Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ h FRÉTTIR Grunnskólarnir hafa lent í vandræðum með íslenska Windows98-stýrikerfíð Virkar ekki í nettengingum Morgunblaðið/Kristján Hjörleifur Hjálmarsson, tölvukennari á Akureyri, er meðal fjöl- margra kollcga sinna í grunnskólum landsins sem ekki geta notað ís- lensku útgáfuna af Windows98 í nettengdum tölvukerfum vegna galla í hugbúnaðinum. GALLI hefur uppgötvast í ís- lensku útgáfunni á Windows98 stýrikerfinu frá Microsoft. Gallinn lýsir sér aðallega í því að net- tengd tölvukerfi, sem styðjast við Novell- eða NT-netkerfi, geta ekki notast við hugbúnaðinn. Einkatölvur eru lausar við þenn- an galla. Þetta hefur komið sér illa m.a. fyrir þá grunnskóla í landinu sem höfðu orðið sér úti um íslenska Windows98 í gegnum samning menntamálaráðuneyt- isins, og notast við Novell- eða NT-netkerfi, sem ailflestir skólar gera. Utgáfan hefur ekki enn nýst þeim sem skyldi. Velflestir grunn- skólar höfðu orðið sér úti um stýrikerfið en samkvæmt upplýs- ingum frá Tölvudreifingu, heild- sölunni sem kom að samningi menntamálaráðuneytisins, hefur kerfið óvíða verið sett upp ennþá. Stærsti dreifingaraðili Wind- ows fyrir Microsoft hér á landi er Tæknival. Magnús Björn Sveins- son, vörustjóri hugbúnaðar hjá Tæknivali, sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi galli hefði uppgötvast sl. vor, eða skömmu eftir að fyrstu skólai’nir fengu sér Windows98 á íslensku. Tækni- menn Microsoft í Bandaríkjunum vinna nú að endurbótum á hug- búnaðinum og er vonast til að þeirri vinnu ljúki á næstunni. Magnús Björn sagði að vissulega værí þetta hvimleitt mál. Þeir hjá Mierosoft hefðu áður kannast við vandræði í nettengingu við NT- kei'fi en vandræði vegna Novell væri nýtt fyrir þeim. „Það skýrist vonandi á næstu dögum hvað verður gert. Micro- soft mun gefa út tilkynningu þeg- ar málið er leyst,“ sagði Magnús Bjöm. Grunnskólarnir á Akureyri voru meðal þeirra fyrstu sem urðu sér úti um íslensku útgáf- una, eða strax í vor. Hjörleifur Hjálmarsson, tölvukennari í Gler- árskóla, er ráðgjafi skólaskrifstof- unnar á Akureyri í tölvumálum. Hann sagði við Morgunblaðið að fljótlega hefði hann uppgötvað þennan galla. „Þetta veldur engum skaða á netkerfinu, heldur ræsist stýrik- erfið bara ekki með þessari ís- lensku útgáfu. Einkatölvur sem ekki eru nettengdar geta notað hugbúnaðinn en það hjálpar skól- unum lítið. Þetta er auðvitað slæmt fyrir æsku landsins að kynnast ekki íslenska Windows vegna svona galla. Þegar verið er að leggja mikið fjármagn í þýð- inguna þarf hugbúnaðurinn að vera í lagi. Flest aliir skólar í landinu kevra Novell eða NT,“ sagði Hjörleifur. Svavar Her- bertsson, umsjónarmaður tölvu- mála í Gerðaskóla í Garði, kann- ast einnig við þennan galla. Hann ætlaði að taka íslenska stýrikerfið í notkun I haust en sagðist í sam- tali við Morgunblaðið hafa fljót- lega komist í hann krappan. Fyrst hefði hann fengið þau svör hjá Tæknivali að hugbúnaðurinn virkaði með Novell-netkerfi en síðar hefði umboðsaðilinn viður- kennt vandann. Svavar sagði skól- ann verða áfram að nýtast við Windows95, þar til þetta leystist með 98-útgáfuna. Þá eru margir skólar farnir að nota Wind- ows2000. Svavar undraðist að ekki hefði verið búið að kanna hvort stýrikerfið virkaði í öllum nettengingum, áður en það var sett í dreifingu. Skýrsla um framkvæmd verkefna á vegum reynslusveitarfélaga frá árinu 1995 * Arangurinn almennt góður FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA kynnti í gær skýrslu sem Pricewater- house Coopers vann fyrir ráðuneytið um framkvæmd reynslusveitar- félagaverkefnisins frá árinu 1995. Meginniðurstaðan er sú að á sviði byggingarmála, málefna fatlaðra, öldrunarmála og heilsugæslu hafi til- raunir reynslusveitai’félaganna náð markmiðum sínum. Er þá átt við aukna sjálfsstjórn, betri stjórnsýslu miðað við staðbundnar aðstæður, betri þjónustu við íbúana og betri nýtingu fjármagns hins opinbera. Það sama gildir einnig um reynslu- hverfið Grafarvog og að verulegu leyti um tilraun Reykjanesbæjai’ á sviði vinnumiðlunar. Reynslusveitarfélögunum er skipt í þrjá flokka. í fyrsta flokknum eru Akureyri, Hornafjörðui’ og Vest- mannaeyjar. Þessi sveitarfélög hafa verið að vinna að nokkrum fjölþætt- um verkefnum sem fólu í sér flutning fjármuna frá ríki til sveitarfélaga og yfirfærslu ábyrgðar á mótun félags- þjónustu innan gildandi lagaramma. I öðrum flokknum er Reykjavík en þar hefur farið fram staðbundin til- raun í Grafarvogi. í þriðja flokknum eru Garðabær, Hafnarfjörður, Fjarð- arbyggð og Reykjanesbær. Þessi sveitai-félög hafa verið að vinna að fá- um verkefnum sem ekki fólu í sér til- flutning á fjármunum. I tilviki Akureyrai’ og Hornafjarð- ar urðu stjómsýslutih-auntr tæki til þess að stuðla að auknum árangii, t.d. á sviði málefna fatlaðra, öldranar- mála og heilsugæslu. Tilraunir á sviði félagslegi'a húsnæðismála fóru ekki af stað en markmið þeirra samninga sem gerðir vora urðu hluti af núgild- andi löggjöf um félagsleg húsnæðis- mál. Takmarkaður árangur náðist af tilraun á sviði menningarmála, að því er fram kemur í skýrslunni.Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra sagði það mikilvægt að hafa fengið hlutlausan aðila til að meta framkvæmd verkefn- isins. Ráðuneytið hefði ekki viljað gera þetta sjálft til að „raupa af ‘ nið- urstöðunni. Um niðurstöðuna í raun sagðist hann ekki hafa reiknað með henni þetta jákvæðri. Hann hefði fyrst og fremst fylgst með málefnum fatlaðra því sá málaflokkur tilheyrði sínu ráðuneyti. Skýrslan gæfi góða vísbendingu um að ríkið ætti að halda áfram að flytja verkefni til sveitarfé- laganna. Það styrkti sveitarstjómar- stigið. „Það er byggðastefna í raun að vinna verkefnin heima í héraði. Þjón- ustuþegarnh’ eru ánægðir og fjár- munir nýtast betur. Það er því til mikils að vinna,“ sagði Páll. Hermann Sæmundsson er formað- m- verkefnisstjórnar um reynslu- sveitarfélögin. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að í skýrslunni væru margar góðar ábendingar um hvernig verkefnin hefðu tekist til og hvað mætti betur fara. Tók Heimann sem dæmi tilraunina í Grafai’vogi þar sem vel tókst til. Önnur sveitarfélög gætu haft það verkefni sem fyrh’- mynd, einkum þau sem hafa verið að sameinast, og Reykjavíkurborg gæti einnig nýtt reynslu sína í öðrum hverfum. Heimann sagði að nú yrði farið ofan í saumana á niðurstöðum ráðgjafafyrirtækisins. Meta þyrfti ávinninginn með tilliti til stefnumörk- unar til framtíðar. Takniarkaður áhugi í sumum ráðuneytum Sign'ður Stefánsdóttir, bæjarfull- trúi á Akureyri, hefur átt sæti í verk- efnisstjóminni frá upphafi. Hún sagði niðurstöðu skýrslunnar sýna að sveit- arfélögin væra vel fær um að sinna sínum málum. Hins vegar væri mikil- vægt að læra af reynslu ólíkra verk- efna. Full þörf væri á því, t.d. vegna