Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 71
DAGBOK
BRIDS
llnisjón (iuðmundur Páll
Anmrson
í VÖRN er ágæt regla að
losa sig hið fyrsta við spil
sem er verðlaust og sagnhafi
veit um. Það verður þá erfið-
ara fyrir hann að draga upp
heildarmynd af spilinu.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 4
v AKG10
♦ KDG4
+ D965
Vestur Austur
* 53 * G742
v D875 v 6432
♦ 97 * Á1032
+ G10873 + K
Suður
+ KD10986
»9
♦ 865
+ Á42
Vestur Norður Austur Suður
- 1 tígull Pass lspaði
Pass 2 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4grönd *Pass 5spaðar*
Pass Pass 6spaðar Pass Pass
* Roman lykiispilaspurning-
in og suður sýnir tvö lykil-
spil og spaðadrottningu.
Vestur spilar út laufgosa
og sagnhafi fer illa af stað
þegar hann stingur upp
drottningunni í blindum.
Hann drepur kóng austurs
og svínar hjartagosa í ör-
Væntingu. Það heppnast og
næsta verk er að henda
tveimur laufum niður í ÁK í
hjarta. Nú er bara trompið
eftir. Sagnhafi tekur ásinn
og trompar lauf. Þá kemur í
ijós að austur hefur byrjað
með kónginn blankan. Suð-
ur tekur nú spaðakóng og
staldrar við. Á hann að taka
á spaðadrottningu eða reyna
trompbragð á austur? Hvað
er vitað um skiptinguna?
Vestur byrjaði með fimmlit í
laufi og a.m.k fjögur hjörtu -
hafi vestur ekki hent hjarta-
drottningu undir ás eða
kóng! Ef vestur er með þrílit
í spaða, þá á hann aðeins
einn tígul og hefði vafalítið
komið þar út.
Málið er afgreitt: Austur
á gosann fjórða í trompi og
sagnhafi spilar tígli að blind-
um. Hann notar aðra tígul-
innkomuna til að trompa
lauf og hina til að spila úr
borði í tveggja spila enda-
stöðu, þar sem austur á G7 í
spaða en suður D10.
Vestur mátti sjá að
hjartadrottningin var verð-
laust spil og hefði því átt að
henda henni undir strax eft-
ir svíninguna. Þá gæti sagn-
hafi ekki áttað sig á skipt-
ingunni og myndi vafalítið
taka þrjá efstu í spaða.
Ast er...
9-20
... smá snerting.
Arnað heilla
Hf f\ ÁRA afmæli. í dag,
I V/ fóstudaginn 3. nóv-
ember, verður sjötug Björg
Olafsdóttir, Vanabyggð 7,
Akureyri. Eiginmaður
hennar er Jósef Kristjáns-
son. Þau taka á móti gestum
laugardaginn 4. nóvember
ki. 15 á Græna hattinum,
Hafnarstræti 96, Akureyri.
P A ÁRA afmæli. Nk.
UU sunnudag, 5. nóvem-
ber, verður fimmtug Guð-
björg Ingimundardóttir,
Drangavöllum 3, Keflavík.
Hún og eiginmaður hennar,
Sigurður G. Ólafsson, taka
á móti gestum laugardaginn
4. nóvember kl. 16-19 í Golf-
skálanum í Leiru.
TVÖFALT GULLBRÚÐKAUP. Á morgun, laugardaginn 4.
nóvember, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ragnheiður
H. Hannesdóttir og Víglundur Sigurjónsson, Hagamel 34,
Reykjavik, og hjónin Stefama Siguijónsdóttir og Jón
Guðnason, Árskógum 8, Reykjavík. Af því tilefni taka þau
sameiginlega á móti ættingjum og vinum í Víkingasal Hótels
Loftleiða frá kl. 15-18 á afmælisdaginn.
SKÁK
llm.sjón llelgi Áss
(irélarssun
HVAÐ sem h'ður spurning-
unni um hver sé heims-
meistari í skák eru flestir
sammála um að Rússinn Al-
exander Khalifman (2667)
sé heimsmeistari alþjóðlegu
samtaka skáksambanda,
FIDE. Gengi hans hefur
verið í meira lagi skrykkjótt
síðan hann varð heimsmeist-
ari FIDE fyrir rétt rúmu
ári. Það var ákaflega
sætt fyrir hann að á með-
an einvígi Kasparovs og
Kramniks stóð yfir, sigr-
aði hann með yfirburðum
á sterku skákmóti í
Hoogeveen í Hollandi.
Staðan kom upp á mótinu
á milli hans og Jan
Timman (2639) sem
þurfti að lúta í gras fyrir
Rússanum knáa. 29.Hc8!
Dg7 29...Hxc8 tapar
drottningunni eftir
30.Rxf7+. 30.Hxf8+
Dxf8 31.Rd7 Dg7 32.f6
Hxf6 33.Rxf6 Dxf6 34.Khl
Dxd4 35.Dc3 Dg7 36.He7 og
svartur gafst upp saddur h'f-
daga. Lokastaða mótsins
varð þessi: 1. Alexander
Khalifman 5V£ vinningur af 6
mögulegum, 2. Jan Timman
3 v., 3. Alexander Galkin 2
v., 4. Judit Polgar D/z v.
