Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 24

Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Borðdama eða ráðgjafi forsetans? Chelsea Clinton, dóttur Bandaríkjaforseta, er farið að skjóta upp við hlið föður síns við hin fjölbreytilegustu tækifæri og sýnist sitt hverjum. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að Hillary, móðir hennar, hafi í nógu að snúast í kosningabaráttu fyrir þingkosningar í New York-ríki í nóvember og Bill, faðir hennar, virðist alsæll með félagsskap dótt- urinnar, en ýmsir hafa gagnrýnt sífellt vaxandi hlutverk hennar. BANDARÍSKIR fjölmiðlar hafa fjallað nokkuð um frammistöðu Chelsea sem staðgengill móður sinnar. Hún þykir standa sig prýði- lega í veislum, en sumir velta því fyrir sér hvort það sé tilhlýðilegt að dóttir forseta fylgi honum í opinber- ar heimsóknir, sitji á hljóðskrafi við utanríkisráðherra fram á nótt, ræði alþjóðamál við helstu ráðgjafa föð- urins og hjálpi honum að skrifa ræð- ur. Það kom vart nokkrum manni á óvart að Chelsea stigi fram í sviðs- ljósið á síðustu mánuðum föður síns í embætti, en færri áttu líklega von á að hún baðaði sig jafn mikið og oft í því og raun ber vitni. í desember á síðasta ári var skýrt frá því að hún væri reiðubúin að taka sess móður sinnar við ýmsar opinberar athafnir í ár, enda var þá ljóst að Hillary yrði fjarri góðu gamni vegna eigin stjómmálabaráttu. Þá var hins veg- ar aðeins um það rætt, að Chelsea myndi hlaupa í skarðið þegar hún hefði tíma til og fæstir reiknuðu með að tvítugur nemandi við Stanford- háskóla hefði í raun mikinn tíma eða nennu til að gegna embættisverkum forsetafrúarinnar. Annað hefur hins vegar komið á daginn, enda virðist Chelsea líka svo vel sviðsljósið að hún hefur slegið frekara námi á frest fram yfir áramót. Hún skýtur upp kollinum við athafnir í Hvíta húsinu, ferðast með karli föður sín- um til Asíu, Suður-Ameríku og Af- ríku og verður líklega fulltrúi hans á Ólympíuleikunum í Ástralíu síðar í mánuðinum. Sameiningartákn fjölskyldunnar Chelsea lét lengi vel lítið á sér bera og forsetahjónin báðu fjölmiðla þess lengstra orða að gefa henni grið. Þau hikuðu hins vegar ekki við að draga hana fram í sviðsljósið þeg- ar sýna þurfti samheldni fjölskyld- unnar í miðju Monicu-fári, því þá var hún ljósmynduð á milli Bill og Hillary, sem virtust ekki geta litið hvort á annað. Chelsea var greini- lega límið sem hélt hröktandi stoð- um fjölskyldunnar saman. Hún lagðist í ferðalög með móður sinni á síðasta ári og fór með föður sínum til Kosovo, þar sem hún vakti mikla athygli. I mars á þessu ári fór Reuters Chelsea Clinton spjallar við Vladímír Pútín Rússlandsforseta á fundi átta helstu iðnrfkja heims í Japan í lok júlí. hún með honum til Indlands og þar var henni tekið með þvílíkum kost- um og kynjum að faðh- hennar lýsti undrun sinni í viðtölum við fjölmiðla, en taldi skýringuna helst vera þá að hún væri vel kynnt í landinu eftir ferðalag þangað með móður sinni. Innsti koppur í búri? Þegar Chelsea hafði sést við hlið föður síns við fjölmörg tækifæri fóru að heyrast raddir um að þessi tví- tugi háskólanemi hefði óeðlilega mikinn aðgang að trúnaðarmálum í Hvíta húsinu. Hún fór með föður sínum í