Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 54

Morgunblaðið - 13.09.2000, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 IDAG MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Athugasemd FRAMKVÆMDASTJÓRI Lands- samtaka sauðfjárbænda gerir í Morgunblaðinu í dag [þriðjudag] grófa atlögu að Baugi og verð- myndun þar með rakalausum ósannindum. Framkvæmdastjór- inn heldur þar fram að álagning Baugs á frosnu lambalæri án hæk- ils sé 108%. Þetta er fjarri sanni. í Morgunblaðinu 29. ágúst kom fram leiðrétting frá undirrituðum á eigin ummælum sem fram komu í viðtali í Morgunblaðinu 27. ágúst. I leiðréttingunni fólst að undirrit- aður hafði farið rangt með kílóverð á lambalæri en átt var við verðlag í * Færeyjum en ekki á íslandi. Það hlýtur að teljast til tíðinda að sjálfur framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda haldi því fram að innkaupsverð verslana á frosnum lambalærum án hækils sé 400 kr./kg á íslandi. Betur væri að sú staðreynd ætti við fyrir íslenska neytendur. Verðlistaverð Sláturfélags Suður- lands, svo dæmi sé tekið, er 741 kr./kg í dag. Smásöluverð er nú 989 kr/kg. m. vsk. Heildsöluverð á sömu vöru var 688 kr./kg. vorið 1999. Hækkun á verðlistaverði af- urðastöðva er því 7,7% á þessu tímabili. Afsláttakjör Baugs hafa ekki aukist á þessum tíma og er inn- kaupsverð Baugs á bilinu 670-680 kr. /kg. í dag. Álagning Baugs á frosnu lambalæri er því innan við fjórðungur af því sem fram- kvæmdastjórinn fullyrðir að hún sé og væri hann maður að meiri ef hann bæðist opinberlega afsökun- ar á rangfærslum sínum. Kveðja, Jón Asgeir Jóhannesson forstj. Baugs Námskeið í Felden- krais-aðferð NÁMSKEIÐ í Feldenkrais-aðferð verður haldið helgina 16. og 17. sept- ember í sal Tónlistarskólans í Reykjavík, Laugavegi 178, 4. hæð (Stekk). Leiðbeinandi er Sibyl Urb- ancic. Þrjár kennslustundir verða hvorn dag: kl. 10-11.30, kl. 12,- 13.30 og kl. 14.30-16. Námskeiðið sem fer fram á íslensku er opið öllum, byrj- endum sem lengra komnum, segir í fréttatilkynningu. Upplýsingar og skráning á skrif- stofu Félags íslenskra hljómlistar- manna. Feldenkrais-aðferðin er kennsluaðferð sem notar kerfi líkamshreyfinga til að bæta meðvit- und um beitingu líkamans. Dr. x Moshe Feldenkrais var verkfræðing- ur og eðlisfræðingur. Árangurslaus leit hans að lækningu við þrálátum hnjámeiðslum leiddi til þess að hann fór að athuga hreyfingar og hreyfi- mynstur líkamans og möguleikana á að breyta þeim, segir í tilkynning- unni. Honum tókst að ráða bót á hnjámeiðslun- um en lét ekki þar við sitja held- ur hélt áfram ævilangt að þróa þá aðferð sem við hann er kennd og stunduð er víða um heim. Námskeiðið er byggt á hóp- kennslu-aðferð Feldenkrais, Aware- ness through Movement (skynjun gegnum hreyfingu). Þetta er kerfi einfaldra hreyfinga sem henta öll- um. Þær eru gerðar hægt og þægi- lega, án sársauka, eftir leiðbeining- um kennarans. Hver og einn athugar hreyíi- og stöðuvenjur sín: ar með hjálp leiðbeinandans. I hverjum tíma er eitthvert hreyf- ingamynstur tekið fyrir og í lok tímans eru umræður. Heilsudagar fyrir karl- menn í Vatnaskógi HELGINA 15.