Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frumvarp byggt á niðurstöðum nefndar um tekjustofna sveitarfélaga
3,7 milljarðar til
sveitarfélaganna
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Kristjánsson formaður nefndar um tekjustofna sveitarfélaga, Geir
H. Haarde fjármálaráðherra og Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
Standandi eru Unnar Stefánsson starfsmaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og Viihjálmur Þ. Vilhjálmsson forrnaður sambandsins.
PÁLL Pétursson félagsmála-
ráðherra greindi frá því í gær, á
ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga um fjármál sveitarfé-
laga, að hann hygðist á næstu dög-
um leggja fram frumvarp sem
byggist á niðurstöðum nefndar um
tekjustofna sveitarfélaga.
Hann sagði að í frumvarpinu fæl-
ist meðal annars að hámarks-
heimild sveitarfélaga til útsvars-
álagningar yrði hækkuð í tveimur
áföngum, alls um 0,99% og að tekju-
skattsprósenta ríkisins myndi
lækka um 0,33%.
Lagt er til að frá 1. janúar 2001
hækki hámarksheimild til útsvars-
álagningar um 0,66% og verði þá
12,70% í stað 12,04% og að frá 1.
janúar 2002 hækki hún um 0,33% og
verði þá 13,03% í stað 12,70%. Lagt
er til að 0,33% lækkun tekjuskatts-
prósentunnar komi öll til fram-
kvæmdar 1. janúar 2001, um 0,33%.
Álagningarstofn fasteigna-
skatts verði fasteignamat
Páll sagði að í frumvarpinu fælist
einnig að álagningarstofn fast-
eignaskatts verði fasteignamat.
„Breytingin hefur í för með sér
verulega lækkaðar álögur fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki utan höfuð-
borgarsvæðisins, en með þessari
breytingu er skatturinn lagður á
raunverulegt verðmæti fasteigna,"
sagði Páll.
Einnig sagði hann að ríkið legði
700 milljónir á fjáraukalögum þessa
árs og 700 milljónir á fjár-
aukalögum næsta árs í fólksfækk-
unar- og þjónustuframlög. Þannig
færu samtals um 3,7 milljarðar
króna beint úr ríkissjóði til sveitar-
félaganna, það er að segja 1250
milljónir vegna tekjuskatts, 1100
milljónir til að leiðrétta fasteigna-
skatt og 1400 milljónir vegna fólks-
fækkunar- og þjónustuframlaga,
auk þess sem hærri álagningar-
heimild myndi færa þeim um 2500
milljónir í tveimur áföngum.
„Rétt er að undirstrika að verk-
efni [tekjustofna]nefndarinnar var
að tryggja að tekjustofnar sveitar-
félaga væru í samræmi við þau
verkefni sem sveitarfélögum er lög-
skylt að sinna. Aldrei var meiningin
að tekjuauki sveitarfélaganna kæmi
eingöngu frá ríkinu," sagði Páll og
benti auk þess á að sjálfstæði sveit-
arfélaganna fylgir ábyrgð og mögu-
leikar til ákvarðanatöku hjá sveit-
arstjórnarmönnum.
Páll velti upp þeirri spurningu
hvort sveitarfélög muni nota álagn-
ingarheimildirnar að fullu, en benti
á þörfin væri mjög misjöfn. Hann
tók fram að ónýtt heimild í útsvari
væri um 400 milljónir miðað við
álagningu árið 1999, vegið meðal-
útsvar væri 11,96%, en hámark
12,04%. Hann sagði einnig að ekki
yrði endilega um skattahækkun að
ræða hjá þeim sveitarfélögum sem
nýttu hækkunarheimildir.
„í fyrsta lagi verkar breyting á
fasteignaskatta sem skattahækkun
þar sem matsverð er lægra en í
Reykjavík. í öðru lagi hefur stór-
felld hækkun barnabóta verið
ákveðin og í þriðja lagi léttir hinn
nýi fæðingarorlofssjóður veruleg-
um kostnaði af sveitarfélögunum,“
sagði Páll.