eins dags ferð til Kólumbíu á dögunum, í tilefni þess að Banda- ríkin veita landinu aðstoð í barátt- unni gegn eiturlyfjum, og um borð í vélinni spjallaði hún lengi við Madeleine Albright utanríkisráð- herra og Sandy Berger, þjóðarör- yggisráðgjafa forsetans. Nokkrum dögum áður hafði hún ferðast með föður sinum, Berger og öðrum ráðgjöfum forsetans í opin- bera heimsókn til Nígeríu. Um borð í flugvélinni til Afríku sátu feðginin saman og lögðu lokahönd á ræðuna sem hann flutti nígeríska þinginu og fréttir bárust af því að hún hefði haft bein afskipti af tilraunum bandarískra yfirvalda til að binda enda á þjóðernisátök Tútsa og Hút- úa í Búrúndí. Hlutverk hennar sem gestgjafa í veislum var dregið í efa eftir samn- ingaviðræður ísraela og Palestínu- manna í Camp David í Bandaríkjun- um í júlí. ísraelskir embættismenn munu hafa verið ósáttir við að Chelsea hélt uppi stanslausum sam- ræðum við forsætisráðherra Israels, Ehud Barak, í kvöldverðarboði, svo enginn annar komst að. Ekki fylgir sögunni hvort Arafat Palestínuleið- togi bar einnig fram kvörtun af þessu tilefni. Vill upplifa söguna Siðameistarar segja ekkert óeðli- legt við að dóttir Bandaríkjaforseta sé borðdama hans í opinberum mót- tökum, því hlutverki hafi dætur for- seta eða aðrir kvenkyns ættingjar þeirra gegnt í gegnum tíðina. Hins vegar sé vafasamara að hampa dótt- urinni sem samstarfsmanni eða jafnvel ráðgjafa forsetans. Embætt- ismenn í Hvíta húsinu voru hins veg- ar hálf vandræðalegir þegar þeir voru beðnir að útskýra ræðuskrif feðginanna, en þvertóku fyrir að hún hefði nokkurn þann aðgang að trúnaðarupplýsingum að í voða stefndi. Chelsea mun sjálf vera hin lukku- legasta með gang mála og virðist ætla að fá sem mesta reynslu út úr síðustu mánuðum föður síns í emb- ætti, auk þess að leggja lóð sitt á vogarskálar móður sinnar í kosn- ingabaráttunni. Hún er sögð hafa áttað sig skyndilega á því að hún var að missa af einstöku tækifæri. I stað þess að fara í skóla og læra sögu væri nær að hún gerði hlé á náminu og upplifði söguna sjálf. Quick játar enn eitt morðið Þrándlicimi. Morgunblaðið. SÆNSKI fjöldamorðinginn Thomas Quick hefur játað að hafa myrt hinn þriggja ára gamla sænska dreng Magnus Nork árið 1981. Fyrr í sumar var hann dæmdur fyrir að myrða tvær norskar stúlkur, Trine Hen- sen og Gry Storvik. Nú stað- hæfir hann að hafa einnig tekið líf litla drengsins. Foreldrar Nork voru slegn- ir er þeir fréttu af játningu Quicks og sögðu í samtali við sænska daglbaðið Afton- bladet að þau hafi lifað í sorg í næstum tuttugu ár. „Nú segir Quiek nokkur orð um son okkar. Maður fær á til- finninguna að hann vilji játa á sig öll óuppgerð morðmál," sagði móðirin og bætti við að hún þráði aðeins að fá í eitt skipti fyrir öll að heyra sann- leikann í málinu. Eftir að drengurinn var myrtur var sautján ára stúlka grunuð um morðið. Hún var fundin sek en látin laus úr fangelsi ári síðar. „Hún hefur einnig þurft að þola helvíti öll þessi ár,“ sagði móðir dreng- ins. Thomas Quick hefur verið dæmdur fyrir sjö morð. Hann dvelur þó ekki í fangelsi þar sem hann hefur verið úr- skurðaður geðveikur. Þrjú fórnarlömb hans hafa verið norskar stúlkur. Arið 1981 var hin sautján