-17. september efna Skógarmenn KFUM í fyrsta sinn til heilsudaga fyrir karlmenn í . Vatnaskógi. Helgin er hugsuð fyrir karlmenn, 17 ára og eldri, sem vilja efla heilbrigði sitt til líkama, sálar og anda. Dagskráin tekur mið af þessu og er áhersla lögð á heilsusamlega hreyfingu, hollt og gott fæði, nær- ingu fyrir sál og anda og vinnu í þágu Vatnaskógar. Verkloka Birki- skála verður minnst á laugardags- kvöldinu og í kjölfarið ganga menn að veisluborði og hátíðarkvöld- vöku með lifandi tónlist og fjöl- breyttri dagskrá fram eftir kvöldi. Á sunnudeginum verður farið í vettfangsferð í Skorradal og end- að með helgistund í Fitjakirkju. Verð er kr. 2.900 og fer skráning fram hjá KFUM. Dagskrána má sjá á slóðinni www.kfum.is. Kynning á starfsemi í Gjábakka og Gullsmára STARFSEMI í Gjábakka, Fann- j. borg 8 og Gullsmára, Gullsmára 13, sem eru félagsheimili í Kópavogi sérstaklega ætluð eldra fólki, verður kynnt dagana 13. september í Gull- smára og 14. september í Gjábakka og hefst kynningin báða dagana kl. LEIÐRÉTT Vísa Káins Lesandi hringdi og benti á að rangt hefði verið farið með vísu Ká- ins í pistlinum Hugsað upphátt, sem * birtist síðastliðinn sunnudag. Rétt ervísansvona: Af langri reynslu lært ég þetta hef: að láta Drottin ráða meðan ég sef. En þegar ég vaki, þá vil ég sjálfur ráða, og þykist geta ráðið fyrir báða. Beðist er velvirðingar á þessum - mistökum. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi kynnir fyrirhugaða starfsemi og margir áhugamannahópar kynna sína starfsemi. Frístundahópurinn Hana-nú, sem er hluti af félags- starfi eldra fólks í Kópavogi og hef- ur það meginmarkmið með starf- semi sinni að breyta viðhorfum til þess að verða og vera gamall, mun kynna fjölbreytta starfsemi og fé- lagsheimilin kynna það félags- og menningarlíf sem í boði verður á vegum félagsstarfsins. Ýmsar nýj- ungar í handmennt verða kynntar svo sem japanskur pennasaumur, leirmótun, nýjungar í kortagerð o.fl. Þátttökuskráningar verða á kynningardögum m.a. á fyrirhuguð námskeið o.fl. Fólk á öllum aldri er hvatt til að mæta og fylgjast með hvað er að gerast í félagsstarfinu í Kópavogi. Heitt verður á könnunni og heimabakað meðlæti selt á vægu verði. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Dvöl - dagvist í Kópavogi MIG langar að segja frá Dvöl í Kópavogi, sem er dagheimili í Reynihvammi 34. Dvöl er fyrir fólk sem er með slæmsku á taugum og jafnframt fyrir fólk sem er í andiegri þvingun. Þarna er dásamlegt starfsfólk sem styður og styrkir andlega og líkamlega og gefur mik- ið af sér, er yndislegt og hlýtt. Þetta heimili býður upp á mat og kaffi, alls kon- ar föndur og fær fólk til þess að vinna að sínum áhugamálum, mála, pijóna, teikna og svo framvegis. Stuðningsaðilar frá Rauða krossinum eru þarna og fagfólk. Ég vill benda fólki á að banka upp á og segja bara góðan daginn. Það er tekið vel á móti öllum. Þarna er opið frá 9-16 virka daga og allt fólkið sem þarna dvelur eru gest- ir og margir hverjir hafa komist út á vinnumarkað- inn, sem þarna hafa dvalið. Verslunin Cartis Mig langar að senda versl- uninni Cartis í Hamraborg 1 mínar bestu kveðjur fyrir frábæra þjónustu og kurt- eisi sem maður finnur orðið sjaldan í verslunum. Jafn- framt er verðinu haldið í lágmarki, þannig að maður verður alveg undrandi. Eigandi Cartis og starfs- fólk á heiður skilið. Ransý. Hræfuglar! ÞAÐ var vægast sagt furðulegt að sjá fjölda af „rauðum og róttækum" Stalínistum mæta til að mótmæla glæpaverkum Li Peng. Stalin reyndi að svið- setja fólsuð réttarhöld, þar