frá Kringlu- mýrarbraut að Höfðabakka. Fram hefur komið hjá vegamálastjóra að áætlanir um frekari breikkun Miklu- brautar vestur í bæ liggja ekki fyrir. Eins og sést á meðfylgjandi korti verður breikkunin frá gatnamótum Kringlumýrarbrautar og austur fyr- ir aðrein frá Kringlunni til norðurs inn í miðeyju en eftir það er gatan breikkuð til suðurs. Breikkunin er þrír metrar og framkvæmdasvæðið um 1,5 km að lengd. Beygjureinar fyrir vinstri beygju á gatnamótum : Miklubrautar við Rringlumýrar- braut og Háaleitisbraut verða lengdar nokkuð. Síðar er áætlað að færa frárein Kringlu inn á Miklu- braut til vesturs en það verður ekki gert í þessum áfanga. Þá verða nú- verandi gangstígar meðfram Miklu- brautinni færðir fjær og jarðvegs- mönum og gróðri komið fyrir milli stígs og götu meðfram íbúðum við Hvassaleiti. Miklubraut verður ekki lokað á meðan á framkvæmdum stendur. Verktaki fær þó til umráða einn metra af núverandi akbrautum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kampýlóbakter fannst í vatnsbólum Hólmvikingfa Sláturhús og fiskvinnslu- hús lokuð MATVÆLAVINNSLA er lömuð á Hólmavík eftir að kampýló- bakter fannst í vatnsbólum stað- arins og íbúarnir eru hvattir til að sjóða neysluvatn. Við eftirlit Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða fannst kampýlóbakt- ermengun í vatnsbólum á Hólmavík í fyrradag. Heilbrigð- isfulltrúi Vestfjarða lét yfirdýra- lækni og Fiskistofu vita og hvatti íbúana tii að sjóða neyslu- vatn. Fiskistofa fyrirskipaði vinnslustöðvun í rækjuvinnslu og saltfiskverkun á Hólmavík og sendi mann á staðinn til að taka sýni af vatni og afurðum. Fisk- markaður starfar áfram þar sem hann getur starfað án þess að nota vatn úr vatnsbólunum. Þá var slátrun hætt í sláturhúsi Goða hf. á Hólmavík. Loftopin voru ekki nógu vel varin Anton Helgason heilbrigðis- fulltrúi skoðaði vatnsbólin á mánudag og tók ný sýni. Vatns- bólin eru tveir brunnar og er vatnið síað í gegnum áreyrar. Hann segist hafa gert athuga- semdir við frágang á öðrum brunninum. Loftop hafi ekki verið nógu vel varin og þannig kunni sýklar úr umhverfinu að hafa borist í vatnið. Tekur Anton fram að vatnsbólin séu ágætlega umgengin og girt af. Mengunin var ekki mikil og engir saurkó- lígerlar fundust. Telur Anton að búið sé að laga brunninn. Búist er við niðurstöðum úr rannsóknum á nýju sýnunum liggi fyrir á föstudag. Ef sýnin reynast hrein verður hægt að hefja vinnslu á nýjan leik. Fé flutt á Hvammstanga Slátrun var stöðvuð í slátur- húsi Goða hf. á Hólmavík á mánudag þegar upplýsingar bár- ust um mengun vatnsbólanna en það var einungis annar dagur haustslátrunar í húsinu. Um 800 fjár er slátrað þar á dag þegar slátrun er komin í fullan gang. Jón Vilhjálmsson sláturhússtjóri segir að mengunin hafi komið á óvart því vatnsbólið hafi hingað til verið talið öruggt. Féð var strax flutt úr sláturhúsinu og til slátrunar á Hvammstanga en sláturhúsið þar er í eigu sama fyrirtækis. Þar verður fé Strandamanna slátrað þá daga sem lokað er á Hólmavík. Um 30 manns vinna í slátur- húsinu, mest bændur og búalið, og var fólkið sent heim. Unnið er að hreinsun sláturhússins meðal annars með því að setja klór inn á vatnskerfi eins og leyfilegt er. Vonast Jón til þess að slátrun geti hafist aftur í lok vikunnar. ! I Söludeild í Fornahmdi K‘r ókeypis Iandslagsráðgjöf Breiðhöföa 3 • Sími 585 5050 á WWW.bmValIa.ÍS www.bmvalla.is Lögregla fann skrokka af hreindýrum sem felld voru í óleyfí Innsiglið var rofið og á bak og burt kjötið LÖGREGLAN á Egilsstöðum telur sig vita með nokkurri vissu hver felldi a.m.k. hluta af hreindýrunum sem felld voru í óieyfi á Jökul- dalsheiði fyrir skömmu. Við húsleit á bæ einum í Jökuldal á föstudaginn fundust skrokkar af fimm hreindýrum sem lögreglan telur að hafi verið veidd án tilskil- inna leyfa. Hreindýrsskrokkarnir fundust í frystigámi sem komið hef- ur verið fyrir inni í einu útihúsanna við bæinn. Þar sem lögreglan hafði ekki aðgang að frystigeymslum var ákveðið að innsigla gáminn og skiija skrokkana þar eftir. Þegar lög- reglan vitjaði um gáminn í fyrradag var hins vegar búið að rjúfa innsigl- in og stela skrokkunum. Heimilis- menn kváðust ekki hafa orðið varir við þjófana þrátt fyrir að útihúsið með gámnum liggi þétt upp að íbúð- arhúsinu. Rof á innsigli alvarlegt brot Helgi Jensson, fulltrúi sýslu- manns á Egilsstöðum, segir að rof á opinberu innsigli og þjófnaður sé stórum alvarlegra brot en veiði- þjófnaður. Við því liggi auk þess harðari refsingar. Þegar veiðileyfi er gefið fyrir hreindýrum fá veiðimenn hækil- bönd frá hreindýraráði sem þeir binda um hækil dýranna eftir að þau hafa verið felld. Þannig er hægt að ganga úr skugga um að hreindýrsskrokkar hafi verið fengnir með lögmætum hætti. Ekk- ert dýranna á bænum í Jökuldal var með slík hækilbönd. Karen Erla Erlingsdóttir hjá hreindýraráði segir að þegar menn hyggja á hreindýraveiðar þurfi Jieir að verða sér úti um veiðileyfi. Aður en veiðar hefjast þurfa veiðimenn- irnir að tilkynna um ferðir sínar til hreindýraráðs, bæði hvenær þeir leggja á fjall og aftur þegar þeir koma til baka. Engar slíkar tilkynn- ingar bárust í umræddu tilviki. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.