Umdeilt að ríkið skuli ekki
draga enn meir úr skattheimtu
Vilhjálmur Þ, Vilhjálmsson, for-
maður sambands íslenskra sveitar-
félaga, sagði í ræðu sinni að það
mikilvægasta við niðurstöður tekju-
stofnanefndarinnar væri að nú
hefði loks fengist full viðurkenning
á þeirri staðreynd að tekjustofnar
sveitarfélaga hafi ekki verið í sam-
ræmi við lögskyld verkefni þeirra.
Komið væri til móts við það sjónar-
mið í megintillögu nefndarinnar um
hækkun útsvars á næsta ári um
0,66% og 0,33% hækkun á árinu
2002, auk 700 milljóna framlags í
jöfnunarsjóð sveitarfélaga á þessu
ári og næsta ári. Vilhjálmur sagði
að eftir sem áður væru skiptar
skoðanir á því hvort þessi leiðrétt-
ing nægði til að mæta þeirri stað-
reynd að tekjustofnar sveitarfélag-
anna hafi ekki verið í samræmi við
lögskyld verkefni þeirra.
„Það á einnig við þá umdeildu
niðurstöðu að ríkið skuli ekki draga
úr sinni skattheimtu í samræmi við
aukið svigrúm til útsvars á árinu
2002. Fulltrúar sambandsins í
tekjustofnanefnd telja að auka
þurfi árlegar tekjur sveitarfélag-
anna í heild sinni um 6 til 7 millj-
arða króna og að nú séu forsendur
til að ríkið geti að sama skapi dreg-
ið úr skattheimtu sinni. Þeir harma
að fulltrúar ríkisvaldsins í nefnd-
inni hafi ekki fallist á að koma
nægilega til móts við þeirra tillögur
og útfærslur þar að lútandi,“ sagði
Vilhjálmur.
Veruleg ívilnun fyrir íbúa
landsbyggðarinnar
í ræðu sinni sagðist Geir H. Ha-
arde telja að tekjustofnanefndin
hefði leyst verkefni sitt vel af hendi.
Vitaskuld væri um ákveðna mála-
miðlun að ræða af beggja hálfu, en
nú þegar niðurstaða hefði náðst
yrði að tryggja framgang málsins
og jafnframt að huga að því hvernig
samráði og samskiptum ríkis og
sveitarfélaga mætti best fyrir koma
í framtíðinni.
Geir sagði að sú breyting að ríkið
tæki að sér að greiða tekjutap sveit-
arfélaganna vegna breyttrar við-
miðunar við álagningu fasteigna-
gjalda, sem næmi um 1100
milljónum króna, væri veruleg
ívilnun fyrir íbúa landsbyggðarinn-
ar, bæði fólk og fyrirtæki. Auk þess
greiddi ríkissjóður á þessu ári og
næsta 700 milljónir króna í Jöfnun-
arsjóð sveitarfélaga.
Geir sagðist ekki telja að það
væri eðlileg krafa að ríkið lækkaði
tekjuskatt til jafns við aukningu út-
svarsheimilda.
„Það tekjutap sem sveitarfélögin
kunna að hafa orðið fyrir undanfar-
in ár, eða kostnaður vegna aukinna
verkefna, hefur ekki leitt til auk-
inna tekna ríkissjóðs nema þá í und-
antekningatilfellum," sagði Geir og
benti auk þess á að sveitarfélögin
hefðu verið rekin með tapi allan
þennan áratug en að það stafaði
ekki nema að hluta til af skattaleg-
um aðgerðum ríkisvaldins. Því væri
óeðlilegt að krefjast þess að ríkið
mætti þessu tapi að fullu með eftir-
gjöf á sínum tekjustofnum, en
tekjutapi sveitarfélaganna yrði
einnig að mæta með því að auka al-
mennt svigrúm sveitarfélaganna til
að auka tekjur sínar.
„Eg er reyndar þeirrar skoðunar
að útsvarsálagningarheimildin eigi
að vera rúm og þar með svigrúm
forsvarsmanna sveitarfélaganna til
að afla tekna í bæjar- eða sveitar-
sjóði,“ sagði Geir og sagðist telja
eðlilegt að þeir bæru ábyrgð á þeim
skattbreytingum sem þeir teldu
þörf á og tækju ákvörðun um.