sem Islendingar voru með- al gesta og hafðir að fíflum samkvæmt venju! Auk þess hurfu menn hundruðum og þúsundum saman og voru drepnir bæði heima og í hernumdu löndunum. íbúarnir voru vissulega með eins konar band fyrir munninum í áratugi. Þorðu aldrei að tjá sína skoðun og eru ýmsir þvingaðir í þessu tilliti ennþá t.d. í Eystra- saltsríkjunum. íslenskir námsmenn í A-Þýskalandi og Tékkóslóvakíu upplifðu allir rækilega hræðslu þagnarinnar, en heim- komnir gerðust þeir samt blysberar kommúnismans og ættu að skammast sín talsvert. Þegar þeir reyna að mæta til slíkra mótmæla til að næla sér í syndakvitt- un, verðskulda þeir orðið „Hræfuglar". Gamall fyrrv. gjaldkeri Heimdallar. Flugbreyting NÚ hefur verið endumýjuð austur-vestur flugbrautin í Reykjavík og næst á dag- skrá mun vera endurnýjun norður-suður brautarínnar. Auk þess hefur verið lýst yfír því, að flugbrautir verði lagðar í nágrenni þéttbýlis fyrir kennslu og ferjuflug. Margir hafa lagt orð í belg um þessar fram- kvæmdir enda mikið í húfí. Það hlýtur að vera þægi- legt fyrir flugfólk að hafa flugbrautir þvers og kruss í höfuðborginni þótt þægind- in séu óheyrileg fyrir fjölda fólks sem býr nálægt brautunum. Iskyggileg er sú endemis vitleysa, að nauðsynlegt sé vegna flug- öryggis, að flugvélar skríði yfír helstu stofnanir þjóð- arinnar um aldur og ævi. Nú er tækifæri til að slá tvær, eða jafnvel þrjár flug- ur í einu höggi. Hættum við fyrirhugaða norður-suður flugbraut í mýrinni. Leggj- um brautina þar sem kennsluflugvöllurinn á að koma, hvort sem það verð- ur í Kapelluhrauni eða ann- ars staðar. Verður þá unnt að lenda þar í þau fáu skipti, sem ekki verður hægt að lenda á austur- vestur brautinni nýju. Það þarf ekki að fjölyrða um tækifærin sem skapast, t.d. fæst landrými fyrir Há- skóla Islands og Landspít- ala, einnig hið nýja óska- barn þjóðarinnar, Islenska erfðagreiningu og marga aðra, bæði fyrir sunnan og norðan Reykjavíkurflug- völl. Vandræðalaust verður að leggja veg frá Hring- braut að nýrri íbúðarbyggð í Skerjafirði. Er þetta ekki lausn fyrir næstu ár eða áratugi, sem margir verða álíka óánægðir með, eða jafnvel langflestir ánægðir með? Ibúi við Sóleyjargötu. Lýsing Bergsins NJARÐVÍKINGUR hafði samband við Velvakanda og langaði að óska Keflvík- ingnum Steinþóri Jónssyni, höfundi listaverksins Bergsins, svo og öðrum Reyknesingum til ham- ingju með eitt glæsilegasta listaverk landsins. Pollý er týnd POLLÝ er dökkbröndótt læða og hvarf frá Hallveig- arstíg, föstudaginn 1. sept- ember sl. Hún er með bleik/ rauða ól, merkisspjald og flóaól. Hún er nýflutt og því miður gleymdist að breyta heimilisfanginu og síman- um á merkispjaldinu. Þeir sem hafa séð til hennar vinsamlegast hafið sam- band í síma 562-4150 eða 699-7663 eða hafið sam- band við Kattholt í síma 567-2909. Pollýjar er sárt saknað. SKÁK llmsjón Ilelgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Staðan kom upp í bráða- banaeinvígi danska stór- meistarans Lars Schandorff (2520), svart, og finnska al- þjóðlega meistarans Aleksei Holmstein (2383) í fyrstu umferð Svæðamóts Norður- landa sem senn fer að ljúka í húsakynnum Taflfélagsins Hellis. 16...Re2+! 17.KÍ2 17.Bxe2 var ekki heldur áferðafallegt sökum t.d. 17.. .Dxe3+ 18.HÍ2 Bd4. 17.. .Rxf4! 