Morgunblaðið - 19.11.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 39 t
+ Magna Sæ-
mundsdóttir
fæddist á Krakavöll-
um í Flókadal í
Fljótum 19. septem-
ber 1911. Hún lést
13. nóvember síðast-
liðinn. Hún var dótt-
ir hjónanna Sæ-
mundar Dúasonar,
bónda og síðar kenn-
ara í Fljótum, í
Grímsey og á Siglu-
firði, og Guðrúnar
Þorláksdóttur.
Systkini Mögnu
voru: Þorlákur, f.
1913; Dúi, f. 1913, en þeir voru
tvíburar og létust aðeins nokk-
urra vikna; Karl, f. 1919, látinn;
Jón, f. 1922, býr í Keflavík; og
Hrafn, f. 1933, býr í Kópavogi.
Magna giftist Emil Helga And-
ersen frá Siglufirði en þau slitu
samvistir. Börn þeirra voru Sæ-
Elsku amma mín.
Nú er komið að kveðjustund, nú
heíúr þú fengið hvíldina og ert ör-
ugglega sátt við það. Á tímamótum
sem þessum fer hugurinn að reika og
minningarnar hrannast upp í ótal
myndum. Ég var svo lánsöm að eiga
þig sem ömmu, þú varst svo fróð um
alla hluti og áttir svo auðvelt með að
leggja manni ráðin um gang lífsins.
Frá minni barnæsku eru flestar
minningar tengdar þér því það voru
ófáar stundirnar sem ég eyddi hjá
þér í Hríseyjargötunni þar sem þú
bjóst lengst af ævi þinnar. Ibúðin þín
var sérstök, hún var eins og lítið safn
sem alltaf var jafngaman að skoða,
þú áttir svo mikið af alls konar hlut-
um sem þú hafðir safnað eða búið
sjálf til. Þú varst svo lagin í höndun-
um og dundaðir þér mikið við sauma,
listmálun eða hvers kyns föndur. Á
þeim tímum þegar ég var sem mest
hjá þér var það ekki bara daglangt
heldur gisti ég flestar nætur hjá þér
líka. Þú sagðir mér svo skemmtileg-
ar sögur áður en ég fór að sofa á
kvöldin, ég gat aldrei sofnað án þess
að þú segðir mér eina sögu. Svo
kenndir þú mér mörg spil t.d. Kas-
ínu, Marías og Lönguvitleysu sem
við gátum oft spilað tímunum saman.
Eitt sinn keyptir þú segulbandstæki
og ég hafði svo gaman af því að taka
upp samtölin okkar, oft án þess að þú
vissir af því, og þegar ég var að taka
til í gömlu dóti um daginn þá fann ég
eina spólu síðan fyrir mörgum árum
þegar ég hafði verið að taka upp eitt
af þessum samtölum okkar og ég get
sagt þér það amma mín mér finnst
það ómetanlegt að hafa fengið að
heyra röddina þína einu sinni enn, þó
svo að það hafi ekki verið langt, þá
sagði það svo mikið. Þessa spólu ætla
ég að varðveita vel. Minningarnar
frá jólunum úr Hríseyjargötunni eru
líka sterkai', þú varst aldrei með
neitt venjulegt jólatré heldur fóram
við í bæinn fyrir hver jól og keyptum
grenigreinar sem þú síðan bast á
gamlan jólatrésfót en auðvitað leit
það út eins og jólatré, síðan vai- það
mitt hlutverk að skreyta, reyndar
skreytti ég alltaf hjá þér fyrir hver
jól þegar ég var yngri. Síðan héldum
við okkar litlu jól daginn eftir þrett-
ándann, þá tókum við niður jóla-
skrautið, brenndum niður restina af
kertunum og borðuðum afganginn af
jólanamminu og auðvitað gáfum við
hvor annarri gjöf og sungum, þetta
er eitt af því sem ég hugsa um hver
jól, „litlu jólin“ okkar í gamla daga.
Ég gæti skrifað endalausar minning-
ar um þig, amma mín, síðan úr minni
æsku þetta er aðeins brot af þvi sem
við brölluðum saman. Þegar árin
færðust yfir kom að því að þú gast
ekki lengur verið ein heima og sætt-
ist loks á að fara á Dvalarheimilið
Hlíð, þar áttir þú eftir að una þér vel
í góðum höndum starfsfólksins og
talaðir þú svo oft um það hversu gott
þú hefðir það og hve vel væri hugsað
um þig og allt gamla fólkið. Á Hlíð
eyddir þú síðustu árum ævi þinnar.
Eg hitti þig síðast helgina fyrir af-
mundur E. Ander-
sen, f. 8. desember
1936, kvæntur Lilj-
an Andersen, f. 18.
ágúst 1937 í Noregi.
