Morgunblaðið - 19.11.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 29
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS 50ÁRA
Jón Eyþórsson veðurfræðingur, stofnandi og fyrsti formaður
Jöklarannsóknafélagsins.
Matast á veröndinni sunnan við skálann á Grímsíjalli sumarið 1998.
Morgunblaðið/Magnús Tumi
Pað var brotið blað í
j öklarannsóknum á ís-
landi um þetta leyti
vetrar fyrir réttum
fímmtíu árum en þá var
Jöklarannsóknafélag Is-
lands stofnað. Allar göt-
ur síðan hefur vitneskja
og skilningur á þessum
einkennum lands vors,
sem jöklarnir eru, hlað-
ist upp, mannskepnunni
til mikilla hagsbóta,
Morgunblaðið/Magnús Tumi
Borun með heitavatnsbor í Grímsvötnum 1998. Bor þessi eyðilagðist í gosinu í Grímsvötnum sama ár.
Hálf öld frá upphafi
skipulegra jöklarannsókna
endurnýjun þar enda Breiðamerk-
urjökull mikilvægur í jöklarann-
sóknum.
Loks verður hér rakinn þríþætt-
ur tilgangur félagsins. I fyrsta lagi
að standa fyrir rannsóknum á jökl-
um. Vorferðin, sem farin er í júní,
er þar í öndvegi og hefur verið fast-
ur liður í starfseminni allar götur
frá stofnun félagsins. Annað megin-
rannsóknarefni félagsins er mæling
á stöðu fjölmargra jökulsporða en
þær mælingar hóf Jón Eyþórsson
um 1030.
í öðru lagi stendur JÖRFÍ fyrir
útgáfu tímaritsins Jökuls. Það kem-
ur út einu sinni á ári og eru í því
greinar á ensku og er eina íslenska
fræðiritið sem .gefið er út í þeirri
mynd. Útdrættir eru á íslensku, en
að öllu leyti er efnið meðhöndlað á
sama hátt og gert er í alþjóðlegum
vísindaritum. Einnig er í ritinu ým-
iss fróðleikur um jökla og frásagnir
af jöklaferðum. Upplagið er 800
stykki. í þriðja lagi stendur JÖRFÍ
fyrir fræðslufundum nokkrum sinn-
um á ári. Reynt er að hafa fyrir-
lestrana bæði fræðilega og alþýð-
lega með myndasýningum til að
gera þá aðgengilegri. Þeir eru öll-
um opnir og • hefur aðsókn verið
góð.
gagns og gamans.
JÁ, ÞAÐ eru fimmtíu ár síð-
an Jón Eyþórsson, veður-
fræðingur og áhugamaður
um jökla á Islandi, blés til
stofnfundar Jöklarann-
sóknafélagsins. 42 mættu á stofn-
fund og fimm til sex ánim síðar
voru félagar orðnir 250. I dag eru
þeir rúmlega 500.
JÖRFÍ er sérkennileg blanda
vísindamanna og áhugafólks, enda
eru rannsóknir á jöklum umfangs-
mikil iðja og veitir ekki af sam-
vinnu manna úr ýmsum geirum
þjóðfélagsins. Formaður félagsins,
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir samkrull og
samvinnu skíðamanna, jeppamanna,
vélamanna og vísindamanna blátt
áfram nauðsynlega og erlendis sé
eftir þessu sérkenni félagsins tekið.
„í félaginu eru vísindamenn og fólk
sem hefur gaman af því að fara á
jökla,“ segir Magnús Tumi.
Jón Eyþórsson var kjörinn fyrsti
formaður JÖRFI og gegndi hann
formennsku í 18 ár, eða til dauða-
dags. Þá tók við Trausti Einarsson
prófessor en hann lét af for-
mennsku eftir eitt ár. Við af honum
tók doktor Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur sem sat næstu 14 ár-
in, þar til hann lést 1983. Því næst
komu Sigurjón Rist í 4 ár, Svein-
björn Björnsson i 3 ár, Helgi
Björnsson í 9 ár og síðan Magnús
Tumi Guðmundsson sem er að
ljúka þriðja ári sínu sem formaður.
Hlutverkið breytt
Fyrstu áratugina voru rannsókn-
ir JÖRFÍ nánast þær einu sem
gerðar voru á íslenskum jöklum og
alla tíð snerust þær mest um
Vatnajökul þótt aðrir jöklar hafi
einnig komið við sögu. Félagið hef-
ur í gegnum árin komið sér upp
góðri aðstöðu, aðallega á Vatnajökli
og enn fremur á Langjökli og síð-
ustu árin, er stofnanir eins og
Landsvirkjun, Orkustofnun og
Raunvísindastofnun Háskólans hafa
færst í aukana með eigin rannsókn-
ir, hefur JÖRFÍ í vaxandi mæli
gegnt því hlutverki að leggja til
mannskap og aðstöðu. Auk þess að
leggja til vinnu í ferðum má nefna
að félagið hýsir jarðskjálftamæla og
fleiri mælitæki í skála sínum á
Grímsfjalli. Þá hefur vinnuframlag
sjálfboðaliða félagsins skipt miklu
máli fyrir nokkur verkefni fram-
haldsnema við Háskóla Islands og
erlenda háskóla.
Aðstaðan og tilgangurinn
JÖRFÍ hefur komið sér upp ýms-
um mannvirkjum, öllum að einu
undanskildu á Vatnajökli. Þetta
eina er 6 til 12 manna skáli á Fjall-
kirkju í Langjökli. Hin mannvirkin
eru öll á eða við Vatnajökul.
Stærstu miðstöðvarnar eru á
Grímsfjalli. Þar er 24 manna skáli,
skáli með mælitækjum og jarðhita-
orkuveri og hús sem er bæði elds-
neytisgeymsia og salemi. í Jökul-
heimum er einn 20 manna skáli,
annar 8 til 20 manna skáli, bíla-
geymsla og eldsneytisgeymsla. Þá á
félagið bragga og bflageymslu við
Breiðá á Breiðamerkusandi, 6 til 12
manna skála í Kverkfjöllum og 6 til
12 manna skála í Goðahnjúkum. Þá
hafa tvisvar verið reistir skálar í
Esjufjöllum, en báðir fuku, annar
árið 1966 og hinn 1999. Stefnt er að
BESTA VETRARFRIIÐ
10. janúar - 2+ vikur - fá sæti
STÓRA THAILANDSFERÐIN
VINSÆLASTA
AUSTURLANDA-
Austurstrati 17, 4. hæð, 101 Reykjavik, simi 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@ heimsklubbur.is, heimasiða: hppt://www.heimsklubbur.is
FERÐIN
á einstökum kjörum. ef
staðfest er núna.
Auðvelt,
ódýrt flug, frábær
gisting í heimsklassa,
tekur öllu fram.
SÉRTILBOÐ
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN
TRAVEL NETWORK
Fyrir frábærar ferðir
PERÐASKRIFSTOFAN
Pí\|MA»
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS