Morgunblaðið - 13.09.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.09.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2Q00 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Umhverfísvæn inn- Minnisvarði um Fann fíkni- efni við leit í bifreið LÖGREGLAN á ísafirði lagði hald á tæplega átta grömm af efni sem talið er vera amfetamín og um þrjú grömm af kannabisefnum við húsleit og leit í bifreið. Einnig fundust áhöld til fíkniefnaneyslu. Lögreglan á ísafn-ði stöðvaði tvo karlmenn í Arnarfirði, annan á þrí- tugsaldri og hinn á fertugsaldri, en þeir voru þá á leið frá Reykjavík. Mennirnir, sem báðir eru búsettir í ísafjarðarbæ, voru grunaðir um að hafa fíkniefni í fórum sínum. Samkv. fréttatilkynningu frá lögreglunni á ísafirði fundust fíkniefnin og áhöldin við leit í bifreiðinni við handtökuna og síðan á heimilum mannanna. Mennirnir gistu fangageymslur lög- reglunnar meðan á rannsókn máls- ins stóð. Málið telst upplýst og mönnunum hefur verið sleppt úr haldi. Sérþjálfaður fíkniefnahundur frá lögreglunni í Bolungarvík aðstoð- kaup ryðja sér til rums UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út bæklinginn Um- hverfisvæn innkaup, sem unninn var í samráði við Ríkiskaup, Sam- band íslenskra sveitarfélaga og Samtök iðnaðarins. Bæklingurinn var kynntur í gær en í honum er útskýrt í hverju hugtakið um- hverfisvæn innkaup felst og hvernig er hægt að hrinda því í framkvæmd. Hann er einkum ætl- aður þeim sem sinna opinberum innkaupum. í ávarpi Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra við tækifærið kom m.a. fram að hugtakið er far- ið að ryðja sér til rúms í nágranna- ríkjunum, ekki síst á Norðurlönd- um. Ráðherra benti á að vantað hefði upplýsingar af því tagi sem koma fram í bæklingnum, en um- hverfisstefna í ríkisrekstri var samþykkt fyrir þremur árum hér á landi. Siv sagði reynslu annarra þjóða sýna að opinber stefna í um- hverfisvænum inn- kaupum hefði hvetj- andi áhrif á framleið- endur að gera betur í umhverfismálum. Ráð- herra sagðist viss um að jarðvegurinn væri til staðar fyrir um- hverfisvæn innkaup hér á landi og metnað- armál fyrir ríkisvaldið að ganga á undan með góðu fordæmi. Fagna frumkvæði ráðuneytisins Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, sagði að útgáfa bæklingsins sendi þau boð út til markaðarins að ríkið væri að vakna til vitundar um um- hverfisvæn innkaup og myndi á næstu misserum setja fram ítar- legri viðmið um þau efni. Júlíus fagnaði frumkvæði umhverfisráð- uneytisins við útgáfu bæklingsins. Júlíus áréttaði að helsta skylda innkaupa- fólks væri að gera hagstæð innkaup og að spara fé hins op- inbera. Þegar saman færu sjónarmið í spamaði í opinber- um innkaupum og þau lífsgildi sem um- hverfisvæn innkaup boðuðu væri mark- miðum Ríkiskaupa í spamaði náð. Á kynningunni sagði Þórarinn Sóf- usson frá Isal einnig frá reynslu fyrirtækisins af umhverfisvænum innkaupum auk þess sem Norð- maðurinn Östein Sætrang sagði frá norskri reynslu af málunum en hann er sérfræðingur um um- hverfisvæn innkaup. Siv Friðleifsdóttir velgerðarstarf Jósefssystra SUNNUDAGINN 17. september kl. 11.45 verður afhjúpaður minnisvarði á lóð kaþólsku dómkirkjunnar í Landakoti um velgerðarstarf St. Jós- efssystra á íslandi. Minnisvarðinn er gerður að frum- kvæði menningarmálanefndar Reykjavíkur og með liðsinni kristni- hátíðarnefndar í þakklætisskyni fyrir fórnfúst starf systranna að hjúkran sjúkra og uppfræðslu bama á líðandi öld. Listamanninum Steinunni Þór- arinsdóttur var falin gerð höggmynd- arinnar sem hún nefnir „Köllun“. Yf- irpríorinna St. Jósefssystra í Danmerku, systir Ansgaria Rie- mann, mun afhjúpa minnisvarðann. Afhjúpunin fer fram að lokinni há- messu í Kristskirkju sem hefst kl. 10.30. Viðstaddir messuna verða biskupar kaþólsku kirkjunnar á Norðurlöndum sem halda hér haust- fund sinn og svo skemmtilega vill til að sama dag era liðin 50 ár síðan séra George, sem stjómaði Landakots- skóla í nærfellt 40 ár, vann klaustur- heit sitt, segir í fréttatilkynningunni. Stöndum í ævarandi þakkarskuld við systurnar Þar segir ennfremur: ,Árið 1996 voru 100 ár