samningagerðar milli ríkis og sveitar- félaga um fjármuni. Mörg verkefnin væra í vexti og þörfin óskilgreind. Sveitarfélögin þyrftu að tryggja sig vel. "Stærð sveitarfélaga spilar inn í þessa umræðu. Annaðhvort þurfa þau að stækka eða að finna sér sam- starfsgrandvöll. Slíkt getm- verið flókið. Mikilvægt er að halda áfram tilraunum í sveitai-stjórnarmálum." UPP SKAL Á KJÖL KLÍFA Rástefna um menningartengda feröaþjónustu Hólum í Hjaltadal, 16. september 2000 Markmiö ráðstefnunnar, sem er á dagskrá Reykjavíkur Menningarborgar, er að efla umræöu um þau tækifæri sem felast í menningu til uppbyggingar ferðaþjónustu á 21. öldinni og miðla reynslu frá Noröurlandi vestra og þátttökulöndunum I Evrópuverkefninu Guide 2000. Fundarstjórl: Magnús Jönsson, sveitarstjóri Skagaströnd. 10:00 Setnlng: Skúll Skúlason, skðlameistari Hólaskóla. 10:05 Kynning á GUIDE 2000: Rögnvaldur Guömundsson, verkefnisstjórl. 10:20 Þróun mennlngarferðaþjónustu í samstarfslöndum GUIDE 2000 Limerick - hió rika land: Michael Quinlan, Irlandi. Menningarferðaþjónusta T Bornholm: Szilvia Gyimóthy og Lise Herslund, Danmörku. Menningarferöaþjónusta í Puglia: Anna Maria Di Giovanni, Italíu. 11:30 Byggöamennlng - gæðl og samvlnna Menning - ásjóna byggöanna: Guörún Helgadóttir, Byggöastofnun og Hólaskóla. Aó virkja frumkvæði heimamanna: Skúli Helgason, Reykjavík Menningarborg. 13:00 Menningarferðaþjónusta - mögulelkl eba tálsýn? Sýnishorn T máli og myndum: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Hólaskóla. LTttu þér nær - vetur í íslenskri sveit: Gudrun Kloes, Brekkulæk. Söfn ogferöaþjónusta: Sigríður Siguröardóttir, Byggöasafni Skagfirðinga. Ferðaþjónusta á listrænum nótum: Gunnsteinn Ólafsson, framkvæmdastjóri ÞjóölagahátTðar á Siglufirði. 15.00 Kynnlng á Hestamlöstöð íslands (í félagsheimilinu Melsgili) Þorsteinn Broddason, framkvæmdastjóri Hestamiðstöövar Islands. Hestaréttlr í Staðarrétt 17:00 Málþlngl slltlö. Akstur að Hólum. Ráöstefnugiald: 3.500 kr, nemendur 1.500 kr Innifaliö: kaffi, hðdegisveröur, akstur til og frð hestaréttum. Skráning og upplýsingar:Rannsóknir og ráögjöf feröaþjónustunnar. Netfang: rognv@mmedla.ls - Fax: 555 4130 Skránlngarfrestur tll 15. september. Vinsamlegast látið vita hvort þiö þiggið tilboð um akstur til og frá Staöarrétt. Réttarball í Melsgili um kvöldið kl. 11-03. Fjölbreyttir gistimöguleikar. Morgunblaðið/Golli Þjófar staðnir að verki Bílar skullu saman TVEIR bflar skullu saman á gatnamótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu í Hafnarfirði um kl. 13.30 í gær. Grunur leikur á að öðrum bflnum hafi verið ekið yfir gatnamótin á móti rauðu Ijósi með þessum afleiðingum. Bflstjórar og farþegi sluppu ómeiddir. LÖGREGLAN í Kópavogi hafði hendur í hári tveggja manna sem voru staðnir að innbroti í bifreið á Smiðjuvegi í gær. Lögreglumenn á ómerktri lög- reglubifreið áttu leið um Smiðju- veginn skömmu eftir miðnætti í gær og sáu þá hvar tveir karlmenn voru að stela hljómílutningstækj- um úr bifreið. Ánnar var inni í bílnum en hinn stóð vakt. Þegar mennirnir urðu varir við lögreglu reyndu þeir að komast undan. Lögreglan náði öðrum þeirra en hinn komst undan, en aðeins um stundarsakir því lögreglan hand- samaði hann síðar í gær. Málið telst upplýst. Lögreglan í Kópavogi segir bíl- þjófa einna helst sækjast eftir hljómflutningstækjum enda eru þau auðveld söluvara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.