Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 13
FRÉTTIR
Islenskir ráðherrar segjast ánægðir með niðurstöðu landbúnaðarráðherra Evrópusambandsins
Nánast fullur
sigur fyrir okkur
RÁÐHERRARNIR þrír sem hafa
beitt sér gegn þeim hugmyndum sem
uppi voru innan Evrópusambandsins
um að banna notkun fiskimjöls í
skepnufóður segjast ánægðir með
niðurstöðuna sem fékkst í Brussel í
gær. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra talar um nánast fullan sigur.
Einungis 4% af því fiskimjöli sem ís-
lensk fyrirtæki flytja út fer í fóður
jórturdýra.
Leyfilegt verður að nota fiskimjöl í
svína- og alifuglafóður en meginhluti
þess íslenska mjöls sem fer í skepnu-
fóður er einmitt notaður þannig.
Hins vegar verður notkun þess í fóð-
ur íyrir jórturdýr bönnuð og telja ís-
lensku ráðherrarnir slæmt að blanda
fiskimjöli inn í umræðu um kúariðu
vegna þess að engin hætta stafi af
fiskimjöli.
„Eg er mjög ánægður og sýnist að
hún þýði nánast fullan sigur fyrir
okkur. Það er ekkert aðalatriði fyrir
okkur þótt ekki verði leyft að nota
fiskimjöl í jórturdýr. Þegar mesta
fárið er farið af, menn átta sig á að af
þessu stafar ekki hætta, tel ég að
notkun fiskimjöls verði einnig leyfð
þar,“ segir Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra.
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra telur að niðurstaða Evrópu-
sambandsins sé viðunandi miðað við
aðstæður. „Mér finnst slæmt að fiski-
mjöli skuli vera blandað inn í þessa
umræðu, en skýrt hefur komið fram
að sú ákvörðun að banna það til jórt-
urdýra er eingöngu vegna ótta við að
öðrum mjöltegundum sé blandað
saman við það. Mikilvægt er að taka
íram að engum stafar hætta af fiski-
mjöli sem slíku,“ segir Halldór.
„Þessi niðurstaða er mjög jákvæð
fyrir fiskimjölsframleiðsluna hér á
Islandi því mestur hluti þess fiski-
mjöls sem við erum að selja og fer í
skepnufóðui', fer í svína og kjúklinga-
fóður,“ segir Ámi M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra. Þannig segir Árni
líklegt að niðurstaða fundarins hafi
ekki mikil áhrif á atvinnugreinina hér
á landi, þó svo að notkun fiskimjöls
verði ekki leyfð í fóður jórturdýra.
„Væntanlega verður kjöt- og
beinamjölið bannað í svína og kjúkl-
ingafóður, eins og jórturdýrafóður,
og þá getui- vel verið að það litla sem
nú fer í jórturdýrin muni vinnast með
einhverri viðbót þar,“ segir Ami.
Utanríkisþjónustunni hrósað
„Staðreyndin er eftir sem áður sú
að fiskimjöl hefur engin tengsl við
kúariðu og þar af leiðandi ætti að
vera óhætt að nota það í fóður jórtur-
dýra,“ segir Árni og bendir á að í
rökstuðningi íyrir þessari breytingu
sé fallist á að það séu engin eftirlits-
leg rök fyrir því að banna notkun
fiskimjöls í dýrafóður.
„Það sem er athyglisvert við allt
þetta varðandi kúariðuna, er að yfir-
völd era alltaf of sein að grípa í taum-
ana, hvort sem um er að ræða bresk
eða frönsk yfirvöld eða Evrópusam-
bandið. Og þegar þau grípa í taum-
ana er verið að leggja tÚ aðgerðir
sem era óþarflega miklar, til þess að
vinna aftur traust neytenda, en þar
með verður skaði atvinnugreinarinn-
ar meiri.“
Ámi ítrekar að niðurstaða fundar-
ins sé mjög jákvæð fyrir fiskimjöls-
framleiðsluna í landinu. Staðan hafi
verið mjög alvarleg en nú sé hins veg-
ar ekki ástæða til að hafa áhyggjur
og hrósar hann utanríkisþjónustunni
sérstaklega og segir hana hafa staðið
sig virkilega vel í málinu. Halldór Ás-
grímsson segir að mjög margir hafi
unnið gott starf við þetta mál. Allir
sem leitað hafi verið til hafi tekið
málaleitaninni vel og viljað sinna
málinu. Fyrir það sé hann þakklátur.