liðin síðan fyrstu Jósefs- systumar komu til íslands og hófu aðhlynningu sjúkra og fátækra ásamt kennslu barna við þröngar aðstæður en óbugandi kærleik og bjartsýni. Fyrsta sjúkrahúsið í Reykjavík reistu þær 1902, skólabyggingu í Landakoti 1909, spítala í Hafnarfirði 1926 og skóla í kjölfarið. St. Jósefs- systur stjórnuðu sjúkrahúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og Landa- kotsskóla áratugum saman og nutu einkum Fáskrúðsfjörður og Garða- bær einnig hjálparstarfs þeirra. Fyr- ir þetta og margt annað kristilegt kærleiksstarf systranna standa Is- lendingar í ævarandi þakkarskuld. Þær hafa kosið að vinna verk sín í kyrrþey og njóta kyrrlátrar gleði yfir fómfúsu og óeigingjömu starfi." ------------------------- Lögreglan á ísafírði Fram- kvæmdum miðar vel FRAMKVÆMDUM í Smáralind í Kópavogi miðar vel áfram, segir Þorvaldur K. Ámason, verkstjóri Istaks. Nú vinna um 180 manns við byggingu verslunarmiðstöðvarinn- ar sem verður opnuð í september að ári liðnu. Að sögn Þorvaldar er smám sam- an verið að fjölga starfsfólki við bygginguna. Fyrir mánuði unnu 150 manns við framkvæmdirnar en næsta sumar lítur út fyrir að 1000- 1500 manns vinni við þær. LEIÐRÉTT Rangt verð Þau leiðu mistök urðu í Fasteigna- blaði Morgunblaðsins í gær að í frétt á bls. 2 þar sem sagt var frá einbýlis- húsinu Bollagörðum 65 misritaðist söluverð hússins. Söluverðið er 26,5 milljónir króna. Húsið er til sölu hjá fasteign.is. Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson aði við leitina að fíkniefnunum. fslensk miðlun V est- fjörðum ehf. gjaldþrota ÍSLENSK miðlun Vestfjörðum ehf. óskaði í gær eftir gjaldþrotaskiptum í Héraðsdómi Vestfjarða. Jakob Valgeir Flosason, stjómarmaður i fyrirtæk- inu, segir að eflaust hafi verið margar ástæður fyr- ir því hvemig komið sé. Ein ástæðan sé sú að íslensk miðlun Vestfjörð- um hafi verið ofmönnuð. Þegar mest var störfuðu rúmlega 40 manns hjá fyrirtækinu á fjóram starfs- stöðvum á Vestfjörðum. Tilraunin mistókst Hann segir að margir kröfuhafar hefðu verið til- búnir að breyta skuldum fyrirtækisins en að of seint hafi verið gripið í taumana. „Talað hefur ver- ið um að það hafi vantað um 13-15 milljónir inn í fyrirtækið í beinhörðum peningum til að hlutimir hefðu getað gengið til lengri tíma litið. Þá er miðað við um 12 manns í fullu starfi á daginn og fullmann- að á kvöldin. Ef þessir peningar hefðu komið til hefði væntanlega verið hægt að bjarga fyrirtæk- inu. En peningarnir fengust ekki,“ segir Jakob. Óðinn Gestsson, sem einnig er stjórnarmaður íslenskrar miðlunar Vestfjörðum ehf., segir að til- raunin hafi mistekist en að allt hafi verið gert til að afstýra því að fyrirtækið færi í gjaldþrot. Þá hafi menn ekki staðið við það sem þeir lofuðu og því hafi gjaldþrotabeiðni ekki orðið umflúin. Hlutafé íslenskrar miðlunar yestfjörðum ehf. var 40 milljónir króna og átti íslensk miðlun í Reykjavík rúmlega 30% í fyrirtækinu en annað var í eigu einstaklinga og fyrirtækja á Vestfjörðum. Fritz Már Jörgensen, framkvæmdastjóri ís- lenskrar miðlunar í Reykjavík, sagði sig úr stjóm Islenskrar miðlunar Vestfjörðum í síðustu viku en hann var stjómarformaður fyrirtækisins. Aðspurður hvers vegna hann hafi sagt sig úr stjórn fyrirtækisins segir Fritz að hann sé að reka nokkuð stórt fyrirtæki í Reykjavík, sem krefjist allrar hans orku og meira til. „Ég var ekki að hlaupast frá ábyrgð með því að segja mig úr stjórn íslenskrar miðlunar Vestfjörðum." Hann segir að íslensk miðlun í Reykjavík hafi tekið fullan þátt í þeim björgunaraðgerðum sem reyndar hafi verið til að afstýra gjaldþroti íslenskrar miðlunar Vest- fjörðum, en því miður hafi það ekki dugað. Fritz segir að líklega hafi verið farið of geyst í sakimar með uppbyggingu íslenskrar miðlunar Vestfjörðum. Verkefnastaðan hafi aldrei náðst al- mennilega upp og verkefnin sem fengust hafi aðal- lega verið kvöldverkefni og því hafi nýtingin á starfsstöðvunum ekki verið nægjanlega góð. Að hans sögn er tap íslenskrar miðlunar í Reykjavík vegna fyrirtæksins fyrir vestan um 25 milljónir króna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.