Unglingameistaramót ís-
lands verður haldið 3.-5.
nóvember og hefst kl. 19:30 í
kvöld í félagsheimili Taflfé-
lagsins Hellis, Þönglabakka
1 í Mjódd.
A|
IJ. A
:AftA|
&
Hvi'tur á leik.
LJOÐABROT
FJALLIÐ EINBUI
Hann Einbúi gnæfir svo iangt yfir lágt,
að iyngtætlur stara’ á hann hissa
og kjarrviðinn sundlar að klifra svo hátt
og klettablóm táfestu missa. -
Þó kalt hljóti nepjan að næða hans tind
svo nakinn, hann hopar þó hvergi.
Hann stendur sem hreystinnar heilaga mynd
og hreinskilnin, klöppuð úr bergi.
Stephan G. Stephansson.
STJÖRIVUSPÁ
eftir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt auðvelt með að um-
gangast fólk, en þérhættir
um oftii þess að vilja stjórna
lífi annarra.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Tii þess að koma þeim verk-
efnum áleiðis, sem þú berð
fyrir brjósti, verður þú að
leita þér aðstoðar. Ánnars
áttu á hættu að alit fari úr-
skeiðis.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt ekki að þurfa að standa
í einhverri valdabaráttu, sem
gerir ekkert nema að
skemma út frá sér. Leitaðu
sátta og leggðu þar þitt af
mörkum.
Tvíburar t ^
(21.maí-20.júní) 6n
Það getur stundum reynst
erfitt að velja á milli, þegar
mál eru flókin og margar leið-
ir til lausnar. Láttu innsæið
ráða; þú veist hvað er rétt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sú áætlun, sem nú er uppi, er
alltof áhættusöm. Taktu þér
tíma til þess að endurmeta
málin og finna réttu og far-
sælustu lausnina. Vertu sann-
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það þýðir ekkert að sýta það,
þótt þú hafir ekki getað kom-
ið öllu frá þér síðast. Þú bætir
bara úr næst þegar tækifæri
gefst og þá verður myndin
heil.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (Bu.
Góður vinur leitar ásjár hjá
þér og þú verður að gefa þér
tíma til þess að sinna honum.
Erfið verkefni krefjast oft
ferskra lausna.
(23. sept. - 22. okt.)
Gerðu þér grein fyrir ástæð-
um þess sem þú tekur þér
fyrir hendur. Það hjálpar þér
að vinna verkin og tryggir að
afraksturinn verði eins og þú
vilt.
Sþorðdreki ™
(23. okt.-21.nóv.)
Ef þig dreymir stöðugt um að
komast burt skaltu hrista af
þér slenið og drífa í flutningi.
Þótt einhver röskun verði
nærðu þér fljótt á strik aftur.
Bogmaður
(22. nóv.-21. des.) ítSi
Þú þarft að venja þig á að
flytja mál þitt með þeim hætti
að viðmælendur þínir viti upp
á hár hvert þú ert að fara.
Annað kemur þér bara í koll.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar) áSf
Þú verður að ganga til verks
af fuliri einlægni og ekki láta
það hindra þig þótt ekki séu
allir á einu máii um starfsað-
ferðir þínar.
Vatnsberi f .
(20. jan. -18. febr.) Gsnl
Það er um að gera að notfæra
sér meðbyrinn til þess að
koma málum sínum heiium í
höfn. Njóttu svo afraksturs-
ins og leyfðu þínum nánustu
að vera með.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) >W>
Nú virðist viðra vel til breyt-
inga og því skaltu velta fyrir
þér þeim tækifærum sem þér
bjóðast. Mundu bara að vera
einlægur við sjálfan þig.
Stjörnuspána á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
gninni vísindalegraslaðreynda.
GRÁCEr
T.ISKUVERSLUN
AFMÆLISTILBOÐ
15—30% afsláttur af yfirhöfnum
og síöbuxum í dag og næstu daga.
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Suðurlandsbraut 50, (Bláu húsunum við Faxafen.)
sími 553 0100
Ný sending
Silkiblússur
Opið laugardag
frá kl. 10-16
Hverfisgötu 78, sími 552 8980.
MONT
BIANC
O
Oumir hlutir minna
okkur a að við töpum
tíma við að reyna að
finna tima
Meisterstuck
Skipuleggjari
THE ART OF WRITING YOUR LIFE
Skriffsri • Leðurvörur • Skartgripír
Montblanc leðurvörur
FJALLIÐ HVÍTA, Miðhrauni 22b, 210 Garðabœ, sími 565 4444
15jsi|ur Siugardiiur
ecco-
City Walker
Teg. 13764
Litur Brónir
Stærðir 40-47
Verð-8r995^
Tilboð 5.995,
Verð-7r995r
Tilboð 4.995,-
D0MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
Opið laugardag frá kl. 10-16
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS