Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 16

Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Frostafold 22 - Reykjavík Opið hús frá kl. 20-22 Samstarfssamningur gerður við Línu.Net Skrín þjónustar notendur Islenska menntanetsins SKRÍN ehf. á Akureyri, gerði nú ný- lega tvo samninga sem báðir þykja mikilvægir áfangar í uppbyggingu fé- lagsins, en það er þekkingar- og þjón- ustufyrirtæki á sviði upplýsinga- tækni og er að meirihluta í eigu Norðlendinga. Samningamir sem um ræðir felast annars vegar í því að Skrín mun framvegis sjá um þjón- ustu við notendur Islenska mennta- netsins en hins vegar hefur Skrín samið við Línu.Net um sölu fyrir fyr- irtækið. Netþjónusta við skóla og mennta- stofnanir er þungamiðjan í starfi ís- lenska menntanetsins, ísmennt en það hefur sérhæft sig á því sviði. Einnig sinnir Ismennt ýmsum af- mörkuðum verkefnum, svo sem að- stoð við hönnun og uppsetningu vefja, kennslufræði- og tæknilegri ráðgjöf tengdri námi, kennslu og námsefnis- gerð. Öll fjarmenntun í landinu bygg- ist á tilvist íslenska menntanetsins. Það veitir notendum sínum aðstoð, bæði á Netinu sjálfu og einnig í síma, en frá og með næstu mánaðamótum mun Skrín annast þessa þjónustu. Sá starfsmaður sem hefur séð um þessa þjónustu hjá íslenska menntanetinu hefur verið ráðinn til starfa hjá Skrín og halda þar áfram þjónustu við við- skiptavini Ismenntar. Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skrín, segir forsvarsmenn fyrirtæk- isins stolta af því að Skýrr, sem á ís- lenska menntanetið hafi falið þeim að sjá um þetta verkefni. Samningur Skrín við Línu.Net fel- ur í sér að Skrín mun sjá um sölu á ör- bylgju- og ljósleiðaratengingum á Akui’eyri fyrir Línu.Net. Þá er kveðið á um samvinnu við markaðslega upp- byggingu þessarar þjónustu á Norð- urlandi. Morgunblaðið/Kristján Kalt og blautt ÞEIR voru heldur kuldalegir smið- irnir frá Árfelli hf. á Dalvík, sem voru að vinna við mótauppslátt í nýbyggingu við Oddeyrarskólann á Akureyri í gær. Eftir blíðviðri fyrri part vikunn- ar, fór veðrið kólnandi og á fimmtu- dag var úrhcllisrigning í bænum og einnig var kalt og blautt veður í gær. Þrátt fyrir leiðindaveður voru Árfellsmenn ekki tilbúnir að viður- kenna að veturinn væri kominn og þeir sögðust bera fullt traust til þeirra félaga í Veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvfk. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í vikunni eru veðurklúbbsmenn sammála um að veðrið verði gott í september þó að sjálfsögðu megi búast við að eitthvað rigni og goli. Þeir bentu þó á gamla trú sem er á þá leið að því sem meiri beijaspretta er því meiri líkur séu á snjóavetri. Fulltrúakjör Einingar - Iðju á 39. þing ASÍ Samkvæmt lögum Einingar-lðju fara kosningar fulltrúa fé- lagsins á 39. þing Alþýðusambands íslands fram að við- hafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð A.S.Í. um slíkar kosningar. Félagið hefur rétt til að senda 25 fulltrúa á 39. þing Alþýðu- sambands íslands sem haldið verður í Reykjavík dagana 13.-16. nóvember nk. Framboðslistum eða tillögum til þessa þings, þar sem til- greind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn marga til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skip- agötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi mánu- daginn 25. september nk. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. Akureyri 12. september 2000. Stjórn Einingar - Iðju LUNDUR PÁSTEIGNÁSÁLÁ SÍMII533 1Ö1Ö FAX 533 1617 SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK Ellert Róbertsson sölumaður Karl Gunnarsson sölumaður Jóhartnes Ásgairsson hJl., lögg. fasteignasali Minnismerkið vaktað ÞEIR létu fara vel um sig kálfarnir sem hreiðrað um sig við minnis- merkið um Eyvind Jónsson duggu- smið við Karlsá norðan Dalvíkur- byggðar. Kálfarnir höfðu raðað sér kringum minnismerkið og var eins og þeir væru að vakta það. Við Naustin á Karlsá var mikil skipa- og bátasmíðastöð á 18. öld, eins og segir á minnismerkinu. Stærst og frægast var haffært skip með hollensku lagi. Yfirsmiður og eigandi var Eyvindur Jónsson duggusmiður, f. 1678 d. 1746. Duggan fórst við land í ofviðri 1717. Himdur í óskil- um í Deiglunni HLJÓMSVEITIN Hundur í ósldl- um heldur tónleika í Deiglunni fimmtudagskvöldið 14. september. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Sig- valda Kaldalóns, Hallbjörn Hjartar- sson, Bubba Morthens, Keith Richards, Mick Jagger, Eirík Steph- ensen, Hjörleif Hjartarson, Ladda, Jónas Hallgrímsson og fleiri. Auk þess verða leikin áhættuatriði með blokkflautur og vínber, fluttir stuttir leikþættir og farið í leiki. Kálfar vakta minnismerkið við Karlsá norðan Dalvíkur. Morgunblaðið/Kristján Mjög góð tveggja herb. íb. á 1. hæð (jarðhæð) í litlu fjölb. með góðri suðvesturverönd. Áhv. byggingasj. ca 4,6 m. Verð 8 m. Eigandinn sýnir í kvöld frá kl. 20-22. Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar Góð þátttaka í viku símenntunar VIKA símenntunar tókst, að mati Katrínar Dóru Þorsteinsdóttur, íramkvæmdastjóra Símenntunar- miðstöðvar Eyjafjarðar, vel og sóttu margir þá viðburði sem boðið var upp á í liðinni viku, en dagskránni lauk á laugardag með því að fjölmargir þeir sem bjóða upp á fræðslu af ýmsu tagi buðu gestum og gangandi í heimsókn að kynna sér námsframboð sitt. Vinnustaðaheimsóknir tókust vel Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar stóð fyrir skipulagningu dagskrár viku símenntunar og er það íyrsta verkefni miðstöðvarinnar, en starf- semi hennar er nýlega hafin. Að sögn Katrínar tókust skipu- lagðar vinnustaðaheimsóknir einkar vel, en alls var farið í 23 slíkar heim- sóknir. í þeim tóku þátt m.a. full- trúar skóla og þeirra sem bjóða upp á nám eða námskeið af ýmsum toga. Farið var í þessar heimsóknir á vinnustaði á Akureyri og í þéttbýlis- kjörnum í Eyjafirði. „Þessar heim- sóknir hlutu góðan hljómgrunn og greinilegt að fólkið kunni að meta það að fá fræðslu um námsframboð á sínum heimavígstöðvum. Það geng- ur oft betur að fara til fólksins heldur en bjóða því að koma til sín,“ sagði Katrín. „Viðbrögðin við þessum heimsóknum voru góð og ég held að þær hafi skilað mestu eftir vikuna. Þriggja daga Nethátíð var haldin innan viku símenntunar og kynntu þá fjölmargir þeir sem bjóða net- þjónustu, fræðslu, fjarkennslu, nám- skeið eða annað þjónustu sína íyrir fólki og sagði Katrín marga hafa nýtt sér þau tækifæri sem gáfust og Morgunblaðið/Kristján Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntun- armiðstöðvar Eyjafjarðar, dreg- ur úr lukkupotti í Radíónausti við lok viku simenntunar. kynnt sér ýmislegt tengt Netinu. Einkum sagði hún að forsvarsmenn þeirra banka og peningastofnana sem þátt tóku hefðu verið ánægðir með þátttökuna. Skilaði sér vel Viku símenntunar lauk á laugar- dag með því að opið hús var í Menntasmiðjunni á Akureyri, Myndlistarskólanum, Punktinum, Reyni - ráðgjafastofu, Tölvufræðsl- unni, Verkmenntaskólanum á Akur- eyri og World Class. „Menn voru ánægðir með þátttökuna, hún var allt frá því að vera þokkaleg og til þess að vera mjög góð að mati þeirra sem að stóðu. I það heila tókst þessi vika vel og ég held hún hafi skilað sér betur en dagur símenntunar sem efnt var til í fyrra,“ sagði Katrín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.