18.Df3 Rxd3+ 19.cxd3 Dxb2+ 20.Kgl Be6 21.Habl Dxa2 Svartur er með betri stöðu og þrem peðum yfir sem hann nýtti sér örugglega til sigurs nokkru síðar. Svæðamót Norðurlanda heldur áfram 13. september kl. 17:00 í félagsheimili Tafl- félagsins Hellis, Þangbakka 1, Mjódd. 3. umferð, bráða- banaeinvígi. Áhorfendur eru velkomnir. COSPER Mamma, páfagaukurinn gleypti segulstálið mitt. Víkverji skrifar... AÐ er kunnara en frá þurfi að segja að ein árangursríkasta aðferð til að selja vöru er að höfða til barna. Þess vegna beina auglýs- endur í auknum mæli auglýsingum til barna og unglinga. Hugmyndin er sú að fá börnin til að nauða í for- eldrum sínum um að kaupa eitthvað í trausti þess að foreldrarnir gefist upp og kaupi það sem auglýst er. Víkverji þekkir af eigin raun hversu þessi sölumennska er árangursrík. Fyrir stuttu var hringt heim til Víkverja. í símanum var kona sem spurði hvort bjóða mætti syni Vík- veija að vera viðstaddur sjónvarps- upptökur á bamaþætti á Stöð 2. Víkveiji varð nokkuð undrandi á þessu óvænta boði en þáði að sjálf- sögðu boðið fyrir hönd sonarins. Þegar sonurinn kom heim úr skól- anum varð hann að vonum glaður og spenntur vegna fyrirhugaðrar sjónvarpsupptöku. Daginn eftir fór hann strokinn og greiddur í skólann í betri fötunum en sjónvarpsstöðin hafði verið svo höfðingleg að bjóð- ast til að sækja piltinn í skólann og skila honum heim. Drengurinn kom sæll og glaður heim með skólatösk- una á bakinu og sagði foreldmm sínum stoltur frá nýrri lífsreynslu. Foreldrarnir hlustuðu glaðir á en minntu piltinn unga siðan á að huga að heimalærdóminum. Og hvað kemur þá ekki upp úr töskunni! Bréf frá Stöð 2 þar sem segir: „Handhafi þessa gjafabréfs fær 1 mánuð í áskrift að Stöð 2 hjá Is- lenska útvarpsfélaginu hf. Áskrift- ina ber að nýta fyrir 1. mars 2001.“ xxx ETTA vinsamlega bréf hefur valdið talsverðu uppnámi á annars friðsælu heimili Víkverja. Ekki skal efast um að tilgangur sjónvarpsstöðvarinnar var góður. Stöðin hefur sjálfsagt viljað leysa gesti sína út með gjöfum eins og gert er á bestu bæjum. Umræða um bréfið á heimili Víkverja fór hins vegar fljótlega út í þann farveg að sonurinn krafðist þess með tals- verðri festu að fjölskyldan gerðist áskrifandi að Stöð 2 til frambúðar. Hann benti á að allir kunningjar hans væru með Stöð 2 og þar væru miklu skemmtilegri teiknimyndir en á Ríkissjóiivarpinu. Víkverji hafði hins vegar nýverið ákveðið að taka mið af tilmælum þjóðhagsstofustjóra og seðlabanka- stjóra og beita auknu aðhaldi í rekstri heimilisins, þ.e. að spara. Heldur þunglega var því tekið í ósk sonarins. Hann hefur hins vegar erft þrautseigju föður síns og krafð- ist með enn meiri þunga að fá Stöð 2. Víkverji gaf á endanum afsvar sem aftur kallaði á upphrópanir og óvinsamleg ummæli sonarins. Þar kom að eiginkona Víkverja blandaði sér í málið með þessari meinlegu athugasemd: „Ég skil nú ekki af hverju þú getur ekki látið þetta lít- ilræði eftir drengnum; maður sem er nýbúinn að kaupa bíl fyrir mörg hundruð þúsund." Af þessu tilefni vill Víkverji taka fram eftirfarandi: Víkverja hefur nú verið þröngvað í þá stöðu að þurfa að velja á milli annars vegar grundvallarsjónarmiða sem hann hefur sett í rekstri heimilisins og uppeldi sonarins og hins vegar heimilisfriðar. Eins og vænta má er það heimilisfriðurinn sem ræður gerðum Víkverja eins og svo oft áð- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.