Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 58

Morgunblaðið - 13.09.2000, Side 58
58 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Forvitnilegar bækur HENRY McDONALD Nauðugur á vegi sátta? Trimble eftir Henry McDonald. Bloomsbury gefur út. London, 2000.326 bls. GJARNAN er talið að David 4Trimble, forsætisráðherra heima- stjómar á Norður-írlandi, hafi tryggt sér leiðtogaembættið í stærsta flokki sambandssinna í héraðinu (UUP) haustið 1995 í krafti þeirrar hörðu afstöðu sem hann tók þá um sumarið þegar Drumcree-gangan svokallaða, umdeild ganga Oraníu- reglunnar í gegnum hverfi kaþólskra í Portadown, varð í fyrsta skipti for- síðuefni dagblaða á Bretlandi og Ir- landi. Trimble er þar af leiðandi verð- ugt viðfangsefni ævisögu. Bæði er fróðlegt að kynnast því hvað á daga Trimbels, sem er hálfsextugur, dreif fram til 1995 og eins að leita skýringa á því hvemig hann fór frá því að vera uppáhald harðlínumanna (og mar- tröð þeirra sem vildu leita sátta milli kaþólikka og mótmælenda) árið 1995 til þess að vera forystusauður sam- stjómar kaþólskra og mótmælenda árið 1998. Pað er erfitt að meta hvort Trimble hefur í raun verið neyddur tii að ganga veg sátta og málamiðlana, eða hvort hann er í raun og veru raunsæisstjómmálamaður sem sá hvað gera þurfti og var reiðubúinn til að stíga skrefin sem þurfti að stíga. í öllu falli var Trimble árið 1998 búinn að tryggja sér megna fyrirlitningu fyrrum stuðningsmanna sinna en að- ciáun leiðtoganna í London og Wash- ington. I þessari bók breska blaðamanns- ins Henrys McDonald, sem starfar nú fyrir víkublaðið Observer en hefur áður verið útsendari BBC og Sunday Times á Irlandi, er leitast við að rekja feril Trimbles, allt frá því hann hóf af- skipti af stjómmálum í kringum 1970 en þá hafði hann nýverið lokið laga- námi og var farinn að kenna við laga- deild Queens-háskóla í Belfast. Ýmis- legt athyglisvert kemur á daginn, t.d. átti hann dyggan þátt í því að tilraun- in til að mynda samstjóm kaþólikka og mótmælenda á Norður-írlandi 1974 fór út um þúfur; athyglisvert í ljósi þess að síðar átti hann eftir að "5ðtýra sambærilegri heimastjóm. Það kemur vel fram í þessari bók að Trimble nýtur sín ekkert alltof vel í sviðsljósi fjölmiðlanna, er kauðskur í mannlegum samskiptum og lítt í tengslum við dægurmenningu sam- tímans. Getur hins vegar rakið óp- erusöguna frá a-ö og þekkir einnig sín léttvín. Hvað stjórnmálin varðar má segja að niðurstaðan sé sú að Trimble leysi það erfiða hlutverk að teyma mótmælendur á Norður-ír- landi inn í nýja öld eins vel og hægt er. Hann fer að vísu löturhægt, að _ mati margra, en hann verður líka ^ávallt að vara sig á því að ganga ekki of langt, gerði hann það stæði hann eftir einn - stjómmálaleiðtogi án um- boðs. Bókin veitir innsýn í líf þessa stjómmálamanns en Mður fyrir það að höfundur hefur sennilega sett þennan texta saman á sex mánuðum. Davíð Logi Sigurðsson Forvitnilegar bækur AUGLYSINGAR LOFA OLLU FOGRU Sætari - hamingjusamari Að vera sætur er mikil- vægast. Svo mætti ætla af auglýsingunum. Silja Björk Baldursdóttir skoðaði töfralausnir og A thottsttné atagic shaáts! v> Jij. *?'4r4.. « *»* WKX-M. « Uk»* «.*?**»» •M&s Íí- It Íc»"> atf et«r •«».'. Ii «» rmn»»ra( yJ ití W't'rt’e* erz.