Davíð Oddsson telur að vinna íslend-
inga hafi haft áhrif þótt fleiri hafi
vissulega átt hagsmuna að gæta af
niðurstöðu málsins. Hann segir að
ráðherrarnir þrír hafi haldið neyðar-
fúnd um málið og skilgreint það sem
stórmál og því hafi verið fylgt mjög
vel eftir af hálfu utanríkisráðuneytis-
ins og annarra sem að því komu.
Halldór segir að utanríkisþjónust-
an hafi virkað ágætlega í málinu. „En
spumingin er hversu greiðan aðgang
við eigum að þeim sem era að vinna
að málinu," segir utanríkisráðherra.
Hann segir að vissulega standi Is-
lendingar utan við ákvarðanir á vett-
vangi Evrópusambandsins um mik-
ilsverð hagsmunamál. Þá sé reynt að
nota það samskiptaform sem fyrir
hendi er og við þessar aðstæður komi
til góða sambandið við Norðurlanda-
þjóðimar sem era í ESB.
Óþarfi að banna notkun
fiskimjöls í jórturdýr
Arni Mathiesen segir að næsta
skref sé að sýna fram á það að óþarfi
sé að útiloka fiskimjöl frá fóðri jórt-
urdýra.
„Það kannski hefur ekki svo mikla
praktíska þýðingu fyiir atvinnu-
greinina hjá okkur eins og er, en það
er auðvitað grandvallaratriði gagn-
vart vöranni að hún sé látin njóta
sannmælis og við þurfum auðvitað að
reyna að hafa áhrif á það,“ segir Ámi.
Halldór Ásgrímsson getur þess í
þessu sambandi að Islendingar ættu
erfitt með að skilja ef þeim yrði bann-
að að flytja kindakjöt til Evrópu-
sambandsins af því að fénu væri gefið
fiskimjöl. Getur hann þess að menn
þurfi sennilega ekki að hafa áhyggjur
af útflutningi lambakjöts því lömbin
séu ekki alin á mjöli.
4% í jórturdýrafóður
„Við öndum léttar og eram býsna
ánægðir með þessa niðurstöðu," seg-
ir Jón Reynir Magnússon, formaður
Félags íslenskra fiskmjölsframleið-
enda.
„Það má nota fiskimjölið áfram
eins og verið hefur nema það má ekki
lengur nota það í jórturdýrafóður, en
notkun fiskimjöls í jórturdýrafóður
er tiltölulega lítil.“
Jón Reynir segist telja, gróflega
áætlað, að einn þriðji hluti þess fiski-
mjöls sem fer héðan í fóðurfram-
leiðslu sé notað í svínafóður, einn
þriðji sé notaður í alífuglafóður, um
25% fari í fiskeldi, um 4% í jórtur-
dýrafóður og það sem eftir er í gælu-
dýrafóður.
Forstöðumaður Tilraunastöðvar HÍ
Mesta firra að riða
berist með fiskimjöli
GUÐMUNDUR Georgsson, for-
stöðumaður Tilraunastöðvai- Há-
skóla Islands í meinafræðum á Keld-
um, er vel að sér í rannsóknum á riðu
hvers konar í dýram og Creutzfeldt
Jakob-sjúkdómnum. Varðandi þá
umræðu í Evrópu þessa dagana að
banna eigi notkun á fiskimjöli í
skepnufóður sagði Guðmundur hana
„algjörlega út í hött“, eins og hann
orðaði það í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði það hina mestu firru
að kúariða eða önnur riða gæti borist
með fiskimjöli.
„Eg veit satt að segja ekki hvernig
stendur á því að þessi umræða kem-
ur upp. Vera kann að þeir treysti
ekki einhverjum sem selja fiskimjöl,
að slíkir aðilar drýgi mjölið með öðru
hráefni. Það er að minnsta kosti ljóst
að fiskur getur ekki verið með riðu,“
sagði Guðmundur.
Hann sagði að umræðan væri jafn-
fjarlæg þótt eitthvert skylt prótein
væri til í fiskum og t.d. nautakjöti.
Smitefni í kúariðunni væri eggja-
hvítuefni sem fyndist í mörgum teg-
undum spendýra. Hins vegar væra
háir þröskuldar fyrir þvf að efnið
bærist úr einni tegund í aðra. Því
fjarskyldari sem tegundirnar væra
því minni líkur væru á að eggjahvítu-
efnið bærist á milli.
„Eg veit ekki til þess að nokkrum
vísindamanni hafi dottið í hug að
fiskar geti borið þetta efni, nema þá
að um sérkennilegan fósturgalla sé
að ræða. Þessi umræða kemur mér
veralega spánskt fyrir sjónir," sagði
Guðmundur og undraðist að ein-
hverjir dýralæknar innan Evrópu-
sambandsins gætu verið þeirrar
skoðunar að riða gæti borist með
fiskimjöli.
Ljósmynd/Friðþjófar Helgason
Eftir ákvörðun landbúnaðarráðherra Evrópusambandsins í gær munu fiskiskip áfram geta sótt
loðnu á miðin til bræðslu í fiskimjöl til útflutnings.
Framkvæmdastjóri Bændasamtaka fslands um kúariðufárið 1 Evrópulöndum
Gæti aukið sölu á lamba-
kjöti og hækkað verðið
AÐ MATI framkvæmdastjóra
Bændasamtakanna, Sigurgeirs Þor-
geirssonar, hafa möguleikar skapast
fyrir útflytjendur á íslensku lamba-
kjöti að auka sölu lambakjöts til
markaða í Evrópu vegna kúariðu-
fársins sem þar geisar. Telur hann
verð geta hækkað og ekki sé vanþörf
á þar sem skilaverð til bænda hafi
verið alltof lágt. Sala á nautakjöti í
Evrópu hefur snarminnkað og veit-
ingahús era farin að taka nautakjöt
út af matseðlum sínum, samanber
frétt í Morgunblaðinu um helgina um
þekktasta matreiðslumeistara
Frakka sem setti lambakjöt á mat-
seðil nýjasta veitingahúss síns í stað
nautakjöts.
Útflytjendur á lambakjöti fylgjast
með gangi mála og íhuga einnig auk-
inn útflutning til Bandaríkjanna sök-
um hækkunar á gengi dollars gagn-
vart íslensku krónunni.
Framkvæmdastjóri Áforms - átaks-
verkefnis um sölu á lambakjöti telur
að Islendingar þurfi að vinna heima-
vinnuna varðandi uppranavottorð
betur áður en farið er í söluátak
vegna kúariðunnar.
Sigurgeir sagði við Morgunblaðið
að útflytjendur hlytu að fylgja þess-
ari stöðu í Evrópu eftir og skoða
möguleikana sem í boði væru.
„Það er nú einu sinni þannig að
eins dauði er annars brauð. Ef nauta-
kjöt verður sums staðar tekið út og
möguleikar opnast fyrir lambakjöt í
staðinn þá held ég að við eigum hik-
laust að notfæra okkur það. Við höf-
um kvóta og nægt magn af kjöti til að
flytja út til ríkja Evrópusam-
bandsins," sagði Sigurgeir en kvóti á
útflutning lambakjöts til Evrójiu hef-
ur verið um 1.100 tonn á ári. Utflutn-
ingurinn hefur verið langt undir
þeim mörkum, í nokkram hundrað-
um tonna og þá aðallega til Dan-
merkur.