Þau eru búsett á
Dalvík. Börn þeirra
eru: Emil Magni,
Birgitta, Sæmundur
Hrafn og Dúi Krist-
ján; Margrét Emils-
dóttir, f. 9. júlí 1941,
d. 25. maí 2000.
Fyrri maður Mar-
grétar var Júlíus
Thorarensen en þau
slitu samvistir. Böm
þeirra eru: Kolbrún, Hallgrímur,
Valdimar Lárus og Magna Ósk.
Seinni maður Margrétar var
Hörður Guðmundsson.
IJtfór Mögnu verður gerð frá
Akureyrarkirkju mánudaginn
20. nóvember og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
mælið þitt, þú áttir ekkert von á að
sjá mig og varst svo hissa þegar ég
kom og kallaðir: „Nei, er grjónið
mitt komið,“ þú kallaðir mig það svo
oft. Við spjölluðum saman um liðna
og nýja tíma, auðvitað hvarflaði það
ekki að mér að þetta væri síðasta
skiptið sem við ættum eftir að hitt-
ast. Við töluðum síðan saman á af-
mælisdaginn þinn, þú varst svo glöð
og ánægð með daginn og hálfundr-
andi hversu margir mundu eftir
þessum degi því þú hafðir nú ekkert
verið „að auglýsa" það að þú ættir af-
mæli, þú hafðir alveg gamansemina í
þér þrátt fyrir aldurinn. Aðfaranótt
mánudagsins 13. nóvember sl. sofn-
aðir þú svo svefninum langa, ég er
viss um að mamma hefur tekið vel á
móti þér og núna fylgist þið með okk-
ur að ofan. Ég á eftir að sakna þess
að geta ekki heimsótt þig á ferðum
mínum til Akureyrar en minningin
um þig mun lifa með okkur um
ókomna tíma. Ég kveð þig núna,
elsku amma mín, takk fyrir allt.
Þín
Magna Ósk.
Um þreytta limu líður sælukennd.
Ég Ut með brosi yfir farna vegi.
Og hlægir það, er aftur upp ég stend,
hvað yfirstíga má á næsta degi.
Og er það ekki mesta gæfa manns
að milda skopi slys og þrautir unnar,
að finna kímni í kröfum skaparans
og kankvís bros í augum tilverunnar?
(Om Amarson.)
Það var í lok september sl., að ég
leit síðast við hjá henni Mögnu. Þá
bjó hún í fallega herberginu sínu að
dvalarheimilinu Hlíð með útsýni yfir
Eyjafjörð til Vaðlaheiðai’.
Þá var henni tíðrætt um gömlu
dagana, æskuheimilið að Krakavöll-
um í Flókadal, Vesturfljótum, fegurð
fjallanna og ljúfu dalina þar sem hún
þekkti hvern stein og hól, árin á
Siglufirði, flutninginn til Akureyrar
og heimilið að Hríseyjargötu 2 þar
sem hún bjó lengst af á Akureyri.
Á þessari stundu var heldur ekki
hjá því komist að umræðan snerist
um raunveruleika lífsins og atburði
síðustu missera en segja má - og er
þá vægt til orða tekið, að of stórt
skarð hafi verið höggvið í ástvina-
hópinn hennar á stuttum tíma en
eins og hún sagði: „Þetta er þessi
blákaldi raunveraleiki sem aldrei er
umflúinn og fyrir marga oft erfitt að
sætta sig við“.
Það var gott einmitt á þessari
stundu að fá tækifæri til að ræða við
Mögnu, líka um það erfiða og óþægi-
lega, og Magna hafði einnig svör við
þeim hlutum. „Hennar skoðun var að
það væri mikilvægt hverri mann-
eskju að temja sér jákvæðan hugs-
unarhátt, það væri ekki nóg að forð-
ast ósæmileg orð, það þyrfti líka að
temja sér góðvild í hugsun, lögmálið
forna um sáninguna og uppskerana
væri alltaf í fullu gildi. Við erum sí-
fellt að sá fræjum, góðum eða slæm-
um í samskiptum okkar við annað
fólk og þá væri gott að hafa í huga að
allt sem við látum frá okkur kemur
til okkar aftur. Kannski ekki endi-
lega strax en það kemur einhvem
tíma með einum eða öðrum hætti.
Þess vegna skulum við reyna að vera
sátt, sátt við lífið og umfram allt okk-
ur sjálf því þannig höfum við afger-
andi áhrif á það hvemig líf okkar
þróast, við höfum öll fengið efnivið til
að vinna úr, það er undir okkur sjálf-
um komið hvemig til tekst“. Þetta er
aðeins stutt lýsing á lengra samtali.
