Morgunblaðið - 19.11.2000, Page 42

Morgunblaðið - 19.11.2000, Page 42
42 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ BHM styður kennara EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt samhljóða í miðstjórn BHM 15. nóvember sl.: „Fundur miðstjórnar Bandalags háskólamanna haldinn 15. nóvember 2000 lýsir yfir stuðningi við kröfur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskól- um og skorar á Samninganefnd rík- isins að ganga að þeim.“ Opið hús Bárugata 34, 2. hæð og ris »4. Vorum að fá í sölu stórglæsilega og mikið endurnýjaða efri hæð og ris í þessu fallega húsi. Búið er að endurnýja gler, glugga og innréttingu í eldhúsi. Parket á gólfum. íbúðin skiptist m.a. í þrjú svefnherbergi og þrjár stof- ur. Þetta er eign sem þú mátt ekki missa af. Áhv. 6,3 millj. Verð 16,9 millj. Marteinn býður ykkur velkomin í dag á milli kl. 14 og 17. Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050, www.hofdi.is i * * Alyktun frá Kennarasambandi Islands um verkfall framhaldsskólakennara Hætta á að skólarnir verði fyrir varanlegum skaða STJÓRN Kennarasambands ís- lands hefur sent frá sér ályktun um kjaradeilu kennara, námsráðgjafa og stjómenda í framhaldsskólum. Þar segir að verði ekki gerð bragar- bót í launamálum kennara, námsráð- gjafa og stjórnenda í framhaldsskól- um sé ljóst að starfsemi skólanna verði fyiir varanlegum skaða á næstu árum. Þess er krafist að fjár- málaráðherra veiti samninganefnd ríkisins skýr fyrirmæli og fullt um- boð til samninga við samninganefnd- ir framhaldsskólakennara. „Stjóm Kennarasambands Is- lands lýsir yfir áhyggjum sínum af þeim seinagangi sem einkennt hefur framgöngu ríkisvaldsins við lausn kjaradeilunnar í framhaldsskólum landsins. Stjórnin bendir á að nú era liðnir nálægt 18 mánuðir frá því full- trúar samningsaðila settust fyrst niður til að ræða þá alvarlegu stöðu sem launamál kennara, stjórnenda og námsráðgjafa í framhaldsskólum era í. Þá strax var ljóst að dagvinnulaun þessara hópa höfðu dregist veralega aftur úi' launum annarra hópa ríkis- starfsmanna með sambærilega menntun og ábyrgð. Þróun heildar- launa hefur einnig verið afar óhag- stæð þessum hópum. Þrátt fyrir að staða mála hafi verið kynnt mennta- mála- og fjármálaráðherra fyrir meira en ári hefur hvorugur þeirra sýnt þann pólitíska vilja eða kjark að koma að lausn þessarar deilu. Nú þegar verkfall hefur staðið hátt á aðra viku er enn ekki að sjá að ríkisvaldið ætli að taka á málinu heldur virðist sem ríkisstjórnin telji að málið komi sér ekki við. Þau skilaboð sem stjórnvöld senda nem- endum, kennuram og reyndar þjóð- félaginu í heild með þessari fram- komu era að menntun skipti ekki máli og um gildi hennar eigi ekki að ræða nema á hátíðisdögum. Stjórn Kennarasambands Islands krefst þess að fjánnálaráðherra veiti samninganefnd i'íkisins skýr fyrirmæli og fullt umboð til samn- inga við samninganefndir fram- haldsskólakennara. Verði ekki gerð bragarbót í launamálum kennara, námsráðgjafa og stjórnenda í fram- haldsskólum er Ijóst að starfsemi skólanna bíður varanlegan skaða af á næstu áram.“ FASTEIGNASALA Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Sími 520 7500 Suðurvangur 15 - Hf. - opið hús Glæsileg 97 fm 3ja herb. íbúð á þessum frábæra útsýnisstað við hraunið í norðurbæ Hafnarf. (búðin er innréttuð á smekklegan hátt. Góð herbergi. Nýtt eldhús. Góðar svalir. Laus fljótlega. Áhv. byggingarsj. 