Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 46

Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR t Eiginmaður minn, JÓN SIGURGEIRSSON frá Helluvaði, lést á hjúkrunarheimilinu Seli mánudaginn 11. september. Ragnhildur Jónsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, GUÐMUNDUR RÚNAR BJARNLEIFSSON, Raufarseli 9, sem lést miðvikudaginn 6. september sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 14. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta líknardeild Landspítalans í Kópavogi njóta þess. Ása Sólveig Þorsteinsdóttir, Maria Guðmundsdóttir, Guðmundur Valur Sævarsson, Áslaug Guðmundsdóttir, Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, Guðlaugur Guðmundsson, Þórey Birgisdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EYVINDUR ÁRNI ÁRNASON, áður Grímsstöðum, Grímsstaðaholti, sem lést mánudaginn 4. september, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 14. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Anna María Guðmundsdóttir, Árni Eyvindsson, Hanna Eyvindsdóttir, Gunnar B. Gunnarsson, Eyvindur Árni, Ólafur Ægir og Sæunn Birta. t Ástkær móðir mín og tengdamóðir, INGIBJÖRG REBEKKA JÓNSDÓTTIR sjúkraliði, Rauðagerði 65, verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 15. september kl. 13.30. F.h. systkina og annarra ættingja, Ingibjörg R. Guðjónsdóttir og Ólafur J. Gunnarsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR HAFDÍSAR ÁGÚSTSDÓTTUR, Hlíðarvegi 45, Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Siglufjarðar. Sjöfn Stefánsdóttir, Rögnvaldur Þórðarson, Ágúst Stefánsson, Aðalbjörg Þórðardóttir, Andrés Stefánsson, Guðný Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför okkar elskulegu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, frá Krossavík í Þistilfirði. Ásdís Árnadóttir, Rósbjörg Halldóra Jónasdóttir, Birgir Sveinbjörnsson, Sigurður Óskar Jónasson, Hulda Björk Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. KRISTJANA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR + Kristjana Guð- rún Jónsdóttir fyrrverandi hús- freyja að Botni í Súg- andafírði, fæddist á Suðureyri 7. nóvem- ber 1909. Hún lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Isafirði 26. ágúst siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Suðureyr- arkirkju 2. septem- ber. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor því hún var mild og máttug og minnti á jarðneskt vor. (D. Stefánss.) Þegar ég kveð mína kæru Sjönu frænku koma margar minningar í hugann, hún var alltaf svo kát og hress. M áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sái. (Grétar Felis) Sjana frænka var einstaklega kát og hláturmild kona, sem alltaf geislaði af gleði. Hún var í mínum huga kona sem stráði í kringum sig hlýju og birtu til samferða- fólksins. Það var alltaf jafn gaman að koma við hjá henni í Botni og eins eftir að þau Berti fluttu á Hjallaveginn, að skoða hjá henni myndir og drekka hjá henni kaffisopa. Eg tala nú ekki um að fá hjá henni að- albláber og rjóma. Alla tíð á meðan hún bjó í Botni kom frá henni box með aðalbláberjum til pabba á af- mælisdaginn hans, 24. ágúst. Þá vissum við að berin væru orðin þroskuð og hægt væri að fara í berjamó. Sjana var félagslynd kona og tók virkan þátt í starfi kvenfélagsins Arsólar á Suðureyri. Hún lét ekk- ert aftra sér frá því að sækja fundi þótt hún byggi meira en 10 km í burtu frá fundarstað. Hún átti líka t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, RAGNHEIÐUR BÖÐVARSDÓTTIR, frá Minniborg í Grímsnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 10. september. Kveðjuathöfn fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 19. september kl. 10.30. Jarðsett verður frá Stóruborgarkirkju kl. 15 sama dag. Böðvar Stefánsson, Ingunn Stefánsdóttir, Ólöf Stefánsdóttir, Áslaug Stefánsdóttir, Hörður Stefánsson, Sigrún Stefánsdóttir, Hulda Stefánsdóttir, Kristrún Stefánsdóttir, Arnheiður Helgadóttir, Guðmundur Jónsson, Einar Einarsson, Halldóra Haraldsdóttir, Halldór Einarsson, Sigurþór Sigurðsson. t Við færum öllum innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og kærleika við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HARALDAR PÁLSSONAR húsasmíðameistara, Hverafold 70, Reykjavík, sem lést a liknardeild Landspítalans 30. ágúst og var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 7. september sl. Þórdís Halldóra Sigurðardóttir, Hjörtur Haraldsson, Haukur Páll Haraldsson, Erla Haraldsdóttir, Auður Haraldsdóttir, Sigurður Jóhannsson, Jónína Jóhannsdóttir, Anný Dóra Hálfdánardóttir, Marilee Williams, Magnús Hreggviðsson, Atli Már Sigurðsson, Áslaug Jóna Sigurbjörnsdóttir, Loftur Eyjóifsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra, ÞORGILS ÞORGILSSONAR, Hrísum, Fróðárhreppi, Ólafsvfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Fransiskus- spítalans í Stykkishólmi og dvalarheimilisins Jaðars í Ólafsvík. Hermann Þorgilsson, Una Þorgilsdóttir, Anna Þorgilsdóttir, Sveinn Ólafsson, Ólafur Sveinsson og fjölskylda, Kristlaug Sigríður Sveinsdóttir og fjölskyida. margar frásagnir í blaði kvenfé- lagsins. Hún var heiðursfélagi Ár- sólar. Vinnudagur Sjönu var oft langur og margt var að gera á stóru heimili. I eldhúsinu var prjónavélin hennar svo hún gat nýtt hverja stund sem gafst til að gn'pa í hana. Nú er lífsklukkan hennar Sjönu frænku útgengin, ég þakka henni samfylgdina og kveð hana með ljóði frænda okkar, Friðriks Guðna Þór- leifssonar. Þau Ijós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur en dauðans dómur fellur, dóm sem enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfí ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. Sigrún Sturludóttir frá Súgandafírði. 2. september var jarðsungin í Suðureyrarkirkju góð vinkona mín, hún Sjana í Botni. Hana Sjönu er ég búinn að þekkja frá því að ég var lítill dreng- ur og fór í sveitina til ömmu minnar og afa í Botni. Sjana bjó í neðri bænum í Botni og alltaf var maður velkominn og vel var tekið á móti öllum sem hana heimsóttu. Eg gleymi aldrei sykursteikta silungnum sem hún eldaði fyrir okkur smalamennina þegar við vor- um búnir að ganga inn allan fjörð- inn. Sjana var alltaf hress og kát og þegar við strákarnir stofnuðum hljómsveit í sveitinni 10 og 12 ára gamlir þá var það Sjana sem fyrst mætti á hlöðuballið sem við héld- um. Einnig núna í sumar lét hún sig ekki vanta á Sæluhelgina þó að hún kæmist ekki hjálparlaust, hún ætlaði bara að láta stjana við sig og láta keyra sig um í hjólastól. Sjana var söngelsk og mikið þótti henni vænt um lagið sem ég samdi við eitt ljóða eiginmanns hennar Friðberts Péturssonar. Elsku Sjana mín, ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem þú gafst mér. Minningin um þig lifir. Ævar Einarsson. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda grein- arnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakl- ing birtist formáli, ein uppi- stöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðn- ir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.