Rökhyggja og frásagnarhæfileiki
Mögnu var með þeim hætti að hlust-
að var með athygli og málfar hennar
bæði fallegt og undravel framsett. -
Þetta var ein af þessum einstöku
stundum í lífi manns þegar atburðir
daganna era dregnir fram svo ljós-
lega að eftir stendur saga, eins og
mynd, sem er máluð í fegurstu litum
með handbragði meistarans.
Ég kynntist Mögnu Sæmunds-
dóttur fyrst í ársbyrjun 1957, mér er
það enn mjög minnisstætt vegna
þess hve hún var alvöragefin og
íhugul. Seinna vissi ég að þar fór
kona gædd miklum gáfum og heiðar-
leika - kona sem átti auðvelt með að
koma beint að efninu ef þurfti að
ræða einhver mál.
Það er gæfa hvers og eins að eiga
samleið með góðu samferðafólki,
fólki sem er ólatt við að aðstoða aðra
og leiðbeina, í þeim hópi var „Magna
Sæmundar", eins og hún var oft köll-
uð meðal vina, sem nú hefur kvatt
þetta tilverustig og okkur sem eftir
lifum um sinn.
Það eru góðar minningar og mér
mikils virði sem fylla hugann þegar
kveðjustundin nú rennur upp og er
mér þær Ijúft að þakka.
Ég hef stundum sagt það við böm-
in mín að þau nutu sérstakra forrétt-
inda að eiga slíka ömmu sem leiddi
þau fyrstu sporin, kenndi þeim og
hughreysti er á móti blés - hún
Magna átti svo auðvelt með að færa í
orð það sem aðrir aðeins hugsuðu,
þess vegna sátu aldrei eftir nein
vandamál eða misskilningur í sam-
skiptum hennar við aðra.
Éitt skeið er nú rannið. Við kveðj-
um sannan vin, ekki með trega, held-
ur með reisn og virðingu - allt sem
þú gerðir og sagðir,- það varir.
Július Thorarensen.
Elsku Magna langamma.
Nú ert þú farin. Við systkinin sitj-
um hér saman og hugsum um þig.
Það er margs að minnast, þú varst
góð og yndisleg manneskja.
Þú varst mjög fróð kona, hafðir
lesið mikið og vissir svo margt. Það
var alltaf gaman að hlusta á sögum-
ar sem þú sagðir okkur af þér ungri í
Fljótunum og af ömmu Möggu þegar
hún var lítil. Ef okkur skorti ein-
hverja vitneskju var gott að heim-
sækja þig, þú gast frætt okkur um
svo mikið.
Á hverjum afmælisdegi okkar
systkinanna gafstu okkur handgerð
kort sem þú hafðir málað á með
vatnslitum. Þú varst mjög handlag-
in, saumaðir út, heklaðir og málaðir,
það liggja mörg falleg verk eftir þig,
púðar, myndir, dúkar o.fl.
Á hverju vori fór mamma með þig
á Grísará og við systkinin með til að
kaupa sumarblóm, þú varst mikil
blómakona og keyptir alltaf sérstök
blóm og plantaðir þeim á sérstakan
stað í blómabeðinu þínu fyrir framan
húsið þitt í Hríseyjargötunni.
Jólin era einnig sérstaklega minn-
isstæð. Þú komst alltaf til okkar og
við skárum út laufabrauð og þú
söngst jólalög með okkur. Á jóladag
komstu til okkar í hádeginu og við
borðuðum hangikjöt og laufabrauð
og áttum yndislegar stundir saman.
Síðustu ár þín dvaldistu á Dvalar-
heimilinu Hlíð og undir þér vel þar,
talaðir alltaf um hvað það væri hugs-
að vel um þig og hvað allir væru góð-
ir þar.
Elsku langa, þú áttir svo erfitt
með að sætta þig við að amma
Magga, einkadóttir þín, kvaddi í
blóma lífsins. Það var mikið áfall og
lagðist sorgin þungt á þig.
Núna hefur þú fengið þína hinstu
hvílu og sorginni af þér létt.
Elsku langa, hvíl þú í friði.
Þín langömmubörn,
Linda, Anna og Einar Ingi.
MAGNA
SÆMUNDSDÓTTIR
Elsku Magna mín.
Þegar ég hugsa um þig brosi ég
því það koma upp góðar minningar.
Þú varst svo merkileg kona og verð-
ur mér alltaf svo kær. Þegar ég var
lítil varstu svo góð að leyfa mér að
hafa þig fyrir ömmu en við voram
líka miklar vinkonur og skrifuðumst
á í mörg ár.
í bréfunum þínum sagðirðu mér
sögur frá því þegar þú varst lítil,
fréttir af fjölskyldunni þinni og alltaf
hafðirðu með ljóð. Bréfin þín vora
mér ómetanleg. Ég skrifaði þér síð-
ast bréf í desember í fyrra og mér
þótti svo vænt um að þú svaraðir
mér. Þú skrifaðir sjálf og sagðir mér
hvað þér liði vel á dvalarheimilinu,
reyndar liði þér svo vel að þér fannst
þú vera sem ungbarn í annað sinn!
Oftast þegar ég hitti þig var það
að sumri til svo ég sé þig fyrir mér
fyrir utan húsið þitt í Hríseyjargötu
á fallegum sumardegi. Það var gam-
an að heimsækja þig, þú áttir alltaf
smákökur og það var margt að skoða
hjá þér, myndir og allt smádótið sem
þú áttir.
Þetta verður víst síðasta bréf mitt
til þín, elsku pennavinkona.
Gleðin er fífill
ígarðimanns
ogljóð,semvaknar
ávörumhans-
vaknar af leiknum
liðlangan dag,
þegarfífillinnsofnar
um sólarlag.
(Þorsteinn Valdimarsson.)
Elsku Magna, ég gleymi þér
aldrei.
Þín vinkona og í þykjustunni
barnabarn,
Bára Kolbrún.
Langri ævi er lokið, nú er Magna
öll. Hún var sterk kona, ein af styrk-
ustu stoðum stórfjölskyldunnar og
alltaf var gott að leita til hennar.
Hún var mjög listræn og allt lék í
höndunum á henni, saumaskapur,
matargerð og seinna alls konar fónd-
ur svo sem silkimálun.
Hún hélt dagbók í mörg ár.
Hún hafði mikinn áhuga á ætt-
fræði og kunni mikið af vísum. Hún
vissi margt um ættina og um gamla
daga en fylgdist líka með unga fólk-
inu og var stolt af því. Magna mundi
eftir öllum afmælum í fjölskyldunni,
hringdi og spjallaði við afmælisbarn-
ið.
Hún bauð fullorðnu fólki að sunn-
an, sem kom til hennar, laufabrauð á
öllum árstímum og íslenskan kjarn-
góðan mat, heimabakað brauð o.fl.
En ungu fólki að sunnan bauð hún
upp á kjúkling og franskar sem hún
pantaði frá grillstað, svona var
Magna.
Hún var með afar sérstæða gesta-
bók. Hún tók myndir af öllum sem
komu og síðan setti hún þær í albúm
og síðar gátu ættingar séð fjöl-
skyldumyndir af sér mörg ár aftur í
tímann í albúmum Mögnu.
Magna hugsaði um aldraða for-
eldra sín og bjuggu þau þrjú saman
þar til gömlu hjónin fóru á hjúkrun-
arheimili. Verður henni seint þökkuð
sú hlýja og umhyggja sem hún sýndi
þeim. Þegar dóttir mín ung kvartaði
við Mögnu um að hún saknaði þess
að eiga enga ömmu sagði hún: „Ég
skal vera amma þín, mig munar ekki
um að bæta við mig einu ömmu-
bami“. Síðan byrjuðu þær að skrif-
ast á og Magna skrifaði henni og
lýsti því hvernig var að vera lítil
stelpa og unglingur um 1920. Hún
lýsti fermingarkjólnum sínum og
öðrum fatnaði, leikjum, skólabókum
o.fl. Þeirra samband hélst síðan þó líf
þeirra beggja breyttist auðvitað þeg-
ar fram liðu stundir. Magna var
ávallt mjög tengd mér og minni fjöl-
skyldu, við eldri systurnar fædd-
umst heima hjá henni og fylgdist hún
vel með okkur bræðrabörnum sín-
um.
Þegar ég var barn fór ég á hverju
sumri frá Siglufirði til þess að heim-
sækja Mögnu frænku. Við fóram oft
saman í Lystigarðinn og nutum
blómanna en Magna var mikil
blómaræktarkona og ræktaði blóm
utan við litla húsið sem hún bjó
lengst af í á Akureyri. Oft minntist
hún á blómagarðinn heima á Kraka-
völlum í Fljótum, það var hennar
æskuheimili. Þar uxu glæsileg reyni-
tré og lægri gróður blómstraði og
ilmaði í skjóli þeirra.
Síðustu árin var Magna á Dvalar-
heimilinu Hlíð. Hún varð fyrir þeirri
þungu sorg í vor að missa einkadótt-
ur sína. Það var stutt á milli þeirra
mæðgna en þær voru ætíð nátengd-
ar og vora síðustu mánuðirnir
Mögnu erfiðir. Fyrir nokkra síðan
sagði hún mér að hún væri sátt og
södd lífdaga og hefur verið hvfldinni
fegin.
Ég sendi ástvinum Mögnu innileg-
ar samúðarkveðjur frá fjölskyldunni
á Suðumesjum.
Guðrún Jónsdóttir.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
iiifararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
simi: 587 1960, fax: 587 1986