Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 25

Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 25 CAPUT á æfingu undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Morgunblaðið/Kristinn Þrjú ný verk á örhátíð CAPUT og M-2000 CAPUT og M-2000 standa á næstu dögum fyrir tvennum tónleikum, sem saman mynda svokallaða örhá- tíð. Fyrri tónleikarnir verða í Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld kl. 20.00 en hinir síðari í Norræna húsinu nk. sunnudag kl. 17.00. Á efnisskrá tónleikanna í Salnum í kvöld eru þrjú ný verk: Surround- ed eftir færeyska tónskáldið Sunleif Rasmussen, Septett eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Object of Terror eftir Átla Ingólfsson. Um Sunleif Rasmussen segir í fréttatilkynningu: „Sunleif er fædd- ur í Færeyjum árið 1961 en er um þessar mundir búsettur í Dan- mörku. Hann er sennilega, að öðr- um ólöstuðum, athygliverðasta tón- skáld Færeyinga um þessar mundir, hefur samið fjölda kór-, hljómsveitar- og kammerverka sem vakið hafa verðskuldaða athygli og verið flutt víða um heim. Heinesen færeyskrar tónlistar í verkum Sunleifs gætir fær- eyskra stemmninga, ljóðrænu en einnig mikils krafts og skáldagáfu. Hljómheimurinn er á einhvern hátt impressjónískur, dramatískt ágeng- ur en í fallegu jafnvægi. Mörg verka Sunleifs eru samin í kringum texta William Heinesens og er stundum talað um hann sem Heinesen fær- eyskrar tónlistar. CAPUT pantaði Surrounded frá Sunleif með stuðn- ingi Norræna tónlistarráðsins, NOMUS, fyrir tónleika hópsins á M-2000. Verkið er skrifað fyrir 14 hljóðfæraleikara sinfóníettu, n.k. smækkaða mynd af sinfóníuhljóm- sveit og verður frumflutt á tónleik- unum á miðvikudagskvöld. CAPUT og Sunleif hyggja á frekara sam- starf því til stendur að CAPUT- hljóðriti geisladisk með verkum Sunleifs fyi-ir sænska hljómplötu- fyrirtækið BIS á næsta ári.“ Fimm verk pöntuð með stuðningi M-2000 Septett Hróðmars Inga Sigur- björnssonar hefur einungis einu sinni áður verið fluttur á tónleikum, n.k. verkstæðistónleikum CAPUT í júní á síðasta ári, en hann er saminn á árunum 1997-1998 fyrir hópinn. Verkið er nú komið út á geisladiski ásamt öðru verki eftir Hróðmar, Stokkseyri, þar sem _ Sverrir Guð- jónsson syngur ljóð Isaks Harðar- sonar með CAPUT. Geisladiskurinn með verkunum tveimur er gefinn út af íslenskri tónverkamiðstöð. Verk Atla Ingólfssonar, Obejct of Terror, er eitt fimm verka sem CAPUT hefur pantað á árinu 2000 með stuðningi Reykjavíkur, Menn- ingarborgar Evrópu árið 2000. Atli, sem lengi hefur verið búsettur á Italíu, lauk við verkið þar fyrir nokkrum vikum og verður það frumflutt á tónleikunum. Object of Terror er, eins og verk Sunleifs, samið fyrir 14 hljóðfæraleikara sinfóníettu. Eftirtaldir CAPUT-félagar koma fram á tónleikunum í Salnum í kvöld: Auður Hafsteinsdóttir, Bryn- dís Halla Gylfadóttir, Brjánn Inga- son, Eiríkur Örn Pálsson, Emil Friðfinnsson, Eydís Franzdóttir, Guðmundur Kristmundsson, Guðni Franzson, Hávarður Tryggvason, Rannsóknarkvöld í Skólabæ FÉLAG íslenskra fræða gengst fyr- ir opinberum fyrirlestrum eða svo- nefndum rannsóknarkvöldum í Skólabæ í vetur eins og verið hefur. Fyrsta erindið er á dagskrá í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Þá flyt- ur Gottskálk Þór Jensson fyrirlestur sem nefnist „Recensus, Conamen, Idea, Specimen, Apparatus sive Sciagraphia? - Hugmyndin að ís- lenskri bókmenntasögu". Fyrirlest- urinn er öllum opinn og allir hjartan- lega velkomnir. Fundarstjóri er Örn Hrafnkelsson. Helga Bryndís Magnúsdóttir, Hildi- gunnur Halldórsdóttir, Kolbeinn Bjarnason, Sigurður Bjarki Gunn- arsson, Sigurður Þorbergsson, Steef van Oosterhout en stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Skoskur píanóleikari og kanadískur fíðluleikari Á síðari tónleikum örhátíðarinnar í Norræna húsinu á sunnudag koma fram skoski píanóleikarinn James Clapperton og kanadíski fiðluleik- arinn Sharleen Harshenin. Þau koma hingað í samvinnu við menn- ingarborgina Bergen í Noregi, þar sem þau búa og starfa. LIÐ-AKTÍN Góð fæðubót fyrir fólk sem er með mikið álag á liðum Eilsuhúsið Skólavörðuatig, Kringlunni & Smáratorgi Fyrirlestur í Odda STOFNUN Dante Alighieri í sam- vinnu við Háskóla íslands stendur fyrir fyrirlestri í kvöld, miðvikudags- kvöld kl. 20.30 í húsakynnum Há- skólans, Odda. Ber fyrirlesturinn heitið L’awenire del romanzo é il suo passato. Gestur fyrirlestrarins er Massimo Rizzante, prófessor við Háskólann í Trento á Italíu og mun hann rekja upptök og framvindu skáldsögunnar með hliðsjón af smá- sagnasafni ítalans Giovanni Boccaccio, Decameron/Tvídægru. Eftir flutning Rizzantis verður meg- inkjarni fyrirlestrarins lesinn í ís- lenskri þýðingu. Lœstir stálskápar fyrir fotnaðog persónulega UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN aa AUÐBREKKU 1 200 KÓPAVOGI SIMI: S44 5330 FAX: 544 5335 I www.straumur.is~l g I Eldj ár nsfeðgar spinna með Finnum ELDJÁRNSFEÐGARNIR Þór- arinn og Kristján stilla saman list- ræna strengi ljóðs og gítars í dag- skrá, sem nefnist „Poetry Guitar“ og er í samvinnu við listamenn í café9.net í Helsinki, í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag, miðvikudag, kl. 17. íslensku listamennirnir verða í Reykjavík og þeir finnsku í Helsinki og fyrir tilstuðlan fjarskiptatækja- búnaðar, sem tengir borgirnar sam- an, verða úr sameiginlegir tónleikar sem varpað verður á fimmtíu fer- metra sýningartjald í fjölnotarými Hafnarhússins. Finnsku listamenn- irnir, sem fram koma, eru mjög þekktir í sínu heimalandi, en þeir eru meðal annarra DJ Bunuel og hinn kunni djassisti Arrtu Pakalo víbrafónleikari. Þessi fyrirfram skipulagði spuni er ekki það eina sem tengir menningarborgirnar Helsinki og Reykjavík saman í café- 9.net, því í næstu viku, 20. septem- ber, hefur finnski forsetinn boðað til blaðamannafundar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi fyrir ís- lenska og finnska blaðamenn þar sem fjarskiptatækni og umhverfi café9.net verður nýtt. Íslandssími og Skjáreinn eru samstarfsaðilar café9.net í Reykja- vík. Fyrirlestur um goð- sögnina um Baldur DR. JOHN Lindow, prófessor í noiTænum fræðum og þjóðfræð- um við Kalifomíuháskólann í Berkeley, flytur opinberan fyrir- lestur um goðsögnina um Baldur og túlkanir á henni í Þjóðarbók- hlöðunni, á morgun, fimmtudag, fæðingardegi dr. Sigurðar Nor- dals, kl. 17.15. Fyrirlesturinn er í boði Stofnun- ar Sigurðar Nordals. Hann verður fluttur á ensku og nefnist: „When disaster struck the gods: Baldr in Scandinavian mythology." TIL SÖLU STÁLGRINDARHÚS FOSSALEYNIR GRAFARVOGI Nýtt glæsilegt 1900 fm stálgrindarhús með 2 sambyggðum Þjónustubyggingum. Húsið samanstendur af 1200 fm sal, með 10 metra lofthæð. önnur Þjónustubyggingin er 500 fm fullbúið skrif- stofuhúsnæði á 2 hæðum. Hin byggingin er 200 fm skemma með 6 metra lofthæð og tveimur 5 metra háum innkeyrsludyrum. Húsið stendur á 14.300 fermetra lóð me>ð frábæru útsýni yfir golf- völlinn á Korpúlfsstöðum, laxveiðiá á landamörkum. Hentar vel fyr- ir ýmsan rekstur t.d. heildsölu, lager, (þróttahús og fl. Fullbúin eign til afhendingar strax. Nánari upplýsingar veitir Jón Sandholt Sérhæfð fasteigna- sala fyrir atvinnu- og skrifstofuhúsnæði STÓREIGN FASTEIGNASALA Austurstræti 18 sími 55 - 12345 ff er hjá okkur éÍAyXA,vLm/jíA' ___Ujhj.uj.. G L Æ S I B Æ www.oo.ls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.