Geir sagði einnig að tillögur
tekjustofnanefndar myndu leiða til
þess að staða ríkissjóðs yrði á
næsta ári nokkru lakari en gert
væri ráð fyrir í fjárlagafrumvarp-
inu, eða sem næmi rúmlega 3 millj-
örðum króna, þar af næmi lækkun
tekjuskatts um 1250 milljónum.
„Það verður erfitt að bæta lakari
stöðu ríkissjóðs með aðgerðum á
öðrum sviðum og því tel ég mjög
mikilvægt að auknar tekjur sveitar-
félaga renni til þess að bæta fjár-
hagsstöðu þeirra en leiði ekki til
aukinna útgjalda," sagði Geir.
Garrí Kasparov
fallinn af stalli
SKAK
L o n d o n
KASPAROV - KRAMNIK
8.10-4.11.2000
SKÁK
VLADIMIR Kramnik tókst það
sem flestum þótti óhugsandi í upp-
hafi og sigraði í einvíginu við
Kasparov. Fimmtándu skákinni
lauk með jafntefli og eftir hana er
staðan 8‘á-61á, Kramnik í vil. Til
að bæta gráu ofan á svart, þá tap-
aði Kasparov einvíginu án þess að
takast að vinna skák og hefur
reyndar aldrei náð að sigra
Kramnik í kappskák. Það þarf að
leita langt aftur í sögu heims-
meistaraeinvígja til að finna
heimsmeistara sem tapaði einvígi
án þess að vinna eina einustu
skák. Líklega gerðist það síðast í
einvígi þeirra Capablanca og
Laskers 1921. Þetta verður að telj-
ast frekar dapurlegur endir á 15
ára glæstum ferli Kasparovs sem
heimsmeistara, þar sem baráttu-
gleði, frumleiki og góður undir-
búningur hafa verið einkenni hans.
Framtíðin verður að leiða í ljós
hvort hann nær sér aftur á strik.
Kasparov er hins vegar greinilega
einn af fáum, sem eru spámenn í
sínu eigin föðurlandi, því hann
sagði einmitt fyrir mörgum árum,
að Kramnik mundi taka við af sér
sem heimsmeistari.
Menn eru sammála um að miðað
við taflmennskuna var Kramnik,
sem er fyrrverandi nemandi og að-
stoðarmaður Kasparovs, mjög vel
að sigrinum kominn og verður nú
að teljast sterkasti skákmaður
heims. Kramnik sýndi ótvírætt
hversu ánægður hann var með sig-
urinn að skákinni lokinni þegar
hann rak báðar hendur með
kreppta hnefa á loft. Með þessum
úrslitum er Kasparov fallinn af
stalli sem óumdeilanlega sterkasti
skákmaður heims. Þótt honum
tækist að vinna titilinn aftur þá
hefur Kramnik sýnt, að Kasparov
er ekki lengur einn á toppnum.
Kasparov, sem hafði hvítt í 15.
skákinni, tefldi katalónska byrjun í
fyrsta sinn í einvíginu og náði
fljótlega heldur betri stöðu.
Kramnik varðist sem fyrr mjög vel
og eftir 38 leiki varð Kasparov
ljóst, að engir vinningsmöguleikar
voru í stöðunni og bauð Kramnik
jafntefli.
15. einvígisskákin
Hvítt: Kasparov
Svart: Kramnik Katalónsk byrj-
un
l.d4
Nú er það Kasparov sem tekur
málin í sínar hendur og leikur í
fyrsta skipti í einvíginu 1. d4, enda
væntanlega orðinn þreyttur á að
berja höfðinu við Berlínarmúr
Kramniks.
l...Rf6 2.c4 e6 3.g3 d5
Eftir þetta fer byrjunin yfir í
Katalónska vörn. Kramnik ætlar
að tefla traust, enda engin ástæða
til annars.
4.Bg2 Be7 5.Rf3 0-0 6.0-0 dxc4
7.Dc2 a6 8.Dxc4 b5 9.Dc2 Bb7
10.Bd2
Vel þekkt staða, sem kom m.a.
upp í heimsmeistaraeinvígi Karp-
ovs og Kasparovs 1984.
Stöðumynd 1
10.. .Be4 ll.Dcl Bb7 12.Bf4 Bd6
13.Rbd2 Rbd7 14.Rb3 Bd5 15.Hdl
De7
Þetta var eitt af fáum skiptum í
einvíginu sem Kasparov hafði um-
talsvert betri tíma en Kramnik.
Hann hafði notað 20 mínútur, en
Kramnik 50.
16.Re5 Bxg2 17.Kxg2 Rd5
(Stöðumynd 1)
Hvítur hefur nú aðeins betri
stöðu þar sem veikleika má finna á
drottningarvæng svarts.
18.Rc6 Rxf4 19.Dxf4 De8
19.. .Bxf4 gekk ekki vegna 20.
Rxe7 og hvítur vinnur.
20. Df3 e5
Svartur nær að losa um sig með
þessum leik.
21. dxe5 Rxe5 22.Rxe5 Dxe5
23.Hd2 Hae8 24.e3 He6 25.Hadl
Stöðumynd 2
Hf6 26.Dd5 De8
Kramnik forðast drottningar-
uppskipti, líklega í fyrsta skipti í
einvíginu, en hann hefur sýnt
mikla útsjónarsemi í endatöflum.
27.Hcl g6 28.Hdc2 h5
Kasparaov var nú orðinn nokkuð
tímanaumur, átti eftir 12 mínútur
á næstu 12 leiki, en Kramnik átti
20 mínútur til góða.
29.Rd2 Hf5 30.De4 c5 31.Dxe8
Hxe8
Loks nær Kasparov drottning-
aruppskiptum og fær þar með
betra tækifæri til að reyna að færa
sér peðameirihlutann á kóngs-
vængnum í nyt.
32.e4 Hfe5 33.f4 H5e6 34.e5
Be7 35.b3 f6 36.Rf3 fxe5 37.Rxe5
Hd8 38.h4 Hd5 og hér var samið
jafntefli að tillögu Kasparovs.
(Stöðumynd 2)
Eftir skákina tók Kasparov af
allan vafa um það að hann hefði
undirbúið sig rækilega fyrir ein-
vígið. Kramnik hefði einfaldlega
snúið á hann, þannig að hann gat
aldrei sýnt það sem hann hafði
undirbúið. Menn ættu eftir að sjá
það á næstu stórmótum, að hann
hefði haft fjölmargar öflugar nýj-
ungar í handraðanum.
Kasparov sagði að í einvíginu
hefði hann ekki haft neinar góðar
byrjanir til að tefla gegn byrjana-
vali Kramniks og það hefði haft
áhrif á taflmennskuna. Kramnik
svaraði að það væri nú kannski
ekki skýringin á úrslitunum, því
um miðbik einvígisins hefði sér lið-
ið svipað. Það má sjá á svörum
Kramniks á blaðamannafundum,
að hann berst einnig fyrir sínu ut-
an skákborðsins.
Síðasta skákin í einvíginu verður
tefld á laugardag og hefst klukkan
15 að íslenskum tíma. Það var um
það samið fyrir einvígið, að allar
16 skákirnar skyldu tefldar.
Unglingameistaramót íslands
Skáksamband íslands heldur
Unglingameistaramót íslands 2000
(fyrir skákmenn f. 1980 og síðar)
dagana 3.-5 . nóvember. Tefldar
verða sjö umferðir eftir Monrad-
kerfi. Keppnin hefst klukkan 19:30
í kvöld í Hellisheimilinu, Þöngla-
bakka 1 í Mjódd.
Atskákmót Reykjavíkur
Atskákmót Reykjavíkur stendur
nú yfir í Hellisheimilinu. Davíð Ól-
afsson er efstur eftir fjórar um-
ferðir með fjóra vinninga. Arnar
E. Gunnarsson og Kristján Eð-
varðsson eru í 2.-3. sæti með 3Á
vinning. Keppninni lýkur á
mánudagskvöld í Hellisheimilinu.
Daði Örn Jónsson