5,4 millj. Verð 12,4 millj. Vilhjálmur og Jóhanna taka vel á móti gestum milli kl. 14 og 17 í dag, sunnudag. Lækjargata 10 - Hf. - opið hús Glæsil. 115 fm sérh. auk 25 fm bílskúrs á þessum frábæra stað við tjörnina og miðbæinn. (búðin er öll ný standsett, parket og flísar á gólfi. Nýjar innréttingar, nýtt flísal. baðherb. 3-4 svefnherb. Laus fljótl. Verð 13,7 millj. Halldór og Sigríður taka vel á :i gestum milli kl. 14 og 17 i dag, sunnudag. ^ móti (t \ % FASTEIGNA <T- <3 MARKAÐURINN >- > ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Þingholtsstræti Heil húseign - 318 fm eignarlóð Heil húseign á þremur hæðum við Þingholtsstræti. Eignin, sem er 274 fm, býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika en er í dag innréttuð sem versl- unar- og íbúðarhúsnæði. Fjöldi bílastæða bakvið húsið. Góðir möguleikar eru á að stækka þetta hús. Ingólfsstræti Skemmtileg 150 fm íbúð á 2. hæð og í risi í þessu reisulega járn- klædda timburhúsi í Þingholtunum. Sérinngangur og góð lofthæð. Þvottaaðstaða í íbúð. Búið er að endurnýja pípulagnir hússins og rafmagn að mestu. Góð staðsetn- ing miðsvæðis í Reykjavík. Laugavegur - verslunarhúsnæði Gott verslunarhúsnæði á jarðhæð, vel staðsett á horni Laugavegs og Barónsstígs. Húsnæðið er samtals 218 fm og skiptist í 133 fm verslun- arhúsnæði auk góðrar lageraðstöðu í kjallara. Hægt er að skipta hús- y^næðinu í tvo hluta. Allar nánari uppl. á skrifstofu. J Grunnskolakennarar lýsa stuðningi við launakröfur FELAG grunnskólakennara hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingar um samningamál kennara. Sú fyrri er til stuðnings framhaldsskóla- kennurum: „Ársfundur Félags grannskóla- kennara lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur framhaldsskólakennara. Ársfundurinn hvetur samninga- nefnd ríkisins til að láta af ósveigjan- leika sínum og ganga nú þegar til samninga við framhaldsskólakenn- ara með opnum huga og vilja til að leysa deiluna. Nú gefst ríkisvaldinu tækifæri til að sýna í verki að það vilji efla menntun í landinu og stuðla að því að við verðum ekki eftirbátar annarra þjóða í menntamálum." Seinni yfirlýsingin snýst um samningamál grunnskólakennara: ,Ársfundur Félags grannskóla- kennara fagnar þeim yfirlýsta vilja samninganefndar launanefndar sveitaifélaga að hækka laun grann- skólakennara veralega. Ársfundur- inn vekur athygli sveitarfélaganna á að samkvæmt skoðanakönnun Gall- up telja um 80% íslensku þjóðarinn- ar laun kennara of lág. Jafnframt er mikilvægt að öllum sé ljóst að með samkomulagi sveitarfélaganna um kjarasamningsumboð skuldbinda þau sig til að hlíta samþykktum launanefndar sveitarfélaga og þeim kjarasamningum sem nefndin gerir fyrir þeirra hönd í öllum atriðum. Oheimilt verður að gera viðbótar- samninga í kjölfarið eins og raunin varð eftir síðustu samninga. Stand- ist þetta samkomulag verður næsti kjarasamningur ekki eingöngu lágmarkssamningur heldur einnig hámarkssamningur. Samningurinn verður að fela í sér veralegar hækk- anir umfram hæstu viðbótarsamn- inga. Ársfundurinn hvetur samn- inganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaga til að standa við þau markmið að gera nýjan samning áður en gildandi samningur rennur út um áramótin. Einnig hvetur ársfundurinn samningsaðila til þess að láta samningaviðræðurnar snúast um þau fjölmörgu atriði sem aðilar era sammála um en halda ágrein- ingsmálunum utan við viðræðurn- ar.