*** btvf %*«. Ofi* ef tka-nArxS *h*d* t i* >uii f gylliboð frá fyrri tíð og lét selja sér ýmislegt. ENN þann dag í dag reyna auglýs- ingamar að selja okkur hamingjuna. Við virðumst ekki hafa lært af reynslunni og höldum áfram að kaupa og kaupa. Það er nóg að ein- hver lofi okkur fegurð, þá bara borg- um við. Okkur þykir kannski nóg um allar ilmvatnsauglýsingamar í dag og finnst við vera að drakkna í gagnslausu snyrtivöraflóði. En í bókinni Chinstraps, Nosemoulds & Corsets, eftir Rosemary nokkra Hawthorne, sjáum við að slíkt auglýsingaflóð er alls ekki nýtt af nálinni. Undirtitill bókarinnar, A Shopper’s Guide to Feminine Be- auty 1800s-1930s, gefur til kynna að kaupmenn hafa reynt að selja kon- um fegurðina í þó nokkuð mörg ár. Fegurðin er föl Mikið hljóta konur að vera ljótar - svo mikið er lagt í að selja þeim fegurðarlausnir, jafnt nú sem fyrr. Framboðið á fegrunar- lyfjum gefur góða vís- bendingu um fegurð- arímynd hvers tíma. Það sýnir um leið hversu breytilegar hugmyndir um_ fegurð konunnar era. í dag er önnur hver kona með litað hár og sumar skarta breyttum börmum, fullum af saltvatni eða sílíkoni. Það þykir í dag ekkert tiltökumál að breyta útliti sínu með öllum tiltækum ráðum og tækniframfarir era nýttar til hins ýtrasta í þágu útlitsins. En hvað gerðu kon- ur fyrr á tímum þegar engir vora þrekstig- arnir, engin fótanudd- tæki og engin andlits- lyítingin? Þær dóu ekki ráðalausar. Lífstykki, gúrku- mjólk við sólbrana, rafsokkar og hvaðeina. Það hefur nefnilega ekki svo mikið breyst. Og hvar er svo best að skoða úrvalið? Að sjálfsögðu í auglýsing- um tímarita og dag- Varaliturinn skapar blaða. konuna. Úrklippusafnið Það er alltaf gaman að róta í göml- um blöðum og þar má finna sitthvað forvitnilegt. Fréttir af liðnum at- burðum eins og þeir hafi gerst í gær. Ljósmyndir sem þekktir menn prýða - enn með hárið. Auglýsingar taka eflaust meira pláss í dag en þær gerðu, en engu að síður eru þær áberandi í gömlum blöðum. I umræddri bók hefur mynd- skreyttum auglýsingum frá fornri tíð verið safnað saman - meira með skemmtun í huga en lærdóm. Ur- klippunum hefur verið safnað úr breskum blöðum. Safnið er ekki ítar- legt en gefur ágætismynd af hug- myndum kvenna um sjálfar sig í meira en hundrað ár. Þær birta einnig hugmyndir auglýsenda um konumar, og um leið samtímans. Ekki horfa... *« #**■£* , H €•. K■**£•> Í *VW*S*V*<9 • * » iMú* *.imí t, o. **»*''•. 4 f. „The Bitch Rules“, Elizabeth Wurtzel. 117 bls. Quartet Books, London, 2000. Þunnt hár verður þykkt. Mjmdimar og gamli auglýsingatextinn tala sínu máli. Inn á milli hefur höfundur bókar troðið eigin athuga- semdum og gaman- sömum texta sem því miður missir marks. Hann er ekki fyndinn. Kannski að einhverjir lesendur hafi gaman af heimatilbúnum vísu- brotum og gjafabóka- texta, þar sem haldið er fram að allar konur vilji kunna að spila á pianó... Eðli bókarinn- ar er um að kenna - hún er líklegast ætluð til gjafa og skemmtun- ar í saumaklúbbum. Þótt textinn frá höf- undinum bæti ekki miklu við, gerir það ekki svo mikið til - auglýsingamar standa alveg fyrir sínu. Hvað áttu konurnar svo að kaupa? Eflaust hafa það frekar verið þær efnuðu sem höfðu tök á að kaupa fegurð- ina í krakku. Vörurnar sem konum voru seld- ar virðast margar heldur vafasamar í dag. Hver með réttu ráði myndi nú á tímum kaupa sér (eitraða) arsenik sápu? Sem gerir húðina fallega hvíta.... Og hver gæti staðist freistinguna að losna við freknur á nóttunni? Bara að bera á þær bleikingar- krem og þær renna af. Sumar vörar þurfti að mýkja með munnvatni áður en hægt var að nota þær - semsagt spýta ofan í þær fyrst og tannsápa var þarfleg nýjung, þótt henni fylgdi kvöð reglulegrar tannburstunar. Enn í dag kaupa konur púður og varasalva, augnháralit sem og vara- lit en fæstar myndu fjárfesta í gervi- augabrúnum í dag. Loforð eins og: „Allir feitir lækn- ast með Trilene-töflum“ vora algeng sem og töfralyf sem unnu bót á öll- um kvillum. Nýtískulegar gervitenn- ur breyttu lífi margra, enda líktust gömlu gervitennurnar hljómborði sembals. „Burt með undirhökuna með andlitshöldurum“ - þarfaþing sem horfið hefur af sjónarsviðinu, ólíkt hárspennum sem komu, sáu og sigraðu. Til að lagfæra skaða sem fylgdi illa hönnuðum skófatnaði, gátu konur svo klemt á sig tæki á nóttunni sem lag- aði og rétti af- skræmdar tær. Lífið var svo einfalt. Tveir fyrir einn Auglýsingabrell- ur virkuðu þá og virka enn. Margt af því sem í bók- inni er að finna hljómar alls ekki svo afleitlega. Sumt væri jafnvel alveg hægt að markaðssetja í dag með góðum árangri. Að minnsta kosti á sjón- varpsmarkaði. Athyglisvert er að auglýsingum var ekki einungis beint að veik- lunduðum konum, heldur einnig að börnum. Það þykir nú vafasamt í dag. Ekki er heldur verið að selja þeim skólajógúrt og skólaskyr heldur nefvélar - vélar sem gera nef falleg; rétta þau og fegra. Börnunum var líka seld fegurðin. Þurfa svo ekki öll börn að fara í tannréttingar... Læknarnir lögðu blessun sína yfir hinar ýmsu vörur, sem að sjálfsögðu jók á trúverðuleika auglýsingarinn- ar. Svoleiðis brellur tíðkast enn í dag. Læknarnir lofuðu að viðkom- andi vara væri fullkomnlega mein- laus, en seinni tíma lesendur geta leyft sér að efast um áreiðanleika þesskonar yfirlýsinga. En það vora ekki einungis læknarnir sem lögðu nafn sitt við auglýstar vörar. Leik- konur, frægar franskar dömur og furstadætur gulltryggðu sölu og gera líkast til enn í dag. Fræga fólk- ið fylgir með auglýsingunum. Af auglýsingum má lesa hvenær megran komst í tísku, hvenær and- litsfarði þótti penn og hvenær ein- ungis hæfa hóram. Reyrð mitti í líf- stykkjum eru liðin tíð en auglýsingin sjálf lifir góðu lífi. Hún mun gera það svo lengi sem fólk trúir, lætur glepj- ast og kaupir. Máttur auglýsingar- innar er vanmetinn. Þær senda skýr (alltof skýr) skilaboð til kvenna hvemig þær „eiga“ að vera og skerpa á kröfum um hina einu réttu kvenlegu fegurð. Þú verður að vera fullkomin - annars ertu ekki neitt. Við gefum nú ekki mikið fyrir það. STELPUR eiga að hætta að horfa á lélegar bíómyndir. Engar myndir með Söndru Bullock - takk fyrir. Elizabeth Wurtzel er ekki ein um að langa til að hrista upp í kynsystrum sínum - eða slá utan undir öllu heldur. En hún lætur hins vegar verða af því. Hún ræðst á „konuna“ og reynir að koma viti fyrir hana. Hætta þessu rugli og vera almennileg. f þessari þriðju bók sinni einfaldar Eliza- beth Wurtzel málið fyrir lesendum sín- um. Hún tekur sig til og leggur þeim lífsreglurnar - fáar og auðskiljanlegar. Eins og reglan um Söndru Bullock... En líka: Hafðu skoðanir. Ekki neita þér um eft- irrétti. Og ef strákarnir standa ekki upp frá borðinu til að vaska upp í matarboðinu - þá gerir þú það ekki heldur. Oftar en ekki enda ráð- leggingarnar á sama veg: Fyrst strákar leyfa sér að hugsa svona - þá hlýtur þú að mega það líka. Hún ávarpar stelpur í bókinni og beinir máli sínu eingöngu til Samt sem _ætu strákar rekist á ýmislegt sem gagnlegt væri að átta sig á. En stelpu-lesandinn eignast góða vinkonu við lesturinn, sem kannski skammar þig aðeins, en þykir samt alltaf vænt um þig. Hún seg- ir hreinskilin frá sjálfri sér og við- urkennir fúslega að hafa klúðrað (og að hún klúðri enn) mörgu í lífi sínu. Því upplifir lesandinn lífs- reglurnar ekki sem predikun frá heilagleika, heldur sem ráðlegg- ingar frá venjulegri manneskju, sem aðeins vill koma í veg fyrir að aðrir geri sömu mistök og hún. Hún talar af reynslu - ekki úr há- sæti. Hún vill stelpum vel, en er jafnframt stundum hissa og von- svikin á öllu kjaftæðinu í þeim. Hreint ekki spör á yfii-lýsing- arnar lýsir Elizabeth frati á það sem henni sýnist og er ekkert að tala snyrtilega. Hún segir bara það sem henni finnst. Hér er samt enginn nýr sannleikur á ferðinni. Stelpur og aðrar konur ættu sjálf- ar að hafa fattað þetta fyrir löngu - en það hafa þær því miður ekki allar. Þetta er því ágætis köld vatnsgusa fyrir þær. Hinir geta bara lesið sér til gamans. Og glaðst yfir því að einhver skuli hafa vit á að segja það sem þarf að segja: Ekki vera heilalaus. Silja Björk Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.