Áður en sláturtíð hófst í haust vora
birgðir af lambakjöti nánast engar
hér á landi, þar sem neysla innan-
lands jókst veralega. Nákvæmar töl-
ur liggja ekki fyrir af núverandi slát-
urtíð en að sögn Sigurgeirs er talið
að aukning sé um 10% frá sláturtíð-
inni í fyrra.
Á þessu ári er áætlað að flytja út
um 1 þúsund tonn af lambakjöti, og
sagði Sigurgeir verðið hafa verið of
lágt til að bændur gætu sætt sig við
það til frambúðar. Hann taldi kúarið-
una auka líkur á að hærra verð fáist
fyrir lambakjötið. Skilaverð til
bænda í útflutningi á Evrópumarkað
hefur verið að meðaltali um 175 krón-
ur fyrir kílóið. Sigurgeir taldi að það
þyrfti að vera um 100 krónum hærra
til að teljast viðunandi.
Aukinn áhugi á
upprunavottorðum
Baldvin Jónsson er framkvæmda-
stjóri Áforms - átaksverkefnis um
sölu á lambakjöti á erlenda markaði.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að áður en seljendur lamba-
kjöts færa að heija á markaði í
Evrópu yrði upprunavottorð að vera
til staðar. Möguleikar á aukinni sölu
lambakjöts yrðu að öðram kosti ekki
til staðar. Staðan væri allt önnur og
betri í dag við svona aðstæður sem
kúariðan skapaði í Evrópu ef upp-
runavottorðum hefði verið komið á
fyrir fimm árum. Málstaður íslend-
inga hefði einnig verið sterkari, hvað
þetta varðaði, í fiskimjölsmálinu sem
nú væri komið upp.
Hann sagði áhuga verslanakeðja á
að kaupa mat sem hefði uppranavott-
orð sífellt vera að aukast. Ekki væri
nóg fyrir íslenska bændur að halda
því fram að þeir væra að selja góð
matvæli, vottorð þyrfti að vera til
staðar. Baldvin sagði stöðuna eiga
eftir að lagast með nýjum búvöra-
samningi þar sem gert væri ráð fyrir
sértækri gæðastýringu í landbúnaði.
En þetta hefði átt að gerast mun
fyrr, stjórnvöld hefðu dregið lappii'n-
ar í málinu.
Einnig horft til Bandaríkjanna
Sláturfélag Suðurlands hefur flutt
töluvert út af lambakjöti til Evrópu
og þá aðallega til Danmerkur. Að
sögn Steinþórs Skúlasonar, forstjóra
SS, hafa þeir möguleikar ekki verið
skoðaðir ennþá að auka útflutninginn
vegna kúariðunnar í Evrópu. I sam-
tali við Morgunblaðið sagðist hann
ekki hafa orðið var við aukna eftir-
spum eftir lambakjöti á mörkuðum
félagsins í Evrópu. Hann taldi áhrifin
frekar verða til langs tíma jákvæð
fyrir lambakjöt, þar sem litið væri á
það sem villibráð en ekki ræktað líkt
og nauta-, svína- og kjúklingakjöt.
Steinþór sagði tvennt hafa áhrif á
lambakjötsmarkaðina hjá sláturfé-
laginu. Annars vegar þróunin í
Evrópu, sem væri að einhverju leyti
neikvæð fyrir kjötsölu í heild en ætti
þó að hjálpa lambinu. Hins vegar
nefndi hann aðra þróun, sem gæfi SS
frekar tilefni til að líta til Bandaríkj-
anna en Evrópu, þ.e. hækkunin á
gengi dollars og frekar veik staða
evrópskra gjaldmiðla.
Á afurðaárinu, sem hófst með slát-
urtíðinni í haust, reiknar SS með því
að flytja út á bilinu 200 til 250 tonn af
lambakjöti til Evrópu. Er það svipað
magn og verið hefur.
Ekki náðist í forráðamenn Goða
vegna þessa máls í gær en þeir hafa
flutt út talsvert magn af íslensku
lambakjöti undanfarin ár.