Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 27
Þemadagar
í Grunn-
skólanum í
Bakkafírði
Bakkafírði. Morgunblaðið.
ÞEMAVIKA var nýlega haldin í
Grunnskólanum í Bakkafírði þar
sem Ieitast var við að kynna þau
lönd og það fólk sem hér er að
vinna og hefur í sumum tilfellum
sest hér að, mest Taílendingar og
Pólverjar.
Farið var yfir það með krökkun-
um hvar löndin eru, hvernig fánar
þeirra líta tít og hvemig málið
hljómar. Þegar btíið var að kynna
hvert land var svo eldaður matur
frá viðkomandi landi. Taflendingar
elduðu sinn mat og Pólveijar sinn
og buðu nemendum og kennurum í
mat. I lokin bauð eldri deildin öllum
sem komið höfðu að þemavikuni í
íslenskt Iambalæri þar sem yngri
deildin sá um skreytingu á borði,
þar bjuggu þau til servíettuhringi
sem á vora teiknaðir fiskar, alla
vega á litinn, sem bitu í sporðinn á
sér og átti það mjög vel við.
Afkoma ríkis-
sjóðs hag-
stæðari en
áætlað var
INNHEIMTAR tckjur rfldssjóðs á
fyrstu tíu mánuðum ársins voru 10,4
milljörðum króna umfram greidd
gjöld, samanborið við 11,3 milljarða
króna afgang á sama tíma í fyrra og
1,4 mifljarða afgang árið 1998. Þetta
er rúmum 5 milijörðum króna hag-
stæðari niðurstaða en áætlanir höfðu
gert ráð fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá
fjármálaráðuneytinu felst skýringin á
heldur minni rekstrarafgangi en á
síðasta ári í tæplega 5 milljarða króna
hækkun vaxtaútgjalda rfldsins á
greiðslugrunni milli ára, fyrst og
fremst vegna sérstakrar forinnlausn-
ar spariskírteina á þessu ári. Þetta
skýrir einnig að verulegu leyti minni
lánsfjárafgang í ár en í íyrra auk þess
sem nettóútstreymi rfldsins í formi
veittra lána nam um 5V4 milljarði
króna í ár, samanborið við jöfnuð í
fyrra og nettóinnstreymi árið 1998.
A fyrstu tíu mánuðum ársins námu
afborganir eldri lána 34,1 milljarði
króna en nýjar lántökur 28,7 milljörð-
um. Greiðsluafkoma rfldssjóðs var því
neikvæð um hálfan milljarð króna,
eða 5 milljörðum króna hagstæðari
niðurstaða en í fyrra.
Atvinnu-
leysi í októ-
ber 0,9%
RÍFLEGA 28 þúsund atvinnu-
leysisdagar voru skráðir í októ-
bermánuði síðastliðnum á land-
inu öllu, ríflega 10 þúsund dagar
hjá körlum og tæplega 18 þús-
und dagar hjá konum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun hefur skráð-
um atvinnuleysisdögum fjölgað
um tæplega 1.400 frá mánuðin-
um á undan en hins vegar fækk-
að um tæplega 13 þúsund frá
októbermánuði 1999. Mannafli
á vinnumarkaði í október 2000
er áætlaður 139.699 manns.
Atvinnuleysisdagar í október
síðastliðnum jafngilda því að
1.302 manns hafí að meðaltali
verið á atvinnuleysisskrá í mán-
uðinum. Þar af eru 473 karlar
og 829 konur. Þessar tölur jafn-
gilda 0,9% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði samkvæmt
spá Þjóðhagsstofnunar eða
0,6% hjá körlum og 1,4% hjá
konum.
FRÉTTIR
Sttílkuraar i Grunnskólanum í Bakkafírði f óða önn að
undirbtía matseldina.
Eldri deildin bauð öllum sem komið höfðu að þemavikunni upp á ís-
lenskt lambalæri, þar sem yngri deildin sá um skreytingu á borðum.
w w w. I a n d s b a n k i. i
Utanlandsferöirr á betci kjörum fyrir Vöröufélaga
m* |N| "i;. ||
■h ’M 1 * 1 i
Nýttu þér Vöröupunktana þína í ódýra utanlandsferö. Þér býöst aö fara til Amsterdam, njóta lífsins innan um iöandi
mannlifiö á sikisbökkunum, versla eöa bara slappa af. Þú getur einnig flogiö til Minneapolis eða Baltimore. í Minneapolis
fmnurþú stærstu verslunarmiðstöö heimsins, Mall of America.
Til Amsterdam Til Minneapolis og Baltimore
Q Verð: 12.000 kr. og 10.000 punktar. Q Verð 21.000 kr. og 15.000 punktar
Tímabil: 23. nóvember - 15. desember (siðasta heimkoma) Tímabil: 23. nóvember - 15. desember (siðasta heimkoma)
í tengslum við Ameríkuflugin bjóðum við 50% afslátt af Vildarferöum með TWA. Hægt er að fljúga innan Bandaríkjanna fyrir frá 10.000
punktum. Frá Baltimore til Hawaii þarf t.d. aðeins 26.000 punkta.
Síðasta heimkoma 31. desember.
ftóksr.ir og nérsf í uppiýiinosr é sóiwskr HWvm fluttieiðif eös
LíindshÉmkinn