“ Morgunverðarfundur um fíkniefnamál Kostnaður sam- félagsins vegna fíkniefnaneyslu Félagsfundur Kennara- félags Iðnskólans Krefjast þess að stjórnvöld axli ábyrgð Á FÉLAGSFUNDI Kennarafélags Iðnskólans í Reykjavík 14. nóvember sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Félagsfundur Kennarafélags Iðn- skólans í Reykjavík gagnrýnir harð- lega það áhugaleysi sem hefur ein- kennt framkomu stjórnvalda í yfirstandandi kjaradeilu ríkisins við Félag framhaldsskólakennara. Það kemur meðal annars fram í því að Samninganefnd ríkisins svarar ekki kröfum FF ‘eða leggur fram hug- myndir að lausn. Fundurinn krefst þess að stjórnvöld landsins axli ábyrgð og sjái til þess að SNR sinni kjaraviðræðum af alvöra. Alþingismenn og ríkisstjórn lands- ins hafa nú mikilvægt tækifæri til að koma til móts við kröfur FF um launaleiðréttingu og sinna skyldu um gerð kjarasamnings við FF. Með því móti geta þeir lagt sitt af mörkum svo launakjör kennara virki ekki hamlandi í öllu skólastarfi og setji jafnframt menntun ungmenna lands- ins í uppnám. Féiagsfundur Kenn- arafélags Iðnskólans í Reykjavík hvetur samninganefnd Félags fram- haldsskólakennara til dáða með ein- dregnum stuðningi við þau megin- sjónarmið um Iaunaleiðréttingu sem stjóm og samninganefnd FF hafa kynnt vegna gerðar kjarasamnings. “ NÁUM áttum - fræðsluhópur stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 29. nóvember kl. 8.30 - 10.30 í Sunnusal Hótel Sögu. Verð er 1.500 kr. með morgun- verði, óskað er eftir að þátttakend- ur staðgreiði við innganginn. Morgunverðarfundurinn er opinn öllum meðan húsrúm leyfir. Á fundinum munu Axel Hall sérfræðingur við hagfræðistofnun Háskóla Islands haldaerindi sem nefnist Fíkniefnaneysla og kostn- aður samfélagsins. Erindið er byggt á nýlegri bandarískri rann- sókn. Jón Kristjánsson þingmaður og formaður fjárlaganefndar mun fjalla um framlög ríkisins til fíkni- efnamála og skiptingu milli mála- flokka, þ.e. framlögum til toll- og BOÐIÐ er upp á sérstaka jóla- stemmningu í Hlöðunni á Selfossi fyrir fyrirtæki og aðra hópa. Það sem einkennir þessa skemmtun, sem nefnist Sveita-Santa, er lang- borðsstemmning á sveitasetri með gríni, glensi, fjöldasöng og jóla- lögum, segir í fréttatilkynningu. Farið er með hópana í rútuferð frá löggæslu, til forvarnastarfs og meðferðar. Fundarstjóri verður Guðberg K. Jónsson, Götusmiðjunni. Þátttaka skráist hjá bryndis- @bvs.is eða snjolaug@rvk.is. Samstarfshópur um fræðslu- og fíkniefnamál Náum áttum er opinn samstarfs- hópur um fræðslu- og fíkniefnamál með þátttöku: íslands án eiturlyfja, Vímulausrar æsku, Götusmiðjunn- ar, Barnaverndarstofu, Landlækn- is, fulltrúa framhaldsskólanna, Áfengis- og vímuvarnaráðs, Sam- starfsnefndar Reykjavíkur um afbrota- og fíkniefnavarnir, Lög- reglunnar í Reykjavík, Stórstúku íslands, og Heimilis og skóla. Reykjavík og á staðnum sér Eskimóabandið Húfan og harmon- ikuleikari um að halda uppi fjörinu með tónlist og söng. Sveita-Santa er á vegum ferðafyr- irtækins Eskimos og Ingólfsskála sem rúmar um 200 manns í sæti. Nánari upplýsingar og bókanir hjá eskimos@eskimos.is Jólahlaðborð í Hlöðunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.