ára gamla Trine Jensen myrt, árið 1985 hin 23 ára Gry Stor- vik og hin níu ára gamla Therese Johannessen árið 1988. Þá hefur Quick einnig játað að hafa myrt sjö ára gamla stúlku að nafni Marianne Rugaas Knutsen sem hvarf í ágúst árið 1981. Samfylkingin á Höfn, Klaustri og í Vík Miðvikudaginn 13. og fimmtudaginn 14. sept verða þingmennirnir Margrét Frímannsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Lúðvík Bergvinsson og Sigríður Jóhannesdóttir á ferð um austurhluta Suðurkjördæmis Á miðvikudaginn verða Framhaldskólinn í austur Skaftafellssýslu, Ráðhúsið , Skinney-Þinganes og Best-fiskur heimsótt á Höfn KL20.00 er félagsfundur í sal Vökuls, Víkurbraut 4, Höfn. Allt Samfylkingarfólk velkomið Á fimmtudag verða Klaustur og Vík sótt heim. Á Klaustri verður m.a. farið í hjúkrunarheimilið Klausturhólum, fundað með fulltrúum sveitarstjórnar og farið í Kirkjubæjarstofu. I Vík verða dvalarheimilið Hjallatún, Víkurprjón, Framrás og Klakkur heimsótt. Samfylkingin Ottast um örlög flóttamanna Lahore. Daily Telegraph. ÓTTAST' er nú um örlög allt að 150.000 manna sem talið er að flúið hafi frá Taloqan-héraðinu í Afgan- istan undan stjórnarher talebana að því er breska dagblaðið Daily Tel- egraph greindi frá í gær. Sagði blaðið fulla ástæðu til að óttast að mikið mannfall gæti orðið meðal flóttamannanna á næstu vikum. Flóttamennirnir eru flestir frá borginni Taloqan, en íbúar hennar sem voru um 100.000 talsins, flúðu flest allir er er hersveitir talebana tóku borgina í upphafi síðustu viku eftir sex vikna umsátur. Talið er að stórir hópar flóttamannanna kunni að halda yfir Pamir fjöllin inn í Tajikistan og hefur það vakið ótta um stöðugleika í ríkinu, þar sem flóttamannastraumurinn geti valdið uppreisn meðal múslima í Tajikist- an. Þúsundir flóttamanna úr ná- grenni Taloqan slógust í för með þeim sem flúðu borgina og er því talið að allt að 150.000 manns hafi haldið norður eftir Takhar hér- aðinu, í gegnum Badakhshan-hér- aðið, á leið sinni að landamærum Afganistan og Tajikistan. Um 80.000 flóttamenn hafa nú þegar náð til smábæjanna Keshim og Dashti-i Quila í norðurhluta Takhar. Evrópskir hjálparstarfsmenn hafa undanfarna daga reynt að að- stoða þann mikla fjölda flóttamanna sem nú dvelja í bæjunum þó skortur á matarbirgðum, lyfjum og tjöldum hamli mjög starfi þeirra. „Hér eru mörg ung börn sem þjást af malar- íu, niðurgangi og lungnabólgu," sagði einn hjálparstarfsmaður. Herir talebana hindra hins vegar aðgang Sameinuðu þjóðanna og annarra hjálparstofnana að hér- aðinu og er m.a. lokað fyrir umferð um alla vegi. „I kjölfar þeirra miklu þurrka sem hafa verið á svæðinu í sumar og með veturinn á næsta leiti kunna þúsundir manna að deyja á næstu vikum. Heimurinn virðist með öllu ómeðvitandi um það mikla hættu- ástand sem hér ríkir,“ hafði Daily Telegraph eftir einum starfmanna hjálparstarfsins. Óttast blóðbað Þó Mullah Omar, leiðtogi taleb- ana, hafi bannað mönnum sínum að myrða óbreytta borgara óttast hjálparsveitir engu að síður um líf flóttamannanna. Flestir tilheyra flóttamennirnir nefnilega minni- hlutaþjóðflokkum og trúarhópum sem ekki njóta vinsælda meðal talebana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.